Tíminn - 31.07.1991, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 31. júlí 1991
HHHI ÁRNAÐ HEILLA
85 ára:
Jóhann Jóhannesson
Kvöld-, nætur- og holgidagavarsla apótoka I
Roykjavík 26. júll tll 1. ágúst er I
Laugamesapótoki og Árhæjarapótekl. Það
apótek sem fyrr er nefnt annast eltt vörsl-
una frá kl. 22.00 aö kvöldi til kl. 9.00 að
morgnl virka daga en kl. 22.00 á sunnudög-
um. Upplýsingar um læknls- og lyfjaþjón-
ustu eru gefnar I slma 18888.
„J.J.“-stafimir standa fyrir Jóhann
Jóhannesson. Meðal íþróttafélag-
anna um 1930 var hann nefndur
„Jói Long“. í 63 ár hefur hann verið
iðkandi íþrótta, keppandi, í stjórn
GHmufélagsins Ármanns, formaður
einnar deildar þess og rekstrarstjóri
íþróttamiðstöðvar félagsins. Engan
skyldi því furða þó efnt sé til móts
honum til heiðurs er hann verður
85ára31.júlínk.
Ávallt er það varhugavert stjórn
stórs félags gagnvart samheldni fé-
lagsmanna að gera dagamun til
heiðurs einum eða fleirum innan
hópsins. „J.J.“ hefur sérstöðu og
heiður honum sýndur orkar ekki
tvímælis, eins og þegar hefur verið
minnst á og verður betur gert hér á
eftir — en það er þetta „Hlaupa-,
göngu- og skokk-“ mót við Ár-
mannsheimilið við Sigtún daginn
fyrir J.J.-mótið sem stofnað er til í
heiðursskyni við nafngreinda heið-
ursþjarka og afreksöldunga. Undir-
ritaður er einn öldunganna. Mæti
ég, þá geri ég það leiður, því að
margir sem varpað hafa ljóma á nafn
félagsins með störfum sínum,
keppni, unnum meistara- og met-
titlum eða fært félaginu stig á stór-
mótum hafa enga heiðrun hlotið, þó
að náð hafi háum aldri. Ég tek sem
dæmi aðeins fjögur nöfn úr hinum
stóra hópi aldraðra forystumanna
og afreksmanna Ármanns: Sigurð
Inga Sigurðsson mjólkurfræðing,
prestana Marinó Kristinsson og
Grím Grímsson og Guðjón Hans-
son. Renna má huga til allra þeirra,
sem enn eru á lífi en voru virkir um
1930 og því nú aldraðir en gerðu
kappmót, sýningar innan lands og
utan glæsilegar með þátttöku sinni
— og veittu þeim sem sigurlaunin
hlutu harða keppni. Þessum ágæta
stóra hópi heill og þakkir.
Sný ég mér þá aftur að J.).“ og
frjálsíþróttamóti Ármenninga.
Framkvæmdanefndin hefur tileink-
að J.).“ og mótinu kjörorðin Hreyf-
ing — Vellíðan — Bindindi — Heil-
brigði. Til að keppa á mótinu verður
fræknasta íþróttafólk okkar og frá
Eistlandi. Enginn vafi er á að þeir,
sem koma á Varmárvöll miðviku-
daginn 31. júlí, munu njóta þar
góðrar keppni við frábærar aðstæð-
ur.
J.J.-mótÁrmenninga í frjálsum íþróttum
Á allsherjarmóti ÍSÍ 1929 stóð svo
glöggt með stigafjölda hinna „stóru"
félaga þriggja, er seinasta grein
mótsins skyldi hefjast, sem var 10
km ganga, að tækist Ármenningum
að ná þriðja sæti þá var stigafjöldi fé-
lags þeirra mestur. Ármenningurinn
Jóhann Jóhannesson var meðal
göngumanna. Þol hans, mýkt og
viljafesta komu honum á löngum
skrefum í annað sætið. Þar með
vann Ármann virt verðlaun.
Árið 1928 gekk Jóhann í Glímufé-
lagið Ármann og ári síðar var hann
kominn í stjórn þess. Hann tók þá
þegar aö annast málefni frjálsíþrótta
og eftir 15 ár í stjórninni var stofnuð
frjálsíþróttadeild félagsins. Jóhann
varð formaður og starfaði af ötul-
leika sem slíkur til 1979 — og þó
hann léti af formennsku hefur hann
unnið frjálsíþróttum félagsins óslit-
ið síðan og eigi látið öldrun hefta
sig.
