Tíminn - 27.01.1990, Qupperneq 2
2 Tíminn
Laugardagur 27. janúar 1989
Toyota Corolla 1600 Gti 1988
ekinn 32.000 km
□ Rafmagn í rúðum □ Raflæsingar □ Sóllúga □
□ Vökvastýri □ Vetrar- og sumardekk. □
Skipti möguleg. Verðhugmynd 1.050.000.-
Upplýsingar í síma 686300 frá kl. 9.00 til 14.30
og 675603 eftir kl. 18.00.
Frá Lögmönnum
Höfðabakka
Hreinn Loftsson, héraðsdómslögmaður, sem rekið
hefur eigin lögmannsstofu að Suðurlandsbraut 22,
Reykjavík, hefur frá og með 15. janúar 1990 gerst
meðeigandi í Lögfræðistofunni Höfðabakka 9 s.f.
Mun hann því héðan í frá lögfræðistofuna í félagi
við Vilhjálm Árnason, hrl., Ólaf Axelsson, hrl., Eirík
Tómasson, hrl., og Árna Vilhjálmsson, hdl.
Jafnframt hefur verið ákveðið frá og með sama
degi, að breyta nafni félagsins í Lögmenn Höfða-
bakka s.f.
Reykjavík, 26. janúar 1990
LÖGMENN HÖFÐABAKKA
Vilhjálmur Árnason, hrl.
Ólafur Axelsson, hrl.
Eiríkur Tómasson, hrl.
Árni Vilhjálmsson, hdl.
Hreinn Loftsson, hdl.
Hef opnað lækninga-
stofu að Lágmúla 5
Tímapantanir frá kl. 10 til 12 virka daga í síma
34354.
Vigfús Magnússon geðlæknir.
Sendiráð Þýska alþýðulýöveldissins
lagt niður hér á landi á vormánuðum:
Oldur umbrota
hafa áhrif hér
Öldur umbrota í Austur-Evrópu eru farin að hafa áhríf hér
á landi, sem lýsir sér í því að Austur-Þjóðverjar hafa ákveðið
að leggja niður sendiráð sitt hér á landi í sparnaðarskyni.
SendifuUtrúi þeirra gekk á fund ráðuneytisstjóra
utanríkisráðuneytisins í fyrradag og tilkynnti um ákvörðun
þessa. Þegar sendiráðinu verður lokað, sem verður nú á
vormánuðum, kemur sendiráð þeirra í Osló tU með að sjá um
diplómatísk tengsl við ísland. Breytingin verður í raun ekki
mikil, því sendiráð þeirra hér á landi, sem er án sendiherra,
hefur veríð útibú sendiráðs Þýska alþýðulýðveldisins í Osló.
Klaus Bredow settur sendifulltrúi
hér á landi sagði í samtali við
Tímann að ekki væri búið að ákveða
neina dagsetningu í þessu sambandi,
en því yrði lokað nú á vormánuðum,
líklega í apríl. „Pað veltur hins
vegar á ýmsu,“ sagði Klaus Bredow.
Fram til þess tíma er sendiráðinu
verður lokað, verður unnið að undir-
búningi flutningsins og eignir seldar.
Hvers vegna lokið þið sendiráð-
inu? „Það er eingöngu vegna efna-
hagslegra ástæðna, þetta hefur ekk-
ert með afstöðu okkar til íslands að
gera. Við eru áhugasöm og tilbúin til
að halda áfram góðum samskiptum
við ísland í framtíðinni sem hingað
til. Sendiherra okkar í Osló mun
framvegis hafa ísland á sinni
könnu,“ sagði sendifulltrúinn. Hann
sagði að fleiri sendiráðum yrði lokað
vegna sömu ástæðu, m.a. í Afríku.
Það að sendiráðsskrifstofu sé lok-
að hér á landi er ekki einsdæmi og
má m.a. nefna að Búlgarar opnuðu
hér álíka viðskiptaskrifstofu fyrir 10
til 15 árum, en lögðu hana niður eftir
þriggja eða fjögurra ára rekstur.
Eins lokuðu Póiverjar sinni skrif-
stofu hér á landi um tíma en opnuðu
hana síðan aftur.
Klaus Bredow hefur verið sendi-
fulltrúi hér á landi síðan í júlí 1986.
Aðspurður hvert hann færi að lok-
inni veru sinni hér á landi, sagðist
hann halda áfram störfum í utanrík-
isþjónustunni.
Stjórnmálatengsl íslands og Aust-
ur-Þýskalands breytast ekkert við
þessa ákvörðun, því sendiráðið
þeirra hér á landi hefur verið útibú
frá sendiráðinu í Osló, þar sem
sendiherrann situr. Fyrirkomulagið
verður því með svipuðum hætti og
málum er hagað af hálfu íslendinga,
því ísland hefur ekki sendiráð eða
viðskiptaskrifstofu í A-Þýskalandi.
