Tíminn - 21.09.1989, Side 17
Fimmtudagur 21. september 1989
Tíminn 17
GLETTUR
Pierce Brosnan
Timothy Dalton
Verður valinn nýr Bond?
- Kemur Brosnan í staðinn fyrir Dalton sem næsti 007?
Timothy Dalton hefur
fengið góða dóma fyrir leik
sinn í þeim tveimur Bond-
myndum, sem hann hefur
leikið í, þ.e. „The Living
Daylights" og „Licence to
Kill“, og framleiðendur
segja að sæmileg útkoma
hafi orðið af þeim fjárhags-
lega. En sagt er að það þurfi
um 100 milljóna dollara tekj-
ur af Bond-mynd til að hún
beri sig, því að allur kostnað-
ur við gerð þeirra er svo
gífurlegur.
Nú hafa framleiðendur
hug á að breyta um leikara í
Bond-hlutverkinu. Þó Dalt-
on þyki góður, þá finnst
stjórnendum hann of alvar-
legur og eitthvað vanta upp
á kímnigáfuna og sjarmann.
Brosnan var fyrsta
val framleiðenda, -
en hann var þá
samningsbundinn
Þegar Roger Moore hætti
sem Bond höfðu stjórnendur
hug á að fá Pierce Brosnan í
hlutverkið, en hann var þá
bundinn af samningum við
NBC um sjónvarpsþættina
„Remington Steele.“
Pierce Brosnan er mjög
vinsæll leikari og hefur
stundum verið kallaður
„Cary Grant níunda ára-
tugarins". Brosnan er af
írskum ættum og segist hafa
ýmsa kosti og lesti frá sínum
írsku forfeðrum, svo sem
þungt skap. Hann reyni þó
að láta það ekki koma niður
á Cassöndru, konu sinni, og
börnunum þremur: Char-
lotte 15 ára, Christopher 13
ára, og Sean sem er 5 ára.
Stacy Keach sem
„KónguríSíam"
- Ég get vel skilið það, Inga mín, þegar þú grætur
yfir Dallas, - en að tárast yfir gosdrykkjaauglýsingu,
það er nú einum og mikið!
- Þú áttir að bakka honum út í... !
Leikarinn Stacy Keach,
sem oftast hefur sést í hlut-
verki einhverra „töffara",
hefur nú heldur betur breytt
um stíl. Hann er ekki mikið
líkur hinum svala Hammer
með byssuna á lofti f þessu
nýja hlutverki. Nú leikur
Stacy kónginn í Síam í nýrri
uppfærslu af söngleiknum
„The King and I“, sem Yul
Brynner lék í hér á árum
áður.
Stacy Keach leikur kóng-
inn en ensku kennslukon-
una, sem kemur til að kenna
börnunum hans, leikur Mary
Beth Peil.
Stacy er 48 ára. Hann
harðneitaði að láta raka af
sér hárið þó hann léki
kónginn, sem átti víst að
vera sköllóttur. Stacy segist
láta dekkja svolítið hár sitt
og skegg til að verða austur-
lenskari í útliti, - en láta
rakaásérhausinn,neitakk!
„Ég ætla að reyna að gefa
kónginum nýjan svip og gera
hann að ennþá flóknari
manngerð en hann hefur ver-
ið áður sýndur, á sviði eða í
kvikmynd," sagði leikarinn
Stacy Keach.
Yul Brynner fór á kostum sem kóngurinn og sést hann hér
á leiksviði ásamt Constance Towers sem lék kennslukonuna
í fyrstu uppfærslu á söngleiknum
Stacy Keach ■ hlutverki kóngsins í Síam og Mary Beth Peil sem kennslukonan
- Það er svo erfitt að vekja hann á morgnana...