Tíminn - 10.10.1989, Blaðsíða 14
14 Tíminn
Þriðjudagur 10. október 1989
FRÉTTAYFIRLIT
AUSTUR-BERLÍN - Er-
ich Honecker leiötogi Austur-
Þýskalands líkti frelsiskröfum
þegna sinna viö kröfur náms-
manna í Kína áöur en kín-
verski herinn drekkti þeim í
blóði. Honecker sagöi að ekk-
ert gæti grafið undan kommún-
ismanum í Austur-Þýskalandi
nú á 40 ára afmæli Þýska
Alþýöulýöveldisins.
BUDAPEST - Umbóta-
sinninn Rezso Nyers var kjör-
inn forseti hins nýja Sósíalista-
flokks Ungverjalands sem reis
úr rústum gamla kommúnista-
flokksins sem lagöur var niður
á laugardaginn. Harölínu-
kommúnistar eru taldir ætla að
stofna eigin kommúnistaflokk
og berjast fyrir áframhaldandi
kommúnisma í landinu. Frjáls-
arkosningarfarafram í landinu
á næsta ári og töldu Nyers og
aðrir umbótasinnaöir leiötogar
gamla kommúnistaflokksins
nauðsynlegt að stofnaður yröi
nýr sósíalistaflokkur sem hafn-
aoi kommúnisma til að koma
umbótastefnu þeirri er ríkt hef-
ur að undanförnu á legg.
JAKARTA - Jóhannes Páll
páfi II sem nú er á ferðalagi um
Austur-Asíu hvatti kristna
menn í Indónesíu til að virða
lög og reglur í þessu fjölmenn-
asta ríki múslíma í heimi, en
hann krafðist þess einnig af
stjórnvöldum í Indónesíu að
þau virtu mannréttindi og
sjálfsákvörðunarrétt fólks á
Austur-Tímor.
AÞENA - Andreas Papan-
dreou fyrrum forsætisráðherra
Grikklands sem nú á yfir höfði
sér málsókn segist hafa hætt
við að reyna að mynda ríkis-
stjórn vinstri manna og miðju-
manna.
NIKOSÍA - Sex Líbanar
sem sakaðar hafa verið um
samsæri gegn Michel Aoun
leiðtoga kristinna manna í Líb-
anon voru dæmdir í fangelsi á
Kýpur fyrir að hafa SAM eld-
flaugar í fórum sínum. Þeireru
taldir hafa ætlað að sprengja
þyrlu Aouns í tætlur er hún
kæmi til Kýpur. Aoun hætti við
ferð sína.
MANILA - Fimm manns
særðust þegar sprengja
sprakk á veitingastað í eigu
fyrrum talsmanns Ferdinands
Marcosar fyrrum forseta Filips-
eyja. Fimm manns særðust.
PARÍS - Frakkar hafa farið
fram á að Suðurheimskauts-
landið verði lýst heimsgarður
til að vernda viðkvæmt dýraríki
þar.
UTLOND
lllllllllll
llllllllllllllll^
Tass, hin opinbera fréttastofa í Sovétríkjunum, skýrir frá niðurstöðum sovéskra vísindamanna:
Risavaxnar geimverur
í heimsókn hjá Rússum
Sovéskir vísindamenn hafa úrskurðað að sérstæðar þriggja
metra háar verur sem heimsóttu sovéska bæinn Voronezh
fyrir nokkru hafi verið geimverur. Frá þessu skýrði sovéska
fréttastofan Tass I gær.
f frétt Tass segir að vísindamenn
hafi verði kallaðir til eftir að skelf-
ingu lostnir íbúar bæjarins Voronezh
sem er í miðju Rússlandi höfðu
þrisvar sinnum skýrt frá því að
sérkennilegur skínandi bolti hafi
svifið yfir helsta skemmtigarði í
bænum og út úr hinu sérstæða fyrir-
bæri hafi stigið hávaxnar verur með
lítinn haus. Fullyrða bæjarbúar að
verurnar hafi verið rúmlega þrír
metrar á hæð.
