Tíminn - 23.08.1990, Qupperneq 20

Tíminn - 23.08.1990, Qupperneq 20
.1 680001 RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnarhúsinu v/Trvggvagötu, _____S 28822 SAMVINNUBÁNKINN Ll BYGGÐUM LANDSINS NISSAIM Réttur bíll á réttum stað. a Ingvar l84 Helgason hf. Sævarhöfða 2 Sími 91-674000 HÖGG- DEYFAR Verslið hjá fagmönnum varahlutir Tíniinn FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1990 Reiknað með 5.500 milljóna króna töpuðum lánum og sköttum: Atfskrifuð lán LÍN 200% hærri en Fiskveiðisjóðs? Framlag í afskriftareikning útlána var 742 milljónir kr. hjá Lánasjóöi íslenskra námsmanna á síöasta ári, samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar. Það var td. nær þrefalt hærri upphæö heldur framlög hjá lánasjóðum atvinnuveganna hvers um sig. Framlag í afskriftarreikning hjá LíN er td. um þrefalt hærra heldur en hjá Fiskveiðisjóði, svo dæmi sé tekið um lánasjóð áhættusamrar atvinnugreinar. Úr afgreiðslusal LÍN. Lánin endurgreiðast þrefalt verr en í nokkum Sjóða áhættuatvinnuvega. Tlmamynd: Aml Bjama Alls hefiir LÍN fært um 3.400 millj.kr. á afskriftareikning á und- anfómum árum, eða sem nemur t.d. um 16% af heildar lánveitingum sjóðsins. „Framlög í afskriftareikn- ing útlána eru til að mæta þeirri áhættu og óvissu, sem er fylgjandi allri lánastarfsemi og til þess ætluð að mæta þeim útlánum sem síðar kunna að tapast", segir í skýrslunni. Ríkissjóður, ríkisbankar og opin- berir sjóðir hafa samkvæmt því reiknað með rúmlega 5.500 millj- ónum glötuðum milljónum af skattaskuldum og lánveitingum síðasta árs. Enda segir Ríkisendur- skoðun að nauðsyn á ffamlögum í afskriftareikninga útlána hafí kom- ið betur í ljós á undanfömum ár- um. Ríkissjóður er sjálfúr með hæsta ffamlagið, 1.700 m.kr. í afskrifta- sjóð vegna hátt í 10 milljarða króna óinnheimtra skatttekna. Og auk þess um 180 m.kr. upp i afskriftir 2,2 milljarða kr. rikisábyrgða. Árið áður afskrifaði rikissjóður 1.200 milljónir óinnheimtra skatta, þann- ig að hækkun ffamlagsins var um 42% milli ára. Landsbanki Islands kemur næstur 1 röðinni með 860 m.kr. á afskrifta- reikning á síðasta ári. Upphæðin nam t.d. hlutfallslega um 1,3% af heildarútlánum bankans i árslok, en svaraði hins vegar til um 6. hluta ef miðað er við eigið fé bankans í árs- lok. Heildarútlán helstu opinbera sjóð- anna sem veita lán til atvinnuveg- anna um síðustu áramót og hins vegar framlag þeirra í afskrifta- reikning útlána á árinu 1989 var sem hér segir, samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar talið í milljón- imi króna: Útlán Afskr.r. m.kr. m.kr. Atv.tryggingarsj. 5.570 284 Byggðastofnun 8.930 250 Framkvæmdasj. 28.100 54 Fiskveiðisjóður 21.380 255 Stofnlánadeild 6.960 276 Iðnlánsjóður 8.760 121 Iðnþróunarsjóður 4.590 155 Samtals 84.290 1.395 Samsvarandi tölur Lánasjóðs námsmanna vom þannig: Lánasj.námsm. 17.340 742 Framlag Lánasjóðs námsmanna í afskriftarreikning á síðasta ári svar- aði t.d. um 30% af nýjum lánum sjóðsins á árinu. Sem sjá má, var upphæðin rúmlega helmingur þess sem gert var ráð fyrir á afskriftar- reikningum hjá 7 helstu opinberu atvinnulánasjóðunum samanlagt. Hvað umfang námslána varðar vekur t.d. að heildarútlán til náms- manna slaga hátt upp í öll útistand- andi fjárfestingarlán sjávarútvegs- ins i lok síðasta árs Samkvæmt upplýsingum framkvæmdastjóra LÍN er reiknað ffamlag á afskrifta- reikning fyrst og ffemst tilraun til þess að áætla hvað sjóðurinn muni í^mmmmmmmmmmmmm raunverulega innheimta og hvað ekki af lánum sínum. Með þessu sé gerð tilraun til þess að meta raun- verulegar eignir sjóðsins á varfær- inn hátt. Reiknireglan sé sú, að af- skrifa þurfi um 40% af veittum lán- um á árunum 1976-1982 en aðeins 10% af lánum eftir 1982. í raun viti hins vegar enginn með neinni vissu um það að hve stórum hluta þessi lán muni endurgreiðast á 40 ára lánstíma þeirra. Byggingarsjóðir ríkisins virðast á hinn bóginn ekki hræddir um að tapa miklu af sínum lánum. Heild- arútlán sjóðanna voru um 72.700 milljónir kr. um síðustu áramót. Framlag þeira í afskriftareikning var þó aðeins 10 m.kr. (0,01%) I lok síðasta árs áttu rikissjóður, rik- isbankamir tveir og 14 opinberir sjóðir útistandandi kröfúr að fjár- hæð um 278.000 milljóna kr. (1,1 milljón á hvert mannsbam í land- inu). Eigið fé þessara sömu banka og sjóða var tæplega 45 milljarðar kr. Tæplega þriðjungur útlánanna (rúmlega 90 milljarðar) voru hjá ríkisbönkunum og rúmlega fjórð- ungur húsnæðislán