Tíminn - 31.07.1991, Page 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 31. júlí 1991
ISC! ÚTLÖND
Leiðtogafundurinn í Moskvu:
BUSH GREIÐIR FYRIR
AUKNUM VIÐSKIPTUM
Bush, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í gær á leiðtogafundinum í
Moskvu að Bandaríkin myndu lyfta viðskiptatakmörkunum sem
verið hafa á Sovétríkjunum og gerður yrði svokallaður bestukjara-
samningur milli landanna, en slíkur samningur mun tryggja sov-
éskum iðnaðarvörum frjálsarí aðgang að mörkuðum í Bandaríkjun-
um og tryggja minnstu mögulegu gjöld á sovéskar útflutningsvör-
ur. Bush lofaði Gorbatsjov forseta Sovétríkjanna fyrir að auka frelsi
sovéskra borgara til að flytja frá Sovétríkjunum og sagði að það væri
grundvöllur að af slíkum samningi gæti orðið.
Sovéskir embættismenn sögðu að
viðskipti Sovétríkjanna og Banda-
ríkjanna myndu aukast um 150
miiijónir dollara á ári í kjölfar slíks
samnings. Sovétmenn selja nú vör-
ur fyrir um fimm milljarða doilara
á bandaríska markaðinum, og eru
það miklu minni viðskipti en t.d.
við Kúbu. Mestur hluti þeirra vara
sem Sovétmenn selja til Bandaríkj-
anna eru olíuvörur og vélbúnaður.
Boris Jeltsin forseti Rússlands
sýndi Gorbatsjov lítisvirðingu í
gær þegar hann mætti ekki á sam-
eiginlegan fund þeirra, Nursultan
Nazarbayev leiðtoga Kazakhstans,
Heragi í japönskum skólum sætir
vaxandi gagnrýni:
Tveir táning-
ar láta lífið
Tveir japanskir táningar létust í
sjúkrabfl á leið til sjúkrahúss eft-
ir að kennarinn þeirra hafði hegnt
þeim fyrir reykingar með því að
halda þeim inni í giuggalausum
jámbrautarvagni í tvo daga. Há-
sumar er nú í Japan og er talið að
nemendumir hafí látist vegna
vökvataps en þeir fengu nánast
ekkert vatn í prísundinni.
Rannsókn málsins stóð yfir í gær,
að sögn formælanda lögreglunn-
ar, og var skólastjórinn í yfir-
heyrslum, en það var hann sem
lokaði nemendurna inni.
Skólinn, sem er á tiltölulega lít-
illi eyju, er fyrir börn sem tolla
ekki í venjulegum skólum. Skól-
inn er mjög strangur og er mark-
miðið að „lækna" börnin með
miklum aga.
Skólastjórinn sagði að hann hafi
lokað táningana inni í járnbraut-
arvagninum á laugardagskvöldið.
Þegar hann hafi opnað vagninn á
mánudagskvöldið hafi þeir verið í
mjög slæmu ástandi og þá hafi
hann hringt á sjúkrabíl.
Búist er við að atburðurinn eigi
eftir að vekja upp harða gagnrýni
á agareglur í japönskum skólum
en mörgum þykir aginn ganga
langt úr hófi fram. í Japan standa
nú yfir réttarhöld yfir kennara
sem veitti 15 ára stúlku banamein
með því að skella dyrum á hana
þegar hún kom nokkrum mínút-
um of seint í kennslustund. Þá lét-
ust fjórar stúlkur árið 1983 eftir
að þeim hafði verið refsað af japr
önskum skólayfirvöldum.
George Bush, forseti Bandaríkjanna, og Mikhail Gorbatsjov, for-
seti Sovétríkjanna.
og Bush. Almennt var álitið að með
því að bjóða til þessa sameiginlega
fundar væri Gorbatsjov að sýna
Bush fram á gott samkomulag
milli Sovétstjórnarinnar og Iýð-
veldanna en eins og mörgum er
kunnugt var nýr sambandssáttmáli
samþykktur í síðustu viku til
bráðabirgða, en hann skilgreinir
tengsl sambandsstjórnarinnar og
lýðveldanna. Daginn áður hafði
Jeltsin gert sérstakan vináttu-
samning við Litháen, sem felur í
sér viðurkenningu á „fullveldi" Lit-
háens, en lýðveldið er eitt fimm
lýðvelda sem hunsuðu sambands-
samninginn. Bush hvatti í gær sov-
ésk stjórnvöld til að stuðla að var-
anlegum friði m.a. með því að
ganga til friðsamlegra samninga
við Eystrasaltslýðveldin.
