Tíminn - 27.04.1990, Blaðsíða 2

Tíminn - 27.04.1990, Blaðsíða 2
2 Tíminn Föstudagur 27. apríl 1990 Umræður utan dagskrár þar sem þrír „stjórnarliðar" í sjávarútvegsnefnd efri deildar áskilja sér allan rétt í afgreiðslu kvótamálsins. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra: MNGAÐ UNS SJÁVAR- ÚTVEGURINN FÆR LÖG Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra sagði í samtali við Tímann í gær, að þingi verði ekki slitið, fýrr en að frumvörp um úreldingarsjóð fiskiskipa og stjóm fiskveiða hafa veríð afgreidd. Forsætisráðherra sagði, að með þessarí yfirlýsingu sé hann ekki að pressa á að málið verði keyrt í gegnum þingið með óeðlileg- um hraða og sjálfsagt er, að alþingismenn fái þann tíma, sem þeir telja sig þurfa til þess að ræða frumvörpin í deildum. Hann bætti því við, að afgreiðsla kvótamálsins værí forsenda þess, að unnt værí að skipuleggja framgang og afgreiðslu annarra mála á þessu þingi. Umræður fóru fram utan dagskrár á Alþingi í gær um kvótamálið að ósk Karvels Pálmasonar. Karvel kvaðst óska eftir að leiðrétta það, að sam- komulag hefði náðst um afgreiðslu á fiskveiðistjómarfrumvörpum sjávar- útvegsráðherra. Við umræðumar varð opinbert, að þeir þrír „stjómarliðar" í eíti deild, sem hafa barist gegn frum- varpinu, munu ekki hindra, að það verði tekið út úr nefnd, en áskilja sér allan rétt við afgreiðslu málsins. Þetta getur þýtt, að þinghald dragist á lang- inn, en þingslitum hefúr þegar verið frestað um rúma viku, en samkvæmt áætlun átti því að ljúka í dag. Karvel kvaðst ekki hafa óskað eftir umræðunni vegna efnislegra atriða ftumvarpanna um stjóm fiskveiða og úreldingarsjóð sjávarútvegsins, held- ur vegna þeirra aðferða, sem beitt væri í því. Þingmaðurinn sagði, að ekkert samkomulag hefði verið gert við sig um að afgreiða málin tvö sam- hliða út úr nefndinni í dag, eins og ráðgert var, og ljúka síðan annarri og þriðju umræðu þeirra á morgun. Þing- maðurinn spurði, hvort samkomulag væri á milli stjómarandstöðunnar og stjómarliða um framgang kvótamáls- ins og hvort fúlltrúar minnihlutans á þingi ætluðu að láta sér nægja part af laugardeginum til þess að ræða málið. I umræðum um þingsköp fyrir utan- dagskrámmræðumar hafði Karvel látið þau orð falla, að hann hefði aldr- ei lýst yfir stuðningi sínum við núver- andi ríkisstjóm og í kvótamálinu hefði hann kosið að fara eftir sann- færingu sinni, en ekki að fylgja flokksþrælkun. Skúli Alexandersson, fúlltrúi Al- þýðubandalagsins í sjávarútvegs- nefnd efri deildar, sagði við umræð- una, að hann ætlaði ekki að standa í vegi fyrir því, að málið yrði tekið út úr nefnd, hins vegar væri móðgun við þingið að ætlast til þess, að þetta stóra og viðamikla mál yrði afgreitt ftá efri deild á morgun. Skúli, Karvel og Guðmundur Agústsson, eiga allir sæti í sjávarútvegsnefhdinni, en einungis Skúli og Karvel hafa atkvæðisrétt. Myndi þeir þrír hins vegar blokk við atkvæðagreiðslu um málið í efri deild, hafa stjómarliðar ekki lengur meirihluta í málinu og eigi það að fara í gegn, verður að semja við þing- menn stjómarandstöðunnar. Þingmenn stjómarandstöðunnar, sem til máls tóku í gær, ásökuðu allir stjómina um sundurlyndi í málinu og t.d. lét Ólafúr G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins í ljósi efasemdir um að forsvarsmenn stjómarflokkanna hefðu í raun um- boð sinna manna til þess að semja við stjómarandstöðuna. Það er þó greini- legt, að afstaða þingmanna til fisk- veiðistjómunarinnar skiptist ekki eft- ir flokkum. Þannig vildi Eyjólfúr Konráð Jónsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, að málið yrði fellt í efri deild, samflokksmaður hans Guð- mundur H. Garðarsson, vildi að mál- ið yrði ekki afgreitt á þessu þingi og því vísað til ráðgjafanefhdar, en Hall- dór Blöndal sagði, að vegna fram- komu stjómarliða væri fúlltrúum Sjálfstæðisflokksins á þingi nú vandi á höndum. Bolvíkingurinn Einar Guðfmnsson sagði, að með nýjustu breytingartillögum í kvótamálinu kæmi í ljós, að trúnaðarbrestur stjóm- valda við útgerðina í landinu væri al- ger og afgreiðsla málsins væri lítils- virðing við þjóðina. Danfriður Skarphéðinsdóttir sagði, að Kvenna- listanum væri ekkert að vanbúnaði að taka þátt í umræðum um þessi mál og hefðu tilbúnar breytingatillögur. Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs- ráðherra, svaraði ásökunum Einars Guðfmnssonar, Þorsteins Pálssonar og fleiri og sagði, að þær breytingar, sem gerðar hafa verið á ffumvarpinu um úreldingasjóðinn, hefðu áður ver- ið ræddar í undirbúningsvinnu við frumvarpið og hagsmunaaðilum í sjávarútvegi þess vegna kunnugt um þær. Stefán Guðmundsson, formaður sjávarútvegsnefhdar efri deildar, varð einnig fyrir svömm varðandi þróun málsins að undanfomu. Hann tók undir með sjávarútvegsráðherra og svaraði ásökunum sjálfstæðismanna um trúnaðarbrest við hagsmunaaðila í sjávarútvegi með nýjustu breytingum er veita úreldingarsjóði 1,5 - 2% af heildarkvóta til ráðstöfúnar. Stefán benti á, að ffumvarpið um úreldingar- sjóð sjávarútvegsins væri búið að liggja fyrir þinginu í marga mánuði og sagði, að menn ættu að vita um hvað þeir væra að tala, áður en þeir létu slíkar ásakanir frá sér fara. - ÁG ^Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ: „Oábyrgt að drepa málinu á dreif“ Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, segir það algerlega óviðun- andi fýrir sjávarútveginn í landinu, ef lög um stjómun fiskveiða verða ekki samþykkt á þessu þingi. Hann sakar jafnffamt þá þingmenn, sem nú vilja drepa málinu á dreif um ábyrgðar- leysi. Kristján sagði í samtali við Tímann í gær, að enginn ágreiningur væri um það, að málinu þyrfti að ljúka sem allra fyrst. „Fulltrúar allra flokka og allra hags- munaaðila í þessari nefnd, sem undir- bjó frumvarpið, hafa lýst því yfír, að þetta yrði að afgreiða, áður en þingi lyki í vor,“ sagði Kristján. Það var ekki neinn ágreiningur í þeim hópi, hins vegar sýnist mér sumir þeirra sömu aðila gerast býsna óábyrgir núna og reyna að drepa málinu á dreif.“ Framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna sagði, að þeir hefðu lýst því yfir á fundi með sjáv- arútvegsnefnd efri deildar seinni part dags í gær, að þeir litu það mjög al- varlegum augum, ef framvarpið um stjómun fískveiða yrði ekki afgreitt á þessu þingi. „Það yrði alveg óbærilegt, ef at- vinnuvegur eins og sjávarútvegurinn fær ekki að vita, við hvaða skilyrði hann á að starfa á næsta ári,“ sagði Kristján. „Það era svo mörg atriði, sem þarf að skipuleggja og ekki er hægt að gera, ef um þetta ríkir alger óvissa. Og ef ríkir um þetta óvissa núna, tel ég, að enn meiri óvissa muni ríkja um þetta í haust og algerlega ófyrir- séð, hvemig málið muni þá þróast.“ Kristján Ragnarsson sagði að út- gerðarmenn hefðu lýst sig óánægða með stofnun fyrirhugaðs hagræðing- arsjóðs sjávarútvegsins, sem áður var nefndur úreldingarsjóður. Hans væri ekki þörf og mun eðlilegra að veiði- heimildir væra færðar saman af framkvæði útgerðarinnar sjálfrar eins og gert hefði verið að undan- fömu . - ÁG Létt spjall á laugardegi Vímuefnavandinn í Reykjavík Laugardaginn 28. apríl kl. 10.30 verður fundur að Grensásvegi 44. Umræðuefnið er: Vímuefnavandinn í Reykjavík. Brynjólfsdóttir Sigurösson Magnúsdóttlr Áslaug Brynjólfsdóttir fræðslustjóri og Guðfinnur Sigurðsson lögreglu- forvarnafulltrúi ræða málin. Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi stjórnar umræðum. Allir velkomnir. Frá aðalfundi SH í gær. Aðalfundir Sjávarafurðadeildar Sambandsins og Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna standa nú yfir: Útflutningsaukning hjá stóru sölusamtökunum Heildarframleiðsla frystihúsa og frystiskipa innan vébanda Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna á síð- asta ári var rétt rúmlega 93 þúsund tonn, en það er 1,3% aukning frá árinu 1988. Framleiðsla ffystra sjávarafurða fiskverkenda á vegum Sjávarafurðadeildar Sambandsins var á síðasta ári 50.660 tonn, en 51.490 tonn árið á undan, þetta þýðir 1,6% samdrátt Hins vegar varð magnaukning á útflutningi beggja fyrirtækjanna, svo og 42% aukning í krónutölu miðað við árið 1988. Þetta kom fram á aðalfund- um fyrirtækjanna, sem haldnir hafa verið nú í vikunni. Heildarútflutnmgur SH á sjávarafúrð- um á síðasta ári nam 96 þúsund tonn- um að verðmæti 14,8 milljarðar króna. Heildarútflutningur Sjávarafúrðadeild- ar Sambandsins nam samtals 53.700 tonn og jókst um rúm 6000 tonn milli ára, eða 15,6%. Eins og áður sagði, dróst ffamleiðslan saman um 1,6% milli áranna, en útflutningsaukningin skýrist m.a. af því, að mjög gekk á birgðir ffá árinu 1987. Heildarverð- mæti útfluttra sjávarafúrða Sjávaraf- urðadeildar nam rétt tæpum tíu millj- örðum króna, samanborið við sjö milljarða árið 1988, þetta þýðir aukn- ing í krónum talið upp á 42,3%. Heildarsala Iceland Seafood Corpor- ation, dótturfyrirtækis Sambandsins í Bandaríkjunum, var 132,7 milljónir dollara á síðasta ári, á móti 134,1 millj- ón dollara árið áður. Samdrátturinn er því 1%. Iceland Seafood Ltd. í Bret- landi seldi á síðasta ári fyrir 44,2 millj- ónir punda, en það er 7% söluaukning milli áranna 1988 og 1989. Dótturfýrirtæki SH í Bandaríkjunum, Coldwater Seafood Corporation seldi um 47 þúsund tonn að verðmæti 200 milljónir dollara, sem er svipuð upp- hæð og árið áður. Að verðmæti dróst sala verksmiðjuframleiddrar vöra sam- an um 8%, en sala flaka jókst hins veg- ar um 10%. í Bretlandi varð samdrátt- ur, sem rakinn er til versnandi efnahagsástands og minnkandi kaup- máttar almennings. Rekstrarhalli Ice- landic Freezing Plants Ltd. nam 1,7 milljón punda, hins vegar lofar árið 1990 góðu, því rekstrarafkoman á fýrsta ársfjórðungi hefur batnað um 255 þúsund pund miðað við sama tíma í fyrra. Hjá dótturfýrirtækinu í Ham- borg jókst heildarsalan að magninu til um 30% og að verðmæti um 34%. í Frakklandi var magnaukningin um 62% og 42% verðmætaaukning. Þá vora þær hugmyndir um að breyta rekstrarformi fýrirtækjanna beggja í hlutafélög, reifaðar á aðalfúndunum. Stjóm SH hefúr komið á fót nefnd til að meta stöðu félagsins í nútíð og fram- tið. Um breytingu á félagsformi sagði Friðrik Pálsson forstjóri SH, að nokkur timi liði þar til niðurstaða fengist í því máli. Hann sagði, að sá andi baráttu og samstöðu, sem einkennt hafi starf SH í áratugi væri enn til staðar, en eðlilegt væri, að að menn íhugi að nýta sér enn betur þann styrk, sem í henni býr, með þvi að færa félagið í það horf, að eign- ir, sem orðið hafa til í fýrirtækinu í tím- ans rás, nýtist betur til ffamfarasóknar. —ABÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.