Tíminn - 10.10.1989, Page 15
. . x - 1 l I i '• -
Þriðjudagur 10. október 1989
,»> ,T Þ »
Tíminn 15
llllllllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR [llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Handknattleikur:
Ishokkíleikur
í Hafnarfirði
Fjögur rauð spjöld á loft þegar FH vann HK 29-24
Það var ekki áferðarfallegur handknattleikur sem boðið
var uppá í íþróttahúsinu við Strandgötu á Iaugardaginn þegar
FH-ingar fengu HK-menn í heimsókn. Ruddaskapur, ljót
brot og geðillska réðu ríkjum, þó einkum hjá HK mönnum.
Undir lok leiksins fór aUt úr böndunum, fjögur rauð spjöld
fóru á loft og engu var líkara en um íshokkfleik væri að ræða.
Leikurinn var í jafnvægi allt þar til
staðan var 4-4. HK-menn höfðu
leikið af yfirvegun og gefið sér
góðan tíma í sóknir sínar. Leiðir
skildu með liðunum eftir að FH-ing-
ar gerðu 4 mörk í röð og breyttu
stöðunni í 8-4. Fram að leikhléi
jókst munurinn jafnt og þétt og var
16-8 þegar að hléinu kom.
Mestur munur á liðunum í síðari
hálfleik var 9 mörk 20-11 og 21-12.
Eftir það slökuðu FH-ingar nokkuð
á og HK-menn neituðu að gefast
upp. Aukin harka færðist í Ieikinn
og eftir að HK-menn höfðu breytt
stöðunni úr 26-18 í 27-24 sauð
endanlega upp úr. Eyþór Guðjóns-
son HK-maður hafði þá nýfengið að
líta rauða spjaldið, sem sína þriðju
brottvísun. Ásmundur Guðmunds-
son braut mjög gróflega á Jóni
Erling Ragnarssyni FH- ing, Jón
Erling svaraði fyrir sig og Héðinn
Gilsson kom honum til hjálpar og
hljóp Ásmund niður. Allir þrír fengu
rautt spjald hjá dómurum leiksins.
Eftir þetta upphlaup gerðu þeir
Gunnar Beinteinsson og Magnús
Einarsson hvor sitt markið fyrir FH
og tryggðu þar með 29-24 sigur
liðsins.
Eins og áður segir var leikurinn
mjög grófur og alls þurftu leikmenn
að vera 36 mín. utan vallar vegna
brottvísana, 18 mín. í hvoru liði.
HK-menn börðust vel í leiknum, en
létu skapið hlaupa með sig í gönur.
Leikmenn liðsins verða að átta sig á
því að þeir eru handknattleiksmenn,
en ekki íshokkíleikmenn. FH-ingar
æstust upp og voru næstum búnir að
klúðra unnum leik út úr höndunum.
FH-ingar léku einnig gróft, enda
annað erfitt eins og leikurinn þróað-
ist.
Óskar Ármannsson, Gunnar
Beinteinsson og Héðinn Gilsson eru
kjölfestan í liði FH og þeir léku vel
í leiknum. Einnig varði Guðmundur
Hrafnkelsson mjög vel.
í liði HK var íiðsheildin samstillt,
allir sem einn börðust þeir HK-
menn, því miður meira af kappi en
Njarðvík vann Tindastói 94-89 í
úrvaisdeildinni í körfuknattleik á
sunnudag. Staðan í háifleik var 50-
49.
Tindastóll skoraði fyrstu körfuna,
en Njarðvíkingar svöruðu með
þriggja stiga körfu. Liðin skiptust
síðan á um forystuna allan fyrri
hálfleikinn, en undir lok hans náðu
Njarðvíkingar 5 stiga forystu, en
Valur Ingimundarson minnkaði
muninn í 50-49 og þannig var staðan
í hálfleik.
Stólarnir byrjuðu síðari hálfleik-
inn af krafti og komust í 9 stiga
forskot 61-52 og héldu forskotinu
nær allan hálfleikinn. Þegar um 2
mín. voru til leiksloka var staðan
87-84 Tindastóli í hag, en þá kom
góður kafli hjá Njarðvíkingum, þeir
skoruðu 10 stig gegn 2 og sigruðu
94-89.
Svæðisvörn Njarðvíkinga gekk
upp í lok síðari hálfleiks, þeirstopp-
uðu skotmennina og háir það Tinda-
stól hversu litla breidd þeir hafa.
Bestir hjá þeim voru Valur, Bo
Heiden sem skorar mikið og er
góður varnarmaður og einnig drjúg-
ur í fráköstunum.
Hjá Njarðvíkingum var Teitur
forsjá.
