Tíminn - 10.10.1989, Side 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 10. október 1989
v/r\rv\>\i ■ Hnr
Aðalfundur Framsóknarfélags
Kjósarsýslu
er boöaöur sunnudaginn 22. október n.k. aö Hlégarði í Mosfellssveit.
Fundurinn hefst kl. 17.00.
Fundarefnið er venjuleg aöalfundarstörf ásamt þeim málum sem efst
eru á baugi í dag. - Eftir fundinn veröur kvöldveröarhóf. Gestir
fundarins veröa Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra, Jóhann
Einvarösson alþingismaöur, Haukur Níelsson f.v. sveitarstjórnarmað-
ur og eiginkonur þeirra.
Fundurinn veröur auglýstur nánar í næstu viku.
Stjórnin.
Konur Árnessýslu
Aöalfundur Félags framsóknarkvenna í Árnessýslu verður haldinn á
Eyrarvegi 15, Selfossi, mánudagskvöldið 23. október kl. 21.00.
Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf.
önnur mál.
Mætum hressar í upphafi vetrarstarfs. Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Aðalfundur Framsóknarfélags
Keflavíkur
verður haldinn mánudaginn 16. október kl. 20.30 í Iðnsveinahúsinu.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Rætt um vetrarstarfiö.
Félagar, fjölmennið.
Stjórnin.
Reykjanes
Skrifstofa kjördæmissambandsins, Hamraborg 5, Kópavogi, s.
43222, er opin mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga, kl. 17-19.
K.F.R.
Norðurland vestra
Kjördæmisþing framsóknarmanna á Norðurlandi vestra verður haldiö
í félagsheimilinu á Blönduósi dagana 28. og 29. október n.k. Dagskrá
auglýst síðar.
Stjórn KFNV.
Selfoss og nágrenni
Fjögurra kvölda keppni:
Félagsvist verður spiluö aö Eyrarvegi 15 þriðjudagana 17. okt. 24.
okt. 31. okt. og 7. nóv. kl. 20.30.
Kvöldverðlaun - Heildarverðlaun.
Fólk má missa úr eitt kvöld án þess að verða af heildarverðlaununum.
Framsóknarfélag Selfoss.
Selfoss
Aðalfundur Framsóknarfélags Selfoss verður haldinn að Eyrarvegi
15 mánudaginn 16. október kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Ávarp, Guðni Ágústsson alþingismaður.
Önnur mál.
Stjórnin.
Spilum félagsvist
Borgnesingar nærsveitir
Spilum félagsvist í samkomuhúsinu Borgarnesi föstudaginn 13.
október kl. 20.30. Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgarness.
Hafnarfjörður
Aðalfundur Framsóknarfélags Hafnarfjarðar verður haldinn mánu-
daginn 16. okt. kl. 20.30 að Hverfisgötu 25.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Kópavogur - Opið hús
Framsóknarfélögin í Kópavogi hafa opið hús á miðvikudögum kl.
17.30 til 19.00.
GBB auglýsingastofa sér um kynningu á virðis-
aukaskatti fyrir fjármálaráðuneytið:
Kynningin kostar
20-30 milljónir
íslenska auglýsingastofan hefur sent fjármálaráðuneytinu
bréf þar sem óskað er eftir skýringum á því af hverju GBB
Auglýsingaþjónustan var valin til að sjá um að kynna
virðisaukaskattinn. Mörður Árnason upplýsingafulltrúi í
fjármálaráðuneytinu sem hefur umsjón með kynningunni á
virðisaukaskattinum, segir að viðhöfð hafí verið eðlileg
vinnubrögð við valið og vísar á bug öllum getgátum um annað.
Mörður sagðist ekki skilja hvað
íslenska auglýsingastofan væri að
meina með þeim dylgjum sem komu
fram í bréfinu.
„Menn hafa alltaf gert ráð fyrir
því að þennan skatt þyrfti að kynna
mjög vel vegna þess að hann er í eðli
sínu nokkuð ólíkur söluskattinum,"
sagði Mörður. „Embætti ríkisskatt-
stjóra er framkvæmdaraðili málsins
og það embætti skrifaði bréf 20.
júní, til Sambands íslenskra auglýs-
ingaskrifstofa, um kynningarherferð
vegna virðisaukaskatts. í bréfinu er
óskað eftir greinargerð frá sérfróð-
um aðilum á sviði kynninga og
markaðsmála um hvernig best sé að
standa að kynningarátakinu. Emb-
ætti RSK fékk síðan greinargerðir
frá níu auglýsingastofum. Ríkis-
skattstjóri fór gegnum allar þessar
greinargerðir og sendi bréf til fjár-
málaráðuneytisins þann áttunda
ágúst. í bréfinu mælir hann með
einni ákveðinni auglýsingastofu og
rökstyður það.
