Tíminn - 18.10.1990, Síða 5
Tíminn 5
Miðvikudagur 18. október 1990
Andvökunætur tvöfalt gróðavænlegri fyrir íslensk apótek heldur en sænsk:
ISLENSKT SVEFNLEYSI
100% DYRARA EN SÆNSKT
Mest notaða svefnlyfiö á íslandi (Halcion) kostar 103% meira í ís-
lensku apóteki heldur en sænsku, samkvæmt verðsamanburði á 22
lyfiategundum í þessum tveim löndum, sem greint er frá í Frjálsri
verslun. Verðmunur er ennþá meiri (114%) á öðru svefnlyfi, sem
samanburðurinn nær til. Þetta gefur m.a. tvennt til kynna: f fyrsta
lagi að smásöluverð lyfja í sænskum apótekum sé í ýmsum tilvikum
lægra heldur en innkaupsverð sömu lyfia til íslands.
Og í öðru lagi að íslenskir apótek-
arar hafi um 120% hærri álagning-
artekjur af sölu svefnlyfja heldur en
sænsk apótek hafa fyrir að selja jafn
stóran lyfjaskammt.
Sala svefnlyfja hér á landi nemur
um 65 milljónum kr. á ári (hvar af
Halcion er fjórðungur), miðað við
verð án virðisaukaskatts. Um 25
milljónir kr. af þeirri upphæð er
hlutur apótekanna af smásöluálagn-
ingunni. Eigi helmings verðmunur
við um allan svefnlyfjaflokkinn,
mundi sami lyfjaskammtur því að-
eins kosta um 32 milljónir kr. út úr
sænskum apótekum, hvar af þau
héldu eftir í kringum 11 millj.kr.
tekjum af smásöluálagningunni.
Mismunurinn væri þá um 14 millj-
ónir kr., eða yfir 120%, sem íslensk
apótek hagnast umfram sænsk á
þessum eina lyfjaflokki, miðað við
sama fjölda andvökunótta.
Dýr mundi
Hafliði allur
Sala svefnlyfja er aðeins í kringum
2,5% af heildarlyfjasölu í landinu.
Jafnvel þótt áætluð íslensk umfram-
álagning væri færð niður í 10 millj-
ónir kr., virðist þetta dæmi geta
bent til þess að smásöludreifing lyfja
á íslandi sé hlutfallslega hundruð-
um milljóna króna dýrari á ári
hverju, heldur en í Svíaríki.
Samanburðurinn, sem hér er vitn-
að til, náði sem fyrr segir til 22ja
lyfjapakkninga, sem kosta hér á
landi frá 550 kr. og upp í 118.000 kr.
Öll reyndust lyfin miklu dýrari hér á
landi, að meðaltali 70% dýrari.
Frjáls verslun vitnar einnig til
nefndarálits, sem gert var á vegum
heilbrigðisráðuneytisins í fyrra um
lækkun lyfjakostnaðar. Þar var m.a.
gerður verðsamanburður á 977
samskonar lyfjum á íslandi og í Sví-
þjóð. í Ijós kom að innkaupsverðið
var þar í 90% tilvika lægra en hér, en
álíka eða nokkru hærra á 10% þess-
ara lyfja. Samkvæmt útreikningum
Frjálsrar verslunar, miðað við selt
magn þessara lyfjategunda hér á
landi, var smásöluverð þeirra, án
söluskatts, nær 25% hærra að með-
altali hér á landi en í Svíþjóð.
Áætlað er að lyfsala apótekanna
verði ekki fjarri 4.000 milljónum kr.
hér á landi í ár, eða um 3.200 m.kr.
án vsk. Sé allur sá „pakki“ um 25%
dýrari hér en í Svíþjóð, þýðir sá
verðmunur um 630 milljónir króna
— eða sem nemur meira en 10.000
króna aukaskatti á hverja fjölskyldu
á íslandi.
Næst þykkast „smurt“
í Danmörku
í úttekt sinni vitnar Frjáls verslun
ennfremur til samanburðar á verð-
myndun lyfja í 15 Evrópulöndum,
sem birtur var í Medicinal Debat,
blaði danskra lyfjainnflytjenda. Þar
kom m.a. í ljós að hlutur lyfsalans í
lyfjaverðinu var í engu þessara 15
landa hærri en í Danmörku, 37,1%.
Það er m.a. fróðleg niðurstaða í
Ijósi hálfsíðuauglýsingar Apótekara-
félags íslands í Morgunblaðinu s.l.
þriðjudag. En þar er álagning
danskra apóteka einmitt tekin til
vitnis um það, hvað álagning ís-
lenskra apóteka er hófleg, að því er
virðist.
