Tíminn - 31.07.1991, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 31 .júlí 1991
Tíminn 5
Forsvarsmenn í sjávarútvegi um endurskoðun fiskveiðistefnunnar:
FLOKKSPOLITIK EKKI
RÉTTIVETTVANGURINN
„Þetta er slæm breyting sem við hörmum. Stómmála-
menn hafa aldrei getað komið sér saman. Með þessu er
verið að sniðganga hagsmunasamtök.“ Þetta er dæmi um
viðbrögð forsvarsmanna hagsmunasamtaka sjávarútvegs-
ins við skipun pólitískrar nefndar um endurskoðun fisk-
veiðistefnunnar.
Sjávarútvegsráðherra kynntí á
blaðamannafundi í gær að til stæði að
skipa tvær nefndir í sambandi við
endurskoðun fiskveiðistefnunnar.
Önnur er pólitískt kosin af stjómar-
flokkunum en hin er skipuð hags-
munaaðilum í sjávarútvegi og fulltrú-
um stjómarandstöðu og kallaði sjáv-
arútvegsráðherra það ráðgjafameftid.
Þröstur Ólafsson, aðstoðarmaður
utanríkismálaráðherra, og Magnús
Gunnarsson, framkvæmdastjóri SÍf,
munu veita hinni pólitísku nefnd
forstöðu. Þorsteinn segir að hann
hafi lagt til að verksvið nefndarinnar
yrði víkkað út þannig að það næði
ekki einvörðungu til endurskoðunar
á fiskveiðilöggjöfinni heldur yrði
nefndinni falið að móta sjávarút-
vegsstefnu sem taki til veiða,
vinnslu og markaðssetningar.
Þorsteinn er mjög ánægður með
það samkomulag sem náðst hefði
milli flokkanna og hlutverk nefndar-
innar. Það eru hins vegar ekki allir
jafnánægðir.
,J1ér finnast mistök að draga þetta
inn á pólitískan vettvang. Þetta er
slæm breyting," segir Kristján
Ragnarsson, formaður LÍÚ.
„Fiskveiðistjórnunin og endur-
skoðun hennar og ítrekuð lagasetn-
ing hefur verið undirbúin af nefnd
sem hagsmunaaðilar sjávarútvegs-
ins og fulltrúar stjórnmálaflokk-
anna hafa undirbúið. Núna er breytt
út frá þessu og forystan sett í pólit-
íska nefnd, hvað ég harma. Reynsla
undanfarinna ára hefur verið sú að
sjávarútvegurinn hefur getað komið
sér saman um tillögur í þessu efni
sem farið hefíir verið eftir að megin-
hluta. Stjórnmálamenn og flokkar
hafa aldrei getað komið sér saman,“
sagði Kristján Ragnarson.
„Verði þeim að góðu. Þarna er ver-
ið að sniðganga hagsmunaaðila. Ég
hef mjög mikla vantrú á stjórn-
málamönnum í jafnalvarlegu máli
og því að taka afstöðu til fiskveiði-
stjómunarinnar,“ sagði Óskar Vig-
fússon, formaður Sjómannasam-
bands íslands.
-HÞ
Skatturinn á Reykjanesi og í Reykjavík:
Aðalverktakar og
Þorvaldur langhæstir
Álagningarárið 1991 nema opinber
gjöld einstaklinga í Reykjanesum-
dæmi kr. 11.050.268.815. Opinber
gjöld lögaðila nema 1.742.027.112.
Það gerir samtals 12.792.295.927.
Þeir einstaklingar sem eiga mest að
gjalda eru Geir Gunnar Geirsson,
Vallá, Kjalarnesi 12.011.275 krónur.
Helgi Vilhjálmsson, Hafnarfirði
10.991.180. Matthías Ingibergsson
Kópavogi 10.817.067. Guðmundur
Lárusson Hafnarfirði 9.472.843. Ág-
úst Valfells Kópavogi 7.671.485. Sig-
urður Valdimarsson Seltjamamesi
7.300.306. Guðmundur Rúnar Hall-
grímsson Keflavík 7.189.325. Karl
Sigurður Njálsson, Garði 7.033.152.
Og Jón Skaftason Kópavogi
6.914.170.
Þeir lögaðilar sem mest eiga að
gjalda eru íslenskir aðalverktakar sf.
327.192.479 krónur. Stálskip hf.
68.852.199. Sparisjóður Hafnarfjarö-
ar 47.166.129. BYKO hf. 43.486.449.
