Tíminn - 27.01.1990, Síða 10
18 Tíminn
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
TÆKNIDEILD
ÚtboÓ
Hreppsnefnd Lýtingsstaðahrepps óskar hérmeð
eftir tilboðum í byggingu einnar hæðar einbýlis-
húss úr steinsteypu, verk nr. 10703 úr teikninga-
safni tæknideildar Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Brúttóflatarmál húss er 113 m2
Brúttórúmmál húss er 400 m2
Húsið verður byggt við götuna Lækjarbakki 3,
Lýtingsstaðahreppi, og skal skila því fullfrágengnu,
sbr. útboðsgögn.
Afhending útboðsgagna er á skrifstofu Lýtings-
staðahrepps, Laugarbóli, 560 Varmahlíð, og hjá
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins, Suður-
landsbraut 24,108 Reykjavík, frá þriðjudeginum 30.
janúar 1990, gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skilað á sömu staði eigi síðar en
föstudaginn 9. febrúar 1990, kl. 11,00, og verða þau
opnuð að viðstöddum bjóðendum.
F.h. hreppsnefndar Lýtingsstaðahrepps,
Tæknideild H.R.
HÚSNÆÐISSTOFNUN
RÍKISINS
SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK • SÍMI -696900
Stjórn verkamannabústaða Garðabæ.
UMSÓKNIR.
Stjórn verkamannabústaða í Garðabæ óskar eftir
umsóknum um kaup á 8 tveggja til fjögurra her-
bergja íbúðum í verkamannabústöðum í Garðabæ
vegna framkvæmda á árinu 1990.
Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara
íbúða gilda lög nr. 81/1988.
Umsóknareyðublöð verða afhent á bæjarskrifstof-
um Garðabæjar, Sveinatungu, frá 29. janúar 1990.
Umsóknum skal skila eigi síðar en 21. febrúar
1990.
Garðabær
§3 Garðbæingar 60
^ ára og eldri
Framkvæmdir við íbúðir fyrir Garðbæinga 60 ára
og eldri við Kirkjulund 6-14, eru vel á veg komnar.
Óseldar eru fáeinar íbúðir, 2ja, 3ja og 4ra her-
bergja.
Garðbæingum 60 ára og eldri gefst kostur á
forgangskaupum til 5. febrúar n.k.
Nánari upplýsingar veitir Guðfinna Snæbjörnsdótt-
ir á skrifstofu félagsmála í Safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli, símar 656622 og 656653.
Stjórn byggingafélags eldri íbúa í Garðabæ.
Neytendasamtöki n
hafa flutt starfsemi sína að Skúlagötu 26,3. hæð.
Nýtt símanúmer er 625000, Telefaxnúmer
624666.
DAGBÓK
Veggmynd 1989 eftir Guðnýju
Magnúsdóttur.
Guðný Magnúsdóttir sýnir
á Kjarvalsstöðum
Guðný Magnúsdóttir myndlistarmaður
opnar sýningu í vesturforsal Kjarvals-
staða í dag, laugardaginn 27. janúar kl.
14:00.
Á sýningunni verður skúlptúr og vegg-
myndir úr leir. Verkin eru unnin á síðasta
ári. Þetta er sjötta einkasýning Guðnýjar,
og sú fjórða í Reykjavík, en tvær einka-
sýningar hélt hún í Helsinki, þar sem hún
starfaði í fjögur ár, 1981-1985. Hún hefur
tekið þátt í fjölda einkasýninga á Islandi,
Noreðurlöndunum, í Frakklandi, Japan
og Bandaríkjunum.
Norræna húsið:
Kvikmyndasýning og fyrirlestur
um „Vetrarstríðið" í Finnlandi
Um þessar mundir eru liðin 50 ár frá
því að vetrarstríðið var háð í Finnlandi
veturinn 1939-’40. Undanfarin ár hefur
verið unnið að rannsóknum á vetrarstríð-
inu og nýjar niðurstöður hafa nýlega
verið birtar. Auk þess var nýlega frum-
sýnd kvikmynd sem gerð var eftir skáld-
sögu finnska rithöfundarins Antti Tuuri
„Talvisota” undir íslenska heitinu
„Vetrarstríðið".
Sunnud. 28. jan. kl. 16:00 mun Jarl
Kronlund liðsforingi, hernaðarsagnfræð-
ingur frá Helsinki, halda fyrirlestur í
Norræna húsinu um vetrarstríðið. Jarl
Kronlund stundar rannsóknir við sagn-
fræðistofnun liðsforingjaskólans í Hels-
inki.
Eftir fyrirlesturinn verður sýndur 20
mín. langur útdráttur úr fyrrnefndri kvik-
mynd eftir sögu Antti Tuuri.
Sýningar í Norræna húsinu:
Pétur Halldórsson sýnir olíumálverk í
sýningarsölum hússins, en sýningunni lýk-
ur sunnud. 28. jan. Sýningin er opin kl.
