Tíminn - 10.10.1989, Qupperneq 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 10. október 1989
Sýning Sigurborgar
í Ásmundarsal
Sigurborg Stefánsdóttir opnaði nýlega
sýningu á verkum sínum, í Ásmundarsal
við Freyjugötu.
Sigurborg er fædd 1959 og er nýflutt
heim eftir margra ára dvöl í Danmörku.
Hún stundaði nám hjá H.Cr. Höjer
listmálara í Kaupmannahöfn og síðar í
Skolen for Brugskunst í sömu borg. Hún
lauk prófi úr teikni- og grafíkdeild skólans
vorið 1987.
Hún hélt einkasýningu á málverkum
sínum 1988 í Aalborg kunstpavillon og
hefur tekið þátt í samsýningum á grafík-
myndum í Kaupmannahöfn. Hefureinnig
á undanförnum 2 árum tekið þátt í 6
samsýningum á málverkum s-víðs vegar
um Danmörku.
Á þessari fyrstu sýningu Sigurborgar á
Islandi sýnir hún akrýlmyndir á striga og
pappír.
Sýningin er opin virka daga kl. 16:00-
20:00 og um helgar kl. 14:00-20:00.
Sfðasti sýningardagur er 23. október.
Hallgrímskirkja - Starf aldraðra
t vetur verður leikfimi á þriðjudögum
kl. 12:00og hefst hún í dag. Einnigverður
leikfimi á föstudögum k. 10:00 undir
leiðsögn Jóhönnu Sigríðar Sigurðardóttur
sjúkraþjálfara.
Fót-, hár- og handsnyrting verður sömu
daga. Tekið er á móti pöntunum á
þriðjudögum og föstudögum eftir kl.
I3:0() í síma kirkjunnar 10745.
Fyrirlestur í Kennaraskóla-
húsinu við Laufásveg
í dag, þriðjudaginn 10. október kl.
16:30, flytur Gunnhildur Óskarsdótlir
æfingakcnnari fyrirlestur á vcgum Rann-
sóknastofnunar uppeldis- og menntamála
cr nefnist: Mikilvægi skólastefnu í nátt-
úrufræðikennslu. Fyrirlesturinn verður
haldinn í Kennaraskólahúsinu við Lauf-
ásveg. Öllum heimill aðgangur.
NÝHÖFN:
Sýning Valgarðs Gunnarssonar
Valgarður Gunnarsson opnaði nýlega
málverkasýningu í Nýhöfn, Hafnarstræti
18.
Á sýningunni eru olíumálverk unnin á
striga á síðustu tveimur árum.
Valgarður er fæddur í Reykjavík 1952.
hann stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1975-’79 og fram-
haldsnám við Empire State College í New
York 1979-81.
Þetta er fimmta einkasýning Valgarðs,
en hann hefur tekið þátt í fjölda samsýn-
inga. Valgarður sýndi síðast í Nýhöfn í
apríl 1988 smámyndir á pappír. I nóvem-
ber nk. er svo fyrirhuguð sýning hans í
Galleri Boj í Stokkhólmi.
Sýningin, sem er sölusýning, er opin
virka daga kl. 10:00-18:00 og kl. 14:00-
18:00 um helgar. Sýningunni lýkur 25.
október.
Myndakvöld F.Í. í Sóknarsal
Fyrsta myndakvöld Ferðafélags Islands
á þessu hausti verður miðvikudaginn 11.
október í Sóknarsalnum, Skipholti 50A
og verða þau sfðan annan miðvikudag í
mánuði til maí á næsta vuru.
Kvöldvökur veröa tvær til þrjár í vetur
og verða tilkynntar síðar.
Á myndakvöldinu nú sýna þátttakend-
ur í gönguferð um Jötunlicima í Noregi
myndir og segja frá ferðinni.
Eftir kaffihlé sýnir þýskur Ijósmyndari,
Edwin Podchull, myndir frá íslandi, en
hann hefur ferðast víða um landið.
Þessar myndasýningar eru opnar öllum
félagsmönnum og öðru áhugafólki.
Ferðafélag fslands
William D. Valgardson heldur
háskólafyrirlestur um ritlist
William D. Valgardson, rithöfundur
og prófessor í ritlist (creative writing) við
University of Victoria í Britist Columbia
í Kanada, flytur opinberan fyrirlestur í
boði Hcimspekideildar Háskóla Islands
þriðjud. 10. okt. kl. 17:15 í stofu 101 í
Odda. Fyrirlesturinn er öllum opin. Hann
fjallar um kennslu í ritlist og verður
fluttur á ensku.
