Tíminn - 27.04.1990, Side 2
2 Tíminn
Föstudagur 27. apríl 1990
Umræður utan dagskrár þar sem þrír „stjórnarliðar" í sjávarútvegsnefnd efri deildar áskilja sér
allan rétt í afgreiðslu kvótamálsins. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra:
MNGAÐ UNS SJÁVAR-
ÚTVEGURINN FÆR LÖG
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra sagði í samtali við
Tímann í gær, að þingi verði ekki slitið, fýrr en að frumvörp um
úreldingarsjóð fiskiskipa og stjóm fiskveiða hafa veríð afgreidd.
Forsætisráðherra sagði, að með þessarí yfirlýsingu sé hann ekki
að pressa á að málið verði keyrt í gegnum þingið með óeðlileg-
um hraða og sjálfsagt er, að alþingismenn fái þann tíma, sem
þeir telja sig þurfa til þess að ræða frumvörpin í deildum. Hann
bætti því við, að afgreiðsla kvótamálsins værí forsenda þess, að
unnt værí að skipuleggja framgang og afgreiðslu annarra mála á
þessu þingi.
Umræður fóru fram utan dagskrár á
Alþingi í gær um kvótamálið að ósk
Karvels Pálmasonar. Karvel kvaðst
óska eftir að leiðrétta það, að sam-
komulag hefði náðst um afgreiðslu á
fiskveiðistjómarfrumvörpum sjávar-
útvegsráðherra. Við umræðumar varð
opinbert, að þeir þrír „stjómarliðar" í
eíti deild, sem hafa barist gegn frum-
varpinu, munu ekki hindra, að það
verði tekið út úr nefnd, en áskilja sér
allan rétt við afgreiðslu málsins. Þetta
getur þýtt, að þinghald dragist á lang-
inn, en þingslitum hefúr þegar verið
frestað um rúma viku, en samkvæmt
áætlun átti því að ljúka í dag.
Karvel kvaðst ekki hafa óskað eftir
umræðunni vegna efnislegra atriða
ftumvarpanna um stjóm fiskveiða og
úreldingarsjóð sjávarútvegsins, held-
ur vegna þeirra aðferða, sem beitt
væri í því. Þingmaðurinn sagði, að
ekkert samkomulag hefði verið gert
við sig um að afgreiða málin tvö sam-
hliða út úr nefndinni í dag, eins og
ráðgert var, og ljúka síðan annarri og
þriðju umræðu þeirra á morgun. Þing-
maðurinn spurði, hvort samkomulag
væri á milli stjómarandstöðunnar og
stjómarliða um framgang kvótamáls-
ins og hvort fúlltrúar minnihlutans á
þingi ætluðu að láta sér nægja part af
laugardeginum til þess að ræða málið.
I umræðum um þingsköp fyrir utan-
dagskrámmræðumar hafði Karvel
látið þau orð falla, að hann hefði aldr-
ei lýst yfir stuðningi sínum við núver-
andi ríkisstjóm og í kvótamálinu
hefði hann kosið að fara eftir sann-
færingu sinni, en ekki að fylgja
flokksþrælkun.
Skúli Alexandersson, fúlltrúi Al-
þýðubandalagsins í sjávarútvegs-
nefnd efri deildar, sagði við umræð-
una, að hann ætlaði ekki að standa í
vegi fyrir því, að málið yrði tekið út
úr nefnd, hins vegar væri móðgun við
þingið að ætlast til þess, að þetta stóra
og viðamikla mál yrði afgreitt ftá efri
deild á morgun. Skúli, Karvel og
Guðmundur Agústsson, eiga allir sæti
í sjávarútvegsnefhdinni, en einungis
Skúli og Karvel hafa atkvæðisrétt.
Myndi þeir þrír hins vegar blokk við
atkvæðagreiðslu um málið í efri
deild, hafa stjómarliðar ekki lengur
meirihluta í málinu og eigi það að
fara í gegn, verður að semja við þing-
menn stjómarandstöðunnar.
