Tíminn - 27.04.1990, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Föstudagur 27. apríl 1990
DAGBÓK
Vorfagnaður félagsins Hellas
Laugardaginn 28. apríl n.k. efnir
Grikklandsvinafélagið Hellas til vorfagn-
aðar í Risinu, Borgartúni 32, efstu hæð.
Samkoman hefst kl. 20.30 með borðhaldi
þar sem á boðstólum verður hlaðborð
með grískum réttum. Ræðumaður
kvöldsins er Sigurður Steinþórsson jarð-
fræðingur og einnig verður flutt atriði úr
Þingkonunum eftir Aristófanes. Leik-
stjóri er Helga Bachmann en leikendur
eru líklegir til að koma á óvart á þessu
sviði. Þá verður grísk tónlist jafnt sungin
sem leikin fyrír dansi. Þátttaka tilkynnist
í síma 29670 eða 21749, ekki síðar en
föstudag.
Kjarvalsstaðir
í vestursal sýnir Sigurður Örlygsson.
í austursal og báðum forsölum er
sýning á verkum úr eigu Búnaðarbank-
ans.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl.
11:00-18:00 og er veitingabúðin opin á
sama tíma.
Bandarísk hljómsveít
leikur að Kjarvalsstóðum
„The Califomia E.A.R. Unit“ nefnist
bandarísk kammersveit, sem í kvöld,
föstud. 27. apríl heldur tónleika að Kjarv-
alsstöðum kl. 20:30.
Þetta er níu manna hópur sem hefur
sérhæft sig í flutningi nýrrar tónlistar og
er hljómsveitin mjög þekkt á því sviði.
Einnig hafa meðlimir hópsins getið sér
gott orð sjálfir sem tónskáld.
Á þessum tónleikum mun The Califor-
nia E.A.R. Unit flytja verk eftir Elliott
Carter, Arthur Jarvinen, StephenMosko,
Steve Reich og Frederic Rjzewsky, auk
þess að frumflytja nýtt verk eftir Hilmar
Þórðarson.
Á morgun, laugard. 28. apríi kl. 10:00-
12:00 mun hópurínn halda námskeið í sal
Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar
við Hraunberg í Breiðholti. Þar munu
þau sýna ýmsar aðferðir til þess að miðla
nútímatónlist til bama og leikmanna, auk
þess að leyfa þátttakendum að spreyta sig
Bændur
Drengur á þrettánda ári óskar eftir að komast í
sveit í sumar. Hefur verið í sveit áður.
Upplýsingar í síma 91-72949, eftir kl. 18.00.
Unglingaheimili ríkisins
Við flytjum í
Síðumúla 13
Skrifstofa Unglingaheimilis ríkisins og Unglinga-
ráðgjöfin flytja í nýtt húsnæði.
Vegna flutninganna verður lokað í dag, föstudag-
inn 27. apríl, og mánudaginn 30. apríl.
Við opnum í Síðumúla 13, þriðju hæð, miðvikudag-
inn 2. maí. Nýtt símanúmer 689270.
Kransar, krossar, kistu-
skreytingar, samúðarvendir
og samúðarskreytingar.
Sendum um allt land á opnunartíma
frá kl. 10-21 alla daga vikunnar
Miklubraut 68 @13630
RISIÐ
Borgartúni 32
Sjáum um erfisdrykkjur
Upplýsingar í síma 29670
t
Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
Valdimars Stefánssonar
frá Laugardælum
ferfram frá Selfosskirkju laugardaginn 28. apríl kl. 13.30.
Jarðsett verður að Laugardælum.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Kjartan Þ. Ólafsson
fiskmatsmaður
fyrrum bóndl að Leirum, Austur-Eyjafjöllum
lést á heimili sínu Hraunbæ 132, Reykjavik, aðfaranótt 25. apríl s.l.
Kristín Pétursdóttir
Vigdís Kjartansdóttir Þorvarður Þórðarson
Pétur Sævar Kjartansson Ingibjörg Hrönn Sveinsdóttir
Ólafur Marel Kjartansson Guðný Védís Guðjónsdóttir
og barnabörn
sjálfir við tónsköpun. Aðgangur að nám-
skeiðinu er ókeypis og öllum heimill.
