Tíminn - 21.09.1989, Side 19
Fimmtudagur 21. september 1989
Tíminn 19
lllllllllllllllll iÞRrtTTIR lllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllM
Pétur Pétursson skorar fyrra mark sitt gegn Tyrkjum
Tímamynd Arnl BJarna
i#1- JLijM W 1 !l l.lllfeíPíjí fl
1! ^ s
* -i v |8 'JMH
Undankeppni HM í knattspyrnu:
Pétur afgreiddi Tyrki
íslendingar sigruðu Tyrki 2-1 í síðasta landsleik sínum í
undankeppni HM í knattspyrnu. íslenska landsliðið lék í gær
einn sinn besta leik í undankeppninni til þessa. Hver einasti
leikmaður íslenska liðsins lék vel, en þó enginn betur en
,,unglingurinn“ Ásgeir Sigurvinsson sem í gær lék sinn síðasta
landsleik.
Islendingar hófu leikinn af mikl-
um krafti. Ásgeir dreif sína menn
áfram og var sjálfur ferskur sem
unglamb á miðjunni.
Á fimmtu mín leiksins skoruðu
íslendingar mark sem dæmt var af.
Var þar að verki Sigurður Grétars-
son. En á einhvem undraverðan
hátt tók hinn spænski dómari Sanch-
ez sig til og flautaði markið af þar
sem hann taldi að brotið hefði verið
á íperkoglu markverði. En það var
nátturlega út í hött.
íslendingar léku yfirvegað og ör-
ugglega. Mótlæti þeirra kom Tyrkj-
um greinilega í opna skjöldu því þeir
áttu fullt í fangi með fríska leikmenn
íslenska liðsins. Á 11 mín tók Ásgeir
aukaspyrnu við vítateigshorn Tyrkj-
anna, Pétur Pétursson skallaði hár-
fínt framhjá.
Stuttu seinna átti Arnór góða
sendingu á Sigurð Grétarsson sem
skaut framhjá í ákjósanlegu færi.
Pegar 25 mín voru liðnar af leik átti
Karaman gott skot að marki fslend-
inga, en sem betur fer yfir.
Þegar líða fór á seinni hálfleik
komust Tyrkir meir inn í leikinn og
fóru að pressa óþarflega mikið á
íslenska liðið. Á 41 mín varði Bjarni
Sig mjög vel skot frá Tutuneker.
Á lokamínútu fyrri hálfleiks átti
Ólafur Þórðarson góða sendingu á
haus Péturs P, en hann skallaði
boltann beint í fang fperkoglu
markmanns. Staðan í hálfleik 0-0.
Seinni hálfleikur hófst líkt og sá
fyrri, nema að nú voru íslendingar
enn ákveðnari. Ólafur Þ. átti fyrsta
færið í seinni hálfleik, en íperkoglu
var sem fyrr á réttum stað. Tveimur
mín seinna áttu íslendingar sann-
kallað dauðafæri. Þorvaldur Örlygs-
son var í mjög ákjósanlegu færi til að
skora, en í stað þess að skjóta renndi
hann boltanum á Ásgeir sem í mun
lakara færi og skaut í varnarmann.
En þeir Þorvaldur og Ásgeir voru
ekki búnir að segja sitt síðasta orð.
Á 7 mín léku þeir skemmtilega upp
vinstri kantinn og Ásgeir sendi bolt-
ann fyrir markið, beint á markahrók-
inn Pétur P sem sendi boltann með
góðu skoti neðst í markhorn Tyrkja.
Staðan því 1-0 fyrir ísland.
En 3 mín seinna kom fyrsta mark-
tækifæri Tyrkja í seinni hálfleik.
Yucedag átti þá gott skot úr auka-
spyrni beint í stöng íslenska liðsins.
A 10 mín átti Ásgeir ákjósanlegt
færi en skaut yfir.
Tyrkir fengu mjög gott færi stuttu
seinna er Karaman komst einn inn
fyrir vörnina, Bjarni varði en hélt
ekki boltanum og á síðustu stundu
tókst Guðna Bergssyni að koma
boltanum frá. Á 14 mín komst
Karaman aftur inn fyrir og nú komst
hann einnig fram hjá Bjarna en hann
hitti ekki markið.
íslendingar skoruðu svo annað
mark þegar 23 mín voru liðnar, var
það mjög svipað hinu fyrra. Ásgeir
og Þorvaldur léku vel saman á
vinstri kantinum og Þorvaldur gaf
fyrir og þar var Pétur á réttum stað
og afgreiddi boltann mjög snyrtilega
í netið.
Tyrkir tóku nú að sækja af miklum
krafti. Á 26 mín sýndi Bjarni Sig-
urðsson hreint stórkostlega mark-
vörslu þegar Yucedag komst einn
inn fyrir vörnina. Bjarni varði í
þrígang og kom boltanum á endan-
um í hom.
