Tíminn - 26.07.1990, Page 1
Einhuga niðurstaða á rí kisstj órnarfu nd i í gær þar sem breyttar forsendur
í verðlags- og launamálum í kjölfar dóms Félagsdóms voru ræddar:
Þjóðarsáttin
verður vari n
Lagasetning eftir samráð við aðila vinnumarkaðarins, segir forsætisráðherra
Ríkisstjómin ákvað á fundi sínum
í gær að segja upp samningi rík-
isins og BHMR í kjölfar niður-
stöðu Félagsdóms. Að sögn
Steingríms Hermannssonar for-
sætisráðherra er ríkisstjómin
staðráðin í að verja þá þjóðarsátt
sem náðist með samningunum á
almennum vinnumarkaði í febrú-
ar sl. Ríkisstjómin lýsti því yfir í
gær að hún muni tryggja að sú
launa- og efnahagsstefna, sem
samningamir byggi á, muni ná
fram að ganga. Til að það mark-
mið náist verði haft fullt samráð
við þá sem að samningunum áttu
aðild; það er að segja ASÍ, VSÍ,
BSRB, VMSS og Stéttarsam-
band bænda. Þau bráðabirgða-
lög sem nauðsynlegt verður að
setja af þessu tilefni verði sett í
fullu samráði við ofannefnda að-
ila. • Blaðsíða 5
Frá ríkisstjórnarfundi í gær þar sem ákveðið var að verja þjóðarsáttina