Samkvæmt lýsingum bæjarbúa
voru verurnar svipaðar jarðnesku
fólki að útliti og eð með þeim hafi
verið lítið vélmenni. Verurnar gengu
um stund kring um hinn glóandi
hnött, en stigu síðan um borð og
flugu á brott. Fullyrða bæjarbúar að
verurnar hafi heimsótt bæinn í
þrígang.
Þeir bæjarbúar sem á horfðu voru
stjarfir af skelfingu í nokkra daga á
eftir ef marka má frá Tass.
Fréttastofan fullyrðir að vísinda-
menn sem hafi komið og skoðað
vegsummerki hafi staðfest að hér
hafi verið um geimverur að ræða.
Verur utan úr geimnum hafa verið
vinsælt rannsóknarefni í Sovétríkj-
unum og birtast fréttir af geimverum
reglulega í sovéskum blöðum, jafn-
vel í opinberum málgögnum. Yfir-
völd í Sovétríkjunum komu á fót
sérstakri rannsóknarnefnd til að
rannsaka óeðlileg fyrirbæri eftir að
sást til „fljúgandi vindils" nærri
Gorkí árið 1984.
Vantrúaðir vestrænir fréttamenn
spurðu talsmann Tass fréttastofunn-
ar hvort fréttastofan væri að gera að
gamni sínu með þessari frétt.
- Tass er aldrerað gattina sér. Ef
við byrjuðum á slíku þá væri tilveru
okkar lokið, sagði talsmaðurinn.
Jaröarbúar þekkja enga geimveru
eins vel og kvikmyndastjörnuna ET
sem hér er með félaga sínum Steven
Spielberg. Hins vegar gæti orðið
breyting á því í náinni framtíð því
sovéskir vísindamenn staðhæfa að
risavaxnar geimverur með lítinn
haus hafi heimsótt bæ í miðju Rúss-
landi. ET var lítill með stóran haus
svo geimverurnar ■ Rússlandi eru
greinilega ekki skyldar honum.
Drepa hermenn
í friðarskyni
Skæruliðar hægri manna í Mós-
ambík segjast hafa fellt um hundrað
stjórnarhermenn í stórsókn sinni
sem ætlað er að þvinga ríkisstjórn
Mósambík að samningaborðinu og
semja beint við skæruliða um frið.
Óbeinar friðarviðræður hafa staðið
með hléum frá því í sumar, en lítið
gengið þar sem ríkisstjórnin hefur
ekki viljað ræða beint við skæruliða
og skæruliðar vilja einungis ræða
frið beint við stjórnvöld.
- Þessi stórsókn okkar verður
haldið áfram þar til ríkisstjórn Fre-
limo samþykkir friðarviðræður á
jafnréttisgrundvelli, segir í yfirlýs-
ingu Þjóðarandspyrnuhreyfingar
Mósambík sem birt var í Lissabon í
gær.
Talsmaður Þjóðarandspyrnu-
hreyfingarinnar sagði að flestir her-
mennirnir hefðu fallið í árás skæru-
liða á herbúðir stjórnarhersins í
Magude 100 km norður af Maputo
höfuðborg Mósambík.
Skæruliðar segjast hafa náð á vald
sitt miklu magni vopna, sprengju-
vörpum, eldvörpum og slíkum
morðtólum. Þá segjast skæruliðar
hafa eyðilagt rafmagnslínur svo stór-
ir hlutar stærstu bæja í Mósambík
séu nú rafmagnslausir.
Noregur:
Nýstofnað þjóð-
þing Sama sett
Ólafur Noregskonungur gerði sér
ferð norður til Karasjok í gær og
setti fyrsta þjóðþing Sama í Noregi
Kylfunni beitt á
40 ára afmælinu
Öryggislögreglan í Austur-
Þýskalandi beitti óspart kylfunni á
40 ára afmæli Þýska Alþýðulýð-
veldisins um helgina, þó ekki gegn
þeim er tóku þátt í hátíðarhöldum
stjórnvalda, heldur gegn þeim er
mótmæltu þeirri frelsissviptingu
sem Þjóðverjar á hernámssvæði
Sovétríkjanna hafa þurft að þola
alla tíð.
