Tíminn - 01.03.1990, Page 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 1. mars 1990
Tímimi
MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINHU 0G FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
_____Framsóknarfélögin í Reykjavík
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Aðstoðarritstjóri:
Fréttastjórar:
Auglýsingastjóri:
Kristinn Finnbogason
Indriði G. Þorsteinsson ábm.
IngvarGíslason
Oddurólafsson
Birgir Guðmundsson
Eggert Skúlason
SteingrímurGíslason
Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:
680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar
686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot:
Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f.
Frá og með 1. ágúst hækkar:
Mánaðaráskrift í kr. 1000,-, verð í lausasölu í 90,- kr. og 110,- kr. um
helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Þjóðhagsgildi
landbúnaðar
Björn á Löngumýri er að vísu aldraður að árum,
en ungur í anda eins og greinar hans í Tímanum um
landbúnaðarmál bera vitni um. í þeim segir hann
skoðanir sínar skýrt og greinilega. LFm þær þarf
enginn að villast. Hvort sem menn aðhyllast í öllu
skoðanir Björns um skipulagsmál og framkvæmda-
atriði ýmiss konar eru hugleiðingar hans um þau efni
athyglisverðar.
Kosturinn við málflutning Björns á Löngumýri er
heildarsýnin um umræðuefnið og skýr frásagnarhátt-
ur. Birni tekst ágætlega að sýna fram á þjóðhagslegt
gildi landbúnaðarins og ekki síður haldleysi talna-
meðferðar málsvara milliliðanna, eins og þá kenn-
ingu sem vinsæl er í fjölmiðlum, að „ríkið greiði
ráðherralaun með hverjum bónda.“ Um þetta segir
Björn:
„Lítum nú nánar á þetta og tökum mjólkurbónda.
Mjólkurlítrinn er seldur á 66 kr. Ríkið greiðir lítrann
niður um 26 kr. Heildarkostnaður er kr. 92. Af því
fær bóndinn 48 kr., ca. 2 kr. af því fara til að borga
flutning að vinnslustöð, eftir eru 46 kr. eða rétt 50%.
Ríkið fær tæpar 10 kr. í virðisaukaskatt af hverjum
lítra. Ríkið hefur því greitt ca. 16 kr. með hverjum
mjólkurlítra sem seldur er. Nú er spurningin: Er
þessi 16 kr. niðurgreiðsla gerð fyrir bændur eða
neytendur? 46 kr. af kostnaði við hvern lítra fara í
kostnað við flutning, umbúðir, verslunarálagningu
og virðisaukaskatt, hinn hlutann, kr. 46, fær bóndinn
í sínar hendur, af því fara 50% eða kr. 23 í kostnað
við búreksturinn, þ.e. áburð, fóðurbæti, viðhald
véla, vinnulaun o.fl.“
Og Björn Pálsson heldur áfram.
„Þrír fjórðu hlutar af þeim 92 kr. sem mjólkin
kostar fara annað en til bóndans, eða 69 kr. Pessar
69 krónur eru síðan skattlagðar af ríkinu. Bílstjór-
inn, kaupmaðurinn og fólkið í mjólkurstöðinni
borgar skatta. Ríkið reytir skatta af öllum og öllu.
Við skulum reikna með að ríkið fái 25% af ca. 69 kr.
eða kr. 17, þar af dragast þrír fjórðu hlutar af
niðurgreiðslunni eða kr. 12, eftir eru því kr. 5, sem
ríkið greiðir á hvern lítra sem bóndinn framleiðir.“
Loks segir greinarhöfundur:
„Hluti af mjólkinni fer í vinnslu. Fullur virðisauka-
skattur er lagður á flestar þær mjólkurafurðir, en
smjör og smjörvi er greitt niður. Líklegt er að
útkoman verði svipuð á þessum vinnsluvörum gagn-
vart ríkissjóði. Það mundi litlu breyta fyrir bændur
þó að ríkið hætti niðurgreiðslu á mjólk ef virðisauka-
skattur væri felldur niður. Samkvæmt þessu hefur
ríkið hagnað af mjólkurbændum og því fólki sem við
mjólkurframleiðslu vinnur.“
Með þessum orðum er Björn Pálsson ekki einasta
að bera til baka fánýti eins dæmis af mörgum í áróðri
milliliðanna gegn landbúnaði og bændum. Hann er
einnig að sýna fram á gildi frumframleiðslu almennt
fyrir allt hagkerfið og þjóðarbúskapinn. Hvað það
snertir veldur landbúnaður fyllilega sínum hlut.
