Tíminn - 03.01.1990, Síða 2
L rrif.j‘1
2 Tíminn
'i-t i .cijiy. :ijyobu>íiv6if7Í
Miðvikudagur 3. janúar 1990
Háskólamenntaðir og atvinnurekendur kvarta mest allra um streitu:
Streita hefur tvö-
faldast á 20 árum
Fjöldi fólks á aldrinum 34-44 sem kvartar undan streitu,
hefur tvöfaldast á síðustu tveimur áratugum. Háskólamennt-
að fólk og atvinnurekendur kvarta oftar undan streitu en
aðrar stéttir. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um streitu,
vinnu og heilsu í velferðarþjóðfélagi sem Ólafur Ólafsson
landlæknir hefur unnið.
Ólafur sagði í samtali við Tímann
að greinilegt væri að kvörtunum um
streitu hafi fjölgað samhliða því sem
velmegun þjóðarinnar hafi aukist.
Er nú svo komið að íslendingar eru
að komast á svipað stig hvað þetta
varðar og aðrar Norðurlandaþjóðir.
Ólafur sagði alveg ljóst að þeir sem
kvarta um streitu væru oftar veikir
en hinir sem ekki kvarta um streitu.
Benti hann á að kostnaðurinn sem
hlýst af sjúkdómum sem má rekja til
streitu væri mikill, einkum þó hinn
óbeini kostnaður svo sem vegna
fjarvista frá vinnu, magasára, bak-
verkja og fleira.
í skýrslunni kemur fram að vinnu-
Árið 1989:
49 létust
vegna slysa
49 einstaklingar, þar af þrír
erlcndir ríkisborgarar, létust af
slysförum hér á landi á árinu
1989. Ef skoðað er yfirlit yfir
síðastliðin tíu ár kemur í Ijós að
banaslysin urðu fæst á síðast-
liðnu ári en flest á árinu 1980,
eða 83. Samtals hafa 654 ein-
staklingar, þar af 50 erlendir
ríkisborgarar, dáið af slysförum
á þessu tímabili. Þessar upplýs-
ingar koma fram í yfirliti sem
Slysavarnafélag íslands hefur
sent fjölmiðlum.
Á síðastliðnu ári létust sjö manns
vegna sjóslysa eða drukknana. í
umferðarslysum létust 30, þar af
tveir erlendir ríkisborgarar. í flug-
slysum lést einn en ellefu einstakl-
ingar, þar af einn útlendingur, létust
vegna slysa sem flokkuð eru sem
ýmis banaslys.
Ef skoðað er á yfirlit yfir banaslys
hér á landi á árabilinu 1980-1989
kemur í ljós að samtals hafa 654
einstaklingar látist vegna slysa á
þessu tímabili, þar af 50 útlendingar.
Flestir hafa látist í umferðarslysum
eða 262 (22), 166 (14) vegna sjóslysa
og drukknana, 158 (14) hafa látist
vegna ýmissa slysa og 38 hafa farist
í flugslysum. Enginn útlendingur
lést í flugslysi hérlendis á þessu
árabili en hvað hina flokkana varðar
er fjöldi erlendra ríkisborgara sýnd-
ur í svigunum.
Eins og áður sagði tóku banaslysin
minnstan toll á síðastliðnu ári, eða
49 mannslíf ef litið er á undanfarin
tíu ár. Flest urðu slysin árið 1980 en
þá létust 83 einstaklingar í slysum
hér á landi. Munar þar mestu um að
óvenju margir fórust vegna sjóslysa
og drukknana það ár en af yfiriitinu
má sjá að svo til á hverju ári hafa
flest banaslysin orðið í umferðinni.
SSH
Aktu eins og þú vilt
aðaoriraki!
*UM EINS OG UENN' llUMFEWM
tími kvenna hefur aukist mjög mikið
á síðustu árum. Á árunum 1967-69
unnu 75% kvenna á aldrinum 34-44
ára lengri en 55 tíma vinnuviku. Á
árunum 1983-85 unnu 92% kvenna í
þessu aldurshópi lengri en 55 tíma
vinnuviku. Sambærilegar tölur fyrir
karla í sama aldurshópi er um 65%
fyrir bæði tímabilin. Inni í þessum
tölum er vinna á heimili og öll vinna
utan heimilis.
Svör fólks um streitu eru byggð á
hóprannsókn Hjartaverndar meðal
karla og kvenna fæddra á árabilinu
1907-1954 sem búa á höfuðborgar-
svæðinu.