Jóhann fæddist í Reykjavík 31. júlí
1906. Foreldrar hans voru Jónína
Rósinkransdóttir og Jóhannes Sig-
urðsson, löngum kenndur við Stein-
húsið. Börn þeirra voru ein dóttir og
fimm synir. Fjölskyldan fluttist út f
Viðey er Jóhann var átta ára og þar
ólst hann upp til 16 ára aldurs.
Fermdist í hinni gömlu virðulegu
Viðeyjarkirkju. Átta ára dvölin á
eynni varð honum ævintýri, þó oft
væri þrældómur ærinn á fiskreitum
og í fiskhúsum við uppskipun og út-
skipun. Hlaup voru á milli staða í
sendiferðum og vandist Jóhann því
fljótt að greikka sporin og lengja
hlaupaskrefm.
Úr nágrannasveitum komu ung-
mennafélagar til vinnu í Viðey, t.d.
Þorgeir í Varmadal og Gísli í Fitja-
koti sem urðu snemma góðir
íþróttamenn. Þeir efndu til kapp-
hlaups úr þorpinu að búinu (Viðeyj-
arstofu) og til baka um 3ja km veg.
Jóhann var hvattur til að reyna sig.
Lét til leiðast og varð fyrstur. Þetta
var upphaf íþróttaferils hans, sem
lauk 1936 er hann sigraði í 800 m
hlaupi „öldunga".
Fluttur í land gerðist Jóhann iðk-
andi knattspyrnu í Val. Jens Guð-
björnsson kom auga á langleggjaðan
ungling og fékk hann til að spreyta
sig í 5 km hlaupi Ármanns þar sem
keppt var um bikar sem fótfrár
Skaftfellingur hafði unnið tvisvar.
Jóhann vann, en þótti leitt síðar er
hann varð þess áskynja að sá, sem
var bikarhafi, tók sér nærri að missa
af bikarnum. Bikarinn vann Jóhann
síðar til eignar.
Úr þessu tók Jóhann að þjálfa sig og
æfa hlaup. Veturinn 1929-30 naut
hann leiðbeininga sænsks þjálfara,
Evert Nielson (Vestervik-Nielson),
sem hér starfaði fyrir væntanlegt
mót tengt Alþingishátíð. Á mótinu
vann Jóhann 800m, 1500m og llOm
grindahlaup og var í sigursveit 1500
m boðhlaupsins (800, 400, 200 og
lOOm). Jóhann var hlaupari í milli-
vegalengdum og í grindahlaupi.
Hann lagði þó til við langhlaupara
meira af félagshyggju en sigurvon.
Þátt tók hann í Álafosshlaupi og
varð þriðji á eftir Oddgeiri Sveins-
syni og Magnúsi Guðbjörnssyni.
Tvisvar keppti hann í Hafnarfjarðar-
hlaupi og varð í öðru sæti í bæði
skiptin. Meistaramót íslands 1931
fór fram í Vestmannaeyjum og var
Helgafellshlaup aukagrein (úr Her-
jólfsdal, kringum Helgafell og inn í
Herjólfsdal). Jóhann varð þriðji á
eftir Karli Sigurhanssyni og Magn-
úsi Guðbjörnssyni.
Þannig mætti draga upp á yfirborð-
ið minninganna brot úr afrekssögu
Jóhanns, en slíkt er ófáanlegt hjá
íþróttamanninum sjálfum.
Um þriggja ára skeið var Jóhann í
íþróttaráði Reykjavíkur, en það var
fyrir tíð íþróttabandalags Reykjavík-
ur og Frjálsíþróttasambands íslands
og því nógar annir.
Fram til 1938 að Jóhann gerðist
dreifingarmaður mjólkurafurða
Mjólkursamlags Reykjavíkur, vann
hann hjá Reykjavíkurhöfn og í
Sænska frystihúsinu. Hjá Mjólkur-
samlaginu vann Jóhann í 38 ár.
Eftir að Jóhann vegna aldurs hætti
störfum við dreifingu mjólkuraf-
urða, tók hann að helga sig starf-
rækslu íþróttamiðstöðvar Ármanns.
Þessi störf hafa verið meira þegn-
skapur en atvinna. Formann félags-
ins bar eitt sinn að húsakynnum í
miðstöðinni, sem voru nýmáluð, og
varð að orði: „Hver hefur afrekað
þetta?" Einhverjum varð að svari:
„Hver annar en hann Jóhann?" Við
þessi krefjandi þjónustustörf hlaut
Jóhann sjúkdóm í andlit og missti
framan af tveim fingrum á hægri
hendi.