Heildarsýn Björns á Löngumýri er ólíkt vitlegri
hagspeki en smásmygli margra viðskiptafræðinga,
eins og uppeldi þeirra er háttað.
GARRI
Að leika sér í þjóðskránni
f gærmorgun var sögð saga á rás
2 af tíu ára bami, sem hefði fengið
tilboð um áskrift að tímaríti senda
í pósti, en móðir bamsins kvartaði
undan þessu. Hún taldi sig ekki í
stakk búna til að gerast umsvifa-
laust áskrífandi að tímaríti, þótt
útgefendum hefði þóknast að
senda bami hennar tilboð um
áskrift. í þessu tilfelli vildi bamið
gerast kaupandi að blaðinu. Hér er
aðeins um eina sögu að ræða af
þeim gegndarlausa ágangi, sem
fólk verður fyrír af alls konar
kaupahéðnum. Aðferðin er sú að
fá afrit af tilteknum hluta þjóðskrár
og senda síðan áskriftarmiða út
samkvæmt slíkum lista. í þessu
tilfeUi var um böra að ræða, sem
fædd era 1980.
Er þjóðtkrám gatopin?
Þjóðskrá er ekki endilega opin-
bert plagg, sem hver og einn getur
gengið í með það fyrir augum að
stunda sölumennsku. Það hefur þó
færst í vöxt, að þjóðskráin sé notuð
í viðskiptaskyni, og það í þeim
mæli, að setja verður fastar reglur
um notkun þjóðskrárínnar, svo
ágangi kaupahéðna linni. Nöfn og
heimilisföng fólks era varla gögn
sem hver og einn getur nýtt sér í
auðgunarskyni. Ekki er svo efnt til
happdrættis að ekki sullist inn um
bréfalúgur fólks ókjör af happ-
drættismiðum og þá venjulega
umslag á hvera fjölskyldumeðlim.
Þetta er aðeins hægt samkvæmt
listum sem þjóðskráin lætur af
hendi. Þessi siður hefur tíðkast um
sinn og auðvitað hafa fjölmargir
aðilar svona gögn undir höndum
nú þegar. Póstsendingum myndi
því ekki linna þótt þjóðskráin hætti
þeirrí greiðasemi að útvega félög-
um og samtökum nafnalista sína,
svo þau geti sótt að fólki með
miðasendingum. Það breytir þó
ekki þeirri staðreynd að þessum
fyrírgangi verður að linna með því
að loka fyrir almannanot af þjóð-
skránni nú þegar í von um að þær
skrár sem nú eru í gangi út í bæ,
verði með tímanum það vitlausar,
að hætt verði að nota þær.
Gamlir listar
Fjölmargir aðilar hafa snúið sér
til þjóðskrárinnar og fengið nöfn
sín tekin út af útsendum listum
hennar. Það ættu að vera óþarfa
umsvif. Sú gamla regla að gerast
áskrifandi verður að gilda áfram,
svo ekki komi til þess að hver og
einn verði áskrifandi að happdrætt-
um og upplýsingum í gróðaskyni
fyrir sendanda vegna þess að þjóð-
skráin liggur á lausu. Frjálsleg
meðferð á henni á ekki að koma í
staðinn fyrir sjálfsákvörðunarrétt
einstaklings. Eðlilegt er að fólk fái
póst, svo sem frá opinberum aðil-
um og einstaklingum, sem þurfa að
koma frá sér boðum til einstakl-
inga. Ekki þarf að kalla þjóðskrána
til í siíkum tilfellum.
Þá er öllum kunnugt um, að
gengið er hart eftir því að fólk
tilkynni breytingar á heimilisfangi.
