Tíminn - 09.11.1989, Page 1
Stjórn stærstu strandeldisstöðvar á Islandi náoi ekki samkomulagi um björgunaraðgerðir:
Islandslax óskar
VOFLUR A KROTUM UT
AF VIRÐISAUKASKATTI
' * . .
liSl®IKSIS
- ví
Eldisker íslandslax hf. en þar eru nú um 400 tonn af laxi.
Eftir miklar fundasetur sem stóðu með hléum í tvo
daga ákvað stjórn íslandslax hf. í gær að óska eftir
að fyrirtækið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Skuldir
fyrirtækisins nema rúmlega einum milljarði kr. Þar af
hafa hluthafar lánað fyrirtækinu verulegar upphæðir
og stærstu kröfuhafarnir hafa veð í eignum þannig að
talið er að almennir kröfuhafar, sem eiga óveðbundn-
ar kröfur, muni tapa rúmum 100 milljónum króna.
Tímamynd: Pjetur
íslandslax er stærsta strandeldisstöð á (slandi og
hefur unnið mikið brautryðjendastarf í fiskeldi hér á
landi, en 51% fyrirtækisins er í eigu Sambandsins og
samstarfsfyrirtækja þess og 49% eru í eigu norska
fyrirtækisins Noraqua. Árangurslausar tilraunir þess-
ara aðila til að ná samkomulagi um björgunaraðgerðir
knúðu fram þessi málalok í gær.
• Blaðsíða 5
■é