Tíminn - 31.07.1991, Side 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 31. júlí 1991
Herstöðvaandstæðingar í Árnessýslu mótmæla heræfingum Varnarliðsins, en þær fara meðal annars
fram á Biskupstungnaafrétti:
Heræfingar án samráðs
og leyfis heimamanna
Frá fundi herstööaandstæðinga í fyrrakvöid. Sigurður Þorsteinsson í ræöustóli. Timamynd: sbs
„Ég er eindreginn andstæðing-
ur þess brambolts, sem nú fer
fram í landinu og sérstaklega í
nágrenni við þennan stað sem
við erum stödd á. Hvar sem við í
flokki stöndum, hljótum við að
mótmæla þeim yfírgangi sem
fer fram án þess að talað sé við
kóng eða prest.“
Þetta sagði Sigurður Þorsteinsson,
bóndi á Heiði í Biskupstungum, á
útifundi sem hópur herstöðvaand-
stæðinga í Árnessýslu efndi til í
fýrrakvöld við Tungnaréttir í Bisk-
upstungum til að mótmæla heræf-
ingum Varnarliðsins, en þær fara
m.a. fram á afrétti sveitarinnar. Um
250 manns voru á fundinum og var
kjaminn í máli ræðumanna að æf-
ingar þessar væm alger tíma-
skekkja, nú þegar afvopnun setti
mark sitt á sambúð þjóða og kalda
stríðinu væri lokið.
Frummælendur auk Sigurðar Þor-
steinssonar voru Kristín Ástgeirs-
dóttir alþingiskona og Steingrímur
J. Sigfússon alþingismaður.
Sigurður sagði að vegna þessara
heræfinga geymdi Varnarliðið olíu-
birgðir við flugbrautina á Einholts-
melum, sem eru skammt ftá
Tungnaréttum. Heimamenn hefðu
ekki fengið að vita hvar æfingarnar
sjálfar færu fram, enda hefðu þeir
ekki verið spurðir álits um þær né
þeir spurðir leyfis, þó svo að þær
færu fram á þeirra landi. Sigurður
sagði að sig grunaði að æfingarnar
færu fram sunnan undir Langjökli,
nærri Jarlhettum. „Óhjákvæmilega
hlýtur þetta að skilja eftir sig meng-
un. Það er hættulegt að innleiða
reglulegar heræfingar í þessu landi.
Því skulum við ævinlega beita styrk
okkar í þágu friðar og fordæma æf-
ingar sem þessar," sagði Sigurður.
„Ólíkt höfumst við að. Meðan her-
deildir stórveldanna taka upp allt
sitt hafurtask og halda heim, þá ann-
að hvort til Bandaríkjanna eða Sov-
étríkjanna, og undirritaðir eru víð-
tækir afvopnunarsamningar, er efnt
til heræfinga hér uppi á Islandi. En
hver er óvinurinn? í stað þess að
leyfa þessar æfingar eigum við að
gera kjarnorkuveldunum sem erfið-
ast fyrir," sagði Kristín Ástgeirsdótt-
ir, alþingiskona Kvennalistans, í
ávarpi sínu.
„Það bætir ekki úr skák, ef það
kemur í ljós, sem rétt mun vera, að
þessar æfingar hafa verið ákveðnar
úti í landshlutunum án minnsta
samráðs við heimamenn utan þeirra
svæða sem utanríkisráðuneytið hef-
ur rétt til að heimila slíkt á. Ég leyfi
mér að segja að með því sé brotinn
réttur á sveitarstjómum gagnvart
þeirri Iögsögu sem þær hafa á sínum
umráðasvæðum," sagði Steingrím-
ur J. Sigfússon alþingismaður.
„Þetta undirstrikar líka skýrt til
hvers útlendur her er hér á landi.
Það er ekki til þess að verja fólkið í
landinu, enda færu þessar æfingar
ekki fram á Gunnólfsvíkur- og Bola-
fjalli eða Biskupstungnaafrétti ef svo
væri,“ sagði Steingrímur ennfrem-
ur.