Undan fjárskorti kvarta íþróttafélög
sífellt. Sala getraunaseðla bætti hag-
inn, en hún krafðist eljusemi fárra
félaga. f ellefu ár annaðist Jóhann
þessa sölu fyrir Ármann og hafði af-
skipti af 32 sölustöðum.
Slík störf, jafnframt að sinna fullri
atvinnu, hefði Jóhann ekki getað
unnið félagi sínu nema að eiga
stuðning og samstiga áhuga eigin-
konu. Árið 1941 kvæntist Jóhann
Þórnýju Guðrúnu Þórðardóttur (f.
24. apríl 1912). Þórný var stórvirkur
Ármenningur að málum félagsins,
þó sérstaklega tengdum leikfimi.
Hún var um árabil í úrvalsflokkum
Ármanns undir stjóm Jóns Þor-
steinssonar. Hún tók þátt í 2 utan-
förum og 4 lengri ferðum innan-
lands. Börn þeirra hjóna eru þrjú,
barnabörn 3 og barnabarnabörn 2.
Hinn mæti Ármenningur og hús-
móðir, Þórný, lést um aldur fram
1982.
Við Ármenningarnir eigum Jó-
hanni margt að þakka, en ekki síður
konu hans, börnum og mökum
þeirra. Megi þau í mótinu finna
virðingu og þakklæti.
Heill þér 85 ára íþróttamaður og
þökk ykkur unga íþróttafólki, sem
veitið okkur ánægju með keppni og
heiðrið ,J.J.“
Þorsteinn Einarsson
Auglýsing
um að álagningu launaskatts á árinu 1991 sé lokið.
Tilkynningar (álagningarseðlar), er sýna launaskatt
sem skattstjóra ber að ákvarða, hafa verið póstlagð-
ar. Hér er annars vegar um að ræða launaskatt, skv.
b- og c-liðum 4. gr. laga nr. 14/1965 um launaskatt
með áorðnum breytingum, og hins vegar launaskatt
skv. 3. gr. sömu laga sem greiða bar af greiddum
launum á árinu 1990.
Kærur vegna álagðs launaskatts, sem skattaðilum
hefur verið tilkynnt um með álagningarseðli 1991,
þurfa að hafa borist skattstjóra eða umboðsmanni
hans eigi síðar en 29. ágúst 1991.
31. júlí 1991.
Skattstjórinn í Reykjavík. Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi. Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi. Ólafur Helgi Kjartansson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumd. vestra. Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumd. eystra. Gunnar Rafn Einarsson.
Skattstjórínn í Austuríandsumdæmi. Karl Lauritzson.
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi. Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum. Ingi T. Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi. Sigmundur Stefánsson.
RSK
RÍKISSKATTSÍJÓRI
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu, lang-
ömmu og langa-langömmu
Þorgerðar Jónsdóttur
frá Vík
Erlendur Einarsson Margrét Helgadóttir
Steinunn Einarsdóttir Fink Albert Fink
Erla Einarsdóttir Gísli Felixson
og fjölskyldur
Systir okkar
Elín Ástmarsdóttir
lést að Elliheimilinu Grund 30. júll.
María Ástmarsdóttir,
Ingólfur Ástmarsson
Ncyöarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátlöum. Slm-
svari 681041.
Hafnarfjöröun Hafnarfjarðar apótek og Norö-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar I símsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartlma búða. Apó-
tekin skiptast á slna vikuna hvort aö sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. A kvöldin er
opið I þvf apóteki sem sér um þessa vörslu, ti!
kl. 19.00. Á helgidögum er opiö frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum timum er lyfja-
fræöingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar i
síma 22445.
Apótek Keflavfkur: Opið virka daga frá k.
9.00-19.00. Laugardaga, helgidaga og al-
menna frídaga ki. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opiö virka daga frá
kl. 8.00-18.00. Lokað i hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opiö til kl. 18.30.
Opið er á laugardögum og sunnudögum ki.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opiö virka daga
til kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabær: Apótekiö er opiö mmhelga daga
kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Alnæmisvandinn. Samtök áhugafólks um
alnæmisvandann vilja styöja smitaöa og sjúka
og aðstandendur þeina, slmi 28586.
