Tíminn - 23.01.1991, Page 3

Tíminn - 23.01.1991, Page 3
Miðvikudagur 23. janúar 1991 Tíminn 3 Þingflokkarnir ræða frumvarp um viðbrögð við loðnubrestinum: Loðnufioti fær 14.0001 kvóta I drögum að frumvarpi um sérstakar ráðstafanir vegna loðnu- brests er gert ráð fyrir að sjávarútvegsráðherra verði heimilað að færa allt að 14.000 tonna kvóta í þorskígildum talið til loðnuveiðiskipa. Gert er ráð fyrir að um 9000 tonn verði tek- in frá Hagræðingarsjóði og úthafsrækjukvótinn verði aukinn um 4000 tonn. Ekki er gert ráð fyrir að afli annarra skipa verði skertur meira en orðið er. Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra fyrirhugar að leggja frumvarpið fyrir Alþingi í þessari viku. Það var til umræðu á ríkis- stjórnarfundi í gær og er nú til meðferðar hjá þingflokkum. Með frumvarpinu fær Hagræð- ingarsjóður aukið hlutverk. Fram að þessu hefur hlutverk sjóðsins verið tvíþætt. Annars vegar að fækka skipum í flotanum og hins vegar að aðstoða byggðarlög sem eiga í sérstökum erfiðleikum. Með frumvarpinu verður sjóðnum Dragast Natóþjóðirnar inn í stríðið við írak? ísland komið í , stríð ráðist írakar á lyrki? Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra segist ekki vita til að Na- tó hafi gefið Bandaríkjaher form- legt leyfi til að gera loftárásir á ír- ak frá Tyrklandi. Hann segist ekki telja þörf á slíku leyfi frá aðildar- þjóðum Nató, nægilegt sé að tyrk- nesk stjómvöld gefi Bandaríkja- mönnum heimild til að nota flug- velli í Tyrklandi til árása á írak. TVrkland er eitt af aðildarlöndum Nató. Ef gerð er hernaðarárás á TVrkland eru allar aðildarþjóðir Na- tó sjálfkrafa komnar í stríð við árás- arþjóðina. Þar gildir lögmálið allir fyrir einn og einn fyrir alla. Forsvarsmenn Bandaríkjahers hafa ekki viljað staðfesta opinber- lega að þeir hafi gert loftárásir á ír- ak, en þeir hafa ekki neitað því. Fréttamenn í Tyrklandi hafa séð flugvélar taka á loft frá herflugvöll- um í Tyrklandi, fljúga í átt að írak og koma til baka fáum klukkutím- um síðar. Viss hætta er á að írakar geri loftárás á Tyrkland. Her Tyrk- lands er í viðbragðsstöðu. Geri írak- ar loftárás á Tyrkland verður ísland formlega séð aðili að stríðinu við Persaflóa. Steingrímur var spurður hvernig honum litist á framgang styrjaldar- innar við Persaflóa. Hann sagðist ekki hafa miklu við það að bæta sem hann hefði þegar sagt. „Ég trúi því ekki að styrjöldin geti tekið óskap- lega langan tíma miðað við þann ár- angur sem mér sýnist að alþjóða- herinn hafi náð á fyrstu dögum stríðsins. Síðustu fréttir greina að Bandaríkjamönnum hafi tekist að skjóta niður níu af tíu eldflaugum íraka sem þeir skutu á Saudi-Arab- íu. Þetta hlýtur að draga mjög úr árásarmætti íraka. Með svona al- gjörum yfirburðum í lofti hefði ég haldið að landbardagar verði frök- um mjög erfiðir," sagði Steingrím- ur. -EÓ Allaballar á Reykjanesi: Ólafur Ragnarí efsta sæti Alþýðubandalagsmenn á Reykja- nesi ákváðu framboðslista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar á kjördæmisþingi um helgina. Var samþykkt samhljóða að Ólafur Ragnar Grímsson skyldi skipa efsta sæti listans. Sigríður Jóhannesdóttir kennari í Keflavík skipar annað sætið, Valþór Hlöðversson bæjarfulltrúi í Hafnar- firði það þriðja og Sigurður T. Sig- urðsson formaður Verkamannafé- lagsins Hlífar er í því fjórða. Heiðurssæti listans, það 22., skipar Geir Gunnarsson alþingismaður en hann gaf ekki kost á sér til endur- kjörs eftir áratuga setu á Alþingi. -sbs. Friðjón tekur við sýslumanns- embætti Friðjón Þórðarson, alþingismað- ur Sjálfstæðisflokksins, sem ný- verið lýsti því yfir að hann myndi ekki bjóða sig fram fyrir komandi alþingiskosningar, hefur verið skipaður sýslumaður Dalasýslu frá og með 1. aprfi nk. Friðjón var áð- ur sýslumaður í Dalasýslu á árun- um 1955-1965. Friðjón var valinn úr fimm umsækjendum um sýslu- mannsembættið. khg. einnig ætlað að bregðast við áföll- um eins og þegar fiskbrestur verð- ur á einstökum fisktegundum. í Hagræðingarsjóði eru nú um 12.000 tonn, þar af má úthluta um 8.000 tonnum á þessu fiskveiðiári sem nær fram til 1. september. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að heimilt verði að færa 9.000 tonn frá Hagræðingarsjóði á fiskveiði- árinu. Þá er gert ráð fyrir að heim- ilt verði að stækka úthafsrækju- kvótann um 4.000 tonn. Samtals er gert ráð fyrir að hægt verði að færa um 14.000 tonna kvóta í þorskígildum talið til 44 loðnu- veiðiskipa. Þessar veiðiheimildir eru tíma- bundnar og eru til komnar vegna þeirra erfiðleika sem íyrirsjáan- legir eru finnist engin Ioðna. Loðnustofninn vex hratt og þykir ekki óraunhæft að álíta að hann verði búinn að ná þokkalegri stærð strax á næstu vertíð ef að- stæður í sjónum búa honum góð vaxtarskilyrði. Eitt af því sem rætt hefur verið um í sambandi við aðstoð við loðnuveiðiflotann er að aðstoða skipin 44 fjárhagslega, t.d. með skuldbreytingum í samvinnu við Fiskveiðisjóð. -EÓ islensku hornaleikararnir á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar á fimmtudaginn. Frá vinstri: Emil Friðfinnsson, Þorkell Jóelsson og Joseph Ognibene. Sinfóníutónleikar: Tónlist fyrir horn Áfimmtudagskvöldið, kl.20:00, verða haldnir í Háskólabíói þriðju tónleik- arnir í rauðri tónleikaröð Sinfóníu- hljómsveitarinnar. Að þessu sinni eru fjögur verk á efnisskránni. Mozartina eftir Tsjajkovskí, Homkonsert nr. 3 eftir Mozart og loks tvö verk eftir Schumann, Manfred forleikur og Konsertstuck fyrir fjögur horn. Einleikarar á tónleikunum verða hornaleikararnir Hermann Bau- mann, Joseph Ognibene, Þorkell Jó- elsson og Emil Friðfinnsson. Miðasala á tónleikana er á skristofu Sinfóníuhljómsveitarinnar á skrif- stofutíma og við innganginn við upp- haf tónleikanna. -sbs. MINNAST SKAL SNORRA Menntamálaráðherra hefur skipað starfshóp til að koma með tillögur um hvernig minnast skuli 750 ártíð- ar Snorra Sturlusonar, sagnaritara og héraðshöfðingja í Reykholti í Borgarfirði, þann 23. september á þessu ári. Forstöðumenn stofnana Sigurðar Nordal og Árna Magnús- sonar eiga sæti í starfshópnum, auk háskólarektors og formanns Rithöf- undasambands íslands. -sbs. Rannsóknaráð ríkisins auglýsir styrki til rannsókna og tilrauna árið 1991 Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Umsóknareyðublöð fást á skrif- stofu ráðsins, Laugavegi 13, sími 21320. • Um styrk geta sótt fyrirtæki, stofnanir eða einstaklingar. • Styrktarfé skal varið til rannsókna og þróunar á nýrri tækni og afurð- um sem talin er þörf fyrir næsta áratug. • Mat á verkefnum sem sótt er um styrk til skal m.a. byggt á: - líklegri gagnsemi verkefnis, m.a. markaðsgildi niðurstaðna, sem sóst er eftir, - gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróunar atvinnugreina hér á landi, - hæfni umsækjenda/rannsóknarmanna. • Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefni sem svo háttar um að; - fyrirtæki leggja umtalsvert framlag til verkefnisins, - samvinna fyrirtækja og stofnana innanlands er mikilvægur þáttur í framkvæmd verkefnisins, - samstarf við erlend fyrirtæki og rannsókna- og þróunarstofnanir er mikilvægt, - líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri fyrir atvinnurekstur. Heimilt er einnig að styrkja verkefni, sem miða að uppbyggingu þekk- ingar og færni á tæknisviðum, sem talin eru mikilvæg fyrir atvinnuþróun hér á landi í framtíðinni. Friðjón Þórðarson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.