Tíminn - 21.02.1990, Page 13
Miðvikudagur 21. febrúar 1990
Tíminn 13
Kópavogur - Opið hús
Opið hús alla miðvikudaga að Hamraborg 5, kl. 17-19.
Alltaf heitt á könnunni.
Framsóknarfélögin.
Framsóknarfólk Norðurlandi vestra
Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár-
króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga
og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757.
Framsóknarfélag Kjósarsýslu
Almennur félagsfundur verður haldinn í Hlégarði, fimmtudaginn 22.
febrúar kl. 20.30.
Áríðandi fundur vegna breyttrar stöðu í framboðsmálum.
Fjölmennið.
Stjórnin
Borgarnes - Nærsveitir
Spilum félagsvist í Félagsbæ, Borgarbraut 4, Borgarnesi, föstudaginn
23. febrúar kl. 20.30.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgarness
Keflvíkingar -
Suðurnesjamenn
Hádegisverðarfundur
um stóriðju verður haldinn laugardaginn 24.
febrúar n.k. á Glóðinni og hefst kl. 12.00.
Frummælandi verður Guðmundur G. Þórarins-
son, alþingismaður.
Mætið stundvíslega og takið með ykkur gesti.
Allir velkomnir.
Björk félag framsóknarkvenna í Keflavík og nágrenni.
Keflavík
Prófkjör Framsóknarflokksins í Keflavík vegna bæjarstjórnarkosning-
anna í vor, fer fram í Félagsheimilinu Hafnargötu 62, sunnudaginn
25. febrúar, frá kl. 11.00-22.00.
Uppstillingarnefnd.
Guðmundur G.
Þórarinsson
Gísli Gíslason bæjarstjóri
Akranes
Fjárhagsáætlun 1990
Bæjarstjórinn á Akranesi, Gísli Gíslason, mun leiða umræður um
fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar og stofnana hans á opnum fundi
í Framsóknarhúsinu við Sunnubraut, mánudaginn 26. febrúar kl.
20.30.
Allir velkomnir.
Mikilvægt að menn í nefndum og stjórnum á vegum flokksins
mæti.
Bæjarfulltrúarnir
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
Hin 64 ára gamla Margie
Searles er á við heila vík-
ingasveit með skúringaföt-
una.
Hafðu þetta,
skepnan þín!
Margie Searlcs er 64 ára gömul
amma en hikaði ekki við að koma
ungri stúlku til hjálpar þegar hún
varð fyrir hrottalegri árás. Alburð-
urinn átti sér stað í Ffladelfíu í
Bandaríkjunum. Margie var að
koma út úr húsinu sínu með skúr-
ingafötu og skrúbb því hún ætlaði
að þrífa málningu af gangstéltinni.
Þá sá hún hvar karlmaður réðst að
ungri stúlku og sncri hana niður í
götuna. Sú gamla brást hin versta
við, rauk yfir götuna og barði
ójx)kkann í höfuðið með fötunni.
Hann lét sér ekki scgjast cn sagði
Margie að koma sér á brott hið snar-
asla. Margie reiddi þá föluna aftur
lil höggs og sló hann enn fastar. Það
dugði. Árásannaðurinn sleppti
stúlkunni og skjögraði að girðingu
og stóð þar með gullkeðju og háls-
men í höndunum sem hann hafði
rifið af stúlkunni. Margie skipaði
honum að afhenda sér fenginn. Þá
komu tveir öryggisverðir af sjúkra-
húsi í nágrcnninu hlaupandi og þá
lagði þrjóturinn á flótta. Margie var
ákveðin í að hann skyldi ekki
sleppa og hljóp því á cftir honum og
elti hann að auðri lóð þar sem hann
faldi sig í hávöxnum gróðri. Hún
slöðvaði lögreglubfl sem kom að-
vífandi, benli lögrcglumönnunum á
felustað árásarmannsins sem náðist
brátt. í ljós kom að sauma þurfti
þrjú spor í höfuð mannsins eftir
höggið með fötunni.
„Hann átti ekki belra skilið og
ég sé ekki eflir að hafa barið hann.
Ég mundi gera það sama aftur hve-
nær sem er,“ sagði Margie ákvcðin
þegar hún frétti af áverkanum. „Ég
var ánægð þegar ég sá óþokkann
dreginn inn í lögreglubflinn. Ég
vona bara að hann fái það sem hann
á skilið.“
SPEGILL
Barátta gegn
fíkniefnum
Ofjarl Rambos
Sylvester Stallone ásamt móður sinni sem hann hefur enga stjórn á.
Mamma mín er sú eina sem
hefur eitthvað í Rambo að segja,
hún er miklu harðari af sér en ég,
segir Sylvester Stallone um hina
skrautlegu móður sína. Hún legg-
ur stund á stjömufræði og lófa-
lestur, er að læra á píanó hjá 90
ára gamalli blindri konu og starf-
ar sem umboðsmaður fyrir kven-
kyns fjölbragðaglímukappa og
boxara. Hún verður fljótt leið á
hlutunum, þannig að næstu viku
er hún vís til að fara að læra
steppdans. Hún er nú búin að láta
skrá sig á flugnámskeið á orrustu-
vélar úr seinni heimsstyrjöld.
Mamma Sylvesters hefur lát-
ið hafa eftir sér ótímabærar yfir-
lýsingar um Stallone og þá sér-
staklega eiginkonur hans
fyrrverandi. Ef honum líkar það
ekki er það bara verst fyrir hann,
segir sú gamla og lætur sig
hvergi.
Leikkonan fræga, Kirstie All-
ey, sem nú leikur eitt aðalhlut-
verkið í Staupasteini, hefur skorið
upp herör gegn kókaíni. Sjálf seg-
ist hún hafa verið viti sínu fjær í
tvö ár af kókaínneyslu. „Ég byrj-
aði að neyta kókaíns þegar ég var
24 ára og starfaði sem innanhúss-
arkitekt. Það tók smám saman
völdin í lífi mínu og á tímabili
eyddi ég 400 dollurum á viku í
neysluna," segir Kirstie Alley,
sem tókst að brjótast úr viðjum
efhisins af eigin rammleik. Nú
heldur hún fyrirlestra í skólum þar
sem megininntakið er: „Eitur-
lyfjaneysla kemur ekki bara fyrir
fólk. Þetta er meðvituð leið til
lífsflótta.“
Heimili Kirstie Alley stendur
opið unglingum sem lent hafa í
erfiðleikum vegna fíkniefna og
segja má að hún og maður hennar
reki eins konar unglingaathvarf.
Kirstie Alley vann bug á fíkn
sinni og aðstoðar nú aðra.
Heimiii Kirstie Alley er opið unglingum sem eiga í baráttu við fíkni-
efni.