Tíminn - 10.05.1990, Blaðsíða 11

Tíminn - 10.05.1990, Blaðsíða 11
 10 Tíminn Fimmtudagur 10. maí 1990 Fimmtudagur 10. maí 1990 Tíminn 11 —- Lögreglan minnir ökumenn á að tími nagladekkjanna er liðinn: Dagskipun gatnamála- stjóra er: Neglió þá! Lögreglan í Reykjavík er þessa dagana að minna ökumenn á, að tími sumardekkjanna er kominn. Samkvæmt könnun, sem gatna- málastórinn í Reykjavík hefur látið gera, eru um 40% ökutækja enn með nagladekkin undir. Enn sem komið er, hefur lögreglan ekki beitt sektum gagnvart þeim, sem eiga eftir að skipta, heldur bent fólki á, að tíminn sé kominn. Um miðjan mánuð verður þetta mál hins vegar tekið fastari tökum, sektar- ákvæðum beitt og bílar jaíhvel færðir til skoðunar. Ingi U. Magnússon gatnamála- stjóri sagðist vel geta tekið undir það, að dagskipun hans til lögreglu væri „neglið þá“. Ingi sagði, að færri hafi ekið á nagladekkj- um í vetur en í fyrra. I könnun, sem gerð var í janúar og febrúar sl., kom ffam, að um 55% biffeiða vom á nagladekkjum. Ingi sagði, að það virtist ætla að ganga seint hjá fólki að setja sumardekkin undir, því að á dögunum, þegar talningin var endurtekin, kom í ljós, að um 40% ökutækja em enn með naglana und- ir. „Mér finnst það ganga nokkuð hægt hjá fólki að fara af nöglunum,“ sagði Ingi. Ökumenn áminntir Tíminn hitti tvo lögregluþjóna, þá Höskuld Erlingsson og Jakob S. Þórarinsson, við Hofsvallagötu í gær, en þeir vom þar að stöðva bíla og minna eigendur þeirra á að setja sumardekkin undir. Tími sumardekkj- anna var 1. maí sl., en vaninn er sá, að öku- mönnum em gefhir nokkrir dagar ffam yfir 1. maí til að skipta yfir. „Við höfúm reynt að vera dálítið sveigjanlegir ffam í miðjan maí, en upp úr því er tekið harðar á þessu og þeir, sem þá em enn á nagladekkjum, em jafnvel sektaðir og færðir til skoðunar,“ sagði Hösk- uldur. Aðspurður sagði Jakob, að fólk tæki því eðlilega illa að vera stoppað af lögreglu. „Fólk er oft hvumsa og jafnvel hrætt, ef það sér, að lögreglan hefúr afskipti af því yfir- höfúð. Sérstaklega ef það veit af því, að það er á negldum dekkjum eða ef eitthvað er ekki í lagi, skil ég vel, hvemig því líður. Fær skjálfta í hnén og þomar í munninum," sagði Jakob. Höskuldur sagði, að fólk tæki yfirleitt ábendingunum vel. „Eins held ég, að hugar- farið hjá fólki sé þannig, að það vilji sem minnst vita af lögreglunni, en samt sem áður vita af henni i nálægð, ef til hennar þarf að grípa,“ sagði Höskuldur. Tímaleysi og trassaskapur Þeir Jakob og Höskuldur vom sammála um, að helstu skýringar, sem fólk gæfi á því að hafa ekki skipt yfir á sumardekk, væri tímaleysi. „Eg stoppaði nokkra í morgun og þar var tímaleysið helsta ástæðan, en svo er það líka auraleysið, því það kostar drjúgan peninga að skipta,“ sagði Jakob. Höskuldur benti á, að einnig væri þetta trassaskapur. Oft væri það sama fólkið, sem er með allt niður um sig. Bíllinn óskoðaður, óborgaðar tryggingar og nagladekkin enn undir. I því átaki, sem stendur nú yfir, er dekkja- búnaðurinn ekki eingöngu skoðaður. Athug- að er hvort öryggisbeltin em notuð, ljósin kveikt og í lagi, hvort ökuskírteinið er í gildi, skoðunarvottorðið og fleira. Eftir Agnar B. Óskarsson Em hlutfallslega fleiri á nagladekkjum nú eftir 1. maí, en undanfarin ár? „Eg er nú ný- lega byijaður aftur í lögreglunni, eftir nokk- urra ára hlé, en starfaði áður í níu ár sam- fleytt. Þetta hefur aldrei verið eins slæmt og nú,“ sagði Jakob. Ástæðuna töldu þeir felast í tíðarfarinu og auknum bílaflota. „Við höf- um kannski verið full eftirgefanlegir með þetta og þá er hætt við, að fólk gangi á lag- ið,“ sagði Jakob og bætti við, að svo virtist, sem fólk gerði lítið í þessum hlutum, fyrr en lögreglan færi að byrsta sig. „Ég fer strax í dag“ Svör þeirra, sem lögreglan stoppar og enn em á nagladekkjum, em flest á sama veg. „Eg fer strax í dag, þegar ég er búinn í vinn- unni. „Strax í fyrramálið.