Utanríkisráðherrar landanna,
James Baker og Alexander Bessm-
ertnykh, ræddust einnig við í gær
og báru friðarumleitanir þeirra í
Miðausturlöndum hæst. Að sögn
bandarískra embættismanna átti
Baker viðræður við ísraelska ráða-
menn í gegnum síma en til stendur
að Baker fari til ísraels þegar leið-
togafundinum lýkur. Bessm-
ertnykh sagði að það þyrfti að
stefna að því að halda ráðstefnuna
á þessu ári, annars væri hætta á að
þetta einstæða tækifæri gengi
mönnum úr greipum. Hann taldi
einnig möguleika á því að hann og
Baker færu saman til Miðaustur-
Ianda, en bandarískum embættis-
mönnum líst ekki vel á það.
Reuter-SÞJ
De Klerk, forseti Suður-Afríku: BB
ENDURSKOÐAR LOG
UM LEYNISJÓÐI
F.W. de Klerk, forseti Suður-Afríku,
sem reynir nú eftir fremsta megni
að sættast við Afríska þjóðarráðið
(ANC) eftir að upp komst um leyni-
greiðslur stjórnarinnar til helsta
pólitíska andstæðings hreyfingar-
innar, Inkata- frelsisflokksins, lof-
aði í gær að endurskoða lögin um
hina leynilegu sjóði stjórnvalda en
greiðslurnar voru einmitt greiddar
úr slíkum sjóðum. De Klerk sagði á
fréttamannafundi í gær að hann
mundi skipa óháða nefnd sem
mundi vera til ráðgjafar um þau
leynilegu verkefni sem stæðu yfir.
Þetta var í fyrsta skipti sem De
Klerk tjáir sig um leynilegar
greiðslur stjórnarinnar árið 1986
til Inkata-frelsisflokksins og verka-
lýðssamtaka tengdum þeim.
ANC hafði krafist róttækra að-
gerða gegn þeim ráðherrum sem
báru ábyrgð á greiðslunum og kom
De Klerk að hluta til móts við sam-
tökin þegar hann skipti um tvo ráð-
herra, lögreglu- og varnarmálaráð-
herra.
De Klerk neitaði því í gær að ríkis-
stjórnin færi á bak við ANC í friðar-
viðræðunum og sagði það ósatt að
stjórnvöld hafi kynnt undir átök
biökkumanna.
Reuter-SÞJ
Afganistan:
Skæruliðar taka vel
í friðaráætlun Sam-
einuðu þjóðanna
Fréttavfirlit
London - Hæstiréttur Bret-
lands frestaði f gær i annað
sinn að taka bankann BCCI
(Bank of Credit and Comm-
erce International) til gjald-
þrotaskipta að beiðni stærstu
hluthafa bankans en þeir hafa
iagt fram viðreisnaráætlun fyr-
ir bankann. Frestunin er til 2.
desember. Þann 22. júlf
óskaði Englandsbanki eftir að
bankfnn, sem hefur höfuð-
stööva f Abu Dhabí f Samein-
uðu arabísku furstadæmun-
um, yrði tekinn til gjaldþrota-
skipta vegna þess að víötækt
svindl heföi átt sér stað við
rekstur hans. BCCI er einn
stærsti viðskiptabanki heims
og hefur útibú f 69 löndum.
Ðelgrad - Fulltrúar lýðveld-
anna sex og sjálfsstjómarhér-
aðanna tveggja í forsetaráði
Júgóslavíu hófu að nýju við-
ræður f gær til að reyna að
binda enda á átökin f Króatfu.
Atökin fara harönandi og hafa
næstum hundrað manns fallið
f þeim sfðustu daga.
Moskva - Stjórnvöld í Lithá-
en viðurkenndu f gær sjátf-
stæði Króatíu og Slóveníu frá
Júgóslavíu og vildu með því
leggja áherslu á eigin baráttu
fyrir sjálfstæði frá Sovétríkj-
unum.