Samt búa stofnanir yfir svo göml-
um listum að heimilisföng era röng
árum og áratugum saman, sem
aðeins upplýsir viðtakanda um, að
útsend boð á sýningar o.s.frv. eru
í raun ekki til viðtakanda, heldur
byggð á gömlum Ustum. Þess vegna
gæti viðtakandi veríð dauður án
þess að það skipti máli fyrir send-
anda. Þannig vita fæstir, sem not-
ast við þessa lista sína, að ómæld
notkun þeirra og póstbréfaflóð því
samfara er í mörgum tilfeUum ekki
annað en upplýsing um afskipta-
leysi og hundingjahátt.
Bisness og happdrætti
Við erum oft að guma af þvi, að
við séum hið opna þjóðfélag. Við
eram svo galopin, að hingað tU
höfum við ekki getað hýst hættu-
lega menn. Hluti þessa opna þjóð-
félags er þjóðskráin, sem nú er
höfð uppi á torgum. Eflaust finnst
mörgum hinn mesti óþarfi að loka
fyrir almannanot bisnessmanna og
happdrættishetja af henni. En
þjóðskráin er að hluta einkamál.
Það er auðvitað skylt að skrá sig,
einnig að skrá breytingar á heim-
ilisfangi, en þeirri skráningu fylgir
engin yfirlýsing einstaklinga um að
hverjum og einum sé heimUt að
nota nafn og númer að vUd.
Augljóst er að sú mikla tækni,
sem nú er tekin við af lindarpenn-
anum og ritvélinni gerír hverjum
sem viU Ideift að leika sér í þjóð-
skránni. Böra sem fædd era 1980
er hægt að prenta út úr henni á
örskömmum tíma. Hið sama gUdir
um þjóðskrána í heUd. Þessi tækni
er ekki tU að hafa að leik. Þaraa er
verið að véla um persónur og
heimUi þeirra, enda sýna dæmin að
svo er; fuUar bréfalúgur í hverju
húsi með nöfnum allra fjölskyldu-
meðlima á bréfum frá einhverrí
félagsstofnun, sem er að selja
happdrætti. Þessari árás á friðhelgi
heimilanna verðuraðlinna. Garrí.
VÍTT OG BREITT
Andlýðræðisleg síbylja
Ríkisstyrkt flokksblöð eiga eng-
an rétt á sér og þeirra tími er liðinn
og þau vill enginn kaupa eða lesa.
„Litlu flokksblöðin" túlka einvörð-
ungu skoðanir forystu síns flokks
og annað er ekki í þeim. Þess
vegna eru þau óáreiðanleg og óles-
andi.
Fullyrðingar eins og þær sem hér
er slett fram eru algengar meðal
fjölmiðlabullara og eru þær tuggð-
ar upp aftur og aftur og verða að
lokum að sannleika í huga almenn-
ings. Aðferðin er vel þekkt meðal
áróðursmeistara og var beitt af
hvað mestri hind af stjórnmála-
garpi sem þekktur var af endemum
í stöðu áróðursráðherra fyrir mið-
bik aldarinnar.
Stöð 2 gerði einhvers konar
úttekt á stöðu „litlu flokksblað-
anna“ í fyrrakvöld. Þar komu fram
nokkur sannleikskorn eins og að
Sjálfstæðisflokkurinn tekur við nær
fjórðungi hærri ríkisstyrk til út-
gáfustarfsemi en sá flokkur sem
næst kemur og einstaka viðmæl-
andi talaði af einhverju viti um
blaðaútgáfu en það fólk hafði að-
eins stuttan stans á skjánum.
Þeim mun lengur voru þeir látnir
þvaðra sem einhvern tíma gerðu
örstuttan stans í blaðamennsku,
eða öllu heldur í ritstjórastóli. Þeir
vita allt um hvernig blöð eiga að
vera, hvað fólk vill lesa og hvernig
útgáfan ber sig best. Verst að sú
vitneskja var víðs fjarri þegar þeir
voru að ritstýra.
Síðboriðvit
Fyrrum ritstjóri hrakfallanna
sem gefin voru út undir heitinu NT
sagði tröllasögur af upplagi og
vinsældum blaðs síns og hvemig
honum tókst að hraðminnka það
við góðan orðstír sjálfs sín.