“ Erum við íslendingar svona miklir trassar, að það þarf áminningu lögreglu til að við skiptum yfir á sumardekkin? „Það þarf að minnsta kosti hertan áróður og benda fólki á, að því lengur, sem bílamir keyra á nöglum á götunum, því meir fái menn það í bakið sem almennir skattgreiðendur,“ sagði Jakob. Það er ekki að ástæðulausu, sem farið er fram á, að ekki sé ekið lengur á nagladekkj- um. Fyrir utan skemmdir á götum, þá benti Höskuldur á, að þegar götur væm skraufa þurrar, eins og þær hafa verið undanfama Lögreglumennimir Jakob S. Þórarinsson og Höskuldur Eriingsson stöðvuðu ökumenn á Hofsvallagötu í gærmorgun og bentu þeim á daga og bíllinn á vel negldum dekkjum, þá væri hann eins og á skautum. Fjölmargir bílar vom stoppaðir, á meðan Tíminn staldraði við á Hofsvallagötunni og fylgdist með Iögreglu minna ökumenn á sumardekkin. Sumir höfðu viðhlítandi skýr- ingar á því, hvers vegna nagladekkin vom enn undir, en aðrir bám tímaleysinu eða öðm fyrir sig. Tvær ungar stúlkur bám því við, að þær væm á leið til Siglufjarðar og því væm sumardekkin ekki komin undir bílinn. Lög- reglan sagði þetta fúllnægjandi skýringu, þar sem snjór er ekki með öllu horfinn á þjóð- vegum víða um land. Aðalheiður Sveinbjömsdóttir var einnig meðal þeirra, sem stoppuð var. Hún sagðist ekki geta neitað því, að hún hafi verið hissa, þegar lögreglan benti henni á að stöðva bíl- inn, en þó hafi hún ekki fengið skjálfta. Að- spurð hvers vegna hún væri ekki búin að skipta, sagðist hún hafa haldið að það væri í kring um 10. maí, sem sumardekkin ættu að vera komin undir. „Eg hef alltaf staðið í þeirri meiningu og hafði hugsað mér að láta verða af því um helgina að setja sumardekk- in undir,“ sagði Aðalheiður. Þú ætlar að láta verða af því þá? „Já ég vona að ekkert komi upp á, sem hindrar það, enda á ég góð sum- ardekk á bílinn,“ sagði Aðalheiður. Tími nagladekkja styttur um einn mánuð Embætti gatnamálastjóra er í samstarfí við slík embætti á Norðurlöndum, þ.e. innan Norræna vegtæknisambandsins. Gatnamála- stjóri situr þar í nefnd, sem koma átti með til- lögur um, hvemig minnka mætti það slit, sem nagladekkin valda. Greinargerð um það efni var síðan samin og hún send til viðkom- andi ráðuneytis í hveiju landi. M.a. var lagt til, að sá tími, sem nagladekk megi vera und- ir bílum yfir veturinn verði styttur. Ákvæði þessa efnis em sett með reglugerð, sem sam- in hefúr verið og tekur gildi 1. júlí nk. Þá verður leyfilegt að setja nagladekkin undir 15. október, í stað 1. október, eins og verið hefúr, en undan skulu naglamir eigi síðar en 15. apríl ár hvert í stað 1. maí. Þá var í þess- ari greinargerð norrænu nefndarinnar einnig lagt til, að nöglum yrði fækkað og þeir stytt- ir. Svíar hafa gengið enn lengra og eftir eitt ár tekur gildi bann við notkun nagla á þung- um vörubílum. í ffamhaldi munu nefndir að tími nagladekkjanna væri liðinn. innan Norræna vegtæknisambandsins fjalla um, hvaða stefnu skuli taka, þá hvort leggja eigi til að banna nagladekk eða hvað hægt sé að gera til að draga enn frekar úr þeim skaða, sem nagladekkin valda. Ingi U. Magnússon gatnamálastjóri sagðist í samtali við Tímann telja að ástand gatna væri heldur skárra eftir veturinnnú, en var í fyrra um sama leyti. „Það svarar til þess, að veturinn nú hefúr verið heldur mildari, en hann var í fyrra, þó er áberandi mikið af slit- forum eflir naglana. í fyrra var meira um holur og stærri skemmdir á gatnakerfinu,“ sagði gatnamálastjóri. Áætlað er, að um 35 þúsund tonn af malbiki verði lagðar á götur Reykjavíkur í sumar, sem samsvarar um 35 km. þegar búið er að leggja það út. Timamyndir; Áml Bjama Aðalheiður Sveinbjamardóttir var stoppuð af lögreglu, þar sem nagladekkin voru enn undir bflnum. Hún ætiaði að bæta úr því um helgina og setja sumardekkin undir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.