Tíminn - 18.10.1990, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 18. október 1990
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, um húsnæðismálin:
Alveg Ijóst að auka
þarf framlag rfldsins
Ráðherrar Alþýðubandalagsins hafa verið harðorðir um niður-
stöðu flokksþings Alþýðuflokksins í húsnæðismálum þar sem
gert er ráð fyrir að auka þurfi framlög til húsnæðiskerfísins. Ólaf-
ur Ragnar Grímsson hefur sagt að sættir Jóhönnu Sigurðardótt-
ur og Jóns Baldvins Hannibalssonar væru dýrasti koss íslands-
sögunnar. Jón Baldvin Hannibalsson vildi ekki tjá sig um neinar
upphæðir í þessu sambandi en sagði að málið værí nú í höndum
forsætisráðherra.
Steingrímur Hermannsson sagði í
samtali við Tímann að þetta mál
væri nú á hans borði og hann hefði
rætt þetta við fjármálaráðherra og
formann Alþýðuflokksins. Hins
vegar væri ýmislegt í þessu máli
sem ekki væri alveg Ijóst. Hann vilji
t.d. fá að sjá frá Húsnæðisstofnun
nokkuð ítarlega úttekt á fram-
kvæmdunum í félagslegu íbúðun-
um. Að vísu liggi fyrir álit nefndar
þar sem talað er um að þörfin sé
1000 íbúðir á ári. Nú væri verið að
byggja töluvert mikið og hann vilji
fá að sjá mat þeirra á því hver þörf-
in væri. í öðru lagi sé gert ráð fyrir
því að lífeyrissjóðirnir leggi eitt-
hvað til þessara mála og það sé afar
eðlilegt því þetta væru nú lífeyris-
sjóðir þess fólks sem ekki síst hefur
þörf fyrir félagslegar íbúðir. Það
þurfi að athuga og kanna hvort ekki
sé hægt að fá eitthvað meira úr líf-
eyrissjóðunum. „Ég held að það sé
aíveg ljóst að það þarf að auka fram-
lag úr ríkissjóði, sérstaklega í bygg-
ingarsjóð verkamanna," sagði
Steingrímur.
Steingrímur sagði að framlög til
húsnæðismála kæmu til með að
breytast í meðferð þingsins en
hann væri ekki tilbúinn til að nefna
neina upphæð í því sambandi.
Aðspurður sagði Steingrímur að
það væri vitanlega slæmt að upp
kæmu svona deilur þegar búið væri
að ganga frá fjárlagafrumvarpinu
og þær beri að forðast. Hins vegar
hafi húsnæðismálin síðan hann
muni eftir sér verið einhver erfið-
ustu málin í undirbúningi fjárlaga-
frumvarpsins þó að það hafi nú
aldrei gengið eins langt og nú.
Svavar Gestsson hefur látið að því
liggja að nauðsynlegt væri að taka
fjárlögin upp í heild sinni ef um
miklar breytingar á framlögum til
húsnæðismála væri að ræða. Stein-
Steingrímur Hermannsson
forsætísráðherra.
grímur Hermannsson sagði að allir
ráðherrar hefðu orðið að sætta sig
við miklu minna fé en þeir báðu
um, m.a. Svavar Gestsson í sam-
bandi við LÍN og menntakerfið í
heild sinni og ekki síður Guðmund-
ur Bjarnason heilbrigðisráðherra í
sambandi við hið risavaxna heil-
brigðiskerfi. Svo það væri von að
Svavar út af fyrir sig kvarti. Stein-
grímur sagðist halda að málin
muni leysast án þess að fjárlögin öll
verði tekin upp.
Aðspurður hvort hann væri ósátt-
ur við fjárlagafrumvarpið, sagði
Steingrímur að svo væri alls ekki.
Hann hefði samþykkt það en hann
hefði viljað fá meira í byggðastofn-
un og atvinnutryggingarsjóð en
hann verði vitanlega eins og aðrir
að sætta sig við heildarniðurstöð-
una. —SE
Leikfélag Akureyrar:
Benni, Gúddi og
Manni á fjalirnar
Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra segir að framundan sé þriðja stóra skattkerfisbreytingin:
ÓBREYTTAR SKATTTEKJUR
Leikstjórí, leikendur og starfsmenn sem þátt taka í sýningu ungmennafélagsins íslendings á Síldin kemur og
síldin fer.