í fúndarlok var samþykkt svohljóð-
andi ályktun: „Fundur herstöðva-
andstæðinga í Ámessýslu, haldinn
við Tungaréttir 29. júlí 1991, mót-
mælir harðlega þeim heræfingum
sem nú fara fram hér á landi. Heræf-
ingar em óvenju mikil tímaskekkja
nú þegar afvopnunarsamningar og
batnandi sambúð setur mark sitt á
sambúð þjóða.
Þá mótmælir fundurinn sérstak-
lega því virðingarleysi sem íbúum
viðkomandi svæða er sýnd með því
að heimila æfingar án nokkurs sam-
ráðs við þá."
-sbs, Selfossi.
Vatnsútflutningur frá Hafnarfirði:
Vigdís
til Kanada
Forseti fslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, fór í gær áleiðis til Kanada, og
verður viðstödd hátíðahöld í L’Anse-
aux-Meadows á Nýfundnalandi þeg-
ar langskipið Gaia kemur þar að
landi n.k. fimmtudag.
Frá Nýfundnalandi fer forseti til
Montevideo í Umguay og opnar þar
fyrir hönd Norðurlandanna allra
sýningu á málverkum og högg-
myndum eftir norræna listamenn.
Frá íslandi verða á sýningunni verk
eftir Georg Guðna, Jón Óskar og Ól-
af Gíslason. Norræna ráðherraráðið
stendur fyrir sýningunni, sem fer
um 5 lönd Suður-Ameríku. Efnt er
til hennar í framhaldi af norrænu
menningarkynningunum „Scandin-
avia Today" í Bandaríkjunuum árið
1982, Japan árið 1987 og Sovétríkj-
unum 1990. í fylgd með forseta ís-
lands verður Kornelíus Sigmunds-
son forsetaritari. -sis
Utanlandsflug Flugleiða:
Sumarauki
Flugleiðir bjóða nú landsmönnum
Sumarauka, sem em sérstök fargjöld
til Kaupmannahafnar, Parísar og
Hamborgar. Aðeins er um að ræða
takmarkaðan sætafjölda með beinu
flugi Flugleiða á viðkomandi staði.
Um þessi fargjöld gilda pex-fargjalda-
reglur, það er bókun, útgáfa og sala
farmiðans skal fara fram samtímis. Til
Kaupmannahafnar kostar nú til dæm-
is 26.690 kr., til Parísar 25.950 kr. og
til Hamborgar kostar fargjaldið
24.950 kr. Bamaafsláttur af þessum
fargjöldum er 50% og ýmiss konar
sérþjónusta er í boði fyrir yngstu far-
þegana. Jafnframt gefst farþegum
Flugleiða kostur á bílaleigubílum og
hótelum erlendis.
Auk þessara fargjalda hafa Flugleiðir
boðið upp á pakkaferðir, flug og bfll,
til Lúxemborgar á 22.200 krónur og
til Amsterdam á 21.900 krónur. Þessar
pakkaferðir verða til sölu fram til 10.
ágúst. Til viðbótar við þetta er einnig
boðið upp á pakkaferðir til Glasgow,
flug og bíll sem kostar 18.940 á mann,
ef miðað er við að tveir fullorðnir og
tvö böm undir 11 ára aldri séu í ferð-
inni. í framangreindum fargjöldum er
ekki innifalinn íslenskur flugvalla-
skattur, en hann er alls 1150 krónur.
Verið að kanna málið
Veríð er að kanna möguleika á hugsanlegum útflutningi vatns frá
Kapelluhrauni í Hafnarfirði. Guðmundur Arni Stefánsson, bæjar-
stjórí í Hafnarfírði, sagði að bæjaryfírvöld fyrírhuguðu ekki að fara
að flytja út vatn sjálf. Ýmis fyrirtæki hefðu veríð að velta þessum
málum fyrir sér og komið að máli við bæjaryfirvöld. Þau svör, sem
gefín hefðu verið þessum fyrirtækjum, væru á þá leið að bærínn
værí tilbúinn til samstarfs við hvern þann aðila sem gæti sýnt fram
á fjármögnun og markaðssetningu vatnsins erlendis.