Mörkin FH: Óskar Ármannsson
8/3, Gunnar Beinteinsson 6, Þorgils
Óttar Mathiesen 5, Héðinn Gilsson
4/1, Jón Erling Ragnarsson 3, Hálf-
dán Þórðarson 3 og Magnús Einars-
son 1. HK: ÓskarE. Óskarsson 7/5,
Gunnar M. Gíslason 5, Eyþór Guð-
jónsson 4, Róbert Haraldsson 3,
Ásmundur Guðmundsson 2, Magn-
ús Sigurðsson 2 og Kristján Gunn-
arsson 1/1.
Leikinn dæmdu þeir Egill Már
Markússon og Kristján Sveinsson.
Þeir gerðu hvað þeir gátu til þess að
hafa hemil á leikmönnum, en án
árangurs. Leikmenn létu sér ekki
segjast þótt þeir væru reknir af
leikvelli hvað eftir annað. BL
góður, en hann lenti í villuvandræð-
um og því varð að hvíla hann hluta
af fyrri hálfleik. Patrik Ruleford lét
ekki mikið yfir sér í fyrri hálfleik, en
fór á kostum í þeim síðari. Friðrik
Ragnarsson spilaði of lítið, en skor-
aði mikilvægar körfur.
í heildina var þetta mikill baráttu-
leikur og auðséð að bæði liðin ætluðu
sér sigur. Þessi Iið verða í toppbar-
áttunni í vetur og kemur til með að
muna um Eyjólf Sverrisson í Tinda-
stólsliðinu.
Leikinn dæmdu þeir Kristinn Al-
bertsson og Helgi Bragason. Leikur-
inn var ekki auðdæmdur, en þetta
var ekki þeirra dagur, sérstaklega
var Helgi slakur. Hvorugt liðið hagn-
aðist á slakri dómgæslu.
Tölur úr leiknum: 0-2,10-4,16-16,
26-26, 34-28, 38-39, 50-49.
52-61, 63-71, 77-79, 84-83, 84-87,
94-87 og 94-89.
Stigin UMFN: Patrik Releford
31, Teitur Örlygsson 22, Jóhannes
Kristbjörnsson 12, Helgi Rafnsson
9, Friðrik Ragnarsson 6, ísak Tóm-
asson 5, Friðrik Rúnarsson 4, Ástþór
Ingason 3 og Kristinn Einarsson 2.
UMFT: Valur Ingimundarson 37,
Bo Heiden 33, Sturla örlygsson 13,
Haraldur Leifsson 4 og Sverrir
Sverrisson 2. BL
Handknattleikur:
Eins marks
sigur Gróttu
Eftir spennandi lokamínútur í leik
Gróttu og ÍR á Seltjaraarnesi stóðu
heimamenn uppi sem sigurvegarar
gegn ÍR-ingum 21-20. Gróttan hafði
yfir í hálfleik 12-8, en ÍR-ingar
jöfnuðu 17-17. Einum fleiri höfðu
ÍR-ingar tækifæri á að jafna leikinn
undir lokin, en misstu þess í stað
knöttinn.
Bestu menn Gróttu voru Stefán
Amarson og Halldór Ingólfsson og
Willum stóð fyrir sínu í vöminni.
Hjá ÍR var Ólafur Gylfason góður
og Guðmundur Þórðarson lék vel í
vörninni.
Mörkin Grótta: Stefán 8/1, Hall-
dór 5/2, Sverrir 3, Páll 2, Willum 2
og Friðleifur 1. ÍR: Sigfús Orri 5/2,
Róbert 4, Ólafur 3, Guðmundur 3,
Frosti 2, Matthías 2 og Magnús 1.
PS/BL
Evrópukeppnin í
handknattleik:
Stjarnan og
KR úr leik
KR-ingar léku báða Evrópuleiki
sína gegn norska liðinu Urædd ytra
um helgina. Þeim fyrri lauk með
26-22 sigri norska liðsins og því
dugði 22-20 sigur liðsins í síðari
leiknum þeim ekki í 2. umferð
keppninnar. Stefán Kristjánsson var
atkvæðamestur KR-inga í leikjunum
og gerði alls 19 mörk.
Síðari leik Stjörnunnar og sænska
liðsins Drott lauk með 27-20 sigri
Drott, sem samtals töpuðu með 16
mörkum. Gylfi Birgisson skoraði
flest mörk Stjörnunnar 5.
Körfuknattleikur:
Þórsarar
kjöldregnir
Haukar tóku Þórsara frá Akureyri
heldur betur í kennslustund á sunnu-
daginn og unnu með rétt tæplega
helmingsmun, 120-61, eftir að stað-
an í hálfleik var 58-27.
Stigin Haukar: Bow 31, Ivar Á.