Á laugardaginn voru 40 ár liðin
frá því Sovétmenn komu á fót
leppstjórn sá hernámssvæði sínu í
Austur-Þýskalandi með stofnun
Þýska Alþýðulýðveldisins. Stjórn-
völd héldu að vonum glæst hátíðar-
höld, en jafnframt þeim hópaðist
fólk saman og krafðist frelsis. Ör-
yggislögreglan réðist að mótmæl-
endunum með mikilli hörku og
brutust út mestu átök í sögu Aust-
ur-Þýskalands frá því uppreisn
austurþýskra verkamanna var
brotin á bak aftur með sovéskum
skriðdrekum árið 1953.
en Samar kusu sér þjóðþing í síðasta
mánuði. Þjóðþingi Sama er ætlað að
vera norska Stórþinginu ráðgefandi
um málefni Sama og munu öll frum-
vörp sem snerta menningu og tungu
Sama koma fyrir þingið. Þá er þjóð-
arþinginu ætlað að vernda og hlúa
að menningu þessara frumbyggja
Skandínavíu sem komu á norðurslóð
fyrir tvöþúsund árum eða svo.
Menningu Sama stafar nú meiri
ógn af utanaðkomandi áhrifum en
nokkru sinni fyrr. Þó öfgafullt
kristniboð fyrri alda hafi illilega
skaðað menningu Sama á sínum
tíma þá hafa atburðir undanfarna
ára ekki haft minni áhrif. Kjarnorku-
slysið í Tsjernóbíl var Sömum þungt
í skauti, því geislavirkt úrfelli féll á
beitarlönd hreindýra þeirra svo
hefðbundin nýting hreindýra er úr
sögunni í bili. Þá hafa áhrif tækniald-
ar sótt hart að menningararfleifð
Samaþjóðarinnar.
Samar í Noregi eru um þrjátíu
þúsund talsins og sitja þrjátíu og níu
fulltrúar þeirra þingið í Karasjok.
Nýr dómsmálaráðherra skipaður í Kólumbíu:
Ekki rénar morðaldan
Áfram heldur morðaldan í Kól-
umbíu þar sem stjórnvöld hafa sagt
eiturlyfjabarónunum stríð á hendur.
Á sunnudag sprakk sprengja í lang-
ferðabfl fyrir utan Bogóta höfuðborg
Kólumbíu og fórust sjö manns. Átta
særðust.
Sprengjan sprakk stuttu eftir að
Virgilio Barco forseti landsins hafði
sett þrjá nýja ráðherra inn í embætti,
en forsetinn hefur átt í erfiðleikum
með að manna ríkisstjórn sína eftir
að Monica de Greiff dómsmálaráð-
herra sagði af sér fyrir hálfum mán-
uði. Monica sagði af sér eftir að
eiturlyfjabarónarnir höfðu hótað að
drepa börn hennar héldi hún áfram
starfi sínu.
Frá því- Barco forseti sagði eitur-
lyfjabarónunum í Medellín og Cali
stríð á hendur 24.ágúst síðastliðinn
hafa sextíu og fjórar sprengjur
sprungið í Bogóta og hundrað og
tuttugu annars staðar í landinu.
Roberto Salazae Manrique nokk-
ur tók við embætti dómsmálaráð-
herra og er hann níundi dómsmála-
ráðherrann í Kólumbíu á þremur
árum.
Frá því árið 1980 hafa þrjúhundr-
uð og fimmtíu starfsmenn dóms-
málaráðuneytisins, þar af fimmtíu
dómarar verið drepnir og er talið að
eiturlyfjabarónarnir hafi staðið á
bak við flest þessara morða.