Karlar og konur á aidrinum 34-44
„Hér hefur verið biðröð í allan
dag og raunar í gær líka. Ekkert
þessu líkt hefur gerst hér áður,“
sagði Sigurður B. Stefánsson hjá
Verðbréfamarkaði Iðnaðarbankans
þegar Tíminn ræddi við hann sl.
föstudag. Þar stóðu 10-20 manns í
biðröð til að kaupa hlutabréf frá
ára kvörtuðu tvöfalt oftar um streitu
á árabilinu 1983-85 en á árabilinu
1967-69. Þærstéttir sem kvartaeinna
mest um streitu eru háskólamenntað
fólk og atvinnurekendur. Stéttir sem
kvarta einna minnst um streitu eru
húsmæður og ófaglært fólk. Há-
skólamenntaðar konur á aldrinum
34-44 kvarta einna mest undan and-
legri streitu. Áberandi er að fólk á
aldrinum 46-61 árs kvartar mun
sjaldnar um streitu en fólk á aldrin-
um 34-44 ára. Landlæknir sagði að
skýra mætti mismuninn á þessum
tveimur aldurshópum með því að
fólk eldra en fertugt sé yfirleitt laust
við streitu sem jafnan fylgir húsbygg-
ingum.
Ólafur landlæknir segir í skýrsl-
unni að hugsanlegt sé að lífstíll skapi
vinnustreitu, en þó bendi margt til
þess að streitutilhneiging sé að ein-
hverju leyti „meðfædd". Algengara
er að finna sjúkdóma eins og krans-
æðasjúkdóma, háan blóðþrýsting og
morgni til kvölds í gær þrátt fyrir að
7-8 ráðgjafar afgreiddu bréf sem
mest þeir máttu. Sigurður áætlaði að
hátt á 4. hundrað manns hafi keypt
hlutabréf hjá VIB þessa tvo daga og
sjálfsagt meirihluti þeirra tvöfaldan
skammt, þ.e. fyrir hjón.
Svipaða sögu var að segja frá
magasár í ætt þeirra sem kvarta um
vinnustreitu en hinna sem gera það
ekki. Rétt er að taka fram að þó að
hér sé um fylgnisamband að ræða
sannar það ekki að orsakasamband
sé fyrir hendi.
Konur sem kvarta um streitu
þyngjast meira þrátt fyrir að þær
stundi frekar íþróttir en hinar sem
ekki kvarta undan streitu, þær
reykja meira og vinna meiri auka-
vinnu en aðrar. Þær hafa frekar
mannaforráð, skipta oftar um vinnu
og íbúð en þær sem ekki kvarta um
streitu. Konur sem kvarta um streitu
leita oftar til læknis og taka mun
oftar lyf, sérstaklega svefnlyf og
vítamín, en þær sem ekki kvarta um
vinnustreitu. Svipað munstur er
meðal karla.
Þá hafa athuganir leitt í ljós að í
sveitum á Suðurlandi er streita ekki
minni en hjá borgarbúum og jafnvel
meiri hjá bændum. -EÓ
öðrum verðbréfasölum með hluta-
bréf, m.a. Fjárfestingarfélaginu og
Kaupþingi. Miðað við tölur þeirra
má ætla að hátt á annað þúsund
manns hafi þannig keypt sér um
43.400 kr. skattafslátt (86.800 kr.
fyrir hjón) með þessum hætti síðustu
tvo virka daga ársins - eða samtals
Nítján sæmdir
fálkaorðunni
Forseti íslands sæmdi á nýárs-
dag samkvæmt tillögu orðunefnd-
ar eftirtalda fslendinga heiðurs-
merki hinnar íslensku fálkaorðu:
Ágúst Bjarnason, fv. skrifstofu-
stjóra, Reykjavík, riddarakrossi
fyrir störf að söngmálum.
Almar Grímsson lyfsala, for-
mann Krabbameinsfélags
íslands, Hafnarfirði, riddara-
krossi fyrir störf að heilbrigðis-
málum.
Frú Ásdísi Sveinsdóttur, Egils-
stöðum, riddarakrossi fyrir störf
að fræðslu- og félagsmálum
kvenna.
Frú Auði Laxness, Gljúfrasteini,
Mosfellsbæ, riddarakrossi fyrir
störf að menningarmálum.
Baldvin Tryggvason sparisjóðs-
stjóra, Reykjavík, stórriddara-
krossi fyrir störf að menningar-
og sparisjóðsmálum.
Boga Pétursson, fv. verkstjóra,
Akureyri, riddarakrossi fyrir
störf að æskulýðsmálum.