The California E.A.R. Unit er þekkt
fyrir frjálslegan klæöaburð, líflega sviðs-
framkomu. Það má því búast við ein-
hverjum skemmtilegum uppákomum á
tónleikunum og námskeiðinu.
Kees Visser sýnir
í Slunkaríki á ísafirði
Hollendingurinn Kees Visser opnar
sýningu í Slunkaríki á lsafirði, laugard.
28. apríl kl. 16:00.
Kees Visser er fæddur í Hollandi 1948
og er sjálfmenntaður í myndlist. Hann er
einn þeirra erlendu myndlistarmanna sem
tengst hafa lslandi og íslenskrí list og
hefur verið búsettur hér á landi síðustu
ár.
Auk sýninga á íslandi hefur hann
haldið fjölda sýninga í Hollandi og víðar.
Sýningin er opin fimmtudaga-sunnu-
daga kl. 16:00-18:00 fram til sunnudagsins
13. maí.
Þjóðleikhúsið
Endurbygging eftir Václav Havel,
næstsíðasta sýning, er í kvöld í Háskóla-
bíói kl. 20:30. Síðasta sýning á Endur-
byggingu verður sunnudaginn 6. maí.
Stcfnumót - næstsíðasta sýning á laug-
ardagskvöld í Iðnó kl. 20:30.
Síðasta sýning á Stefnumóti verður föstu-
daginn 4. maí.
Ráðsfundur ITC á Akureyri
Annað ráð ITC á Islandi heldur ráðs-
fund á Akureyri laugard. 28. apríl. Fund-
urinn hefst kl. 11:00. Að loknum féiags-
málahluta fundarins verður bókmennta-
kynning og verður skáldkonan Jakobína
Sigurðardóttir og verk hennar kynnt.
Deildir innan ráðsins eru 8 og verða
kappræður milli deilda. Um kvöldið er
hátíð sem hefst með borðhaldi i Laxdals-
húsi.
ITC samtökin eru opin öllum sem hafa
áhuga á að vera með í þeim, bæði körlum
og konum.
Stjórn annars ráðs 1989-1990: Forseti
er Alexía Gísladóttir, 1. varaforseti
Hjördís Jensd. 2. varafs. Svanfríöur
Magnúsdóttir, ritari Elín Eyfjörð, gjald-
keri Marta Pálsdóttir. Þingskapaleiðari
er Kristjana Milla Thorsteinsson.
Félag eldri borgara í Kópavogi
f kvöld, föstud. 27. apríl verður nokk-
urs konar sumarfagnaður haldinn í efri
sal Félagsheimilisins kl. 20:00 stundvís-
lega. Til skemmtunar verður kórsöngur,
gamanmál og dans.
Skemmtinefndin
Laugardagsganga Hana nú
Hin vikulega laugardagsganga Hana
nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt af
stað frá Digranesvegi 12 kl. 10:00.
„Nú er veturinn að baki og Göngu-
klúbburinn hefur sumargöngur í sjötta
sinn. Markmiðið er: Samvera, súrefni,
hreyfing. Nýlagað molakaffi og skemmti-
legur félagsskapur," segir í tilkynningu
frá Hana nú.
Ljóðatónleikum
EDDU MOSER aflýst
Ljóðatónleikar Eddu Moser og Dalton
Baldwin, sem vera áttu í lslensku óper-
unni laugardaginn 28. apríl kl. 16:30 á
vegum Tónlistarfélagsins, falla niður
vegna veikinda söngkonunnar.
Til stóð að listamennimir héldu nám-
skeið fyrir söngvara og píanóleikara í
húsnæði Tónlistarskólans í Reykjavík og
fellur það einnig niður.
Aðgöngumiðar verða endurgreiddir á
sölustað.
Háskólafyrirlestur um Sovétríkin
Dr. Kristian Gemer, dósent í sagnfræði
við háskólann í Lundi, flytur opinberan
fyrirlestur í boði Heimspekideildar Há-
skóla íslands föstudaginn 27. apríl kl.