einstaklinga ffá byggingarsjóðum ríkisins. -HEI HÍK í Reykjavík og nágrenni mótmælir: Login sogð valdníðsla Almennur félagsfúndur Svæftis- félags hins islenska kennarafélags í Reykjavfk og nágrenni (SRON), mótmælir harðlega bráðabirgða- lögum ríkísstjórnarinnar sem sett voru á kjarasamning BHMR. Segir f ályktun frá féiagsfundin- um, að mótraælt sé dæmafárri valdniðslu ríkisvaldsins, en með bráðabirgðalögunum eru félags- menn svipfir samníngsrétti og öll- ura þeim réttindum sem stéttarfé- lög hafa lögum sarakvæmt, Fundurinn iýsír yfir stuóningi við þá ákvörðun BHMR að leita tU dómstóla, „til að hnekkja nðfor þessari að mannréttindum og skorar á kennara að beita öUum raætti sínum gegn þvingunarlög- unura“, seglr f ályktun fundarins. Ennfremur segir að bráðabirgða- lögin hafi rofið samning sem átti að tryggja vinnufriö í skólum tfl fimm óra og að kennarar gætu einbeitt sér að skólastarfmu. Þess vegna lýsir fundurf nn aUrí ábyrgö á hcndur ráðherrum i ríkisstjórn- inni fyrir aö stefna skólastarfi i tvísýnu með lögunum. Þá er þess krafist að Alþingi kotni samanhið fyrsta og QalU strax nm bráða- blrgðalögin, eða áður en skóia- starfhefst hs. Aðalfundur Landssambands kúabænda: ALLRA HAGUR AÐ SAMNINGAR TAKIST SEM ALLRA FYRST Aðalfundur Landssambands kúabænda óskar eftir sveigjan- legri viðskiptaháttum með fullvirð- isrétt mjólkur í því skynl að auka hagkvæmni ffamleiðslunnar. Fundurinn telur að núverandi fyr- irkomulag á tilfærslu milli bænda hindri eðlilega þróun búgreinar- innar. Mælt er með að sá fullvirð- isréttur, sem fellur til vegna fækk- unar framleiðenda, eigi aö geta gengið kaupum og sölum að viss- um skilyrðum fullnægðum. Aðalfúndurinn telur að sá árangur, sem náðst hefúr í að laga mjólkur- framleiðsluna að innanlandsneyslu, gæti verið unninn fyrir gýg takist ekki nýr búvörusamningur með bændasamtökunum og ríkinu bráð- lega. Því er mótmælt, að búvöru- samningur bindi hendur ríkisvaldsins til langs tíma. Með rammasamningi til 6-8 ára má tryggja að mjólkur- framleiðsla fúllnægi markaðsþörf- um. Slíkur rammasamningur auð- veldar mjólkurframleiðendum að skipuleggja ffamleiðslu sína og er því um leið nauðsynleg forsenda þess að auka hagkvæmni og ná fram lægra vöruverði. Um nánari útfærslu rammasamningsins má síðan gera bindandi samkomulag til eins eða tveggja ára í senn. Fundarmenn telja að krafa frá ríkis- valdinu um að tengja verði fram- leiðslumagn í búvörusamningi við sveiflur í innanlandsneyslu geti því aðeins verið sanngjöm að henni fylgi fyrirheit um að markaðsstöðu afúrð- Stórbruni varð á bænum Jörfa í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu í fyrradag, þegar eldur komst upp í hlöðu og flósi fýrir 30 kýr. Að sögn Jóhannesar Ragnarssonar, bónda á Jörfa, er tjónið mikið og lítið af nothæft af því, sem eftir stendur, hlaðan er fallin og fjósið illa farið. Það var um tvö leytið aðfaranótt miðvikudags að nágranni gerði fólk- inu á Jörfa viðvart. Slökkvilið komu anna verði ekki raskað á samnings- tímanum með aðgerðum eða að- gerðaleysi stjómvalda. Aðalfúndurinn skoraði á Stéttar- samband bænda að beita sér fyrir því að sett verði skilagjald á rúlluplast og áburðarpoka til að stuðla að því að sem mest af plasti verði endurunnið eða brennt á þann hátt að sem minnst mengun valdi. bæði frá Hvammstanga og Blöndu- ósi, og var unnið að slökkvistarfi ffarn undir morgun. Hlaðan var nærri full af lausu heyi og taldi Ragnar sennilegt, að heyið hafi ofhitnað eins og oft kemur fyrir. Heyskapur er langt kominn á Jörfa, en það á eftir að binda í rúllur. Ragnar sagði, að ibúar á næsta bæ ætluðu að hlaupa undir bagga á með- an unnið væri að viðgerðum, og fóru Þá telur aðalfúndurinn að þar sem breytingar á lögum um innflutning búfjár hafi náð ffam að ganga sé brýnt að fylgja eftir ráðstöfúnum til þess að sóttvamarstöðin i Hrísey nýt- ist bændum sem best, svo sem að nauðsynlegri aðstöðu fyrir með- höndlun á fijógvuðum eggjum er- lendra kynja verði komið upp sem fyrst. -EÓ mjaltir þar fram í gær. „Ég reikna með að drífa fjósið upp strax svo hægt verði að mjólka kýrnar.“ Fjórir smákálfar vora í fjósinu, en segist Ragnar nýlega hafa fækkað þeim hópi. Hann segist vera vanur að láta kým- ar liggja úti á sumrin og erfitt væri að spáð um hvemig heföi farið, ef svo heföi ekki verið. -hs. Stórbruni varð á bænum Jörfa í V-Húnavatnssýslu í fyrrinótt: Hlaða og fjós stórskemmdust

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.