Tíminn - 31.07.1991, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 31. júlí 1991
Tíminn 13
10 ára afmælisþing L.F.K.
Landsþing Landssambands framsóknarkvenna verður haldið í
Reykjavík dagana 4. og 5. október nk. að Borgartúni 6.
í tilefni af 10 ára afmæli Landssambands framsóknarkvenna býð-
ur Félag framsóknarkvenna í Reykjavík til skoðunarferðar föstu-
daginn 4. október. Við heimsækjum fyrirtæki og stofnanir borgar-
innar, sem ekki eru alltaf til sýnis almenningi, undir leiðsögn Sig-
rúnar Magnúsdóttur og Sigríðar Hjartar.
Um kvöldið verður sameiginlegur kvöldverður í boði FFK.
Laugardagskvöldið 5. október er lokahóf Landsþingsins að Borg-
artúni 6, sem jafnframt verður afmælishóf með skemmtidagskrá.
Við hvetjum framsóknarkonur um land allt til að taka frá dagana
4. og 5. okt. og fjölmenna á afmælisfagnaðinn.
Undirbúningsnefndin
Stefna ’91 — Sauðárkróki
Fræðsluráðstefna SUF verður haldin helgina 30. ágúst-1. sept-
ember n.k. Ráðstefnan er opin öllum ungum framsóknarmönnum
alls staðar af landinu og verður ráðstefnugjaldi stillt í hóf. Gist
verður í heimavist Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki og fyrirlestrar
munu fara fram I sal skólans. Eftir ráðstefnuna verður flölmennt á
héraðsmót framsóknarmanna í Skagafirði, sem haldið verður að
Miðgarði og mun hinn þjóðfrægi Geirmundur Valtýsson leika fýrir
dansi.
Dagskrá ráðstefnunnar verður auglýst síðar. SUF-arar eru hvatt-
ir til að skrá sig sem fyrst á skrifstofu Framsóknarflokksins, Hafn-
arstræti 20, eða í síma 624480.
Framkvæmdastjórn SUF
Sumarhappdrætti Framsókn-
arflokksins 1991
Dregið var í Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 12. júlí sl.,
en númerin eru í innsigli hjá Borgarfógeta til 5. ágúst 1991. Vel-
unnararflokksins, sem ekki hafa greitt heimsendan gíróseðil, eru
hvattir til að gera skil eigi síðar en 5. ágúst. Það er enn tækifæri
til að vera með. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokks-
ins, Hafnarstræti 20, III. hæð, eða í síma 91-624480.
Framsóknarflokkurinn.
AUGLYSINGASIMAR TIMANS:
680001 & 686300
Auglýsing
um að álagningu opinberra gjalda á árinu 1991 sé lokið.
í samræmi við ákvæði 1. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981
um tekjuskatt og eignarskatt er hér með auglýst að
álagningu opinberra gjalda á árinu 1991 er lokið á alla
aðila sem skattskyldir eru skv. 1. kafla framangreindra
laga.
Álagningarskrár verða lagðar fram í öllum skattum-
dæmum miðvikudaginn 31. júlí 1991 og liggja frammi
á skrifstofu hvers skattumdæmis og hjá umboðs-
mönnum skattstjóra í hverju sveitarfélagi dagana 31.
júlí-14. ágúst að báðum dögum meðtöldum.
Álagningarseðlar skattaðila, er sýna álögð opinber
gjöld 1991, húsnæðisbætur, vaxtabætur og barna-
bótaauka, hafa verið póstlagðir.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda, húsnæð-
isbóta, vaxtabóta og barnabótaauka, sem skattaðilum
hefur verið tilkynnt um með álagningarseðli 1991,
þurfa að hafa borist skattstjóra eða umboðsmanni
hans eigi síðar en 29. ágúst 1991.
31. júlí 1991.
Skattstjórinn í Reykjavík. Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi. Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi. Ólafur Helgi Kjartansson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumd. vestra. Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumd. eystra. Gunnar Rafn Einarsson.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi. Karl Lauritzson.
Skattstjórinn í Suðuriandsumdæmi. Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum. Ingi T. Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi. Sigmundur Stefánsson.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
W
Dallasveisla í Astralíu
Þótt hætt sé að framleiða þætt-
ina um fjöiskylduna á South-
forkbýlinu fyrir utan Dallas í
Texas, eru þeir enn sýndir víða
um heim og eiga sér marga aðdá-
endur.
Ástralir eru sumir hverjir hrifn-
ir af þáttunum um fjölskylduna
og vandamál hennar, og nýlega
brugðu nokkrir af aðalleikurum
Dallas sér til Ástralíu og var tekið
með kostum og kynjum.
Á myndinni eru Linda Grey, sem
lék Sue Ellen, Larry Hagman sem
heimsfrægur er fyrir frammi-
stöðu sína sem sjáifur J.R., og
kona hans Maj, í boði hjá ástr-
ölskum aðdáendum. Þeir slógu
upp mikilii grillveislu að Texassið
og steiktu heilan grís. í Texas eru
það að vísu naut sem þeir grilla
helst. En eftir svipnum á veislu-
gestum að dæma er grísinn af-
bragð og Dallasfólki samboðinn.
Au-
fúsu-
gest-
ur
Norman Schwarzkopf, stríðs-
hetja og yfírmaður sameinaðs
herafla Eyðimerkurstormsins,
sem sallaði íraka út úr Kúveit, er
alls staðar aufúsugestur og eftir-
sóttur í samkvæmi fína fólksins.
Hann er nú að skrifa endur-
minningar sínar og hefur þegar
selt þær fyrir svimandi upphæð
og koma þær út í bókarformi á
næsta ári.
í heimalandi Normans er frægur
dansflokkur kenndur við Will Ro-
gers að viðbættu Follies dancers.
Þar skemmta misjafnlega mikið
klæddar stúikur gestunum og og
þykir mörgum gaman að horfa á
þær.
Hershöfðinginn sigursæli og
vinsæli brá sér á sýningu stúlkn-
anna um daginn og voru þar svo
uppnumdar að þær drifu hann í
sinn hóp. Haft er fyrir satt að
hann hafi leynst betur í dular-
búningi sínum í eyðimerkur-
stríðinu en meðal berbossa
stelpna hjá honum Will Rogers.
'J' itb.-'O.VJ'í'Ch'
W\ Dlíi'bV
! kxi ' » /'AvSr 'j"I j