Garðaflöt 17.
Fallegir garðar
í Garðabæ
Guðmundur Árni sagði að í Kap-
elluhrauni væri mikil vatnsupp-
spretta, sem margir hefðu áhuga á
að nýta. Tiltölulega auðvelt væri að
nálgast þetta vatn og nýta það, en
bæjaryfirvöld vildu þó kanna málið
ítarlega áður en eitthvað yrði að-
hafst. Hann sagði að hugsanlega
myndi bærinn leigja einkaaðilum
aðstöðu til þess að taka vatn úr lind-
um og leiða það í verksmiðju til
átöppunar eða til útflutnings í öðru
formi. Jafnvel hefðu komiö fram
hugmyndir um það að leiða vatnið
frá Kapelluhrauni og niður á höfn
þar sem skip flytti vatnið í tönkum
til erlendra landa. Guðmundur Árni
sagði að bæjaryfirvöld myndu þó
fara sér hægt í þessum efnum og
þyrftu að sjá málið allt til enda áður
en ákvörðun um vatnsútflutning
yrði tekin. Bæði þyrfti aö sjá til þess
að viðkomandi aðilar væru fjárhags-
lega í stakk búnir til þess að ráða við
þessar framkvæmdir og hvort þeir
væru með kaupendur sem væru til-
búnir til að kaupa vatnið. Hann
sagði að þrír til fjórir aðilar hefðu
sýnt þessum útflutningi áhuga. Fyr-
irtækið Vatnsberinn hf. hefði til að
mynda sýnt fram á ýmis gögn í þá
veru að þeir séu nú með í gildi
samning við fjársterka aðila erleodis
frá sem vilji kaupa vatn.
Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar 18.
júlí síðastliðinn lagði Vatnsberinn
hf. fram kostnaðar- og tekjuáætlun
um hugsanlegan vatnsútflutning og
upplýsingar um erlenda samstarfs-
aðila. Bæjarráð óskaði eftir nánari
upplýsingum um þetta mál og var
bæjarlögmanni falið að athuga mál-
ið.
-UÝJ
Bæjarráð Garðabæjar veitti á föstu-
dag viðurkenningar fyrir snyrtilegt
umhverfi í Garðabæ. Fyrir lóð íbúð-
arhúsnæðis hlutu eigendur Garða-
flatar 17 viðurkenningu. Lóðin er
með fjölbreyttum trjágarði og þykir
vel hirt. Formklipptur víðir í garðin-
um vakti sérstaka eftirtekt dóm-
nefndarmanna. Lóð bensínstöðvar
Olís við Hafnarfjarðarveg var valin
snyrtilegasta lóð atvinnuhúsnæðis í
Garðabæ. Lóð stöðvarinnar mun
lengi hafa verið til fyrirmyndar.
Hæðarbyggð er snyrtilegasta gatan í
Garðabæ 1991. Gatan er brött og
liggur í boga að Karlabraut. Lóðir
við götuna þykja einstaklega snyrti-
legar.
Ferðafélaginn
1991 kominn út
Ritlð Ferðafélaginn er komið út
íþróttasamband lögreglumanna
gefur ritið út, en efnið er unnið í
samvinnu við Umferðarráð. Rit-
inu verður dreift um allt land. í
því er að fínna greinar, viótöl,
bamaefni, skyndihjálp, létt
spaug og ýmsar gagnlegar upp-
lýsingar.
Tilgangur útgáfunnar er þrí-
þættur:
Lögreglumenn vilja stuðla að
góðum og jákvæðum samskipt-
tun við almenning, þau þurfa
ekki að vera og eru ekki neikvæð
og erflð.
LÖgregiumennimir verða oft
vitni að sorglegum og oftast
óþörfum slysum í starfí sínu.
Þeir vilja miðla af þeirri reynslu
sinni og koma á framfærí skila-
boðum til fólks í þeirri von að
þessum slysum fækld.
Ritið er fjáröflun fyrir iþrótta-
starfsemi lögreglumanna, en
lögreglumenn um landið allt
eiga mjög góða samvinnu, m.a. í
gegnum íþróttaiðkun. -js