Tíminn - 10.05.1990, Page 11
10 Tíminn
Fimmtudagur 10. maí 1990
Fimmtudagur 10. maí 1990
Tíminn 11
—-
Lögreglan minnir ökumenn á að tími nagladekkjanna er liðinn:
Dagskipun
gatnamála-
stjóra er:
Neglió þá!
Lögreglan í Reykjavík er þessa dagana að
minna ökumenn á, að tími sumardekkjanna
er kominn. Samkvæmt könnun, sem gatna-
málastórinn í Reykjavík hefur látið gera, eru
um 40% ökutækja enn með nagladekkin
undir. Enn sem komið er, hefur lögreglan
ekki beitt sektum gagnvart þeim, sem eiga
eftir að skipta, heldur bent fólki á, að tíminn
sé kominn. Um miðjan mánuð verður þetta
mál hins vegar tekið fastari tökum, sektar-
ákvæðum beitt og bílar jaíhvel færðir til
skoðunar. Ingi U. Magnússon gatnamála-
stjóri sagðist vel geta tekið undir það, að
dagskipun hans til lögreglu væri „neglið þá“.
Ingi sagði, að færri hafi ekið á nagladekkj-
um í vetur en í fyrra. I könnun, sem gerð var
í janúar og febrúar sl., kom ffam, að um 55%
biffeiða vom á nagladekkjum. Ingi sagði, að
það virtist ætla að ganga seint hjá fólki að
setja sumardekkin undir, því að á dögunum,
þegar talningin var endurtekin, kom í ljós, að
um 40% ökutækja em enn með naglana und-
ir. „Mér finnst það ganga nokkuð hægt hjá
fólki að fara af nöglunum,“ sagði Ingi.
Ökumenn áminntir
Tíminn hitti tvo lögregluþjóna, þá Höskuld
Erlingsson og Jakob S. Þórarinsson, við
Hofsvallagötu í gær, en þeir vom þar að
stöðva bíla og minna eigendur þeirra á að
setja sumardekkin undir. Tími sumardekkj-
anna var 1. maí sl., en vaninn er sá, að öku-
mönnum em gefhir nokkrir dagar ffam yfir
1. maí til að skipta yfir. „Við höfúm reynt að
vera dálítið sveigjanlegir ffam í miðjan maí,
en upp úr því er tekið harðar á þessu og þeir,
sem þá em enn á nagladekkjum, em jafnvel
sektaðir og færðir til skoðunar,“ sagði Hösk-
uldur.
Aðspurður sagði Jakob, að fólk tæki því
eðlilega illa að vera stoppað af lögreglu.
„Fólk er oft hvumsa og jafnvel hrætt, ef það
sér, að lögreglan hefúr afskipti af því yfir-
höfúð. Sérstaklega ef það veit af því, að það
er á negldum dekkjum eða ef eitthvað er
ekki í lagi, skil ég vel, hvemig því líður. Fær
skjálfta í hnén og þomar í munninum," sagði
Jakob. Höskuldur sagði, að fólk tæki yfirleitt
ábendingunum vel. „Eins held ég, að hugar-
farið hjá fólki sé þannig, að það vilji sem
minnst vita af lögreglunni, en samt sem áður
vita af henni i nálægð, ef til hennar þarf að
grípa,“ sagði Höskuldur.
Tímaleysi og trassaskapur
Þeir Jakob og Höskuldur vom sammála
um, að helstu skýringar, sem fólk gæfi á því
að hafa ekki skipt yfir á sumardekk, væri
tímaleysi. „Eg stoppaði nokkra í morgun og
þar var tímaleysið helsta ástæðan, en svo er
það líka auraleysið, því það kostar drjúgan
peninga að skipta,“ sagði Jakob. Höskuldur
benti á, að einnig væri þetta trassaskapur.
Oft væri það sama fólkið, sem er með allt
niður um sig. Bíllinn óskoðaður, óborgaðar
tryggingar og nagladekkin enn undir.
I því átaki, sem stendur nú yfir, er dekkja-
búnaðurinn ekki eingöngu skoðaður. Athug-
að er hvort öryggisbeltin em notuð, ljósin
kveikt og í lagi, hvort ökuskírteinið er í gildi,
skoðunarvottorðið og fleira.
Eftir
Agnar B.
Óskarsson
Em hlutfallslega fleiri á nagladekkjum nú
eftir 1. maí, en undanfarin ár? „Eg er nú ný-
lega byijaður aftur í lögreglunni, eftir nokk-
urra ára hlé, en starfaði áður í níu ár sam-
fleytt. Þetta hefur aldrei verið eins slæmt og
nú,“ sagði Jakob. Ástæðuna töldu þeir felast
í tíðarfarinu og auknum bílaflota. „Við höf-
um kannski verið full eftirgefanlegir með
þetta og þá er hætt við, að fólk gangi á lag-
ið,“ sagði Jakob og bætti við, að svo virtist,
sem fólk gerði lítið í þessum hlutum, fyrr en
lögreglan færi að byrsta sig.
„Ég fer strax í dag“
Svör þeirra, sem lögreglan stoppar og enn
em á nagladekkjum, em flest á sama veg.
