Tíminn - 21.09.1989, Qupperneq 20
AUGLYSINGASIMAR: 680001 —686300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
« 2B822_________
SAMVINNUBANKINN
í BYGGÐUM LANDSINS
A
\ \í
• NORÐ- AUSTURLAND ,
ÁTTHAGAFÉLÖG,
FYRIRTÆKI OG
EINSTAKLINGAR
Glæsilegur salur til leigu fyrir samkvæmi
og fundnrhold á daginn sem á kvöldin.
=a»
I 8 I L A S '
ÞROSTUR
685060
Tíminn
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1989
Innbrotsþjófur
í Engihjalla:
Brákaði
ökla við
flótta-
tilraun
Brotist var inn í matvöruversl-
un við Engihjalla í Kópavogi í
gærmorgun. Vökulir íbúar í ná-
grenninu tilkynntu verknaðinn til
lögreglunnar í Kópavogi, sem fór
þegar á staðinn. Þegar að var
komið hafði innbrotsþjófurinn
komið sér út úr versluninni, en
ætlað að stytta sér leið og hoppaði
hann fram af 2 til 3 metra háum
svölum sem eru við verslunina.
Lögreglan kom að manninum
þar sem hann sat á mölinni fyrir
neðan svalirnar, með brákaðan
ökla og gat því enga björg sér
veitt. Varningurinn sem maður-
inn hafði á brott með sér var eitt
hangikjötslæri, sem hann sat með
í kjöltunni.
Til að komast inn í verslunina
hafði maðurinn, sem er á 29
aldursári brotið tvær stórar rúður
í versluninni. Hann var undir
áhrifum vímuefna. - ABÓ
■ r\|/Qi k i q vann íslenska landsliðið í knatfspyrnu leik í undan-
LU l\01IN O keppni HM. Það var ekki seinna að vænna, þar sem
leikurinn gegn Tyrkjum var síðasti leikur liðsins í riðlinum. Pétur
Pétursson skoraði bæði mörk íslenska liðsins í 2:1 sigri.
íslenska landsliðið hlaut sex stig í riðlinum ■ átta leikjum. Árangurinn
verður að teljast mjög svo viðunandi.
Haldi Guðni Kjartansson landsliðseinvaldur svo á spilum í framtíðinni
verður hann að teljast vænn kostur þegar hugað verður að ráðningu
þjálfara fyrir landsliðið.
Á myndinni hér að ofan sést er Pétur Pétursson horfir á eftir knettinum
í tyrkneska markið, umkringdur varnarmönnum, 1:0 fyrir ísland.
Nánar er fjallað um leikinn á íþróttasíðum. Timamynd Ámi Bjarna
■■
Sauöfjárslátrun hafin um allt land. i Borgarnesi er gerð tilraun með að pakka kjöti í gas:
Jólasteikinni í ár
pakkað í „me-gas“?
I haust verður gerð tilraun með að pakka nokkrum
tonnum af lambakjöti frá sláturhúsinu í Borgarnesi í
gaspakkningar. Með því móti verður hægt að bjóða fólki
upp á ferskt kjöt á jólaföstunni. Sauðfjárslátrun er hafin í
nær öllum sláturhúsum á landinu. Meðalvigt virðist vera í
góðu meðallagi.
í sláturhúsi Kaupfélags Borg-
firðinga í Borgarnesi er verið að
gera tilraun með pökkun og
geymslu á lambakjöti. Um er að
ræða tilraun til að halda kjötinu
fersku með því að pakka kjötinu í
gas. Kjötið er hlutað niður og því
pakkað í sérstaka plastfilmu. Þessi
filma hleypir ekki í gegnum sig
raka en hún hleypur í gegnum sig
súrefni. Eftir að kjötinu hefur
verið pakkað í þessa svokölluðu
herpifilmu er því komið fyrir í
lokuðum plastpokum sem eru fyllt-
ir af gasi. Gasið er saman sett af
súrefni, köfnunarefni og kolsýra
blandað saman í jafna hluta. Pok-
unum er síðan komið fyrir í góðri
kæligeymslu sem heldur núll gráðu
hita á kjötinu. Gas þetta hefur
verið nefnt „me-gas“ af gárungun-
um, þarsemekkiervitaðtilað slík
blanda hafi fengið nafn.
