Tíminn - 27.04.1990, Page 10

Tíminn - 27.04.1990, Page 10
10 Tíminn Föstudagur 27. apríl 1990 DAGBÓK Vorfagnaður félagsins Hellas Laugardaginn 28. apríl n.k. efnir Grikklandsvinafélagið Hellas til vorfagn- aðar í Risinu, Borgartúni 32, efstu hæð. Samkoman hefst kl. 20.30 með borðhaldi þar sem á boðstólum verður hlaðborð með grískum réttum. Ræðumaður kvöldsins er Sigurður Steinþórsson jarð- fræðingur og einnig verður flutt atriði úr Þingkonunum eftir Aristófanes. Leik- stjóri er Helga Bachmann en leikendur eru líklegir til að koma á óvart á þessu sviði. Þá verður grísk tónlist jafnt sungin sem leikin fyrír dansi. Þátttaka tilkynnist í síma 29670 eða 21749, ekki síðar en föstudag. Kjarvalsstaðir í vestursal sýnir Sigurður Örlygsson. í austursal og báðum forsölum er sýning á verkum úr eigu Búnaðarbank- ans. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl. 11:00-18:00 og er veitingabúðin opin á sama tíma. Bandarísk hljómsveít leikur að Kjarvalsstóðum „The Califomia E.A.R. Unit“ nefnist bandarísk kammersveit, sem í kvöld, föstud. 27. apríl heldur tónleika að Kjarv- alsstöðum kl. 20:30. Þetta er níu manna hópur sem hefur sérhæft sig í flutningi nýrrar tónlistar og er hljómsveitin mjög þekkt á því sviði. Einnig hafa meðlimir hópsins getið sér gott orð sjálfir sem tónskáld. Á þessum tónleikum mun The Califor- nia E.A.R. Unit flytja verk eftir Elliott Carter, Arthur Jarvinen, StephenMosko, Steve Reich og Frederic Rjzewsky, auk þess að frumflytja nýtt verk eftir Hilmar Þórðarson. Á morgun, laugard. 28. apríi kl. 10:00- 12:00 mun hópurínn halda námskeið í sal Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar við Hraunberg í Breiðholti. Þar munu þau sýna ýmsar aðferðir til þess að miðla nútímatónlist til bama og leikmanna, auk þess að leyfa þátttakendum að spreyta sig Bændur Drengur á þrettánda ári óskar eftir að komast í sveit í sumar. Hefur verið í sveit áður. Upplýsingar í síma 91-72949, eftir kl. 18.00. Unglingaheimili ríkisins Við flytjum í Síðumúla 13 Skrifstofa Unglingaheimilis ríkisins og Unglinga- ráðgjöfin flytja í nýtt húsnæði. Vegna flutninganna verður lokað í dag, föstudag- inn 27. apríl, og mánudaginn 30. apríl. Við opnum í Síðumúla 13, þriðju hæð, miðvikudag- inn 2. maí. Nýtt símanúmer 689270. Kransar, krossar, kistu- skreytingar, samúðarvendir og samúðarskreytingar. Sendum um allt land á opnunartíma frá kl. 10-21 alla daga vikunnar Miklubraut 68 @13630 RISIÐ Borgartúni 32 Sjáum um erfisdrykkjur Upplýsingar í síma 29670 t Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa Valdimars Stefánssonar frá Laugardælum ferfram frá Selfosskirkju laugardaginn 28. apríl kl. 13.30. Jarðsett verður að Laugardælum. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi Kjartan Þ. Ólafsson fiskmatsmaður fyrrum bóndl að Leirum, Austur-Eyjafjöllum lést á heimili sínu Hraunbæ 132, Reykjavik, aðfaranótt 25. apríl s.l. Kristín Pétursdóttir Vigdís Kjartansdóttir Þorvarður Þórðarson Pétur Sævar Kjartansson Ingibjörg Hrönn Sveinsdóttir Ólafur Marel Kjartansson Guðný Védís Guðjónsdóttir og barnabörn sjálfir við tónsköpun. Aðgangur að nám- skeiðinu er ókeypis og öllum heimill. The California E.A.R. Unit er þekkt fyrir frjálslegan klæöaburð, líflega sviðs- framkomu. Það má því búast við ein- hverjum skemmtilegum uppákomum á tónleikunum og námskeiðinu. Kees Visser sýnir í Slunkaríki á ísafirði Hollendingurinn Kees Visser opnar sýningu í Slunkaríki á lsafirði, laugard. 28. apríl kl. 16:00. Kees Visser er fæddur í Hollandi 1948 og er sjálfmenntaður í myndlist. Hann er einn þeirra erlendu myndlistarmanna sem tengst hafa lslandi og íslenskrí list og hefur verið búsettur hér á landi síðustu ár. Auk sýninga á íslandi hefur hann haldið fjölda sýninga í Hollandi og víðar. Sýningin er opin fimmtudaga-sunnu- daga kl. 16:00-18:00 fram til sunnudagsins 13. maí. Þjóðleikhúsið Endurbygging eftir Václav Havel, næstsíðasta sýning, er í kvöld í Háskóla- bíói kl. 20:30. Síðasta sýning á Endur- byggingu verður sunnudaginn 6. maí. Stcfnumót - næstsíðasta sýning á laug- ardagskvöld í Iðnó kl. 20:30. Síðasta sýning á Stefnumóti verður föstu- daginn 4. maí. Ráðsfundur ITC á Akureyri Annað ráð ITC á Islandi heldur ráðs- fund á Akureyri laugard. 