Að sögn Hannesar Hafstein ráðu-
neytisstjóra í utanríkisráðuneytinu
hafa aðrar A-Evrópuþjóðir ekki til-
kynnt um að þau hyggist leggja
niður sendiráð sín hér á landi.
Eins og fram kom hjá sendifull-
trúanum er þessi ákvörðun eingöngu
tekin vegna þess að ríkið er illa statt
fjárhagslega. Miklar breytingar þarf
að gera á efnahagskerfinu á mörgum
sviðum og ef ætla Austur-Þjóðverjar
ætla að gera gjaldmiðil sinn almennt
gjaldgengan, þá breytast ýmsar
stærðir. Með breytingum á ríkisaf-
skiptum, þar sem fjölmörg atrið sem
ríkið hafði með að gera áður flyst nú
væntanlega yfir á hendur einstakl-
inganna og því hefur þörfin fyrir
sendiráð m.a. hér á landi hafi
minnkað.
Austur- og Vestur-Þjóðverjar eiga
nú í viðræðum um gífurlega efna-
hagsaðstoð til handa Austur-Þjóð-
verjum, en sú aðstoð er bundin því
skilyrði að hálfu Vestur-Þjóðverja
að tekið verði upp blandað hagkerfi
í Austur-Þýskalandi. -ABÓ
Helgi Jónsson - Odin Áir hefur tekið í notkun fyrstu Jetstream skrúfuþotuna
af þrem sem félagið hefur eignast. Vélarnar verða einkum notaðar í
Grænlandsflugi. Tímamynd; Pjelur
Nýjar flugvélar í Grænlandsflug
Helga Jónssonar — Odin Air:
í Jetstream
til Kúlúsúkk
Flugþjónusta Helga Jónssonar -
Odin Air hefur tekið eignast og
tekið í notkun flugvél af gerðinni
Jetstream HT 137 en tvær aðrar
bætast í flotann innan tíðar.
Vélarnar verða einkum notaðar á
flugleiðinni milli Reykjavíkur og
Kúlúsúkk á Grænlandi.
Jetstream HT 137 vélamar taka
18 farþega í sæti og leysa af hólmi
helmingi minni flugvélar Helga Jóns-
sonar af gerðinni Mithsubisi. Vél-
arnar eru ný skoðaðar og yfirfarnar
og búnar tveim hreyflum frá Aero-
spatiale í Frakklandi, sömu gerðar
og eru í Sif; þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar.
Farþegarýmið er með jafnþrýsti-
búnaði og flughraði er um 250 hnútar
eða 450 kílómetrar á klukkustund.
Flugtími milli Kúlúsúkk og Reykja-
víkur er 1 klukkustund og 45 mínútur.
Odin Air flýgur einu sinni í viku
til Grænlands nú í vetur en í sumar
stendur til að fljúga fimm sinnum í
viku að sögn Páls Egonssonar flugaf-
greiðslumanns hjá Odin air. -sá
Óskar Þórmundsson yfirlögregu-
þjónn rannsóknarlögreglunnar á
Keflavíkurflugvelli.
Rannsóknarlögreglan
á Keflavíkurflugvelli:
Nýr yfirlög-
regluþjónn
Oskar Þórmundsson hefur verið
skipaður yfirlögregluþjónn rann-
sóknarlögreglu á Keflavíkurflug-
velli. Utanríkisráðherra skipaði
Óskar í stöðuna frá og með 15.
janúar síðastliðnum að telja. Óskar
hefur starfað sem lögregluþjónn frá
1971 er hann hóf störf við lögregluna
í Reykjavík. Óskar varð aðstoðar-
varðstjóri í Keflavík 1978, síðan
skipaður við rannsóknarlögreglu í
Keflavík 1980 og lögreglufulltrúi
1986.
Kona Óskars er Helga Björnsdótt-
ir og eiga þau sex börn
íbúðarhús brann í Ólafsvík:
Tvennt slapp naumlega út
Maður og kona sluppu naumlega,
þegar eldur kom upp í íbúðarhúsinu
að Grundarbraut 16 í Ólafsvík í
fyrrinótt. íbúðin sem er í parhúsi, á
einni hæð, skemmdist mjög mikið.
Tilkynning barst um eldinn klukk-
an 2.40 og þegar að var komið logaði
mikill eldur. Að sögn lögreglunnar á
Ólafsvík gekk slökkvistarf vel, en
miklar skemmdir urðu í eldinum,
einkum á innbúi og er húsið með
öllu óíbúðarhæft. Eldsupptök eru
ekki að fullu kunn, en líkur benda
til að kviknað hafi í út frá sígarettu.
-ABÓ