Moskva - Alexander Bessm-
ertnykh, utanrlkfsráðherra
Sovétríkjanna, gaf í skyn í
gær, áður en hann höf viðræð-
ur við James Baker utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, að
þróun samskipta Israels-
manna og araba ráöi miklu um
það hvenær Sovétmenn tækju
upp fulit stjómmálasamband
við (srael.
London - Einn af leiðtogum
Kúrda f Norður-Irak, Jalal Tala-
bani, hvatti f gær John Major,
forsætisráöherra Bretlands, tii
að hjálpa þúsundum Kúrda f
Norður-írak sem misst hefðu
helmili sín. Talabani átti stutt-
ar viðræður vlö Major f gær og
lofaði forsætisráðherrann að
hjálpa til við að samræma al-
þjóötega neyðaraðstoð. Þús-
undir Kúrda hafa flúið til
landamæra Irans á undanförn-
um dögum en þeir óttast frek-
arf árásir Irakshers á skæru-
ilöa nærri Sulalmaniya en þar
kom til bardaga milli þessara
fylkinga fýrr í þessum mánuði.
Bacau - Óttast er að yflr
hundrað manns hafi látið lífið f
noröausturhluta Rúmenfu eftir
mikil flóð sem f gær höfðu
staðið yfir f tvo daga. Að sögn
embættismanns f Bacau-hér-
aðinu höfðu 40 lík fundist en
69 manna var saknað og ótt-
ast var að þeir hefðu drukkn-
að. Stíflur brustu á snemma á
mánudaginn eftir miklar rígn-
ingar um helgina og vatnselg-
urinn hrelf meö sér nokkur
hundruö hús. Spáð var áfram-
haldandi rlgnlngum.
Tokyo - Stjómvöld í Norður-
Kóreu lögðu í gær til að Kín-
verjar og Sovétmenn, sem
veriö hafa bandamenn Norð-
ur-Kóreumanna f gegnum tfð-
Ina, myndu ásamt Bandaríkja-
mönnum, tryggja að Kóreu-
skaglnn veröi kjarnorku-
vopnalaust svæði. Norður-
Kóreumenn hafa áður komið
með svipaöar tillögur en þetta
er f fyrsta skipti sem þeir
leggja til að Kínverjar og Sov-
étmenn taki þátt f viðræðum
um kjarnorkuvopnalausan
Kóreuskaga. Reuter-SÞJ
Skæruliðar í Afganistan sam-
þykktu í gær að skoða betur friðar-
áætlun Sameinuðu þjóðanna fyrir
Afganistan og sögðust vel geta
hugsað sér hana sem grundvöll að
fríðsamlegri lausn borgarastyrjald-
arinnar í landinu sem staðið hefur
yfír í þrettán ár.
í sameiginlegri yfirlýsingu sem
skæruliðarnir og helstu stuðnings-
menn þeirra, Pakistanar og íranir,
sendu frá sér að Ioknum viðræðum
þessara aðila í Islamabad í Pakistan í
gær segir að þátttakendurnir í við-
ræðunum hafi séð mörg „jákvæð at-
riði“ í friðaráætlun Sameinuðu
þjóðanna. Aðalframkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, Perez de Cu-
ellar, lagði þessa áætlun fram í maí
síðastliðnum en róttækir skæru-
liðaleiðtogar höfðu áður hafnað
henni. Áætlunin gerir m.a. ráð fyrir
að mynduð verði bráðabirgðastjóm
sem stjórni þangað til lýðræðislegar
kosningar verði haldnar í landinu.
Ali Akbar Velayati utanríkisráð-
herra írans, sem átti aðalfrumkvæð-
ið að friðarviðræðunum, sagði að
þær mörkuðu vendipunkt í borgara-
styrjöldinni í Afganistan. Hann
sagði að um 90% allra afganskra
skæruliðahópa hafi tekið þátt í við-
ræðunum og stefnt væri á að halda
aðrar viðræður í Tehran í íran.
Einn róttækur skæruliðaleiðtogi
tók ekki þátt í viðræðunum og tveir
aðrir sendu lágt setta fulltrúa til
viðræðnanna og annar þeirra gekk
út er þær voru hafnar.
Reuter-SÞJ