14:00-19:00.
Bruno Ehrs sýnir í anddyri ljósmyndir
af höggmyndum. Sýningin stendur til 11.
febrúar.
Frá Félagi eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, á
morgun, sunnud. 28. jan. Kl. 14:00 er
frjálst spil og tafl. Kl. 20:00 er dansað.
Skáldakynning hefst aftur að Hótel
Lind þriðjud. 30. janúar kl. 15:00-17:00.
Helgi Sæmundsson ritstjóri mun flytja
erindi um Davíð Stefánsson og Andrés
Björnsson, fyrrv. útvarpsstjóri, og Stein-
dór Hjörleifsson lcikari munu lesa úr
verkum skáldsins.
Eins og venjuiega verður framreitt
kaffi í hléinu.
Dansnámskeið hefst á ný laugardaginn
3. febrúar í Nýja dansskólanum. Upplýs-
ingar í Nýja dansskólanum, Ármúla, sími
38830.
Þorrablót verða haldin í Goðheimum,
Sigtúni 3, 9. febrúar og 23. febrúar.
Upplýsingar á skrifstofu félagsins í síma
28812.
Tölvunámskeið hefst aftur 7. febrúar
til 20. febrúar. Kennt verður á miðviku-
dögum og föstudögum. Upplýsingar á
skrifstofu félagsins í síma 28812.
Gunnsteinn Gíslason
sýnir í Sparisjóði Reykjavíkur
að Álfabakka
Sunnud. 28. jan. kl. 14:00-17:00 opnar
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis
sýningu á múrristum eftir Gunnstein
Gíslason í útibúinu Álfabakka 14 f Breið-
holti.
Gunnsteinn Gíslason fæddist 13. sept.
1946. Hann stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1963-1967 í
kennaradeild og frjálsri myndlist. Hann
innritaðist í Edinburgh College of Art
1967 og lagði stund á veggmyndagerð og
glerhönnun. Hann var eini nemandi skól-
ans sem var boðið 1968 að taka þátt í
samsýningu skoskra höggmyndalista-
manna í Bandaríkjunum. Verið 1969
lauk hann D.A. prófi og hélt sýningu við
skólann og var prófverkefnið kirkju-
skreyting unnin graffito. Hann kom síðan
heim og setti upp vinnustofu í Reykjavík
og kenndi einnig við Vogaskóla og Mynd-
lista- og handíðaskólann.
Gunnsteinn lauk einnig prófi í kennslu-
greinum myndmennta við Konstfackskol-
an TI í Stokkhólmi 1975. Þá var hann
ráðinn kennari og deildarstjóri við mynd-
listadeild Fjölbrautarskólans í Breiðholti.
Haustið 1988 var hann settur lektor við
Kennaraháskóla íslands.
Gunnsteinn hefur haldið nokkrar
einkasýningar og tekið þátt í fjölda sam-
sýninga. Verk hanseru m.a í eigu Reykja-
víkurborgar, Listasafns Kópavogs, Olafs-
víkurkaupstaðar og Þorlákskirkju, Þor-
lákshöfn.
Sýningin að Álfabakka 14 mun standa
yfir til 27. apríl n.k. og verður opin frá
mánudegi til föstudags kl. 09:15-16:00.
Sýningin er sölusýning.
EinarJóhannesson
og Philip Jenkins leika saman
í íslensku óperunni
Sunnud. 28. jan. kl. 17:00 munu þeir
Einar Jóhannesson og Philip Jenkins
halda tónleika í Islensku óperunni á
vegum Tónlistarfélagsins.
Báðir eru þessir listamenn velþekktir.
Auk þess að vera 1. klarinettleikari í
Sinfóníuhljómsveit íslands og leika í
Blásarakvintett Reykjavíkur, leikur Ein-
ar á næstunni í Evrópu og Bandaríkjun-
um, bæði með hljómsveitum og á einleiks-
tónleikum.
Philip Jenkins fluttist frá Akureyri
aftur til Bretlands 1972 og hefur starfað
sem prófessor í píanóleik við Royal
Academy of Music í London auk tón-
leikahalds. Nýlega tók hann við píanó-
deildinni í Konunglega skoska tónlistar-
háskólanum í Glasgow. Hann hélt hér
síðast tónleika með Guðnýju Guðmunds-
dóttur árið 1987.
Þeir Einar og Philip hafa starfað saman
um nokkur ár, bæði á tónleikum og leikið
inn á hljómplötu.
Á efnisskránni á sunnudag verða leikin
verk eftir Carl Maria von Weber, Norbert
Burgmúller, Darius Milhaud, Bohuslav
Martinu og Johannes Brahms.
Aðgöngumiðasala verður við inngang-
inn.