William D. Valgardson er kunnasti
núlifandi rithöfundur af íslenskum ættum
í Kanada. Hann er fæddur 1939 og alinn
upp í Gimli í Manitoba og hlaut háskóla-
menntun sína m.a. í Winnipeg. Hann
hefur skrifað mikið um fólk af íslenskum
ættum í Kanada og nýtur sívaxandi vin-
sælda. Meðal bóka hans eru smásagna-
söfnin Blood Flowers (1973), God is not
a Fish Inspector (1975) og Red Dust
(1978), skáldsagan Gentle Sinners (1980)
og ljóðabækurnar A Carpenter of Dre-
ams (1986) og In the Cutting Shed (1986).
Hann hefur hlotið fjölda bókmenntaverð-
launa i Kanada. Þess má geta, að mánud.
9. okt. kemur út fyrsta íslcnska þýðingin
á sögu eftir Valgardson. Það er sagan
Blóðrót í þýðingu Guðrúnar Guðmunds-
dóttur.
Stefán Axel Valdimarsson við uppsetn-
ingu verka sinna
Sýning Stefáns Axels
á Kjarvalsstóðum
Stefán Axel Valdimarsson opnaöi ný-
lega málverkasýningu á Kjarvalsstööum.
Á sýningunni eru níu stór málverk unnin
meö akrýl á striga á sl. fjórum árum.
Stefán Axel er fæddur 1955. Hann
stundaði nám viö Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1981-84 og við Jan Van
Eyck Akademie í Maastricht 1984-’86.
Hann býr nú og starfar í Rotterdam í
Hollandi. Stefán hlaut sex mánaða starfs-
laun á þessu ári.
LESENDUR SKRIFA
Draumaveröld
í landi Davíðs
Ég er ekki sá maður sem fer með
allt í blöðin ef ég fæ einhverja
hugdettu eða flugu í höfuðið, reynd-
ar hef ég aldrei fyrr sent bréf til
nokkurs blaðs og er það því til marks
hve mjög mér cr niðri fyrir. Fyrir
þessu eru sem sagt hinar brýnustu
ástæður sem nú skal frá greint.
Nú í vikunni barst mér í hendur
gamalt tölublað Þjóðlífs sem ég
hafði ekki fyrr séð. Ég hafði ekki tök
á að lesa það fyrr en upp í rúm var
komið. Ég fletti blaðinu og dróst
eins og segull að þjóðmerkilegu
viðtali við Þorstein Pálsson. í fáum
orðum sagt las ég það allt frá orði til
orðs og hvert einasta atkvæði greypt-
ist í huga mér og ég mun vísast aldrei
gleyma neinu þeirra.
Þegar lestri var lokið var mér
horfin öll löngun til að skoða annað
efni blaðsins. Mér fannst allt annað
léttvægt og einskis virði eftir að hafa
lesið Þorstein. Ég lagði blaðið á
náttborðið, slökkti Ijósið og hreiðr-
aði um mig á koddanum. Yfir mig
féll værð og vellíðan og allur fram-
tíðarhrollur hvarf, mér fannst ég allt
í einu svo öruggur og heimurinn
bjartur og hlýr. Þorsteinn sagði að
Davíð ætti að koma á þing. Konan
skynjaði fjarrænu mína og ég fann
milli svefns og vöku að hún kyssti
mig lauslega á kinnina og bauð góða
nótt í guðs friði. Svo sofftaði ég
værum svefni, friðsælli og rórri en
mig rámkaði til að hafa átt árum
saman.
Um morguninn vaknaði ég léttur
sem aldrei fyrr, spratt framúr og
gerði morguntojlettið. Þá rifjaðist
upp fyrir mér draumur sem mig
hafði dreymt um nóttina. Hann var
á þá leið að mér fannst ég vera
staddur í afar miklu húsi þar sem
hátt var til lofts og vítt til veggja, svo
ég hafði aldrei séð neitt slíkt áður
nema í sjónvarpinu. Ég sat framar-
lega á áhorfendabekkjum með
mörgu öðru fólki sem ég ekki vissi
deili á. Handan okkar var mikið og
breitt svið og á því löng borðaröð.
Milli áhorfendabekkjanna og sviðs-
ins var víðáttumikið, mannlaust
gólf, en þó sá ég allvel til þeirra er á
sviðinu sátu. ÖÍl uppröðun og fyrir-
komulag var ólíkt því sem ég hafði
áður séð á Vesturlöndum og einna
líkast því sem sést á fréttamyndum
frá Kremlarmúrum.