Nokkrum mfn seinna átti Ásgeir
snilldarsendingu á Ragnar Margeirs-
son, sem þá var nýkominn inná, sem
sendi boltann fyrir markið en Pétur
skallaði rétt framhjá.
Þegar 5 mín voru til leiksloka
tókst Tyrkjum að skora. Ucar átti þá
gott skot alveg niður við stöng sem
Bjarni réði ekki við. Á síðustu mín
leiksins átti Yucedag gott skot í slá
af löngu færi. En þá flautaði Sanchez
dómari til leiksloka og fyrsti sigur
íslendinga í undankeppni HM var
staðreynd.
íslenska liðið lék mjög vel í þess-
um leik. Ásgeir Sigurvinsson var
besti maður liðsins og er synd að
hann komi ekki til með að leika fleiri
landsleiki. Þessi nýja uppstilling
landsliðsins koma annars nokkuð
vel út og er greinilegt að við eigum
orðið mjög sterkt landslið. Nýju
mennirnir í byrjunarliðinu; Gunnar,
Þorvaldur og Rúnar stóðu sig allir
með miklum sóma. Annars var það
sterk liðsheild sem skóp þennan
góða sigur.
Vert er að minnast á hörmulegan
dómara leiksins og línuverði hans;
Jose Sanchez dómara og línuverðina
Joaquin Marcos og Teodoro
Sanchez. Þeir voru vægast sagt mjög
lélegir og eru trúlega með þeim
daprari sem hafa dæmt hér á landi.
FH.
Sagt eftir leik
Rúnar Kristinsson; Ég er mjög
ánægður með leikinn, þetta er
mjög sterk liðsheild og allir vildu
gefa allt sem þeir áttu í leikinn.
Þetta var síðasti leikur okkar í
forkeppninni og við vorum ekki
búnir að sigra í neinum þannig að
við vorum ákveðnir í að sigra í
þessum leik og það tókst. Það var
mjög góð barátta í liðinu og einnig
góður hópur, það voru menn fyrir
utan hópinn sem voru í leikbanni
og einnig meiddir en við náðum
samt að vinna leikinn.
Guðni Bergsson; Ég er í sjöunda
himni yfir því að hafa sigrað, ég
tala nú ekki um eftir að hafa tapað
tveim síðustu leikjum. Ég tel að
leikurinn hafi spilast mjög vel okk-
ur í hag, við náðum að halda jöfnu
gegn vindinum í fyrri hálfleik og
komum síðan sterkir í seinni hálf-
leikinn. Við skoruðum tvö góð
mörk og siðan fór eins og oft vill
verða að við gáfum eftir og þeir
náðu að skapa sér nokkur færi. Ég
tel að þetta hafi verið mjög góður
leikur af okkar hálfu, sérstaklega
með það í huga að þetta var nýr
hópur leikmanna og margir hverjir
að spila sinn fyrsta landsleik
saman.
Ásgeir Sigurvinson; Ég er mjög
ánægður með leikinn, við sýndum
það strax í byrjun að við vorum
ákveðnir í að berjast og þó svo að
þeir hafi haft yfirhöndina í lok fyrri
hálfleik þá sýndum við það í byrjun
seinni hálfleiks að það var bara
vindurinn sem gerði muninn. Eftir
að við skoruðum fyrsta markið þá
opnaðist leikurinn meira því þeir
þurftu að fara að sækja meira,
þeim dugði ekkert annað en sigur
í leiknum. í heildina verður að
segjast að leikurinn hafi verið
skemmtilegur, hann var skemmti-
legur fyrir áhorfendur og í honum
voru margar fallegar sóknarlotur.
Ég held að í dag höfum við sýnt
mjög góðan leik og það var það
mikilvægasta sem við þurftum að
sanna fyrir okkur sjálfum.
FH.
Portúgal
vann
Sviss
Einn leikur fór fram í sjöunda
riðli í undankeppni HM í gær.
Portúgal van Sviss 2-1 eftir að
hafa verið undir í leikhléi 0-1.
Einnig voru nokkrir vináttu-
leikir í knattspyrnu í gærkveldi.
Helstu úrslit urðu þessi:
Júgóslavía-Grikkland .... 3-0
Ítalía-Búlgaría ..........4-0
Spánn-Pólland ............1-0
FH.
mB ggafgg i ggjggi-L
LESTUNARAffTIUN
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Árhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Hvassafell........25/9
Gloucester/Bostoi?:
Alla þriðjudaga
New York:
Alla föstudaga
Portsmouth/Norfolk:
Alla sunnudaga
Lestunarhafnir innanlands:
Reykjavík:
Alla miðvikudaga
Vestmannaeyjar:
Alla föstudaga
Húsavík:
Alla sunnudaga
Akureyri:
Alla mánudaga
ísafjörður:
Alla þriðjudaga
SKJPADE/LD
Pí®* SAMEANDSJHS
Sambandshúsinu, Kirkjusandi
105, Reykjavík, sími 698300
ÍAKN TRAUSJRA fLt J OXIINGA