Fyririestur um svefn
Mánudagskvöldið 29. janúar verður
fyrirlestur á vegum Hins íslenska náttúru-
fræðifélags. Þá mun Björg Þorleifsdóttir
tala um svefn og segja frá íslenskum
svefnrannsóknum. M.a. mun hún fjalla
um hugsanlegar orsakir svefns og stjórn-
un hans, og bera saman svefn ýmissa dýra
og manna. Fyrirlesturinn, sem er öllum
opinn, verður í stofu 101 í Odda, Hugvís-
indahúsi háskólans og hefst kl. 20:30.
Fríkirkjan í Reykjavík
Guðsþjónusta kl. 11:00. Helgistund kl.
17:00. Orgelleikari Pavel Smid.
Cecil Haraldsson
rkvsrxrv*?*? i Mnr
Selfoss
Framsóknarfélag Selfoss heldur félagsfund mánudagskvöldið 29.
janúar kl. 20.30 að Eyrarvegi 15.
Fundarefni: Framboðsmál.
Mætum öll stundvíslega.
Framsóknarfélag Selfoss.
t Ykkur öllum sem heiðruöuð minningu
Gísla Guðmundssonar frá Tröð
og sýnduð okkur samkennd og vináttu við fráfall hans, færum við
okkar bestu þakkir. Anna M. Guðjónsdóttir Valgerður Guðmundsdóttir
JónH.Gíslason Margrét Sigurðardóttir
Brandur Gíslason Marta Hauksdóttir
Guðmundur T. Gíslason Jóhanna Vigfúsdóttir
AtliGíslason Unnur Jónsdóttir
Ásmundur Gíslason Guðrún Gísladóttir Rannveig Hallvarðsdóttir
Laugardagur 27. janúar 1990
Jean Paul Franssens.
Jean-Paul Franssens
sýnir á „5 ára afmælissýningu
SLUNKARÍKIS"
Slunkaríki á fsafirði er fimm ára um
þessar mundir. f tilefni afmælisins sýnir
hollenski listmálarinn og skáldið Jean-
Paul Franssens verk sín í sýningarsalnum.
Jean-Paul Franssens er fæddur í Gron-
ingen 1938. Hann fór ungur að mála og
hallaðist að expressionískri myndlist. Um
tvítugt hlaut hann styrk til söngnáms í
Essen í V-Þýsklandi, en sneri sér að
óperuleikstjórn og starfaði við það í
Hollandi og V-Þýskalandi til ársins 1975.
Síðan hefur hann helgað sig myndlist og
ritstörfum.
Jean-Paul Franssens hefur sýnt verk
sín á fjölmörgum einka- og samsýningum
á meginlandinu og ritverkum hans verið
vel tekið. Skáldsagan „De wisselwachter"
(Brautarvörðurinn) kom út 1981 og var
hún kvikmynduð 1987. Hann hefur einnig
samið óperutexta (libretto).
Sýningin í Slunkaríki er opnuð laugar-
daginn 27. jan. kl. 16:00 og stendur yfir
til 18. febrúar.
Slunkaríki er opið fímmtudaga til
sunnudaga kl. 16:00-18:00.
Ferðafélag íslands:
Þorrablót í Þórsmörk
2.4. febrúar
Kynnist Mörkinni í vetrarbúningi.
Skipulagðar gönguferðir á daginn. Þorra-
blót og kvöldvaka laugardagskvöldið.
Siðamaður: Árni Bjömsson. Fararstjór-
ar: Hilmar Þór Sigurðsson og Kristján M.
Baldursson. Gist í Skagfjörðsskála í
Langadal. Pantið sem fyrst. Farmiðar á
skrifstofunni.
Spilakvöld í Kópavogi
Alþýðubandalagið í Kópavogi heldur
annað spilakvöldið í þriggja kvölda
keppni mánudaginn 29. janúar kl. 20:30 í
Þinghól, Hamraborg 11. Allir velkomnir.
MÁLVERKAUPPBOÐ1. febrúar
Gallerí Borg heldur málverkauppboð
fimmtudaginn 1. febrúar. Málverkaupp-
boðið fer fram að Hótel Sögu og hefst kl.
20:30. Tekið verður á móti verkum á
uppboðið fímmtudaginn 25., föstud. 26.
og mánudaginn 29. jan. í Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9.
Listasafn Einars Jónssonar
Listasafn Einars Jónssonar er opið alla
laugardaga og sunnudaga kl. 13:30-16:00.
Höggmyndagarðurinn er opinn alla daga
kl. 11:00-17:00.
Húnvetningafélagið
Félagsvist á laugardaginn 27. janúar kl.
14:00 í Húnabúð, Skeifunni 17.
Minningargrein um Jón Þorsteins-
son, fyrrverandi bónda í Kolfreyju í
Fáskrúðsfirði, birtist í Tímanum 13.
jan. s.l. Fyrir handvömm varð mynd
af hinum látna viðskila við greinina
og birtist því ekki með henni. Hér er
gerð ofurlítil bragarbót á myndin af
Jóni birt, þótt seint sé. Eru viðkom-
andi beðnir afsökunar á mistökun-
um.
LEIÐRÉTTING