Þingmenn stjómarandstöðunnar,
sem til máls tóku í gær, ásökuðu allir
stjómina um sundurlyndi í málinu og
t.d. lét Ólafúr G. Einarsson, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins í ljósi
efasemdir um að forsvarsmenn
stjómarflokkanna hefðu í raun um-
boð sinna manna til þess að semja við
stjómarandstöðuna. Það er þó greini-
legt, að afstaða þingmanna til fisk-
veiðistjómunarinnar skiptist ekki eft-
ir flokkum. Þannig vildi Eyjólfúr
Konráð Jónsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, að málið yrði fellt í efri
deild, samflokksmaður hans Guð-
mundur H. Garðarsson, vildi að mál-
ið yrði ekki afgreitt á þessu þingi og
því vísað til ráðgjafanefhdar, en Hall-
dór Blöndal sagði, að vegna fram-
komu stjómarliða væri fúlltrúum
Sjálfstæðisflokksins á þingi nú vandi
á höndum. Bolvíkingurinn Einar
Guðfmnsson sagði, að með nýjustu
breytingartillögum í kvótamálinu
kæmi í ljós, að trúnaðarbrestur stjóm-
valda við útgerðina í landinu væri al-
ger og afgreiðsla málsins væri lítils-
virðing við þjóðina. Danfriður
Skarphéðinsdóttir sagði, að Kvenna-
listanum væri ekkert að vanbúnaði að
taka þátt í umræðum um þessi mál og
hefðu tilbúnar breytingatillögur.
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs-
ráðherra, svaraði ásökunum Einars
Guðfmnssonar, Þorsteins Pálssonar
og fleiri og sagði, að þær breytingar,
sem gerðar hafa verið á ffumvarpinu
um úreldingasjóðinn, hefðu áður ver-
ið ræddar í undirbúningsvinnu við
frumvarpið og hagsmunaaðilum í
sjávarútvegi þess vegna kunnugt um
þær. Stefán Guðmundsson, formaður
sjávarútvegsnefhdar efri deildar, varð
einnig fyrir svömm varðandi þróun
málsins að undanfomu. Hann tók
undir með sjávarútvegsráðherra og
svaraði ásökunum sjálfstæðismanna
um trúnaðarbrest við hagsmunaaðila í
sjávarútvegi með nýjustu breytingum
er veita úreldingarsjóði 1,5 - 2% af
heildarkvóta til ráðstöfúnar. Stefán
benti á, að ffumvarpið um úreldingar-
sjóð sjávarútvegsins væri búið að
liggja fyrir þinginu í marga mánuði
og sagði, að menn ættu að vita um
hvað þeir væra að tala, áður en þeir
létu slíkar ásakanir frá sér fara.
- ÁG
^Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ:
„Oábyrgt að drepa
málinu á dreif“
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, segir það algerlega óviðun-
andi fýrir sjávarútveginn í landinu, ef
lög um stjómun fiskveiða verða ekki
samþykkt á þessu þingi. Hann sakar
jafnffamt þá þingmenn, sem nú vilja
drepa málinu á dreif um ábyrgðar-
leysi.
Kristján sagði í samtali við Tímann
í gær, að enginn ágreiningur væri um
það, að málinu þyrfti að ljúka sem
allra fyrst.
„Fulltrúar allra flokka og allra hags-
munaaðila í þessari nefnd, sem undir-
bjó frumvarpið, hafa lýst því yfír, að
þetta yrði að afgreiða, áður en þingi
lyki í vor,“ sagði Kristján. Það var
ekki neinn ágreiningur í þeim hópi,
hins vegar sýnist mér sumir þeirra
sömu aðila gerast býsna óábyrgir
núna og reyna að drepa málinu á
dreif.“
Framkvæmdastjóri Landssambands
íslenskra útvegsmanna sagði, að þeir
hefðu lýst því yfir á fundi með sjáv-
arútvegsnefnd efri deildar seinni part
dags í gær, að þeir litu það mjög al-
varlegum augum, ef framvarpið um
stjómun fískveiða yrði ekki afgreitt á
þessu þingi.
„Það yrði alveg óbærilegt, ef at-
vinnuvegur eins og sjávarútvegurinn
fær ekki að vita, við hvaða skilyrði
hann á að starfa á næsta ári,“ sagði
Kristján. „Það era svo mörg atriði,
sem þarf að skipuleggja og ekki er
hægt að gera, ef um þetta ríkir alger
óvissa. Og ef ríkir um þetta óvissa
núna, tel ég, að enn meiri óvissa
muni ríkja
um þetta í haust og algerlega ófyrir-
séð, hvemig málið muni þá þróast.“
Kristján Ragnarsson sagði að út-
gerðarmenn hefðu lýst sig óánægða
með stofnun fyrirhugaðs hagræðing-
arsjóðs sjávarútvegsins, sem áður var
nefndur úreldingarsjóður. Hans væri
ekki þörf og mun eðlilegra að veiði-
heimildir væra færðar saman af
framkvæði útgerðarinnar sjálfrar
eins og gert hefði verið að undan-
fömu
. - ÁG
Létt spjall á laugardegi
Vímuefnavandinn í Reykjavík
Laugardaginn 28. apríl kl. 10.30 verður fundur að Grensásvegi 44.
