Tíminn - 27.07.1990, Page 7
Föstudagur 27. júlí 1990
Tíminn 7
ERLENDAR BÆKUR
Siglaugur Brynleifsson:
EIN VIKAI PRAG
í fjörutíu ár höfðu Tékkar og Slóvakar beðið þess sem gerðist
frá 17. nóvembertil 29. desember 1989. Bylting, oft nefnd flau-
elsbylting. Eftir atburðina í byijun nóvember í Austur-Þýska-
landi bjuggust menn við svipuðum atburðum í Tékkóslóvakíu
og það kom að því. Óttinn við þá eiginhagsmuna-klíku, sem
hafði ráðið ríkjum í fjörutíu ár í skjóli sovéskra hersveita, hvarf
á einni nóttu. Ottinn við ófreskjuna hvarf. Atburðarásin minnirá
þjóðsögumar, þegar menn losna úr álögum.
Michael Konupek: Dagbok fra
Praha. Oslo — Ex Libris 1990.
Höfundurinn flúði land fyrir 12 ár-
um og hefur verið búsettur í Noregi,
þar sem hann hefur stundað ritstörf
og verið talsmaður Charta 77 og stutt
andófið í foðurlandi sínu.
Við atburðina í nóvember, ákvað
hann að fara til Tékkóslóvakíu og
sótti um vegabréfsáritun hjá sendi-
ráði Tékka í Osló, en fékk neitun,
svo að hann ákvað að fara án áritun-
ar. Hann var stöðvaður á flugvellin-
um i Prag, en norska sendiráðið f
borginni kom til skjalanna, svo að
hann slapp við ff ekari afskipti kontó-
ristanna. Um það leyti sem höfundur
kom til Prag mátti enn merkja áhrif
valdaklíkunnar, þótt hún reyndi að
villa á sér heimildir, eins og komm-
únistar tíðka. Og fyrsti dagurinn, 30.
nóvember, hófst með ferð um út-
hverfi borgarinnar. Þar var allt í nið-
umíðslu, rusl, óþrifnaður og loft-
mengun, arfurinn eftir fjörutíu ára
sósíalisma. Hann fær leigubíl og bíl-
stjórinn segir honum margt, meðal
annars að kommúnistamir hafi aldrei
sagt satt orð, logið að þjóðinni í 40
ár. Sem dæmi segir bílstjórinn hon-
um frá því að 99% verkamanna f
verksmiðjum borgarinnar hafi beðið
Sovétrikin um að hlutast til um að
kveða niður gagnbyltinguna 1968.
Höfundurinn hittir bæði foma kunn-
ingja og kynnist nýjum. Fólk segir
honum ffá reynslu sinni, yfirheyrsl-
um, húsrannsóknum og þeirri and-
legu formyrkvun sem var höfiið ein-
kenni stjómarfarsins. Hann kynntist
vel tilburðum valdaklíkunnar sem
var að hrekjast ffá völdum, blaðri
þeirra um fyrirbrigðið „umbótasinn-
aður kommúnisti" og „lýðræðislegur
sósíalismi". Þegar minnst var á sósí-
alisma, hló þjóðin og þótt höfundur
væri aðeins viku í Prag, þá greindi
hann dag ffá degi sívaxandi andúð
og viðbjóð á kommúnistum, þessari
klíku glæpamanna sem höfðu af-
skræmt líf þjóðarinnar í 40 ár. Þegar
þetta lið kom og reyndi að villa á sér
heimildir og bæta lygi ofan á lygi, þá
var svarið ísköld þögn eða hæðnis-
hlátur. Konupek varð greinilega var
við sögufalsanir kommúnista, enda
leggja kommúnistar höfuðáherslu á
sögufalsanir þar sem þeir komast til
áhrifa eða valda. Með falsaða þjóð-
arsögu í höndunum verður þeim
auðvelt að réttlæta eigin morð,
þjófnaði og lygi. Sagan er grunnur
pólitísks skilnings og þar með um-
breytingu meðvitundarinnar. En það
furðulega gerðist í Tékkóslóvakíu
að þrátt fyrir alla lygina, morðin,
kúgunina og fátækt og mengun jarð-
ar og hugarfars, þá lifði mennskan
og lét jafnvel á sér kræla, þótt þeir
sem andmæltu óhugnaðinum yrðu
að þola fangelsi og útlegð í eigin
landi.