Læknavakt fyrir Reykjavík, Soltjamames og
Kópavog er í Heilsuvemdarstöð Reykjavlkur
alla virka daga firá kl. 17.00 til 08.00 og á laugar-
dögum og heigidögum allan sólarhringinn.
A Soltjamamosi er læknavakt á kvöldin Id.
20.00-21.00 og laugand. kl. 10.00-11.00. Lokaö á
sunnudögum. Vitjanabeiönir, slmaráöleggingar
og tímapantanir I sima 21230. Borgarspltalinn
vakt frá Id. 08-17 alla virka daga fyrir fölk sem
ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans
(slmi 696600) en slysa- og sjukravakt (Slysa-
deild) sinnlr slösuöum og skyndiveikum allan sól-
arhringinn (simi 81200). Nánari upplýsingar um
lyfjabúðir og iæknaþjónustu erugefnar I slm-
svara 18888.
Ónæmisaögeröir fyrir fulloröna gegn mænusótt
fara fram á Heilsuvomdarstöö Reykjavfkur á
þriöjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi meö sér
ónæmisskirteini.
Garöabær: Heilsugæslustööin Garöaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, simi 656066. Læknavakt er I
sima 51100.
Hafnarfjörðun Heilsugæsla Hafnarijaröar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, sími 53722. Læknavakt slmi 51100.
Kópavogur Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Simi 40400.
Keflavfk: Neyðarþjónusta er allan sölartiringinn
á Heilsugæslustöð Suöumesja. Slmi: 14000.
Sálræn vandamál: Sátfræðistöðin: Ráðgjöf f
sálfræðilegum efnum. Simi 687075.
Landspítalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19
til kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl.
15-16. Heimsóknartlmi fyrir feöur kl. 19.30-
20.30. Barnaspftall Hringslns: Kl. 13-19 alla
daga Öldrunaríækningadeild Landspítal-
ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomu-
lagi. - Landakotsspítali: Alla virka kl. 15 til kl.
16 og kl. 18.30 til 19.00. Barnadeild 16-17.
Heimsóknartlmi annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. - Borgarspftallnn f Fossvogi: Mánu-
daga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir
samkomulagi. Á laugardögum og sunnudögum
kl. 15-18.
Hafnarbúðir: Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvíta-
bandiö, hjúkrunardeild: Heimsóknartími frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnudaga
kl. 14-19.30. - Hellsuvemdarstöðln: Kl. 14 til
kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavikur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspitall:
Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl.
19.30. - Flókadoild: Alla daga kl. 15.30 til kl.
17. Kópavogshællö: Eftir umtali og kl. 15 til kl.
17 á helgidögum. - Vífilsstaöaspítali: Heim-
sóknartlmi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. -
SL Jósopsspitali Hafnarflröi: Alla daga kl.
15-16 oo 19-19.30.
Sunnuhlið hjúkrunarheimili I Kópavogi: Heim-
sóknartlmi kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
SJúkrahús Keflavfkurlæknlshiraðs og
heilsugæslustöövar: Vaktþjónusta allan sólar-
hringinn. Simi 14000. Keflavfk-sjúkrahúsió:
Heimsóknartlmi virka daga kl. 18.30-19.30.
Um helgar og á hátlöum: Kl. 15.00-16.00 og
19.00-19.30. Akureyri- sjúkrahúsið: Heim-
sóknartlmi alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-
20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraöra
Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarösstofuslmi frá
kl. 22.00- 8.00. slmi 22209. Sjúkrahús Akra-
ness: Heimsóknartlmi Sjúkrahúss Akraness er
alla daga kl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30.
Reykjavik: Neyöarsimi lögreglunnar er 11166
og 000.
Seltjamames: Lögreglan simi 611166,
slökkviliö og sjúkrabifreiö sími 11100.
Kópavogur: Lógreglan slmi 41200, slökkviliö
og sjúkrabifreiö slmi 11100.
Hafnarfjöröun Lögreglan simi 51166, slökkvi-
liö og sjúkrabrfreiö slmi 51100.
Keflavík: Lögreglan slmi 15500, slökkvilið og
sjúkrabill simi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjar: Lögreglan, slmi 11666,
slökkviliö slmi 12222 og sjúkrahúsiö slmi
11955.
Akureyri: Lögreglan símar 23222, 23223 og
23224, slökkviliö og sjúkrabifreiö simi 22222.
Isafjöröur: Lögreglan slmi 4222, slökkviliö simi
3300, brunasimi og sjúkrabifreiö simi 3333.