28. apríl. Fund- urinn hefst kl. 11:00. Að loknum féiags- málahluta fundarins verður bókmennta- kynning og verður skáldkonan Jakobína Sigurðardóttir og verk hennar kynnt. Deildir innan ráðsins eru 8 og verða kappræður milli deilda. Um kvöldið er hátíð sem hefst með borðhaldi i Laxdals- húsi. ITC samtökin eru opin öllum sem hafa áhuga á að vera með í þeim, bæði körlum og konum. Stjórn annars ráðs 1989-1990: Forseti er Alexía Gísladóttir, 1. varaforseti Hjördís Jensd. 2. varafs. Svanfríöur Magnúsdóttir, ritari Elín Eyfjörð, gjald- keri Marta Pálsdóttir. Þingskapaleiðari er Kristjana Milla Thorsteinsson. Félag eldri borgara í Kópavogi f kvöld, föstud. 27. apríl verður nokk- urs konar sumarfagnaður haldinn í efri sal Félagsheimilisins kl. 20:00 stundvís- lega. Til skemmtunar verður kórsöngur, gamanmál og dans. Skemmtinefndin Laugardagsganga Hana nú Hin vikulega laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10:00. „Nú er veturinn að baki og Göngu- klúbburinn hefur sumargöngur í sjötta sinn. Markmiðið er: Samvera, súrefni, hreyfing. Nýlagað molakaffi og skemmti- legur félagsskapur," segir í tilkynningu frá Hana nú. Ljóðatónleikum EDDU MOSER aflýst Ljóðatónleikar Eddu Moser og Dalton Baldwin, sem vera áttu í lslensku óper- unni laugardaginn 28. apríl kl. 16:30 á vegum Tónlistarfélagsins, falla niður vegna veikinda söngkonunnar. Til stóð að listamennimir héldu nám- skeið fyrir söngvara og píanóleikara í húsnæði Tónlistarskólans í Reykjavík og fellur það einnig niður. Aðgöngumiðar verða endurgreiddir á sölustað. Háskólafyrirlestur um Sovétríkin Dr. Kristian Gemer, dósent í sagnfræði við háskólann í Lundi, flytur opinberan fyrirlestur í boði Heimspekideildar Há- skóla íslands föstudaginn 27. apríl kl. 17:15 í stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn nefnist: „Sovétríkin í dag og sjálfstæðiskröfur sambandslýd- velda“ og verður fluttur á ensku. Kristian Gerner er í hópi fremstu kunnáttumanna á Norðurlöndum um sögu, stjórnmál og efnahagsástand í Sovétríkjunum og öðrum ríkjum Austur- Evrópu og hefur sent frá sér fjölda rita og greina um þessi efni. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Samsðngur þriggja kóra í Langholtskirkju Áraesingakórinn í Reykjavík, Samkór Sclfoss og Ámeskórinn halda sameigin- lega tónleika í Langholtskirkju laugar- daginn 28. apríl kl. 17:00. Kórannir syngja fyrst hver í sínu lagi og síðan allir saman, en kórarnir hafa átt gott samstarf og em sameiginlegir tón- leikar þeirra orðinn árviss viðburður. Efnisskrá er fjölbreytt og er þar að Háskólafyriríestur um „GLASABÓRN“ Prófessor Margaret Stacy heldur opin- beran fyrirlestur í boði félagsvísinda- deildar Háskóla Islands i dag, föstud. 27. aprfl ki. 15:15 i stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og nefnist: Test tube babies: A blessing or a curse? Margaret Stacy er prófessor í félags- fræði við háskólann í Warwick í Bretlandi og hefur stundað rannsóknir á sviði heilsufélagsfræði, m.a. á nýjustu tækni læknavísinda á sviði fóstur- og frjósemis- aðgerða og setið í nefnd á vegum Evrópu- ráðsins sem hefur fjallað um það efni. Hún hefur einnig látið til sín taka á sviði félagsmála, t.a.m. verið forseti breska félagsfræðifélagsins jafnframt því sem hún hefur verið virk í kvennabaráttu í Bretlandi. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meöan húsrúm leyfir. Hafnarborg í Hafnarfirði: Sýning Gunnars Ásgeirs Hjaltasonar Sýning Gunnars Ásgeirs Hjaltasonar stendur nú yfir í Hafnarborg. Sýningin er opin daglega kl. 14:00-19:00 og stendur til 6. maí. Á sýningunni eru myndverk unnin í pastel og akrýl, vatnslitamyndir, teikningar, grafík og ýmsir smíðisgripir. Gunnar Ásgeir Hjaltason gullsmiður er fæddur að Ytri-Bakka við Eyjafjörð 1920, en fluttist til Reykjavíkur og síðan til Hafnarfjarðar 1952. Hann lærði gull- smíði hjá Guðmundi Guðnasyni og Leifi Kaldal. Stundaði nám við teikniskóla Bjöms Björnssonar og Marteins Guð- mundssonar og tók einnig þátt í nokkrum námskeiöum á vegum Handíðaskólans. Gunnar hefur haldið einkasýningar í Hafnarfirði, Reykjavík, Kópavogi, Vest- mannaeyjum, Hveragerði, Borgarnesi og Hvammstanga og tekið þátt í samsýning- um hér á landi og erlendis. finna bæði innlend og erlend lög. Einsöngvarar með kórunum em: Kol- beinn Ketilsson, Magnús Torfason, Ingi- björg Marteinsdóttir, Haukur Haraldsson og Amþrúður Sæmundsdóttir. Stjórnandi Ámeskórsins er Loftur S. Loftsson, stjórnandi Samkórs Selfoss er Jón Kristinn Cortes og stjórnandi Árnes- ingakórsins í Reykjavík er Sigurður P. Bragason. Undirleikari er Úlrik Ólason. Tónleikarnir verða endurteknir í Ara- tungu föstud. 4. maí kl. 21:00. MINNING llllllilllllllllllllllllillillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllll^ Ásgeir Einarsson Fæddur 10. ágúst 1916 Dáinn 18. aprfl 1990 Góður vinur minn og samstarfs- maður í áratugi er fallinn frá. Ásgeir fæddist í Reykjavík 10. ágúst 1916. Foreldrar hans voru Einar Hró- bjartsson, deildarstjóri Póststofunn- ar í Reykjavík, f. 1885, Ólafssonar bónda að Húsum í Holtahreppi, f. 1836, og konu hans Ingibjargar Magnúsdóttur, f. 1845, kona Einars, móðir Ásgeirs, var Ágústa Stefanía Sveinbjörnsdóttir, f. 1887, Stefáns- sonar, smiðs í Hafnarfirði, f. 1863, og konu hans Ástríðar Guðmunds- dóttur, f. 1865. Ásgeir var næstelstur átta systkina en þau eru Ingibjörg, Ásta, Svein- björn, Agnes (dó í bernsku), Hauk- ur (dó í bernsku), Sigrún og Hró- bjartur. Sonur Ásgeirs er Birgir Þór, f. 1929, bóndi á Fossvöllum í Jökuldal, kona Birgis er Ragnheiður Ragnars- dóttir, f. 1943, Þeirra börn eru Anna Gunnur, f. 1970, og Ásgeir, f. 1981, en áður átti Ragnheiður dótturina Aðalheiði. Ásgeir hóf ungur að árum störf hjá Póststofunni í Reykjavík 9. maí 1931. Ekki er mér kunnugt um að nokkur annar póstmaður hafi átt lengri starfsferil að baki. Ásgeir var skipaður póstafgreiðslumaður 1. júlí 1937 og fulltrúi 1948. Hann gegndi hinum ýmsu fulltrúastörfum allt til fyrrverandi féhiröir ársins 1977 að hann var skipaður aðalféhirðir Póststofunnar í Reykja- vík og gegndi hann því starfi til 1985 er hann lét af störfum vegna aldurs, að hætti opinberra starfsmanna. Framangreindar upptalningar lýsa best hversu framúrskarandi og fjöl- hæfur starfsmaður Ásgeir var. Hann lauk samvinnuskólaprófi sem þótti góð menntun, þá var hann einstaklega mikill málamaður og voru þeir ófáir starfsmenn sem leit- uðu til hans með ýmis bréf og voru þeir ófáir starfsmenn sem leituðu til hans með ýmis bréf og skjöl sem þurfti hjálpar við að þýða yfir á íslensku, þá nefni ég sérstaklega frönsku, en hann var mikill frönsku- ntaður og franskan alþjóðlegt póstmál. Á árum áður var starfandi póstaf- greiðslumaður á strandferðaskipinu Esju og var Ásgeir sá er síðast gegndi því starfi 1939. Það væri vert að minnast þessara starfa póstmanna þegar saga póstmála á íslandi verður skráð. Þau ár sem ég starfaði að félags- málum póstmanna leitaði ég oft ráða hjá Ásgeiri varðandi úrlausn ýmissa mála, bæði á innlendum og erlend- um vettvangi. Fyrir þau ráð mun ég ævinlega vera honum þakklátur. Ás- geir var mikill tónlistarunnandi og spilaði á píanó og kunni góð skil á gömlu meisturunum. Það var haft á orði hvað Ásgeir var góður og sanngjarn yfirmaður og ljúfur í viðmóti við þá sem minna máttu sín. Ég sem þessar línur rita kynntist vel drenglyndi og ljúfmennsku Ás- geirs, hann var vinur vina sinna, hlýr í viðmóti en þó ekki allra viðmæl- andi, því var hann talinn fremur hlédrægur og seintekinn maður. Syni hans og fjölskyldu, systkinum Ásgeir og öðrum ættmennum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu vinar míns. Reynir Ármannsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.