Þótt apótekararnir hafi tæpast val-
ið sér mjög óhagstætt dæmi í aug-
lýsinguna sína, leiðir þeirra eigin
samanburður samt í ljós 57% smá-
söluálagningu í danska apótekinu
en 62% í því íslenska. Þessi 5%
munur svarar til 100 milljóna kr.
umframálagningar íslensku apótek-
anna á þessu ári, þ.e. sé gengið út frá
því að heildsöluverð lyfjanna sé hið
sama í báðum löndunum. Leggist
álagningarprósentan á 15% hærra
Áætlunarflug á leiðum Arnarflugs:
Flugráð telur
Flugleiðir duga
Flugráð komst að þeirri niðurstöðu
á fundi sínum í gær, að aðeins Flug-
leiðir uppfylltu kröfur sem gera þarf
til þess félags sem kemur til með að
halda uppi áætlunarflugi á þeim
leiðum sem Arnarflug þjónaði áður.
Flugráð mælti jafnframt með því
að ef samgönguráðherra úthlutaði
Flugleiðum þessum leiðum og yrði
þannig eina íslenska flugfélagið á
millilandaleiðum til og frá íslandi,
þyrfti jafnframt að rýmka heimildir
til leiguflugs á áætlunarflugleiðum.
Búist er við að samgönguráðherra
úthluti áðurnefndum áætlunarleið-
um næstu daga.
innkaupsverð hér á landi (sbr.
Frjálsa verslun) og enn hærra heild-
söluverð, verður munurinn auðvit-
að ennþá meiri.
Hin athyglisverða auglýsing Apó-
tekarafélagsins leiðir nefnilega líka í
ljós að heildsöluálagning á lyf er
meira en helmingi hærri hér á landi
en í Danmörku, eða 13,5% hjá ís-
lenskum lyfjaheildsölum, borið
saman við 8,5% meðal danskra
starfsbræðra þeirra.
Sé dæmi tekið af lyfi á sama inn-
kaupsverði á íslandi og í Danmörku
og álagning síðan reiknuð út frá
hlutfallstölum í auglýsingu Apótek-
arafélagsins, lítur dæmið þannig út:
Danmörk ísland
kr. kr.
Innkaupsverð... 1.000 1.000
Heilds.álagn 85 135
Smás.álagning . 618 702
Smás.v. án vsk. 1.703 1.837
Apótekaranna eigin tölur leiða því í
Ijós að álagning heildsala og smásala
er hér tæplega 8% hærri heldur en í
Dammörku.
Sé t.d. miðað við 1,8 milljarða lyfja-
innflutning á síðasta ári skilar þessi
munur íslenskum lyfjaheildsölum
og apótekurum um 240 milljónum
króna umfram danska starfsbræður
þeirra — sem þó taka stærri hluta
íyfjaverðsins í sinn hlut heldur en
apótekarar í 15 Evrópulöndum öðr-
um en íslandi.
Líklega er því ekki ofsagt í auglýs-
ingu Apótekarafélagsins að: „Álagn-
ing á lyf er hrikaleg".
- HEI
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra segir fslendinga
naumari á fé til þróunarhjálpar en aðrar norrænar þjóðir:
Þróunarhjálpin borin
undir þjóðaratkvæöi?
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra á fundinum þar sem hann
kynnti stefnuyfiriýsingu leiðtogafundar um málefni bama. Honum á
hægrí hönd situr Helga Jónsdóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu.
Tlmafnynd: Pjetur
Steingrúnur Hermannsson forsætis-
ráðherra sat fyrir stuttu leiðtogafund
um málefni bama, þar sem saman
voru komnir 73 þjóðaiieiðtogar.
Steingrímur kynnti í gær stefnuyfir-
lýsingu fundarins fyrir fréttamönn-
um. Hann sagði að fundurínn hefði
veríð gagnlegur að því leytí, að þar
hefðu leiðtogar þjóðanna samþykkt
yfirlýsingu, sem seinna værí hægt að
veifa framan í þá og spyrja um efndir,
ef við þær yrði ekki staðiö. Fram kom
á fundinum að framlag íslenska ríkis-
ins til þróunaraðstoðar værí hlutfalls-
lega miklu minna en gengur og gerist
á hinum Norðuríöndunum og í
mörgum öðrum löndum.
Steingrímur sagði að íslendingar
hefðu tvímælalaust brugðist í þróun-
araðstoð, miðað við aðrar þjóðir, og
fyrst og fremst hafi þeir brugðist sér
sjálfum. „Við samþykktum á þingi fyr-
ir allmörgum árum að leggja fram
0,7% af okkar landsframleiðslu til
þróunaraðstoðar. Þegar allt er tínt
saman, má áætla að við leggjum fram
einn tíunda hluta af því, eða um 0,07
af hundraði. Ég held að það sé afar
mikilvægt fyrir hverja þjóð, sem svo
langt er komin sem við, að geta með
nokkru stolti sagt: „Við veitum að-
stoð“, og ég held að það sé mjög mik-
ilvægt fyrir framtíðina. Þessum þró-
unarlöndum verður að lyfta upp, ann-
ars halda þau öllu öðru niðri. Við
leggjum alveg átakanlega lítið til
Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna,
eitthvað í kringum 6 krónur á hvern
íbúa, meðan Norðmenn leggja fram
um 600 krónur á hvem íbúa.