Fjarðarkaup hf. 39.354.871. Brynjólf-
ur hf. Njarðvík 35.048.152. P. Samú-
elsson 30.249.965. Byggingaverktak-
ar Keflavíkur hf. 29.990.690. Hag-
virki hf. 25.530.000. Og Dverghamar
sf. 20.346.162.
Heildargjöld einstaklinga í Reykja-
vík nema kr. 16.796.207.560. Heild-
argjöld lögaðila nema 6.310.131.862.
Heildargjöld barna nema 12.238.557.
Þeir einstaklingar sem bera hæst
heildargjöld eru Þorvaldur Guð-
mundsson kr. 33.111.401. Skúli Þor-
valdsson 13.484.583. Jón I. Júlíusson
12.270.576. Stefán Sigurkarlsson
10.431.826. Sigurður G. Jónsson
9.629.530. Andrés Guðmundsson
9.337.209. Kristján P. Guðmundsson
9.094.593. Sveinbjöm Sigurðsson
8.959.558. Emanúel Morthens
8.796.372. Og Gunnar Hafsteinsson
8.573.637.
Þeir lögaðilar sem bera hæst heild-
argjöld í Reykjavík em I.B.M. World
Trade Corporation hf. kr.
285.968.659. Eimskipafélag íslands
hf. 161.049.385. Hagkaup hf.
123.706.442. Olíufélagið hf.
115.651.733. Samband íslenskra
samvinnufélaga 109.536.330. Ingvar
Helgason hf. 97.663.662. Flugleiðir
hf. 97.489.112. Búnaðarbanki Islands
95.671.114. Olíuverslun íslands hf.
81.222.228. Og Landsbanki íslands
77.733.165.
-aá.
Sigríður Theodóra Kristinsdóttir stýrír hér Vöku til sigurs í tölt-
keppni unglinga á Suðurlandsmótinu í hestaíþróttum sem fram fór
um síðustu helgi á Gaddastaðaflötum við Hellu. Annars varð Þórð-
ur Þorgeirsson sigursælli öðrum á mótinu. Hann vann fjórgang,
tölt og íslenska tvíkeppni á hestinum Bessa. Tímamynd: GTK
Þorsteinn Pálsson tilkynnir samdrátt í þorskveiðum:
7-8 MILLJARÐA AFALL
í gær kynnti sjávarútvegsráðherra
tillögur sínar um veiðar næsta
fískveiðiár. Þær gera ráð fyrir að
265 þúsund tonn veiðist af þoski
og 110 þúsund tonn af síld. Þetta
er talið að muni þýða að útflutn-
ingstekjur minnki um 7-8 millj-
arða króna og telur sjávarútvegs-
ráðherra að þetta komi við hvert
einasta heimili í landinu. Sjómenn
verða fyrir gífurlegri tekjuskerð-
ingu sem nemur hugsanlega um
1500 milljónum og útgerðin verð-
ur fyrir gífurlegu höggi sem óvíst
er hvemig hún lifír af.
í reglugerð sem sjávarútvegsráð-
herra kynnti í gær í sambandi við
þorskveiðar fer hann bil beggja þar
sem Hafrannsóknastofnun hafði
mælt með 250 þúsund tonnum en
LÍÚ 280 þúsund tonnum. Sjávarút-
vegsráðherra gerir tillögu um veiði
á 110 þúsund tonnum af sfld sem er
meira en gert var ráð fyrir áður en
„svarta skýrslan" var birt um miðj-
an júlí.
Á fundinum kom fram að einungis
á að auka við sfldaraflann en afli á
öðrum tegundum sjávarfangs er
annaðhvort skertur eða óbreyttur.
Sjávarútvegsráðherra álítur að
verðmæti botnfiskaflans minnki
um 10 til 12% milli ára og segir að
það muni þýða um 7 til 8 milljarða
króna samdrátt í útflutningstekjum
íslendinga. Hann segir að þetta
muni snerta hvert einasta heimili í
landinu.
Þá kom jafnframt fram að fresta á
ákvörðun um leyfilegan heildarafla
á loðnu þar til niðurstöður úr
haustleiðangri Hafrannsóknastofn-
unar liggja fyrir í nóvembermánuði
nk.
Þar sem nýtt fiskveiðiár hefst nú 1.
september nk. mun sjávarútvegs-
ráðuneytið senda útgerðarmönnum
veiðileyfi og tilkynningu um afla-
mark fiskiskipa vegna komandi fisk-
veiðiárs um miðjan ágústmánuð.
