Tíminn - 10.10.1989, Qupperneq 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 10. október 1989
Fyrsta síldin á ver-
tíðinni komin á land
Sfldveiðar hófust síðast liðinn sunnudag og fyrstu sfldinni
var landað í gær. Að sögn Ingva Rafns skipstjóra á Guðmundi
Kristni, sem kom með fyrstu sfldina tfl Fáskrúðsfjarðar í
gærmorgun, er erfitt að finna sfldina. Enn sem komið er hefur
sfld ekki gengið inn á innfirði.
mjög væn og falleg.
Fyrstu síldarbátarnir lögðu að
landi í gær. Valdimar Sveinsson
kom með um 30 tonn til Vestmanna-
eyjar. Síldin var lögð inn hjá Fiskiðj-
unni í Vestmannaeyjum og fer í
söltun. Síldin fékkst á Stokksnes-
grunni. Valdimar Sveinsson fékk
um 100 tonn í kasti en nótin rifnaði
og aðeins tókst að ná um 30 tonnum.
Guðmundur Kristinn frá Fáskrúðs-
firði fékk um 60 tonn af síld austur
af Papey. Síldin var lögð inn hjá
Pólarsíld á Fáskrúðsfirði og fer öll í
söltun.
Tíminn náði tali af Ingva Rafni
skipstjóra á Guðmundi Kristni þar
sem hann var á leið á miðin eftir að
hafa landað í gærmorgun. Ingvi
sagði að síldin sem þeir komu með
Sú sfld sem komin er á land er
að landi í gær hefði falleg og megnið
af hennar hefði farið í stærsta stærð-
arflokk. Ingvi sagði að það væri ekki
mikið af síld gengin á miðin og það
þyrfti að hafa töluvert mikið fyrir
því að finna hana. „Mönnum hættir
til að gera of mikið úr veiðinni. Það
er alltaf mikið af síld hjá þeim á
fréttastofu útvarpsins. Maður þyrfti
að fara að fá einhvem frá þeim til að
lóðsa sig á hana,“ sagði Ingvi.
Það hefur verið bræla á miðunum
fyrir austan að undanförnu. Um tíu
bátar hafa þegar hafið veiðar og
fleiri eru að tygja sig af stað.
Samningaviðræður við Sovét-
menn um síldarsölu eru enn ekki
hafnar þar sem beðið er eftir að
sovésk stjórnvöld veiti gjaldeyris-
SALA AÐGANGSKORTA
ER HAFIN!
Sala aðgangskorta á sýningar Leikfélags
Reykjavíkur í nýja Borgarleikhúsinu er
hafin. Á verkefnaskrá vetrarins eru
eingöngu ný islensk verk. Fyrsta
frumsýning vetrarins á litla sviðinu verður
24. október og á stóra sviðinu 26. október.
Aðgangskortin gilda að 4 verkefnum vetrarins,
3 á stóra sviðinu og 1 á því litla. Kortaverð
á frumsýningarer kr. 10.000.-, á aðrar sýningar
kr. 5.500.- og til ellilífeyrisþega kr. 4.100.-.
Sala aðgangskorta stendur yfir daglega frá kl.
14-20. Tekið er á móti pöntunum á sama tíma í
síma 680680. Greiðslukortaþjónusta.
fcSRARIK
RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
ríkisins óska eftir tilboöum í
7/12kVAflstrengur
Miðvikudagur8. nóvember 1989
kl. 14.00
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir
opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá
og með þriðjudegi 10. október 1989 og kosta kr.
300,00 hvert eintak.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi118
105 REYKJAVÍK
Útboð
Rafmagnsveitur
eftirfarandi:
RARIK-89006
Opnunardagur:
heimild til handa viðsemjendum Flóvenz framkvæmdastjóri Síldarút-
okkar í Sovétríkjunum. Fyrr en sú vegsnefndar á ekki von á að sú
heimild liggur fyrir er ekki hægt að heimild komi á allra næstu dögum.
semja um þá síld sem Sovétmenn -EÓ/ABÓ
koma til með að kaupa. Gunnar
Deila harðnar eftir
árangurslausan fund
Samninganefnd Rafiðnaðar-
sambandsins fundaði í gær um
breytingar á veittum undanþágum,
síðdegis í gær sagðist Magnús
Geirsson formaður sambandsins
ekki búast við að ákvörðun verði
tekin um þetta mál fyrr en í dag.
Enginn árangur varð af samn-
ingafundi rafiðnaðarmanna og
samninganefndar ríkisins sem
hófst klukkan tvö á sunnudaginn.
Tólf tímum seinna slitnaði upp úr
samningaviðræðunum þegar raf-
iðnaðarmenn höfnuðu tilboði
ríkisins og segja þeir að ríkið hafi
boðið minna en áður á þessum
fundi. Engar horfur eru á að sam-
komulag takist í deilunni í bráð.
