Tíminn - 10.10.1989, Side 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300
RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnarhúsinu v/Tryggvogötu, S 28822 ri SAMVINNUBANKINN í BYGGÐUM IANDSINS Leigum út sali fyrir fundi og einkasamkvæmi og aðra mannfagnaði PÓSTFAX TÍMANS 687691
Tíminn
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1989
Hussein Jórdaníukonungur gisti ásamt fylgdarliði á Hótel Sögu í nótt:
Pantaði 65 herberg imeð
10 klukkutíma fyri rvara
Hussein Jórdaníukonungur gisti á Hótel Sögu í nótt,
ásamt fylgdarliöi. Hann tók á leigu 65 af 218 herbergjum
á hótelinu. Þrátt fyrir mjög stuttan fyrirvara tókst að verða
við beiðni konungsins og útvega þau herbergi er hann
óskaði eftir.
Hussein lenti á Keflavíkurflug-
velli í gærkvöldi, og var þá að
koma frá Róm þar sem hann
fundaði um friðaráætlun Mubaraks
Egyptalandsforseta. Hann er á leið
í fimm daga opinbera heimsókn til
Kanada ásamt fríðu föruneyti.
Ekki hefur Tímanum tekist að afla
sér upplýsinga um heildarfjölda í
liði konungs, en bílaflotinn er 24
bílar, ein rúta og tveir sendiferða-
bílar sem flytja farangur, og segir
það sitt um þann fjölda sem er með
í ferð. Fjöldi blaða- ogfréttamanna
ásamt öryggisvörðum er með
Hussein í för. Ekki var um viðhafn-
armóttökur að ræða af hálfu ís-
lenskra stjórnvalda þar sem þetta
er ekki opinber heimsókn. Hins
vegar tók Sveinn Björnsson, sendi-
herra og prótókollstjóri á móti
Hussein fyrir hönd íslenskra
stjórnvalda.
Þegar komið var til Reykjavíkur
hélt konungur á Hótel Sögu, en
hann hafði pantað Griliið fyrir sig
í gærkvöldi. Ekki var breytt um
matseðil fyrir komu konungs og
mun hann að öllum líkindum hafa
snætt íslenskt lambakjöt, matreitt
af Ragnari Wessman, sem var
yfirkokkur í Grillinu í gærkvöldi.
Jónas Hvannberg aðstoðarhótel-
stjóri á Sögu sagði í samtali við
Tímann í gær að auðvelt hefði
verið að verða við pöntuninni, þar
sem öll sjöunda hæðin, þar sem
svítan er, var laus. Ástæðan fyrir
því er sú að Alexandra prinsessa,
sem er skyld Elíasbetu Englands-
drottningu fór út af hótelinu í
gærmorgun og hittist pöntunin því
mjög vel á.
„Eg trúi því raunar ekki að hann
gisti hér, fyrr en ég sé hann koma,“
sagði Jónas, í gær.
Vegna öryggisástæðna kemur
það fyrir að þjóðhöfðingjar panta
heilu hæðirnar á hótelum, en mæta
svo ekki á staðinn. Er þá verið að
villa um fyrir hugsanlegum misind-
ismönnum. Tvö tiltölulega nýleg
dæmi eru um slíkar pantanir á
Hótel Sögu. Gorbatsjov Sovétleið-
togi hafði gefið það í skyn þegar
hann kom til Reykajvíkur á leið-
togafundinn, að hann myndi dvelja
í svftunni á Sögu. Hann gisti hins-
vegar í skemmtiferðaskipi í
Reykjavíkurhöfn þegar til kom.
Annað dæmi um slíka „öryggis-
pöntun“ var ekki alls fyrir löngu,
er forstjóri stórfyritækis í Evrópu
pantaði fjöldan allan af herbergj-
um, en mætti svo ekki. Daginn
eftir barst Sögu skeyti þar sem
greint var frá að pöntunin hefði
verið gerð í öryggisskyni. Forstjór-
inn sendi greiðslu um hæl fyrir
.umstanginu.
Það var ekki fyrr en klukkan 10
í gærmorgun að pöntunin barst, en
áður hafði verið búið að panta fyrir
áhöfn flugvélarinnar. Síðan var sú
pöntun afturkölluð og loks pantað
aftur fyrir áhöfnina, þar til loks í
gærmorgun var pantað í þriðja
sinn og þá 65 herbergi.
Á Hótel Sögu þurfti að fjölga
starfsmönnum í veitingasal og
einnig verður vikapiltum fjölgað.
Hussein Jórdaníukonungur mun
hitta forseta íslands, frú Vigdísi
Finnbogadóttur, fyrir hádegi í dag.
Hussein heldur aftur af landi
brott í dag, skömmu eftir hádegi.
-ES
Starfsfólk á heilsugæslustöðinni á Seltjarnamesi var að hreinsa upp glerbrot þegar ljósmyndari Tímans átti leið um.
Tímamynd Pjctur
Rúðubrot á Nesinu
Allmikið var um rúðubrot á Sel-
tjarnarnesi um síðustu helgi. Mest
var brotið að rúðum í heilsugæslu-
stöðinni á Seltjarnarnesi eða níu
rúður. Einnig voru brotnar rúður í
Valhúsaskóla og í Sundlaug Sel-
tjamarness. Grunur leikur á að
nokkrir ungir piltar hafi verið að
verki. Ekki er vitað hvað rúðubrjót-
unum gekk til með tiltæki sínu.