Leiksýning að Brún í Bæjarsveit:
Sfldin kemur og síldin fer
Ungmennafélagið íslendingur í Andakíl og Skorradal
æfir þessa dagana stíft í félagsheimilinu að Brún í Bæj-
arsveit söngleikinn Sfidin kemur og sfidin fer, undir
leikstjóm Ingunnar Jensdóttur. Söngleikurinn er eftir
Kristínu og Iðunni Steinsdætur. Frumsýning verður
föstudaginn 26. október nk. í Brún.
Sfidin kemur og sfidin fer er gamansöngleikur og
sögusviðið er sjávarþorpið Fagrifjörður þegar sfidaræv-
intýrið stóð sem hæst. Fjallað er á gamansaman hátt um
lífið á sfldarplaninu og fólkið sem þar vinnur.
f sýningunni taka þátt 23 leikendur og þrír hljóðfæra-
leikarar. Auk þeirra vinna um 15 manns við sýninguna,
sem er ein sú viðamesta sem ungmennafélagið íslend-
ingur hefur hleypt af stokkunum.
„Leikrítið um Benna, Gúdda og
Manna“ heitir nýtt íslenskt leikverk
sem frumsýnt verður hjá Leikfélagi
Akureyrar föstudaginn 19. október.
Leikrítið er eftir Akureyrínginn Jó-
hann Ævar Jakobsson, og er þetta
fyrsta leikrit höfundar.
Leikritið er létt og spennandi, en
með alvarlegum undirtóni, og fjallar
um þrjá góða karla sem reynt hafa
sárar raunir og lent utangarðs í þjóð-
félaginu. Benni og Gúddi eru vinir
sem búa í skúr á öskuhaugunum,
Heimsmeistara-
einvígið í skák:
Mikill hasar
í 3.skákinni
Þriðju einvígisskák Kasparovs
og Karpovs lauk á þríðjudags-
kvöld með jafntefli. Skákin var
mjög fjörug.
Hér á eftir verður 3. einvígisskák-
in rakin mönnum til skemmtunar.
Karpov stýrði hvítu mönnunum en
Kasparov þeim svörtu:
1. d4 - Rf6 2. c4 - g6 3. Rc3 - Bg7 4.
e4 - d6 5. RÍ3 - 0-0 6. Be2 - e5 7. Be3
- De7 8. dxe5 - dxe5 9. Rd5 - Dd8 10.
Bc5 - Rxe4 11. Be7 - Dd7 12. BxiB -
Kxf8 13. Dc2 - Rc5 14. Hdl - Rc6
15. 0-0 - Re6 16. Rb6 - axb4 17.
Hxd7- Bxd7 18. Dd2 - Be8 19. b3 -
e4 20. Rel - f5 21. Bdl - Re5 22. Rc2
- Hxa2 23. Dd5 - Ke7 24. Rb4 - c6
25. Dxe7+ - Kxe6 26. Rxa2 - Rf7 27.
Be2 - Rd6 28. Rb4 - Bc3 29. Rc2 - f4
30. Hdl - h5 31. f3 - e3 32. g3 - g5
33. Bd3 - h4 34. Khl - c5 35. Ke2 -
b5 36. cxb5 -Rxb5 37. Bc4+ - Ke7
38. Hd5 - Bf6 39. Hxc5 - Rc3+ 40.
Kfl - Bg6 41. Rel
f þessari stöðu fór skákin í bið.
Framhaldið varð hins vegar þannig:
41. - Kd6 42. Ha5 - fxg3 43. hxg3 -
hxg3 44. Rg2- b5 45. Ha6+ - Ke7
46. Ha7+ - Ke8 47. Ha8+ - Bd8 48.
Rx3 - bxc4 49. Rxc4 - g4 50. Kg2 -
Re2 51. Re5 - gxf3+ 52. Kxf3 - g2
53. Hxd8+ og hér var samið jafnt-
efli.
Kasparov hefur forystu í einvíginu
þegar tefidar hafa verið þrjár skákir.
Kasparov sigraöi i 2. einvfgisskák-
inni en sú 1. endaði með jafntefii.