Konupek lýsir viðbrögðimum þeg-
ar þjóðin áttaði sig á að hún þurfti
ekki að hræðast lengur kommúnista-
hyskið, óttinn hvarf og aðþrengd
meðvitundin varaði ekki lengur,
menn gátu risið upp gegn óffeskj-
unni og örlög hennar urðu samskon-
ar og örlög óffeskja þjóðsagnanna.
Síðan Konupek ritaði þessi dagbók-
arblöð hefur margt gerst. Hryllingur
stjómarfarsins i alþýðulýðvelda-
vilpunum fyrrverandi verður aug-
ljósari og augljósari og sjálfsagt á
margt eftir að vitnast og ekki geðs-
legt. Það kemur betur og betur í ljós
hversu mengun jarðar og lofts er
hrikaleg einmitt f Tékkóslóvakíu.
Samkvæmt lýsingu forsetans, Hav-
els, er gróðurlandið meira og minna
eitrað og talið er að það taki mörg ár
að bæta það. Sama er að segja um þá
andlegu mengun sem hinar sjálf-
skipuðu verkalýðshetjur stóðu fyrir.
Núverandi rektor Karls- háskólans
Konupek
talar um tímann sem það taki að
skafa burt óhroðann og endurhæfa
kennaraliðið, en það lið virðist víða
meira en lítið mengað af kommún-
ískum hugmyndaffæðum, enda
hafði það grunnhlutverki að gegna,
sem var að menga hugarheim æsk-
unnar og fylla hann af lygum. Þeir
Þessi einangrunar-
stefna var ekki bundin
við kommúnistaríkin,
dæmi um slíkt gefast
t.d. hér, reyndar fremur
átakanlegt dæmi þegar
tilraun var gerð til þess
að einoka fornleifarann-
sóknir hér á landi nýver-
ið í þeim tilgangi að
auðvelda fullkomnun
nýrrar landnámssögu
samkvæmt kenningum
marxískrar hugmynda-
fræði.
tílburðir standa reyndar enn og eru
stundaðir vítt um lönd. Þvi er ekki
að ófyrirsynju að norskur ritdómari
skrifar í ritdómi um bók Konupeks,
að hún gæti verið „en glimrende
erstatning for lærere og elever som
er sultefodret pa aktuell og anvendig
litteratur. Den anbefales uten forbe-
hold foran et nytt skolear". (Fædre-
landsvennen, 27. apríl 1990). í sam-
tali við „Arbejderbladet" 19. april
s.l. ræðir Konupek um bókaútgáfu í
Tékkóslóvakíu eftir byltingu og fyr-
ir: ,d>að eru um 1000 bókmennta-
handrit sem bíða útgáfu en brýnasta
úrlausnarefnið er útgáfa skólabóka
og uppsláttarrita." Þetta leiðir hug-
ann að íslenskri skólabókaútgáfu,
einkum í sagnffæði og félagsffæði,
en þær bækur sem kenna skal hér á
landi í þessum greinum, svipar mjög
til skólabóka í Tékkóslóvakíu fýrir
byltingu, folsuð og skekkt saga og
félagsffæði. Kommúnistar ,Jcomust
ekki til þess að gefa út alfræðirit,"
segir Konupek, líklega hafa þeir lát-
ið sér nægja sovésku encyklopæd-
íuna auk þess sem almenn upplýsing
var kerfinu hættuleg. Einangrunin
var kerfinu lífsnauðsyn og mátti rétt-
læta það á margvíslegustu forsend-
um. Þessi einangrunarstefha var
ekki bundin við kommúnistaríkin,
dæmi um slíkt gefast t.d. hér, reynd-
ar ffemur átakanlegt dæmi þegar til-
raun var gerð til þess að einoka fom-
leifarannsóknir hér á landi nýverið í
þeim tilgangi að auðvelda fiillkomn-
im nýrrar landnámssögu samkvæmt
kenningum marxískrar hugmynda-
ffæði. Með því að einoka fomminja-
rannsóknir við þröngan hóp marx-
ista væm hæg heimatökin að falsa
árangur fomminjarannsókna sem
myndi falla að þeirra sögulegu nauð-
syn. Konupek talar og skrifar um
varandi áhrif tékkneska Alþýðu-
bandalagsins í ýmsum lykilstöðum,
sem hljóti að tefja fyrir því að meng-
unin víki. I lýðræðissamfélögum og
réttarríkjum Vesturlanda hefur
kommúnistum tekist að smeygja liði
sínu í ýmsar Iykilstöður og geta því
þar með stuðlað að mótun þeirrar
meðvitundar sem stefnt var að í al-
þýðulýðveldavilpunum.