Runólfur ísaksson húsvörður við
heilsugæslustöðina á Seltjarnarnesi
sagði að hér væri eingöngu um að
ræða skemmdarstarfsemi. Ekki var
gerð tilraun til að fara inn í húsin.
„Þetta er bara prakkaraskapur í
einhverjum krökkum sem vantar
eitthvað að gera. Það væri betur ef
þeir gætu svalað athafnaþrá sinni við
eitthvað annað en að brjóta rúður,“
sagði Runólfur.
Runólfur sagði að eitt af því sem
skemmdarvargarnir hefðu dundað
sér við var að reyna að brjóta gler í
útidyrahurð. Þar er um að ræða
sérstaklega hert gler. Skemmdar-
vargarnir höfðu greinilega reynt
mikið til að brjóta þetta gler því að
fyrir framan dyrnar voru stórir stein-
ar sem höfðu verið notaðir við að
reyna að brjóta það. Það tókst ekki
en sjá má far á rúðunni eftir grjótið.
Runólfur sagði að heilsugæslu-
stöðin hefði oftast sloppið vel þegar
rúðubrjótar taka til hendinni á Sel-
tjarnarnesi. Valhúsaskóli og sund-
laugin hafa aftur á móti oft orðið
fyrir barðinu á þeim. Einhver hluti
þeirra ungmenna sem eru að
skemmta sérniðri íbæ komagjarnan
við, á heimleiðinni, hjá þessum
stofnunum og brjóta í þeim rúður.
Lögreglan var búinn að yfirheyra
nokkra pilta sem eru grunaðir unt að
hafa átt aðild að skemmdarverkun-
um nú um helgina. Þeir hafa neitað
sakargiftum.
Að sögn manna sem þekkja til
skemmdarverka af þessu tagi, fylgja
þau skammdeginu og skólunum.
Yfirgnæfandi meirihluti allra rúðu-
brota eru unnin að nóttu til um
helgar. Erfitt er að segja til um af
hverju sumar stofnanir verða frekar
fyrir barðinu á skemmdarvörgum en
aðrar. Líklegt er þó að staðsetning
og hönnun húsa ráði einhverju.
Maður rænir annan fyrir framan lögreglustöðina við Hlemm;
varðstjóri brá hart við og yfirbugaði ræningjann:
Hljóp uppi þjóf
og hlaut nefbrot
Laust fyrir klukkan hálf sex í
gærdag kom til átaka á miili lög-
regluvarðstjóra og rúmlega þrítugs
manns, skammt fyrir utan lögreglu-
stöðina við Hlemm. Maðurinn sem
staðinn hafði verið að því að ræna
annan mann, náði að slá lögreglu-
varðstjórann í andlitið með þeim
afleiðingum að hann nefbrotnaði.
Þjófurínn komst þó ekki undan og
er hann nú í gæslu lögreglunnar.
Tildrög þessa atburðar eru þau
að ölvaður maður kom inn á lög-
reglustöðina og kvaðst hafa verið
rændur við strætisvagnastöðina
beint á móti. Vakthafandi lög-
regluvarðstjóri, Grétar Norðfjörð,
brá hart við, hljóp út eftir að hafa
fengið lýsingu á þjófnum og leitaði
hann uppi. Þjófurinn rann hins
vegar á flótta, eftir að varðstjórinn
hafði gert honum grein fyrir mála-
vöxtum, og hljóp allt hvað af tók í
burtu með lögregluvarðstjórann á
hælum sér. Eftir stuttan sprett náði
varðstjórinn þjófnum sem snérist
þá til varnar og náði að berja hann
þrjú föst högg í andlitið. Þrátt fyrir
þessi fantalegu viðbrögð þjófsins
náði varðstjórinn að yfirbuga hann
og koma honum í járn.
Að sögn lögreglunnar er maður-
inn tíður gestur þeirra og hefur oft
fengið að gista fangageymslur
borgarinnar undir slæmum kring-
umstæðum sínum. Hann mun vera
illa skapi farinn, hættulegur og laus
höndin þegar því er að skipta.
Þjófurinn mun ekki hafa náð mikl-
um verðmætum af þeim er hann
rændi, það var þó ekki að fullu
ljóst í gærkveldi, þar sem ekki
hafði reynst kleift að taka skýrslu
af þeim sem rændur var, vegna
ölvunar. Árás þjófsins á lögreglu-
varðstjórann mun hins vegar kærð.
-ÁG
Bifhjólaslys á reiðvegi
Bifhjólaslys varð á reiðvegi sem
liggur með Suðurlandsvegi við
Hraungerði á sunnudagsmorgun.
Slysið varð með þeim hætti að tveim
bifhjólum var ekið í austurátt eftir
reiðveginum. Þeir óku nokkuð greitt
á veginum og sagðist annar bifhjóla-
maðurinn ekki hafa munað eftir læk
sem þar var og því of seinn til að
draga úr hraða þegar að honum kom
og steyptist í lækinn. Hann sagðist
ekki hafa munað eftir sé fyrr en uppi
á hinum bakkanum. Hinn maðurinn
ók á hjólið þar sem það var í læknum
og kastaðist við það af hjólinu.
Mennimir voru fluttir á slysadeild
en meiðsl þeirra munu ekki hafa
verið alvarleg. -ABÓ