Umræðuefnið er: Vímuefnavandinn í Reykjavík.
Brynjólfsdóttir Sigurösson Magnúsdóttlr
Áslaug Brynjólfsdóttir fræðslustjóri og Guðfinnur Sigurðsson lögreglu-
forvarnafulltrúi ræða málin. Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi stjórnar
umræðum.
Allir velkomnir.
Frá aðalfundi SH í gær.
Aðalfundir Sjávarafurðadeildar Sambandsins og
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna standa nú yfir:
Útflutningsaukning hjá
stóru sölusamtökunum
Heildarframleiðsla frystihúsa og
frystiskipa innan vébanda Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna á síð-
asta ári var rétt rúmlega 93 þúsund
tonn, en það er 1,3% aukning frá
árinu 1988. Framleiðsla ffystra
sjávarafurða fiskverkenda á vegum
Sjávarafurðadeildar Sambandsins
var á síðasta ári 50.660 tonn, en
51.490 tonn árið á undan, þetta
þýðir 1,6% samdrátt Hins vegar
varð magnaukning á útflutningi
beggja fyrirtækjanna, svo og 42%
aukning í krónutölu miðað við árið
1988. Þetta kom fram á aðalfund-
um fyrirtækjanna, sem haldnir hafa
verið nú í vikunni.
Heildarútflutnmgur SH á sjávarafúrð-
um á síðasta ári nam 96 þúsund tonn-
um að verðmæti 14,8 milljarðar króna.
Heildarútflutningur Sjávarafúrðadeild-
ar Sambandsins nam samtals 53.700
tonn og jókst um rúm 6000 tonn milli
ára, eða 15,6%. Eins og áður sagði,
dróst ffamleiðslan saman um 1,6%
milli áranna, en útflutningsaukningin
skýrist m.a. af því, að mjög gekk á
birgðir ffá árinu 1987. Heildarverð-
mæti útfluttra sjávarafúrða Sjávaraf-
urðadeildar nam rétt tæpum tíu millj-
örðum króna, samanborið við sjö
milljarða árið 1988, þetta þýðir aukn-
ing í krónum talið upp á 42,3%.
Heildarsala Iceland Seafood Corpor-
ation, dótturfyrirtækis Sambandsins í
Bandaríkjunum, var 132,7 milljónir
dollara á síðasta ári, á móti 134,1 millj-
ón dollara árið áður. Samdrátturinn er
því 1%. Iceland Seafood Ltd. í Bret-
landi seldi á síðasta ári fyrir 44,2 millj-
ónir punda, en það er 7% söluaukning
milli áranna 1988 og 1989.
Dótturfýrirtæki SH í Bandaríkjunum,
Coldwater Seafood Corporation seldi
um 47 þúsund tonn að verðmæti 200
milljónir dollara, sem er svipuð upp-
hæð og árið áður. Að verðmæti dróst
sala verksmiðjuframleiddrar vöra sam-
an um 8%, en sala flaka jókst hins veg-
ar um 10%. í Bretlandi varð samdrátt-
ur, sem rakinn er til versnandi
efnahagsástands og minnkandi kaup-
máttar almennings. Rekstrarhalli Ice-
landic Freezing Plants Ltd. nam 1,7
milljón punda, hins vegar lofar árið
1990 góðu, því rekstrarafkoman á
fýrsta ársfjórðungi hefur batnað um
255 þúsund pund miðað við sama tíma
í fyrra. Hjá dótturfýrirtækinu í Ham-
borg jókst heildarsalan að magninu til
um 30% og að verðmæti um 34%. í
Frakklandi var magnaukningin um
62% og 42% verðmætaaukning.
Þá vora þær hugmyndir um að breyta
rekstrarformi fýrirtækjanna beggja í
hlutafélög, reifaðar á aðalfúndunum.
Stjóm SH hefúr komið á fót nefnd til
að meta stöðu félagsins í nútíð og fram-
tið. Um breytingu á félagsformi sagði
Friðrik Pálsson forstjóri SH, að nokkur
timi liði þar til niðurstaða fengist í því
máli. Hann sagði, að sá andi baráttu og
samstöðu, sem einkennt hafi starf SH í
áratugi væri enn til staðar, en eðlilegt
væri, að að menn íhugi að nýta sér enn
betur þann styrk, sem í henni býr, með
þvi að færa félagið í það horf, að eign-
ir, sem orðið hafa til í fýrirtækinu í tím-
ans rás, nýtist betur til ffamfarasóknar.
—ABÓ