Tíminn - 10.10.1989, Qupperneq 3
Þriðjudagur 10. október 1989
Tíminn 3
Lýtalaus andlitslyfting forystunnar á Landsfundi sjálfstæöismanna:
Friðsamur höfðingi
greiðir götu Davíðs
Breytingar urðu á forystusveit Sjálfstæðisflokksins á 28.
landsfundi flokksins sem lauk á sunnudagskvöld. Þorsteinn
Pálsson var endurkjörinn formaður flokksins með um 80%
greiddra atakvæða en Davíð Oddsson borgarstjóri var
kjörinn varaformaður. Friðrik Sóphusson tilkynnti í ræðu á
laugardag að hann sæktist ekki eftir endurkjöri til varafor-
manns vegna þess að Davíð Oddsson hafði tilkynnt um að
hann sæktist eftir kjöri.
Með varaformannsskiptunum
telja sjálfstæðismenn sig hafa náð
fram andlitslyftingu á forustusveit
flokksins sem geri hann sterkari en
áður. Davíð Oddsson kveðst áfram
munu starfa að sveitarstjórnarmál-
efnum og verða oddviti flokksins í
sveitarstjórnarkosningunum í
Reykjavík á komandi vori. Hins
vegar virðast allir, þar á meðal
núverandi formaður og fráfarandi
varaformaður, sammála um að
Davíð sé óskabarn flokksins og
tímaspursmál hvenær hann taki við
formennsku í flokknum. Hlutverk
Þorsteins verður því í raun það, að
halda formannsstólnum heitum þar
til vitjunartími óskabarnsins rennur
upp, hugsanlega strax á næsta lands-
fundi.
Óhætt er að segja að varafor-
mannsskiptin hafi verið það sem
hæst bar á þessum landsfundi sjálf-
stæðismanna, enda gengu þau ekki
átakalaust fyrir sig þó þau átök hafi
að mestu farið fram að tjaldabaki.
Þó stakk sá átakabroddur sér ein-
staka sinnum út úr hinu slétta yfir-
borði í ræðum manna og mátti
meðal annars greina hann í ræðu
Friðriks á laugardag, þegar hann
sagði: „Davíð Oddsson hefur sjálfur
tekið ákvörðun og lýst sig tilbúinn til
að takast á hendur þetta verkefni
strax. Ég skynja að margir eru
ósáttir við hvernig þetta mál hefur
borið að. Og ég finn einnig af
viðbrögðum þeirra fjölmörgu sem
við mig hafa talað að ég nýt verulegs
trausts og stuðnings til endurkjörs.
Fyrir það er ég þakklátur.“ En
skömmu síðar sagði Friðrik um ást-
æður þess að hann gaf ekki kost á sér
í varaformannskjörinu: „Ástæðan
er einfaldlega sú að ég vil veita
Davíð Oddssyni brautargengi í vara-
formannskjörinu. Ég vænti mikils af
honum í nýju hlutverki fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn."
Friðrik er réttnefni
Sú ákvörðun Friðriks, að láta.ekki
skerast í odda milli sín og Davíðs í
varaformannskjörinu hefur orðið til
þess að menn ræða nú um að hann
beri nafn sitt með réttu, en Friðrik
merkir samkvæmt nafnabókum
„friðsamur höfðingi“. Fyrir bragðið
hlaut Davíð góða kosningu og lands-
fundurinn yfirbragð einingar, friðar
og samstöðu. Formaður flokksins
sagði þó eftir fundinn að engum
blandaðist hugur um að Friðrik væri
eftir sem áður einn af helstu forystu-
mönnum flokksins. Þannig má segja
að með því að leika hinn friðsama
höfðingja hafi Friðriki tekist að
halda sæti sínu í forustusveitinni og
sitji þar sem „ráðherra án ráðuneyt-
is“, sem forystumaður án formlegs
embættis.
Sjávarútvegurinn erfiður
Af einstökum málefnum fundar-
ins urðu átökin um sjávarútvegsmál
hörðust, eins og raunar var búist við
fyrir fundinn. Sú ályktun sem að
lokum var samþykkt var bræðingur
mjög ólíkra viðhorfa innan
flokksins, milli kvótasinna og kvóta-
andstæðinga auk þess sem spurning-
in um auðlindaskatt og/eða veiði-
leyfasölu skipti mönnum upp í fylk-
ingar sem ekki endilega fylgdu sömu
línum og komu fram gagnvart kvóta-
kerfinu. Sjávarútvegsnefnd fundar-
ins lagði fram drög að ályktun þar
sem kvótakerfið var fordæmt og lagt
til að það yrði afnumið. í þessum
sömu ályktunardrögum kom fram
hörð gagnrýni á hugmyndir um
skattlagningu á það eitt „að draga
björg í bú“, þ.e. að greiða fyrir
aðgang að veiðiheimildum.