Steingrímur sagði, að ein hugmynd-
in væri sú að íslendingar leggðu 0,5%
af sínum launum í alveg sjálfstæðan
sjóð, sem ráðstafaði peningum úr
honum í hin ýmsu þróunarverkefni,
og þar væri verið að tala um verkefni
þar sem munaði um okkar fjárfram-
Íag. Steingrímur sagði að stofnanir
eins og Rauði krossinn, Hjálparstofn-
un kirkjunnar og Bamaheill væru að
vinna mjög gott starf og þeirra fram-
lag til þróunaraðstoðar mætti ekki
vanmeta. En þó svo verið væri að tala
um 0,5% af tekjum landsmanna í
sjóð, þá væri það langt frá því mark-
miði að verja 0,7% af landsframleiðslu
til þróunaraðstoðar. Steingrímur
sagði að til greina kæmi að hafa þjóð-
aratkvæðagreiðslu um það, hvort ís-
lendingar væm tilbúnir að greiða
þennan hluta af launum sínum í þró-
unarhjálp og hafa hana þá samfara al-
þingiskosningum næsta vor.
Steingrímur sagði að ráðstefnan
hefði verið athyglisverð. Ráðamenn
þjóðanna hefðu flutt ræður og hefðu
þær skipst niður á fjögur verkefni.
Fyrsta hefði verið um bamadauða,
annað um vemdun barna, það þriðja
um þróun og fjórða um það, hvernig
framkvæma ætti stefnuyfirlýsinguna.
Steingrímur sagði að margar ræðurn-
ar hefðu verið athyglisverðar, en sum-
ir hefðu í ræðum sínum gefið heldur
betri mynd af ástandinu í sínu landi
en efhi voru til.
í stefhuyfirlýsingunni segir m.a. að
leiðtogamir muni gera allt, sem í
þeirra valdi standi, til að lækka dánar-
tíðni barna og ungbarna í öllum lönd-
um og meðal allra þjóða. Þeir ætla
einnig að stuðla að því að séð verði fyr-
ir hreinu vatni í öllum samfélögum
fyrir öll börn, og að allir fái aðgang að
hreinlætisaðstöðu. Þeir ætla að vinna
að því að bæta skilyrði bama til vaxtar
og þroska með aðferðum sem útrýma
hungri, vannæringu og hungursneyð
og losa þannig milljónir barna undan
hörmulegum þjáningum í heimi, sem
hefur efni á að fæða alla sína þegna.
Einnig ætla þeir að vinna að því að
bæta aðstöðu milljóna barna sem lifa
við sérstaklega erfið skilyrði, s.s. fórn-
arlömb aðskilnaðarstefnu og erlendr-
ar hersetu, munaðarleysingja og
heimilislausra barna og fleiri.
í lokaorðum stefnuyfirlýsingarinnar
segir að ekkert verkefni geti verið göf-
ugra en það að veita öllum bömum
betri framtíð.
—SE
Kópavogur:
KLIPPT AF 30 BILUM
Ridgid-snittvél stolið
Nýlega var farið inn í hús í bygg-
ingu við Lækjarhjalla 14 og stolið
þaðan Ridgid-snittvél, sem notuð
er viö pípulagnir. Vélin var keypt í
sumar og er grá og rauð á litinn.
Slík vél kostar í kringum 300.000
og eru þeir, sem eru að byggja, eða
aðrir, sem hafa orðið varir við vél-
ina, beðnir um að láta Rannsókn-
arlögreglu ríkisins vita.
—SE
Lögreglan í Kópavogi hefur að und-
anförnu klippt númer af rúmlega 30
bílum, sem eigendur höfðu vanrækt
að fara með í skoðun. Auk þess hafði
lögreglan afskipti af fjölmörgum
eigendum annarra bíla, án þess þó
að til þess kæmi að bflnúmerin
væru fjarlægð.
Samkvæmt nýja skoðunarkerfinu
er það síðasti stafurinn í númeri bif-
reiðanna, sem segir til um skoðun-
armánuðinn. Bflarnir, sem hafa orð-
ið númerinu styttri, eru þeir sem
eigendur áttu að fara með til skoð-
unar fyrstu sjö mánuði ársins. Lög-
reglan og Bifreiðaskoðun íslands
hvetja alla þá, sem ekki hafa farið
með bfla sína til skoðunar á réttum
tíma, til að gera það sem fyrst, til að
komast hjá óþarfa óþægindum.
—SE