Það var hins vegar svolítið undar-
legt, þó að ég veitti því enga sérstaka
athygli í draumnum, að mennirnir á
sviðinu voru á einhvern hátt ópers-
ónulegir og fjarrænir. Ég geri mér
nú grein fyrir því að ástæða þess er
án efa sú að í raun sá ég ekki andlit
þeirra, heldur, svo undarlegt sem
það er, einungis hár þeirra og örfáa
(2-3) skarpa andlitsdrætti sem þó
gerðu mér kleift að bera kennsl á
nokkra er sátu í öndvegi gegnt
áhorfendum. Undir andlitunum
voru þó greinileg hálsbindi. vel
hnýtt, og báru í skjannahvíta skyrtu.
Einn var þó með þverslaufu.
Ég sá að fyrir miðju var púlt á
borðinu, þó ekki hærra en svo að
upp af þvf var mikið höfuð og
hárfagurt. Ég kenndi þar samstundis
Davíð borgarstjóra. Hann var nú
sta^inn upp og gerði sig búinn til að
halda ræðu. f draumnum rifjaðist
upp fyrir mér viðtalið í Þjóðlífi og ég
fór að svipast um eftir Þorsteini og
mér til nokkurrar undrunar sá ég
hann yst á vinstri hönd Davíðs og yst
til hægri var Friðrik Sófusson. Næst
þeim voru ýmis kunnugleg andlit
gegnra sjálfstæðismanna en mér
þótti kynlegt að því nær sem menn
sátu Davíð, því óljósari urðu andlits-
drættir manna og mér var það
ógjörningur að bera kennsl á nokk-
urn við miðborðið.
Davíð stóð fyrir púlti og hóf nú
ræðu sína. Mér er fyrirmunað að
rifja upp hvað hann sagði í upphafi
en hann talaði af sannfæringarkrafti
eins og hans er von og vísa og það
er víst að hann sagði eitthvað sem
féll í frjóan og myldinn jarðveg.
Áheyrendur tóku því líka afar vel og
mikið klapp braust út er örlítil skil
urðu í máli hans, að vísu án hrifning-
arflauts. Þá gerðist nokkuð sem ég
átti svo sannarlega ekki von á og er
hin endanlega orsök þess að ég
settist niður og reit þetta bréfkorn.
Sem Davíð bíður þess að kyrrð
komist á að nýju og hann fái haldið
áfram máli sínu gerist hið óvænta. í
stað þess að menn linntu klappi sínu
og gæfu ræðumanni færi á að halda
áfram ræðunni lækkaði klappstyrkur
talsvert, en þó ekki nóg til að
ræðufært væri. Mér þótti það einnig
furðulegt að klappið gekk sem bylgja
frá hægri til vinstri og til baka aftur,
þ.e. áheyrendur klöppuðu ekki allir
í senn. Þetta var eins og að horfa á
stóran lóuhóp að hausti sem bylgjast
eftir sjóndeildarhringnum. Þannig
gekk þetta nokkra stund og aldrei
mátti Davíð mæla en að lokum reis
áheyrendaskarinn upp og gekk út
undir lágklappi.
Þannig endaði draumurinn sem
rifjaðist upp í morgun er ég burstaði
tennurnar. Hann vekur mér viss
ónot og þau spilla nokkuð þeirri ró
er ég öðlaðist við það að lesa viðtalið
fyrrnefnda. Ég er þó ekki viss um að
ástæða sé til ótta, en vona að einhver
draumráðningarmaður lesi þetta og
bið hann að ráða fyrir mig drauminn,
ef mark er að honum, og senda til
blaðsins svo ég megi finna gleði
mína og innri frið á ný.
Allranáðarsamlegast.
Sveinjón.
Þetta er fjórða einkasýning Stefáns, en
hann hefur einnig tekið þátt í fjölda
samsýninga hér heima og erlendis.
Þessi sýning Stefáns Axels er í sam-
vinnu við Listasalinn Nýhöfn, Hafnar-
stræti 18. Henni lýkur 22. október.
FK£YR ■
FREYR 18/89
Búnaðarblað
Á forsíðu þessa blaðs Freys er mynd af
Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum í
Ölfusi. Meðal efnis má nefna: Ritstjórn-
argrein „Staða Lífeyrissjóðs bænda“,
frásögn frá 50 ára afmæli Garðyrkjuskól-
ans á Reykjum, birt er síðari grein
Gunnars Guðbjartssonar „Hvaða breyt-
ingar hafa orðið á fjölda bænda og búskap
þeirra?”. Þá er grein um byggðaþróun í
Norður-Svíþjóð, grein eftir Sigurgeir
Þorgeirsson sauðfjárræktarráðunaut og
fleiri greinar um málefni bænda, svo sem
hirðingu og geymslu búvéla, verðlags-
grundvöll sauðfjárafurða, vetrarorlof á
Hótel Sögu og bændaferðir 1990 o.fl.
Á veiðum 2. tbl. 6. árg.