í bókhaldsgögnum NT finnst
ekkert það sem skotið getur veik-
ustu stoðum undir frásögn grínist-
ans á Stöð 2 um stórbrotið hlutverk
sitt í ritstjórastóli misskilningsins
mikla, NT.
í fréttaljósi Stöðvar 2 um flokks-
blöðin óðu uppi illa grundaðar
fullyrðingar sem enginn þurfti að
gera nánari grein fyrir, en farið er
með sem sannleika.
Flokksblöðin eru ekki marktæk
vegna þess að þau túlka aðeins
flokkssjónarmið. Morgunblaðið er
gott blað vegna þess að það er ekki
flokksblað!!!!!
Hvað Tímanum viðvíkur hlýtur
maður að segja eins og er, að í
blaðinu eru sett fram margs kyns
sjónarmið í fréttum og greinaskrif-
um og yfirleitt öllu efni blaðsins. í
Tímann skrifa menn úr öllum
flokkum og fjalla um málefni frá
mörgum sjónarmiðum.
Um helgar eru viðamikil viðtöl
við ýmsa framámenn í þjóðfélag-
inu og er síst talað oftar eða nánar
við framsóknarmenn en fólk í öðr-
um stjómmálaflokkum. Tíminn er
öllum opinn til skoðanaskipta og
hefur verið lengi.
Hvem fjandann em menn sem
kenna sig við fjölmiðlun að tala um
þegar þeir fullyrða hver í kapp við
annan eins og þeir séu útskryppi
sjálfs Göbbelsar, að Tíminn sé
ekkert annað en þröngsýnt
flokksblað og eigi allt sitt undir
ríkisstyrk?
ÓpóNtísk stjómmál!
Hins vegar fær Morgunblaðið
hæstu einkunn fyrir hlutleysi í
sömu síbyljunni. Látið er eins og
að Moggi og Sjálfstæðisflokkurinn
séu alveg óskyld fyrirbæri og að
allir séu gráðugir í að lesa Morgun-
blaðið vegna þess að það sé svo
sjálfstætt og ópólitískt.
Það er sama þótt sömu menn séu
langtímum saman formenn Sjálf-
stæðisflokksins og formenn Árvak-
urs. Þama em engin pólitísk tengsl
á milli samkvæmt skilgreiningu
bjálfa á blöðum og flokksblöðum.
Þá er dæmi um að formaður Sjálf-
stæðisflokksins hefur jafnframt
verið aðalritstjóri Mogga.
En svoleiðis kemur stjórnmálum
náttúrlega ekkert við, eða hvað?
Kannski best að sættast á það að
Sjálfstæðisflokkurinn sé ópólitísk-
ur og því brýtur það ekki í bága við
loflegt hlutleysi dagblaðs að styðja
hann og styrkja með ráðum og dáð
og vera í málsvari fyrir stefnu hans
hvenær sem þörf er á.
Ef rétt er farið með þær upplags-
tölur „litlu blaðanna" sem gefnar
voru upp í títtnefndum stöðvartvö-
þætti em þau öll stórblöð, jafnvel
Alþýðublaðið, sé miðað við þann
hundraðshluta þjóðarinnar sem
þau ná til. Það svarar til 4 milljóna
upplags í USA, svo aðeins eitt
dæmi sé tekið.
Áróðurinn og lygaþvælan gegn
þeim blöðum á íslandi sem berjast
í bökkum er andstæð öllu velsæmi
og í hæsta máta ólýðræðisleg.
Hvað er t.d. svona ljótt við að
styðja tiltekna stjómmálaflokka?
Er það óþekkt úti í hinum frjálsa
heimi að blöð styðji flokka? Vill
fjölmiðlafólk ekki aðeins kynna
sér það atriði áður en það fer að
kveða upp úr um fáfræði sína um
íslensk blöð.
Hér er aðeins tæpt á fáu einu um
óhróðurinn sem ávallt gengur um
blöð og blaðamennsku á íslandi og
allir sjá hverjum er í hag.
En ósköp væri gott ef Tíminn
fengi þótt ekki væri nema helming-
inn af útgáfustyrk þeim sem Fram-
sóknarflokknum er úthlutað af Al-
þingi. OÓ