„Eg fer strax í dag, þegar ég er búinn í vinn-
unni. „Strax í fyrramálið.“
Erum við íslendingar svona miklir trassar,
að það þarf áminningu lögreglu til að við
skiptum yfir á sumardekkin? „Það þarf að
minnsta kosti hertan áróður og benda fólki á,
að því lengur, sem bílamir keyra á nöglum á
götunum, því meir fái menn það í bakið sem
almennir skattgreiðendur,“ sagði Jakob.
Það er ekki að ástæðulausu, sem farið er
fram á, að ekki sé ekið lengur á nagladekkj-
um. Fyrir utan skemmdir á götum, þá benti
Höskuldur á, að þegar götur væm skraufa
þurrar, eins og þær hafa verið undanfama
Lögreglumennimir Jakob S. Þórarinsson og Höskuldur Eriingsson stöðvuðu ökumenn á Hofsvallagötu í gærmorgun og bentu þeim á
daga og bíllinn á vel negldum dekkjum, þá
væri hann eins og á skautum.
Fjölmargir bílar vom stoppaðir, á meðan
Tíminn staldraði við á Hofsvallagötunni og
fylgdist með Iögreglu minna ökumenn á
sumardekkin. Sumir höfðu viðhlítandi skýr-
ingar á því, hvers vegna nagladekkin vom
enn undir, en aðrir bám tímaleysinu eða öðm
fyrir sig. Tvær ungar stúlkur bám því við, að
þær væm á leið til Siglufjarðar og því væm
sumardekkin ekki komin undir bílinn. Lög-
reglan sagði þetta fúllnægjandi skýringu, þar
sem snjór er ekki með öllu horfinn á þjóð-
vegum víða um land.
Aðalheiður Sveinbjömsdóttir var einnig
meðal þeirra, sem stoppuð var. Hún sagðist
ekki geta neitað því, að hún hafi verið hissa,
þegar lögreglan benti henni á að stöðva bíl-
inn, en þó hafi hún ekki fengið skjálfta. Að-
spurð hvers vegna hún væri ekki búin að
skipta, sagðist hún hafa haldið að það væri í
kring um 10. maí, sem sumardekkin ættu að
vera komin undir. „Eg hef alltaf staðið í
þeirri meiningu og hafði hugsað mér að láta
verða af því um helgina að setja sumardekk-
in undir,“ sagði Aðalheiður. Þú ætlar að láta
verða af því þá? „Já ég vona að ekkert komi
upp á, sem hindrar það, enda á ég góð sum-
ardekk á bílinn,“ sagði Aðalheiður.
Tími nagladekkja
styttur um einn mánuð
Embætti gatnamálastjóra er í samstarfí við
slík embætti á Norðurlöndum, þ.e. innan
Norræna vegtæknisambandsins. Gatnamála-
stjóri situr þar í nefnd, sem koma átti með til-
lögur um, hvemig minnka mætti það slit,
sem nagladekkin valda. Greinargerð um það
efni var síðan samin og hún send til viðkom-
andi ráðuneytis í hveiju landi. M.a. var lagt
til, að sá tími, sem nagladekk megi vera und-
ir bílum yfir veturinn verði styttur. Ákvæði
þessa efnis em sett með reglugerð, sem sam-
in hefúr verið og tekur gildi 1. júlí nk. Þá
verður leyfilegt að setja nagladekkin undir
15. október, í stað 1. október, eins og verið
hefúr, en undan skulu naglamir eigi síðar en
15. apríl ár hvert í stað 1. maí. Þá var í þess-
ari greinargerð norrænu nefndarinnar einnig
lagt til, að nöglum yrði fækkað og þeir stytt-
ir. Svíar hafa gengið enn lengra og eftir eitt
ár tekur gildi bann við notkun nagla á þung-
um vörubílum. í ffamhaldi munu nefndir
að tími nagladekkjanna væri liðinn.
innan Norræna vegtæknisambandsins fjalla
um, hvaða stefnu skuli taka, þá hvort leggja
eigi til að banna nagladekk eða hvað hægt sé
að gera til að draga enn frekar úr þeim skaða,
sem nagladekkin valda.
Ingi U. Magnússon gatnamálastjóri sagðist
í samtali við Tímann telja að ástand gatna
væri heldur skárra eftir veturinnnú, en var í
fyrra um sama leyti. „Það svarar til þess, að
veturinn nú hefúr verið heldur mildari, en
hann var í fyrra, þó er áberandi mikið af slit-
forum eflir naglana. í fyrra var meira um
holur og stærri skemmdir á gatnakerfinu,“
sagði gatnamálastjóri.
Áætlað er, að um 35 þúsund tonn af malbiki
verði lagðar á götur Reykjavíkur í sumar,
sem samsvarar um 35 km. þegar búið er að
leggja það út.
Timamyndir; Áml Bjama
Aðalheiður Sveinbjamardóttir var stoppuð af lögreglu, þar sem nagladekkin voru enn
undir bflnum. Hún ætiaði að bæta úr því um helgina og setja sumardekkin undir.