Alvarleg bilun varð í stafrænu
símstöðinni í miðbæ Reykjavíkur
á sunnudagskvöldið og voru öll
númer sem byrja á 61 og 62 og sum
sem byrja á 60 og 69 sambandslaus
í nokkrar klukkustundir. Um
miðnættir veittu rafiðnaðarmenn
undanþágu svo hægt væri að gera
við níu af nítján tónmóttökurum í
stöðinni. Ekki er víst að sú viðgerð
dugi við mikið álag. SSH
A föstudag var Strandgatan í Hafnarfirði opnuð formlega á ný eftir fimm
mánaða andlitslyftingu. Gatan er ný upphituð og steinlögð, auk þess sem
þar hefur veríð komið fyrír gróðrí og umferð bíla takmörkuð. Bæjarstjór-
inn í Hafnarfirði, Guðmundur Ámi Stefánsson, klippti á vígsiuborðann,
Lúðrasveit Hafnaríjarðar lék, fimleikaflokkurinn Björk tók léttar sveiflur
á upphituðum steinhellunum og Rió tríó tók lagið ásamt hljómsveit
Ingimars Eydal.
Við Strandgötuna hafa alls 94 verslunar- og þjónustuaðilar aðsetur sitt
og buðu allar verslanir afsiátt og sértilboð í tilefni dagsins. Afráðið hefur
veríð að hafa verslanir við götuna opnar á laugardögum í vetur, frá kl. 10
til 16.
Tíiniuiivnd: Ámi Bjama.
Harður árekstur við Kúagerði:
Fernt á slysadeild
Flytja þurfti fjóra á slysadeild
Borgarspítalans eftir harðan
árekstur tveggja bíla við Kúagerði
á Reykjanesbraut síðdegis á laug-
ardag. Fólkið mun ekki vera lífs-
hættulega slasað.
Áreksturinn varð með þeim
hætti að ökumaður bíls sem ekið
var í átt til Keflavíkur missti hægri
hjól bifreiðarinnar út af slitlaginu
á veginum. Þegar hann beygði til
að koma honum inná aftur fór
bíllinn þvert á veginn og fyrir bíl
sem kom úr gangstæðri átt.
Báðir bílamir skemmdust mjög
mikið og varð að flytja þá á brott
með dráttarbílum. -ABÓ
Óshlíð:
Stórgrýti
féll á bíl
Stórgrýti féll á bifreið sem ekið
var undir Óshlíð, milli ísafjarðar
og Bolungarvíkur aðfaranótt
laugardags. Þrennt var í bílnum.
Þau sem sátu í framsætunum
sluppu án meiðsla, en stúlka sem
sat í aftursæti bifreiðarinnar slas-
aðist talsvert og var flutt á sjúkra-
hús í Reykjavík. Hún mun vera
á batavegi.
Bifreiðin var nýlega komin út
úr fyrri vegskálanum þegar öku-
maður varð var við að grjót féll á
veginn. Hann bakkaði og lenti þá
grjót aftarlega á bílnum og lagðist
þakið niður að aftan. Maður sem
kom að, fór til ísafjarðar og sótti
hjálp, en á meðan tókst öku-
manni bílsins sem grjóti féll á að
koma bílnum inn í vegskálann á
ný. Eftir að hjálp barst tók nokk-
urn tíma að ná stúlkunni sem sat
í aftursætinu úr bílnum. Hún
gekkst undir aðgerð á ísafirði en
var síðan flutt til Reykjavfkur.
_______________- ABÓ
Innbrot
í Bónus
Brotist var inn í verslunina Bónus
við Faxafen í Reykjavík um helgina.
Brotinn var upp peningaskápur og
úr honum teknar nálægt 200 þúsund
krónur í peningum. Auk þess sem
farið var inn í tvö önnur fyrirtæki í
nágreninu, en lítið mun þjófurinn
hafa haft upp úr krafsinu. Þá var
brotist inn hjá Múlalundi í Hátúni
og tekinn lítill peningakassi, ekki er
ljós hversu mikið var í honum.
Tilkynnt var um innbrotin á
sunnudagsmorgni. - ABÓ
Kókaínmál í Hæstarétti:
Staðfestir
varðhald
Hæstiréttur staðfesti á föstudag
úrskurð Sakadóms í máli manns sem
verið hefur í gæsluvarðhaldi síðan í
maí, vegna rannsóknar á umfangs-
mesta kókaínsmygli hingað til lands.
Manninum er gert að sitja í gæslu-
varðhaldi til 30. nóvember n.k.
Sakadómur úrskurðaði manninn
um síðustu mánaðarmót til áfram-
haldandi gæsluvarðhalds til 30. nóv-
ember nk. en þó ekki lengur er til
uppkvaðningar dóm í málinu í Saka-
dómi. Maðurinn kærði úrskurð
þennan til Hæstaréttar. Varnaraðili
mannsins krafðist þess að úrskurður
Sakadóms yrði felldur úr gildi, en til
vara að gæsluvarðhaldstíminn yrði
styttur.
Hæstiréttur úrskurðaði í málinu á
föstudag, þar sem úrskurður Saka-
dóms var staðfestur.
Þetta kókaínmál er það stærsta
sem komið hefur upp hérlendis, en
það snýst um innflutning á um það
bil einu kílói af kókaíni hingað til
lands frá Bandaríkjunum. Alls eru
23 einstaklingar á kæruskrá vegna
málsins. - ABÓ
Steingrímur og Mitterand:
Samkomulag hefur orðið um að
fresta viðræðufundi forseta Frakk-
lands Francois Mitterand og forsæt-
isráðherra Steingríms Hermanns-
sonar, utanríkisráðherra Frakklands
og íslands og embættismanna um
málefni Evrópubandalagsins og Frí-
verslunarsamtaka Evrópu.
Fundurinn fer fram 7. nóvember
1989 í Reykjavík í stað 17. október
n.k.