Tíminn - 10.10.1989, Síða 13
Þriðjudagur 10. október 1989
Tíminn 13
Hafnarfjörður
Aðalfundur Félags ungra framsóknarmanna verður haldinn fimmtu-
daginn 12. október kl. 20.30, að Hverfisgötu 25.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Inntaka nýrra félaga.
Önnur mál.
Stjórnin
Aðalfundur Framsóknarfélags
Keflavíkur
verður haldinn mánudaginn 16. október kl. 20.30 í Iðnsveinahúsinu.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Rætt um vetrarstarfið.
Félagar, fjölmennið.
Stjórnin.
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík
borgarfulltrúi
fer í ferðalag undir leiðsögn Sigrúnar Magnúsdóttur, borgarfulltrúa,
sunnudaginn 15. október kl. 13.30 frá Umferðarmiðstöðinni í
Reykjavík. Við byrjum á að heimsækja Vatnsveitu Reykjavíkur
(Gvendarbrunna). Förum svo að Nesjavöllum og að Úlfljótsvatni í
Félagsmiðstöð Reykjavíkurborgar. Þar segir Sigrún Magnúsdóttir
okkur frá ferð sinni til Moskvu. Farið verður heim um Þingvelli.
Góðfúslega látið vita um þátttöku fimmtudaginn 22. október milli kl.
16 og 18 í síma 24480.
Mætið vel.
Stjórnin.
Reykvíkingar
Sunnudaginn 22. október nk. kl. 13.00, gengst umferðarnefnd
Fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Reykjavík fyrir ráðstefnu á
Holiday Inn.
Fjallað verður um umferðar- og öryggismál í Reykjavík.
Ráðstefnugestum verður ekið um borgina til glöggvunar á umferðar-
mannvirkjum og umferðaröryggísmálum.
Nánar auglýst síðar.
Allir velkomnir.
Upplýsingar gefur Þórunn á skrifstofu Framsóknarflokksins í síma
24480.
Nefndin.
ÁRSHÁTÍÐ K.S.F.A. - 1989
verður haldin í Hótel Bláfelli 14. október n.k.
Húsið opnað kl. 20.00 - Borðhald hefst kl. 20.00.
Matse&ill: Kabarettborð að hætti hússins.
Ávörp: Halldór Ásgrímsson
Jón Kristjánsson
Jónas Hallgrímsson.
Gamanmál: Jóhannes Kristjánsson.
Fjöldasöngur og skemmtiatriði í umsjón heimamanna.
Kjördæmissamband framsóknarmanna á Austurlandi.
Sýnum
gagnkvæma tillitssemi
í umferðinni.
I göngu-
túr með
fiskana!
Hann Dave Moore í Rosemead
í Kaliforníu var ánægður með sig,
þegar hjólið hans fór loks að
snúast, en farartækið er smíðað
eftir 500 ára gamalli teikningu.
Það var enginn annar en listam-
aðurinn Leonardo da Vinci sem
gerði upphaflegu teikninguna, en
hvort hann smíðaði gripinn eftir
henni er ekki vitað.
Dave Moore, sem er 37 ára
vélsmiður, segir að hann búist við
þvf, að erfitt hafi verið fyrir Leon-
ardo að koma hjólinu af stað á
Ítalíu fyrir 500 árum, því að það
þarf svo langan sléttan flöt til að
komast á ferð til að hægt sé að
halda jafnvæginu, en Dave heldur
að vegir hafi verið slæmir á Ítalíu í
þann tíð.
Þetta smíðisstykki er tveggja og
hálfs metra hátt, með sæti og stýri
fyrir ökumann innan í stóra
hringnum, en myndin skýrir sig
best sjálf. Smiðurinn segist hafa
eytt fjórum mánuðum í verkið, en
lítið þurft að kaupa til þess. Hann
hafi aðallega notað gamla varahluti
úr bílum, en keypt ýmislegt smá-
legt fyrir um 100 dollara.
Hún Sharon Hawthorne erfalleg
stúlka og sjálfsagt myndu herrarnir
snúa sér við og horfa á hana og
hennar fallegu fætur, þó að hún
hefði einfaldlega verið með hund í
bandi.
En nú voru það ekki hundar -
heldur fiskar - sem Sharon var úti
að ganga með í miðborg Lundúna.
Hún vakti geysilega eftirtekt, þar
sem hún gekk um stræti og torg
með tvo uppáhalds-gullfiskana
sína í sérstöku keri með loki, sem
uppfinningamaðurinn Andy Hill
bjó til. Andy þessi er eigandi
auglýsingastofu, og ef til vill hefur
það átt sinn þátt í því að hann vildi
vekja athygli vegfarendanna. í
næstu gönguferð verður líklega
auglýsing á fiskabúrinu hennar
Sharon.
Andy Hill var spurður hvort
þetta uppátæki hans væri gert í
auglýsingaskyni. Hann sagði það
ekki vera. „Ég bjó þetta til vegna
þess, að mér finnst að gullfiskar
fari allt of lítið út,“ sagði hann
grafalvarlegur.
Sharon í gönguferð með gullfískana sína
teiknað
af
Leonardo
da Vinci