Kvótinn varð ofan á
Miklar umræður spunnust um
þessi ályktunardrög og kom fram
breytingartillaga við þau, þar spm
báðum þessum atriðum var breytt.
Formaður flokksins gekk fram fyrir
skjöldu og hvatti menn til að sam-
þykkja breytingatillöguna og ná
þannig friði um málið. í endanlegri
ályktun er ekki minnst á auðlinda-
skatt og um kvótakerfið segir m.a.:
„Sjálfstæðisflokkurinn telur, að það
hafi reynst illa að nota tvenns konar
stjórnkerfi fyrir fiskveiðar og að
margt hafi mistekist í framkvæmd
núgildandi fiskveiðistefnu. Ljóst er
að núverandi kvótakerfi á ekki er-
indi í hagkvæmis- og afkastakvetj-
andi fiskveiðistefnu. Tekin verði upp
sú aðferð, að sérhvert fiskiskip fái
úthlutað til lengri tíma, en með
árlegri endurnýjunarskyldu. Mark-
miðið er að hámarksafrakstur náist
við nýtingu fiskistofnanna þannig að
hægt verði að afnema kvótakerfið og
að frumkvæði og dugnaður einstakl-
inganna fái notið sín.“ Margir lands-
fundarfulltrúar voru ósáttir við þessa
ályktun, einkum Vestfirðingar, sem
e.t.v. er ekki undarlegt því þó kvóta-
kerfið sé úthrópað sem gagnslaust til
að ná fram hagkvæmni í fiskveiðum
er engu að síður lagt til að kvótakerf-
inu verði beitt til að ná fram nauð-
synlegri hagkvæmni í fiskveiðum.
f>á felur ályktunin í sér óbeinan
stuðning við stefnu ríkisstjórnarinn-
ar og sjávarútvegsráðherra að því
marki að talað er um kvóta til lengri
tíma og að sóknarmark verði aflagt.
Það nýja sem ályktunin felur í sér er
að aflamark skipanna verði ákveðið
hlutfall af heildarafla og að heimilað
verði frjálst framsal á kvóta á al-
mennum markaði.
Ekki skarst í odda um önnur mál
á fundinum og var sú málamiðlun í
formi ályktunar, sem náðist í land-
búnaðarmálum fyrir fundinn, sam-
þykkt á landsfundinum. - BG
VEISTU AÐ Í^ILANDS-
Náma Landsbankans er þjónusta sen léttir undir med námsmönnum. VISA-kort,
I BANKANUM ER NÁMA
affhending skjala vegna LÍN, sveigjanlegri affborganir lána, 100.000 krána
FYRI
NÁMSFÓLK.
námsstyrkur og hátt námslokalán er meðal þess sem sækja má í Námuna.
Náman er ný fjármálaþjónusta í
Landsbankanum, sérstaklega ætl-
uð námsfólki frá 18 ára aldri. Því
ekki að hefjast handa nú þegar og sækja í námu
Landsbankans; Með því að skapa þér gott orð í
Landsbankanum - þó í litlu sé, leggurðu grunninn að
fjárhagslega öruggri framtíð. AUar nánari upplýsing-
ar, fúslega veittar í næsta Landsbanka. Við bjóðum
námsfólk velkomið.
Nýttu þér námuna.
IANPSBANKI
I S L A N D S
---L -----
N • Á • M • A • N
Heildarupphæð vinninga
07.10. var 8.786.831,-
2 höfðu 5 rétta og fær hver
kr. 2.593.071,-
Bónusvinninginn fengu 5
og fær hver kr. 106.806,-.
Fyrir 4 tölur réttar fær hver
7.253,- kr. og fyrir 3 réttar
tölur fær hver um sig 473,-
kr.
Sölustaðir loka 15 mínútum fyrir útdrátt í
Sjónvarpinu.
Sími685111.
Upplýsingasímsvari 681511.
Lukkulína 99 1002
Já... en ég nota nú
yfirleitt beltiö!
Goóar veislur
enda vel!