Talið er að kjötið geymist ferskt
með þessu móti í a.m.k. þrjá
mánuði. Borgnesingar horfa fyrst
og fremst til þess að vera með
ferskt lambakjöt á jólaföstunni.
Þessi aðferð var reynd í sumar.
Lambalærum var pakkað í filmu
og látin þiðna í kæli. Síðan var
þeim pakkað í gaspoka og geymd
í kæli í 10 daga. Lærin voru seld í
verslunum á höfuðborgarsvæðinu
þar sem þau kölluðust: „Merr
læri.“ Tilraunin þótti takast vel og
verður henni því haldið áfram í
haust.. Kona ein sagði að kjötið
væri alveg „gasalega" gott.
Nýsjálendingar hafa reynt þessa
geymsluaðferð og hefur hún gefist
mjög vel. Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem þessi aðferð er reynd
hér á landi en nú verður þetta reynt
í nokkuð stórum stíl. Ætlunin er
að setja nokkur tonn í gas.
Sauðfjárslátrun er nú hafin í nær
öllum sláturhúsum á landinu.
Lömb virðast vera í meðallagi eða
jafnvel nokkuð yfir það.
Hjá sláturhúsi KEA á Akureyri
verður slátrað um 44 þúsund fjár í
haust sem svipað og í fyrra. Þegar
er búið að slátra 7000 lömbum og
er meðalvigt 15,7 kíló sem er
nokkuð hærra en á sama tíma í
fyrra. Horfur eru á að meira af
kjötinu verði verðfellt vegna fitu
en í fyrra haust. Óli Valdimarsson
sláturhússtjóri sagði að af því sem
þegar hefur verið slátrað hefði um
16-17% farið í fituflokkana. Óli
sagði að sér virtist féð vera mjög
vænt þrátt fyrir að sumarið hefði
verið seint á ferðinni. Vel gekk að
manna sláturhúsið og vinnur starfs-
fólkið nú í fyrsta skipti eftir bónus-
kerfi sem mælir bæði afköst og
gæði vinnunnar.
í sláturhúsi Kaupfélags Bor-
gfirðinga í Borgarnesi er áætlað að
slátra um 62 til 65 þúsund fjár sem
er nokkuð fleira en í fyrra. Nokkrir
bændur af Snæfellsnesi senda nú í
fyrsta skipti fé sitt í Borgarnes en
þetta er síðasta haustið sem verður
slátrað í sláturhúsinu í Stykkis-
hólmi. Meðalvigt það sem af er
eitthvað innan við 15 kíló sem er
svipað og í fyrra.
1 haust verður reynd ný geymslu-
aðferð í sláturhúsinu í Borgarnesi.
Um 200 tonn af kjöti verður brytj-
að niður áður en það verður sett í
frystigeymslu. I fyrra var grófbrytj-
að um 105 tonn af feitu kjöti og
kjöti sem var verðfellt vegna mars
eða annarra galla. Þetta þótti gef-
ast vel og verður nú reynt í auknum
mæli. Því hefur verið haldið fram
að kjöt sem er pakkað á þennan
hátt rýrni mikið í geymslu og
skemmst þar sem það hafi verið
skorið. Gunnar Guðmundsson
sláturhússtjóri í Borgarnesi sagði
að þetta ætti ekki að gerast ef að
vel væri búið um kjötið og frysti-
klefar væru góðir. Hann taldi þó
hæpið að geyma kjöt á þennan hátt
lengur en í eitt ár. Þessi geymsluað-
ferð leiðir til verulegrar hagræðing-
ar fyrir sláturhúsið þegar kemur að
sölu og sparar geymslupláss.
Gunnar sagðist telja að þessi að-
ferð auðveldi mjög allt birgðahald
og sölu utan sláturtíðar. Enginn
vafi væri á að þessi geymsluaðferð
ætti eftir að verða notuð í flestum
sláturhúsum í framtíðinni.
Þessa dagana er rætt um að selja
um hundrað tonn af kjöti til
Finnlands. Ef af þessu útflutningi
verður, verður kjötið úrbeinað,
pakkað og fryst. Óvíst er um verð
á kjötinu. - EÓ