17:15 í stofu 101 í Odda.
Fyrirlesturinn nefnist: „Sovétríkin í
dag og sjálfstæðiskröfur sambandslýd-
velda“ og verður fluttur á ensku.
Kristian Gerner er í hópi fremstu
kunnáttumanna á Norðurlöndum um
sögu, stjórnmál og efnahagsástand í
Sovétríkjunum og öðrum ríkjum Austur-
Evrópu og hefur sent frá sér fjölda rita og
greina um þessi efni.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Samsðngur þriggja kóra
í Langholtskirkju
Áraesingakórinn í Reykjavík, Samkór
Sclfoss og Ámeskórinn halda sameigin-
lega tónleika í Langholtskirkju laugar-
daginn 28. apríl kl. 17:00.
Kórannir syngja fyrst hver í sínu lagi
og síðan allir saman, en kórarnir hafa átt
gott samstarf og em sameiginlegir tón-
leikar þeirra orðinn árviss viðburður.
Efnisskrá er fjölbreytt og er þar að
Háskólafyriríestur
um „GLASABÓRN“
Prófessor Margaret Stacy heldur opin-
beran fyrirlestur í boði félagsvísinda-
deildar Háskóla Islands i dag, föstud. 27.
aprfl ki. 15:15 i stofu 101 í Odda.
Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og
nefnist: Test tube babies: A blessing or a
curse?
Margaret Stacy er prófessor í félags-
fræði við háskólann í Warwick í Bretlandi
og hefur stundað rannsóknir á sviði
heilsufélagsfræði, m.a. á nýjustu tækni
læknavísinda á sviði fóstur- og frjósemis-
aðgerða og setið í nefnd á vegum Evrópu-
ráðsins sem hefur fjallað um það efni.
Hún hefur einnig látið til sín taka á
sviði félagsmála, t.a.m. verið forseti
breska félagsfræðifélagsins jafnframt því
sem hún hefur verið virk í kvennabaráttu
í Bretlandi.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill
á meöan húsrúm leyfir.
Hafnarborg í Hafnarfirði:
Sýning Gunnars
Ásgeirs Hjaltasonar
Sýning Gunnars Ásgeirs Hjaltasonar
stendur nú yfir í Hafnarborg. Sýningin er
opin daglega kl. 14:00-19:00 og stendur til
6. maí. Á sýningunni eru myndverk
unnin í pastel og akrýl, vatnslitamyndir,
teikningar, grafík og ýmsir smíðisgripir.
Gunnar Ásgeir Hjaltason gullsmiður
er fæddur að Ytri-Bakka við Eyjafjörð
1920, en fluttist til Reykjavíkur og síðan
til Hafnarfjarðar 1952. Hann lærði gull-
smíði hjá Guðmundi Guðnasyni og Leifi
Kaldal. Stundaði nám við teikniskóla
Bjöms Björnssonar og Marteins Guð-
mundssonar og tók einnig þátt í nokkrum
námskeiöum á vegum Handíðaskólans.
Gunnar hefur haldið einkasýningar í
Hafnarfirði, Reykjavík, Kópavogi, Vest-
mannaeyjum, Hveragerði, Borgarnesi og
Hvammstanga og tekið þátt í samsýning-
um hér á landi og erlendis.
finna bæði innlend og erlend lög.
Einsöngvarar með kórunum em: Kol-
beinn Ketilsson, Magnús Torfason, Ingi-
björg Marteinsdóttir, Haukur Haraldsson
og Amþrúður Sæmundsdóttir.
Stjórnandi Ámeskórsins er Loftur S.
Loftsson, stjórnandi Samkórs Selfoss er
Jón Kristinn Cortes og stjórnandi Árnes-
ingakórsins í Reykjavík er Sigurður P.
Bragason. Undirleikari er Úlrik Ólason.
Tónleikarnir verða endurteknir í Ara-
tungu föstud. 4. maí kl. 21:00.
MINNING llllllilllllllllllllllllillillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllll^
Ásgeir Einarsson
Fæddur 10. ágúst 1916
Dáinn 18. aprfl 1990
Góður vinur minn og samstarfs-
maður í áratugi er fallinn frá. Ásgeir
fæddist í Reykjavík 10. ágúst 1916.
Foreldrar hans voru Einar Hró-
bjartsson, deildarstjóri Póststofunn-
ar í Reykjavík, f. 1885, Ólafssonar
bónda að Húsum í Holtahreppi, f.
1836, og konu hans Ingibjargar
Magnúsdóttur, f. 1845, kona Einars,
móðir Ásgeirs, var Ágústa Stefanía
Sveinbjörnsdóttir, f. 1887, Stefáns-
sonar, smiðs í Hafnarfirði, f. 1863,
og konu hans Ástríðar Guðmunds-
dóttur, f. 1865.
Ásgeir var næstelstur átta systkina
en þau eru Ingibjörg, Ásta, Svein-
björn, Agnes (dó í bernsku), Hauk-
ur (dó í bernsku), Sigrún og Hró-
bjartur.
Sonur Ásgeirs er Birgir Þór, f.
1929, bóndi á Fossvöllum í Jökuldal,
kona Birgis er Ragnheiður Ragnars-
dóttir, f. 1943, Þeirra börn eru Anna
Gunnur, f. 1970, og Ásgeir, f. 1981,
en áður átti Ragnheiður dótturina
Aðalheiði.
Ásgeir hóf ungur að árum störf
hjá Póststofunni í Reykjavík 9. maí
1931. Ekki er mér kunnugt um að
nokkur annar póstmaður hafi átt
lengri starfsferil að baki. Ásgeir var
skipaður póstafgreiðslumaður 1. júlí
1937 og fulltrúi 1948. Hann gegndi
hinum ýmsu fulltrúastörfum allt til
fyrrverandi féhiröir
ársins 1977 að hann var skipaður
aðalféhirðir Póststofunnar í Reykja-
vík og gegndi hann því starfi til 1985
er hann lét af störfum vegna aldurs,
að hætti opinberra starfsmanna.
Framangreindar upptalningar lýsa
best hversu framúrskarandi og fjöl-
hæfur starfsmaður Ásgeir var.
Hann lauk samvinnuskólaprófi
sem þótti góð menntun, þá var hann
einstaklega mikill málamaður og
voru þeir ófáir starfsmenn sem leit-
uðu til hans með ýmis bréf og voru
þeir ófáir starfsmenn sem leituðu til
hans með ýmis bréf og skjöl sem
þurfti hjálpar við að þýða yfir á
íslensku, þá nefni ég sérstaklega
frönsku, en hann var mikill frönsku-
ntaður og franskan alþjóðlegt
póstmál.
Á árum áður var starfandi póstaf-
greiðslumaður á strandferðaskipinu
Esju og var Ásgeir sá er síðast
gegndi því starfi 1939. Það væri vert
að minnast þessara starfa póstmanna
þegar saga póstmála á íslandi verður
skráð.
Þau ár sem ég starfaði að félags-
málum póstmanna leitaði ég oft ráða
hjá Ásgeiri varðandi úrlausn ýmissa
mála, bæði á innlendum og erlend-
um vettvangi. Fyrir þau ráð mun ég
ævinlega vera honum þakklátur. Ás-
geir var mikill tónlistarunnandi og
spilaði á píanó og kunni góð skil á
gömlu meisturunum.
Það var haft á orði hvað Ásgeir
var góður og sanngjarn yfirmaður og
ljúfur í viðmóti við þá sem minna
máttu sín.
Ég sem þessar línur rita kynntist
vel drenglyndi og ljúfmennsku Ás-
geirs, hann var vinur vina sinna, hlýr
í viðmóti en þó ekki allra viðmæl-
andi, því var hann talinn fremur
hlédrægur og seintekinn maður.
Syni hans og fjölskyldu, systkinum
Ásgeir og öðrum ættmennum sendi
ég innilegar samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu vinar míns.
Reynir Ármannsson