Frásögn Konupeks er sprelllifandi
og hann hefur glöggan skilning á
atburðarásinni í Tékkóslóvakíu sem
Tékki og þátttakandi i baráttu
Charta 77. Þessar svipmyndir verða
eftirminnilegar og textanum fylgja
einnig Ijósmyndir af viðburðum og
einstaklingum, sem koma við sögu.
UR VIÐSKIPTALIFINU
Japanskar lyfjagerðir kaupa sig
inn í evrópskar og bandarískar
Rannsóknir kosta æ hærri hundraðs-
hluta af heildarsölu ffemstu lyfjagerða.
Að auki er markaðssetning lyfja dýr.
Hvort tveggja ýtir undir samfellingu
lyfjagerða, stórra sem smárra. Þannig
keypti Rhone-Poulenc í janúar 1990
meirihluta i Roger, miðlungi stórri
bandariskri lyfjagerð. Hvað japanskar
lyfjagerðir áhrasrir kemur fleira til. Þær
una illa núverandi markaðssetningu
lyfla sinna í samstarfi við bandariskar
og vestur- evrópskar, og þær búa sig
undir væntanlegan sameiginlegan
markað EBE-landa i árslok 1992.
Lyíjasala í Vestur-Evrópu og Banda-
ríkjunum nemur nú um 70 milljörðum
dollara á ári og er markaðshlutdeild jap-
anskra lyfjagerða um 2%.
Söluvænleg lyf sín heimila japanskar
lyfjagerðir útlendum að selja og jafiivel
ffamleiða undir eigin merki gegn þókn-
un. Stórar útlendar lyfjagerðir taka til
sín allt að 70% andvirðis þeirra. Nú
reyna japanskar lyfjagerðir að koma sér
upp söluaðstöðu utan lands, oft með
kaupum á lyfjagerðum, að hluta eða að
öllu leyti. En stærstu japönsku lyfja-
gerðimar em Takeda, Sankyo, Tanable,
Fujisawa og Yamanouchi.
I mars 1988 keypti Fujisawa meiri-
hluta í Kling Parma, vestur- þýskri
lyfjagerð á 33 milljónir punda.
I desember 1988 keypti Sumitomi 10
milljón dollara hlut í Regeneron,
bandariskri lyfjagerð.
í apríl 1989 setti Eisai upp eigið mark-
aðskerfi í London.
í maí 1989 keypti Chugai 3 milljón
punda hlut í British Bio- technology.
í október 1989 setti Eisai upp rann-
sóknarstofu í Massachussetts.
I október 1989 keypti Fujisawa banda-
riska lyfjagerð, LyphoMed, á 750 millj-
ónir dollara.
í október 1989 samdi Dainippon við
Jfhone-Poulend um sölu lyfja sinna í
Eviópu.
í nóvember 1989 keypti Chugai
bandariskt rannsóknafyrirtæki (diagn-
ostics-company), Gen-Probe á 100
milljónir dollara.
í nóvember 1989 ekk Daiichi til sam-
eiginlegrar rannsóknar með Chiron,
bandarísku líftæknifyrirtæki.
í nóvember 1989 samdi Chugai við
Rhone Poulenc um rannsóknir vegna
líftæknilegs lyfs.
í desember 1989 keypti Sankyo meiri-
hluta í Luitpold-Werk, vestur- þýskri
lyfjagerð á 78 milljónir punda.
Stígandi