í framhaldi af því var ákveðið að
fjármátaráðuneytið færi aftur í gegn-
um gögnin og framkvæmdi sjálfstætt
mat á þeim. Þó að við treystum
ríkisskattstjóra þótti rétt að athuga
þetta betur. Við komumst að sömu
niðurstöðu og ríkisskattstjóri, sem
sé að fela GBB Auglýsingaþjónust-
unni þessa kynningu. Þessi niður-
staða byggist á því að þar eð hér er
um gífurlega stórt verkefni að ræða,
var talið nauðsynlegt að sú auglýs-
ingastofa sem tæki verkefnið að sér
þyrfti að vera öflug, hún þyrfti að
geta brugðist hratt við og hún þyrfti
að hafa gott vald á allri tækni. Með
þessu er ég ekki að segja að GBB
Auglýsingaþjónustan sé sú eina sem
valdi þessu verkefni. hetta var niður-
staða sem ráðuneytið og ríkisskatt-
stjóri komust að eftir að hafa velt
þessu mikið fyrir sér.
Hugmyndir GBB voru í fremstu
röð. Það skal þó tekið fram að
hugmyndir auglýsingastofanna voru
um margt líkar. Það þarf t.d. engan
sérfræðing til að láta sér detta í hug
að gefa út leiðbeiningarbækling.
GBB hafði auk þess ákveðna reynslu
af því að kynna skattkerfisbreytingu
en þar á ég við kynninguna á stað-
greiðslukerfinu. Þar þótti GBB
standa sig mjög vel og ég geri ráð
fyrir því án þess að ég viti það fyrir
víst, að það hafi ráðið miklu varð-
andi afstöðu ríkisskattstjóra. Við í
fjármálaráðuneytinu komumst að
þeirri niðurstöðu að GBB stæði það
framarlega að aðrar auglýsingastof-
ur þyrftu að hafa sérstaka kosti til að
þær yrðu fyrir valinu.
Ég get sagt það fyrir hönd ráðu-
neytisins að hingað til hefur sam-
vinnan við GBB gengið mjög vel. Ég
hugsa að ríkisskattstjóri sé ekki á
annarri skoðun."
Menn í „auglýsingabransanum"
segja að réttast hefði verið hjá
ríkinu að velja úr nokkrar auglýs-
ingastofur og borga þeim fyrir að
vinna drög að kynningarherferð.
Sumar auglýsingastofur lögðu í all-
mikla vinnu og kostnað við að útfæra
hugmyndir sínar um kynninguna.
Jónas Ólafsson framkvæmdastjóri
íslensku auglýsingastofunnar sagði
að menn hefðu tæpast farið að leggja
á sig alla þessa vinnu ef menn hefðu
vitað hvernig staðið yrði að valinu.
Því hefur verið haldið fram að
með vali sínu á GBB sé Ólafur
Ragnar Grímsson fjármálaráðherra
að hygla flokksbræðrum sínum. Það
sem mælir á móti þessari kenningu
er að Gísli B. Björnsson aðaleigandi
GBB og Ólafur Ragnar eru engir
sérstakir samherjar.
Mörður Árnason var spurður
hvað kynningin á virðisaukaskattin-
um muni koma til með að kosta.
Mörður sagði að þessu væri mjög
erfitt að svara. Hér væri um að ræða
að koma ákveðnum upplýsingum á
framfæri og það yrði einfaldlega að
kosta það sem það þyrfti að kosta.
Mörður sagði þó að sér þætti ekki
ótrúlegt að þetta myndi kosta um
20-30 milljónir. Mörður sagði að
þetta væri mjög óljóst enn sem
komið er. -EÓ
Flensborgarskóli:
Skólabókasafnið
í nýtl húsnæði
Samkvæmt nýjum framhalds-
skólalögum lýkur aðild Hafnarfjarð-
arbæjar að rekstri Flensborgarskóla
um næstu áramót. í tilefni þessara
tímamóta veitti bærinn skólanunt 4
milljónir króna til bættrar aðstöðu
fyrir skólabókasafnið og var húsnæð-
ið vígt sl. fimmtudag. Við athöfnina
fluttu ávörp þau Kristján Bersi
Loftsdóttir bókavörður og Guð-
mundur Árni Stefánsson bæjar-
stjóri. Bókakostur safnsins er um
12000 bindi, auk nýsigagna af ýmsu
tagi.
Á myndinni sést Kristján Bersi
Ólafsson skólameistari í ræðustól
við opnun safnsins í nýju húsnæði.
Ólafsson skólameistari, Margrét
Bogasalur
Þjóðminjasafns:
Ljósmyndasýning
í ár er fagnað 150 ára afmæli
Ijósmyndunar í heiminum.
Þjóðminjasafn fslands leggur lóð
sitt á vogarskálar afmælisbarnsins
með sérstakri sýningu í Bogasal
safnsins, þar sem sýndar verða
frummyndir eftir ýmsa frumherja
í Ijósmyndun hérlendis og yfirlit
veitt yfir sögu ljósmyndunar á
íslandi með fjölda mynda og
greinargóðum skýringartextum.
Er þessi sýning hin fyrsta sinnar
tegundar hér á landi.