Þá kynnti sjávarútvegsráðherra á
fundinum ný ákvæði um hagræð-
ingu í útgerð. Það telst helst til ný-
mæla að nú verður aðeins heimilt
að endurnýja gamalt fiskiskip með
jafnstóru eða minna fiskiskipi. Þetta
er gert til að fiskveiðiflotinn minnki
hraðar en áður. í máli Þorsteins
kom jafnframt fram að hann hyggst
leggja fram frumvarp á Alþingi í
haust um breytingu á lögum um
Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins.
Þar ætlar hann að leggja til að
heimild sjóðsins til að greiða úreld-
ingarstyrki verði hækkuð til að flýta
enn fyrir fækkun fiskiskipa.
Þeir hagsmunaaðilar sjávarútvegs-
ins sem haft var samband við segja
að þetta sé gífurlegt áfall.
Áhyggjur
af síldveiðum
Jakob Magnússon, aðstoðarfor-
stjóri Hafrannsóknastofnunar, segir
að fiskifræðingar hafi séð það verra
á undanförnum árum, aðspurður
um 15 þúsund tonna aukningu á
þorskaflanum umfram tillöglur
þeirra. „Það hefur oft verið farið
miklu meira fram úr tillögum okk-
ar,“ segir Jakob. Hann hefur meiri
áhyggjur af aukningu sfldveiða en
sjávarútvegsráðherra hefur gert til-
lögu um veiðar á 110 þúsund tonn-
um en fiskifræðingar höfðu ráðlagt
veiðar á 80 þúsund tonnum. Jakob
segir það áhyggjuefni að ganga á
sfldarstofninn sem sé í góðri sókn.
Þó álítur hann að stofninn muni
ekki hrynja við þetta.
Stórfelld
kjaraskerðing
„Þetta þýðir stórfellda kjaraskerð-
ingu fyrir sjómannastéttina ekki
síður en fyrir aðra í þjóðfélaginu.
Mér sýnist án ábyrgðar að þetta geti
þýtt um 1500 milljóna króna kjara-
skerðingu fyrir hana. Það er stað-
reynd sem ég tel að við stöndum
frammi fyrir að afrakstur fiskistofn-
anna er ekki eins mikill og afkasta-
geta flotans. Það er því annaðhvort
að sníða sér stakk eftir vexti eða
láta slag standa og fiska meira held-
ur en fiskifræðingar segja til um.
Ég er því miður samvisku minnar
vegna ekki talsmaður þess,“ segir
Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambands íslands. Hann
segist ekki hafa neina ástæðu til að
vanmeta þessa niðurstöðu fiski-
fræðinga um ástand fiskistofnanna
og telur að sjávarútvegsráðherra
hafi tekið skynsamlega ákvörðun
þó auðvitað sé aldrei hægt að vera
sáttur við slíka ákvörðun eðli henn-
ar vegna.
„Óvíst hvemig
menn lifa þetta af.“
„Þetta er gríðarlega alvarlegt mál.
Þetta er gífurlegt högg fyrir útgerð-
ina sem maður sér ekki hvernig
verður leyst. Það er ekki hægt að sjá
hvernig menn lifa þetta af,“ segir
Kristján Ragnarsson, formaður
Landsambands íslenskra útvegs-
manna. „í sjálfu sér ber ekki svo
mikið á milli þess sem ráðherrann
ákveður og þess sem við lögðum til
því við lögðum til gríðarlega skerð-
ingu þegar við töluðum um að fara
niður í 280 þúsund tonn af þorski
úr 320 þúsund tonnum sem var
áætlaður heildarafli. Þetta gerðum
við af því við höfðum áhyggjur af að
árgangar kynnu að vera lélegir. Við
höfum deilt við Hafrannsóknastofn-
un um Grænlandsgöngu. Á aðal-
fundi LÍÚ í fyrra var okkur sagt að
Grænlandsganga myndi koma 1991
og 1992. Nú segja þeir okkur að hún
hafi komið árið 1990 og 1991. Það
vantar talsvert á tiltrú okkar á nið-
urstöður Hafrannsóknastofnunar,"
segir Kristján Ragnarsson, formað-
ur Landssambands íslenskra út-
vegsmanna.
Hann segir að m.a. þess vegna séu
útgerðarmenn hissa á að sjávarút-
vegsráðherra skuli fylgja þessum
skerðingartiliögum svona vel eftir,
því verið sé að leggja upp með
minni þorskveiðikvóta en verið hef-
ur frá stækkun landhelginnar 1976.
- HÞ