Eyþór Þórðarson, fv. kennara,
Neskaupstað, riddarakrossi fýrir
störf að skóla- og félagsmálum.
Friðrik Pálsson forstjóra,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir
störf að markaðsmálum sjávarút-
vegsins.
Garðar Cortes óperusöngvara,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir
störf að tónlistarmálum.
Guðmund Guðmundsson (Erró)
listmálara, París, riddarakrossi
fyrir málaralist.
Jón Tómasson, fv. stöðvarstjóra,
Reykjavik, riddarakrossi fyrir
embættis- og félagsmálastörf.
Ólaf Skúlason biskup, Reykja-
vík, stjörnu stórriddarafyrir störf
að kirkjumálum.
Óla M. ísaksson verslunarmann,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir
störf að atvinnumálum.
Pálínu Ragnheiði Kjartansdóttur
forstöðukonu, Hveragerði, fyrir
störf að manneldismálum.
Pétur Sigurgeirsson biskup,
Reykjavík, stórkrossi fyrir störf
að kirkjumálum.
Dr. Sigríði Þ. Valgeirsdóttur
prófessor, Reykjavík, riddara-
krossi fyrir störf að uppeldis- og
kennslumálum.
Sigurð Magnússon, fram-
kvæmdastjóra ÍSÍ, Reykjavík,
riddarakrossi fyrir störf að
íþróttamálum fatlaðra.
Sveinbjörn Sigurðsson bygginga-
meistara, Reykjavík, riddara-
krossi fýrir störf að byggingamál-
um.
Dr. Þuríði J. Kristjánsdóttur
prófessor, Reykjavík, riddara-
krossi fyrir störf í þágu kennara-
menntunar.
Akureyri:
Sextán innbrot
Rannsóknalögreglan á Akureyri
hefur handtekið mann sem grunaður
er um að hafa átt aðild að fjölmörg-
um innbrotum í fyrirtæki á Ákureyri
yfir helgina. Síðdegis í gær var búist
við að maðurinn yrði úrskurðaður í
gæsluvarðhald.
Á nýársdagsmorgun voru 13 inn-
brot í fyrirtæki tilkynnt og í gær-
morgun bættust við þrjú fyrirtæki til
viðbótar, sem brotist hafði verið inn
í. Nokkru var stolið á hverjum stað
svo og skemmdir unnar. -ABÓ
afslátt
fyrir hugsanlega á bilinu 60-80
millj.kr. - sem fólk sem ekki skuldar
skatta fær þá sendar heim í ávísunum
frá ríkissjóði í ágúst n.k. Kaupend-
urna sagði Sigurður á öllum aldri og
af öllum stéttum, ríka jafnt sem
fátæka, karla og konur. -HEI
Gylfi Már Guðjónsson varaformaður Trésmiðafélags Reykjavíkur afhendir Davíð Axelssyni byggingameistara
viðurkenningarskjalið. Timamynd Pjelur
Viðurkenning fyrir aðbúnað
Trésmiðafélag Reykjavíkur hef-
ur veitt Davíð Axelssyni bygginga-
meistara frá Selfossi sérstaka
viðurkenningu félagsins fyrir góð-
an aðbúnað á vinnustað að Þver-
holti 11 í Mosfellsbæ. Þetta er í
fimmta sinn sem Trésmiðafélagið
veitir viðurkenningu fyrir góðan
aðbúnað á vinnustað, en með þess-
um hætti vill félagið vekja athygli
á aðbúnaði og öryggismálum í
byggingariðnaði hér á landi.
Vinnustaðurinn að Þverholti 11
í Mosfellsbæ þótti til sérstakrar
fyrirmyndar. I niðurstöðu dóm-
nefndar segir að vinnustaðurinn
uppfylli allar kröfur sem gerðar
eru til aðbúnaðar fyrir starfsmenn.
Greinilegt sé að tekist hafi gott
samstarf milli atvinnurekanda og
starfsmanna um að hafa aðstöðu
sem besta og snyrtilegasta í hví-
vetna. En auk þess að uppfylla
allar kröfur sem gerðar séu til
húsnæðis vinnustaða, sé sérstak-
lega til fyrirmyndar það yfirbragð
sem skapað er með myndum á
veggjum og undirstrika myndirnar
og blómin þá alúð sem lögð sé í að
gera húsnæðið vistlegt. -EÓ
Biðraðir hjá öllum hlutabréfasölum síðustu tvo dagana fyrir áramót:
Keyptu 60-80 m. kr.