23, Henning 23, Jón Arnar 9, Pálmar
9, Reynir 8, Eyþór 7, Tryggvi 6 og
Webster 4. Þór: Guðmundur 20,
Konráð 17, Kennard 11, Eiríkur 5,
Þórir 2 og Jón Örn 2.
Létt hjá UMFG
Reynismenn vora engin fyrirstaða
fyrir Grindvíkinga á sunnudag.
Leiknum lauk með 91-66 sigri
UMFG eftir að staðan í hálfleik var
42-35.
Stigin UMFG: Guðmundur 23,
Null 15, Rúnar 12, Hjálmar 12,
Sveinbjörn 7, Steinþór 7, Ólafur 6,
Jón Páll 5, Guðlaugur 2 og Eyjólfur
2. Reynir: Grissom 26, Jón Ben 13,
Einar 10, Sveinn 9 og Ellert 8.
Þrír leikir fóru fram í 1. deild kvenna um helgina. FH-stúlkur unnu nauman
sigur á Haukum 15-14 í spennandi leik, einnig unnu Valsstúlkur nauman sigur
á Stjöraunni 17-16 að Hlíðarenda. I íþróttahúsinu á Seltjaraamesi var
hinsvegar öruggur Gróttusigur staðreynd á KR- stúlkum 25-21. Þessi sigur
Gróttustúlkna var þeirra fyrsti í 1. deild kvenna . Á meðfylgjandi mynd má
sjá markahæstu stúlku Gróttuliðsins, Þurý Reynisdóttir, brjótast í gegn um
KR-vöraina og skora eitt af sex mörkum sínum í leiknum. Tímamynd Pjetur
Körfuknattleikur:
Baráttuleikur
Frá Margrétí Sanders íþróttafréttarítara
Tímans á Sudumesjum:
BL
Valsmenn enn án stiga
- eftir 79-81 tap gegn ÍR-ingum
ÍR-ingar vora nálægt því að
missa unninn leik út úr höndunum
um helgina, þegar þeir fengu Vals-
menn í heimsókn í íþróttahús Selja-
skóla. Valsmenn minnkuðu mun-
inn niður í 2 stig, en tíminn var of
naumur og í R-ingar sigruðu 81-79.
í R-ingar hófu leikinn af miklum krafti
og voru einráðir á vellinum fyrstu 13
mínútumar, eins og tölumar bera með
sér, 5-0, 15-2 26-6, 33- 12. Valsmenn
vöknuðu síðan til Iífsins og náðu að
minnka muninn mest í 8 stig 36-44. í
leikhléinu var munurinn á liðunum 9
stig 47-38.
Heimamenn höfðu yfirburði fyrstu
mín. síðari hálfleiks og juku forskot
sitt, mestur munur var 18 stig, 62-44
þegar 8 mín. vom liðnar af hálfleiknum.
En Valsmenn réðu ferðinni síðustu
10 mín. leiksins og söxuðu jafnt og þétt
á forskot iR-inga. Eftir að Tommy Lee
fór af leikvelli fyrir fullt og allt vantaði
allt fmmkvæði í leik ÍR-inga og
Valsmenn, með Chris Behrends í farar-
broddi vom hættulegir.
Síðustu 5 sek. leiksins höfðu Vals-
menn tækifæri til þess að jafna leikinn,
staðan var 81-79, en tíminn var of
naumur og ÍR vann sanngjaman sigur.
Breiðhyltingar vom þó heppnir að vera
ekki refsað fyrir að klúðra unnum leik
niður í ströggl.
Björn Steffensen átti góðan leik hjá
ÍR-ingum, skoraði 30 stig, þar af 23 í
fyrri hálfleik. Athygli vakti að Bjöm
gerði ekki stig síðustu 10 mín. leiksins.
Tommy Lee lék vel, hirti á annan tug
frákasta og skoraði þegar á þurfti að
halda. Jóhannes Sveinsson var einnig
góður að vanda. Vamarleikur ÍR-inga
var þó mjög slakur og gerðust allir
leikmenn liðsins sekir um slæm vam-
armistök.
Hjá Val er Bandaríkjamaðurinn
Chris Behrends allt í öllu. Án hans væri
liðið illa statt. Svali Björgvinsson er að
ná sér á strik, en mesta athygli í leiknum
vakti stórgóð frammistaða Guðna Haf-
steinssonar, sem lék sinn fyrsta leik með
Val, en hann lék áður með yngri
flokkum ÍBK. Guðni átti einna mestan
þátt í því að Valsmenn minnkuðu
muninn, ásamt Behrends.
Leikinn dæmdu þeir Jón Otti Ólafs-
son og Leifur Garðarsson. Frammistaða
þeirra var í samræmi við leikinn eða
léleg.