Fjórða elnvígisskákln hófst í gær-
kvöldi en þar stýrir Kasparov hvitu
mönnunum. khg.
harðir karlar, breyskir en skemmti-
legir, og lögmál þeirra eru mjög mis-
kunnariaus. Þeir hafa báðir hrasað á
vegi dyggðarinnar og búa við sér-
kennilegt böl. Benni er með skeifu
undan hesti á floti í hausnum, og
Gúddi fláði af sér hálft andlitið í
nautshúðarsköfu í verksmiðju á Ak-
ureyri. í byrjun leiks kemur óvænt til
þeirra þriðji ógæfumaðurinn sem á
ekki síður skrautlega fortíð. Sá heitir
Manni og flyst hann til þeirra í skúr-
inn. Þá gerast óvæntir atburðir sem
enginn fær neitt við ráðið. Þeir þre-
menningar drekka talsvert og
kannski má segja að enginn þeirra sé
alveg heill á geðsmunum. Leikritið
lýsir lífi þeirra þremenninganna í
nokkurn tíma. Allir eru þeir að leita
að ákveðnum hlutum, og líf þeirra
beinist að því.
Leikstjóri er Sunna Borg, leikmynd
gerir Hailmundur Kristinsson og lýs-
ingu hannar Ingvar Björnsson. Leik-
endur eru fjórir. Utangarðsmennina
þrjá leika þeir Þráinn Karlsson, Gest-
ur Einar Jónasson og Hannes Örn
Blandon, en einnig fer Jón Stefán
Kristjánsson með hlutverk í sýning-
unni.
Sem áður sagði er þetta fyrsta leik-
rit Jóns Ævars Jakobssonar, en áður
hefur hann sent frá sér barnabókina
,Afi sjóari", árið 1986. hiá-akureyri.
.jviarkmið þessa fjárlagafrumvarps
er að skatttekjur ríkisins verði
óbreyttar. Það er hins vegar verið að
breyta samsetningu þeirra og sú
breytta samsetning getur þýtt að á
einum stað komi fram aukning, en á
öðrum komi fram minnkun,“ sagði
Ólafur Ragnar Grímsson fjármála-
ráðherra en frumvarpið hefur verið
gagnrýnt fyrir að í því séu lagðir á
auknir skattar á fyrirtæki.
Ólafur sagði framundan vera þriðju
stóru skattkerfisbreytinguna. Mjög
vel hafi gengið að koma á fyrstu
tveimur áföngunum, þ.e. stað-
greiðslukerfi skatta og virðisauka-
skattinum. „Um þetta leyti í fyrra
stóðu á mér öll spjót að fresta upp-
töku virðisaukaskattsins. Sjálfstæðis-
flokkurinn og margir hagsmunaaðil-
ar öskruðu á mig og kröfðust að upp-
töku virðisaukaskattsins yrði frestað
vegna þess að málið væri svo illa und-
irbúið. Nú blasir reynslan við, þessi
breyting hefur gengið ótrúlega vel
fyrir sig.
í þriðja áfanganum er stefnt að því
að umbreyta skattlagningu atvinnu-
lífs og fyrirtækja á íslandi til að
styrkja alþjóðlega samkeppnisstöðu
íslenskra atvinnuvega og bæta þar
með hagsæld í landinu og auka hag-
vöxt. í þessu sambandi er nauðsyn-
legt að taka mið af þeim megin-
straumum í skattlagningu atvinnu-
lífsins í okkar helstu samkeppnis-
löndum. Jafnhliða þarf að eyða mis-
mun sem hefur verið í skattlagningu
milli atvinnugreina hér innanlands.“
í fjárlagafrumvarpinu er lagt til að
tekið verði upp eitt tryggingaiðgjald í
tveimur þrepum, sem komi í stað
margra launatengdra gjalda, mis-
hárra milli atvinnugreina. Ólafur
sagði að eftir að búið væri að sam-
þykkja þessa breytingu yrði hafist
handa við að breyta skattlagningu
ríkis og fyrirtækja í takt við það sem
gerist í öðrum löndum. Óhjákvæmi-
legt væri t.d. að fella niður aðstöðu-
gjaldið. Þá sagði Ólafur að taka yrði
tekjuskattskerfi fyrirtækjanna til
endurskoðunar með það að mark-
miði að fækka undanþágum og frá-
dráttarliðum. Hugsanlega yrði skatt-
prósentan lægri, en jafnframt sam-
ræmd yfir alltkerfið.
Ólafur Ragnar sagði að á næstunni
yrðu þessi frumvörp um breytingar á
skattlagningu fyrirtækja lögð fram.
Hann sagði að menn yrðu að skoða
þessar breytingar í heild áður en
menn færu að kveða upp dóm um
þær. - EÓ