Hreindýraveiðar nefnist frásögn skot-
veiðimannsins Karls H. Bridde. Þá er
sagt frá ástandi fuglastofna, en tímaritið
Á veiðum fór á stúfana og kynnti sér
ástand rjúpna- og gæsastofna.
Jón G. Baldvinsson, formaður Sang-
veiðifélags Reykjavíkur bollaleggur í
grein sinni um aflabrestinn í sumar í
laxveiðum. og fyrirsögnin er „Erfitt verð-
ur að selja veiðileyfi í vetur". Ýmsir aðrir
ræða um þetta mál. Þá er sagt frá
gæsaveiðinámskeiði SKOTREYNAR,
birt er bréf erlends veiðimanns á Islandi
um aðstöðuna hér og fleira.
„Fótbrot og myrkraverk!” er fyrirsögn-
in á viðtali við ævintýramanninn Gísla
Ólafsson, formann SKOTEYJAR I blað-
inu er smásaga „Hið mikla samband”
eftir Edvald Sæmundsen. ýmsar veiðisög-
ur og sagt frá eftirminnilegum fiskum,
sýndar flugur og gerð þeirra.
Útgefandi er Frjálst framtak hf. en
ritstjóri og ábm. er Þorsteinn G. Gunn-
arsson.
Á forsíðu er mynd af Karli H. Bridde
með glæsilegan hreindýratarf.
VIKAN 5. okt. ’89
Á forsíðu þessarar Viku er mynd af
fallegri brúði í fallegum brúðarkjól, það
er Berglind Johansen, fegurðardrottning
Islands 1984, sem gekk í hjónaband í
ágústmánuði sl., en brúðguminn var Pét-
ur Albert Haraldsson. Sagt er frá brúð-
kaupi þeirra í máli og myndum í blaðinu.(
Ljósm. M. Hjörleifsson)
Viðtal er við Borgar Garðarsson, sem
er búsettur í Finnlandi og leikur með Lilla
Teatren. Þá er sagt frá rithöfundinum
Margit Sandemo, sem er höfundur „ís-
fólksins”, en hún segir frá dulrænni
reynslu. Rósa Ingólfsdóttir skrifar pistil,
sem nefnist „... eða þannig”. Myndir og
frásögn af tískusýningu í París hjá Pierre
Cardin eru í blaðinu, því þar var staddur
ljósmyndari Vikunnar og vinningshafi í
skafmiðaleik blaðsins, sem hlaut ferð til
Parísar.
Þá er grein um ófrjósemisaðgerðir og
ýmis vandamál þeim viðkomandi, grein
er um börn og hjónaskilnaði og áhrif
þeirra á börnin. Fastir liðir, svo sem
litmyndasögur, krossgátan o.fl. eru á
sínum stað og margt fleira efni.
Víkingur Arnórsson (t.v.) Ingvar J.
Karlssnn og Ragnheiður Viggósdótlir
Gjöf Paul Newman‘s-sjóðsins til
barnadeildar Landspítalans
Sjóður kvikmyndaleikarans Paul
Newman’s (Newman’s Own Foundation)
til styrktar líknarmálefnum hefur nýlega
gefið 10 þús. dollara í byggingasjóð
barnadeildar Landspítalans sem stofnað-
ur var fyrir 1 1/2 ári. (Byggingasjóður
nýja barnaspítalans).
Ingvar J. Karlsson læknir afhenti pen-
'ngagjöfina fyrir hönd Newmansjóðsins.
Við henni tóku Ragnheiður Viggósdóttir,
formaður Kvenfélagsins Hringsins og
Víkingur H. Arnórsson yftrlæknir, sem
eru gjaldkeri og formaður stjómar bygg-
ingasjóðsins.
Hallgrímskirkja - Starf aldraðra
Opið hús verður haldið á morgun,
miðvikudaginn 11. október og hefst kl.
14:30. Verður þá ekið frá kirkjunni í
Listasafn íslands og skoðuð málverkasýn-
ing Jóns Stefánssonar. Á eftir verða
kaffiveitingar í safnaðarsal kirkjunnar.
Þeir sem óska eftir bílfari til kirkju
hringi í fyrramálið í síma 10745 milli kl.
10:00 og 12:00.
t
Eiginkona mín
Margrét Friðriksdóttir
frá Kópaskeri
lést í Landsspítalanum 9. október.
Fyrir hönd aðstandenda.
Þórhallur Björnsson.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Benedikt Gíslason
frá Hofteigi
sem lést á sjúkradeild Borgarspítalans í Heilsuverndarstöðinni við
Barónsstíg sunnudaginn 1. þ.m., verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 11. október kl. 13.30.
Fjölskyldan.