Tíminn - 31.07.1991, Side 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Halnarhusinu v Tryggvagotu.
S 28822
UtBflBBÉffltflBSKIPn
SAMVINNUBANKANS
SUOURLANDSBRAUT 18. SlMI: 688S68
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstaklinga
SIMI
91-676-444
Tíminn
MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ1991
Utanríkismálanefnd fjallar um viðurkenningu Rússlands á Litháen. Eyjólfur Konráð gerir sér vonir um að:
■ ■ 12! K U IPPS Ui LA:
SAI í )ÁNi ES' n 1 D
„Það eru mikil og góð tíðindi að Rússland skuli hafa viðurkennt
Litháen og Litháar Rússland. Ríkisstjórnin er einmitt að fjalla
um það nú að við klárum það mál. Fjórum sinnum hefur verið
ályktað um málið á Alþingi og nú liggur beinast við að fylgja
þeim eftir með því að taka upp stjórnmálasamband við Litháen.
Ég vona að það verði nú á allra næstu dögum,“ segir Eyjólfur
Konráð Jónsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis.
í gær fjallaði utanríkismálanefnd hann hefur á samskipti íslands og
AJþingis um nýgerðan samning Litháen. Aðrir nefndarmenn taka í
Rússlands og Litháen og hver áhrif sama streng og Eyjólfur Konráð,
en vilja fara hægar í sakirnar.
.Alþingi hefur lýst því yfir að það
ætli að taka upp stjómmálasam-
band við Litháen. Eg held að því
hljóti að hafa verið full alvara með
því og fari nú að vinna að því. Það
getur vel verið að það kosti okkur
einhver óþægindi. En við verðum
að taka prinsippafstöðu í þessu
máli,“ segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, fulltrúi Kvennalistans
í utanríkismálanefnd.
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins og
fulltrúi í utanríkismálanefnd, seg-
ir: „Þessi samningur Rússa og Lit-
háa sætir miklum tíðindum og
boðar gott. Við þurfum að skoða
hann vandlega á næstu dögum.
Ég hef haft mínar efasemdir um
að við gerðum Litháum mikinn
greiða með því að taka upp stjórn-
málasamband við þá. En þeir hafa
víst undirbúið vegabréfaútgáfú og
ef þeir geta staðið undir sérstöku
stjómmálasambandi þykir mér að
við eigum að athuga það.
Ég vil vitaskuld gera allt sem get-
um til að hjálpa Litháum. En við
megum ekki rasa þar um ráð fram.
Þetta mál breytir fyrri mynd hins
vegar ansi mikið."
—SE/-aá.
Stígamót verða með ráðgjafa á tveimur útihátíðum:
Nauðganir á
útihátíðum
fiölmargar
Því miður hefur rcynslan sýnt að
útihátíðir hafa orðið vettvangur fjöl-
margra nauðgana og annarrar kyn-
ferðislegrar misnotkunar.
Ráðgjafar frá Stígamótum verða á
tveimur stærstu útihátíðunum um
verslunarmannahelgina, þ.e. bæði í
Vestmannaeyjum og í Húnaveri.
Ráðgjafamir verða í samvinnu við
heilsugæslu og lögreglu á þessum
stöðum. Ef til kemur verða ráðgjaf-
amir tilbúnir til að veita fólki stuðn-
ing ef það verður fyrir nauðgun.
Stígamót veita þolendum kynferð-
islegs ofbeldis ráðgjöf og stuðning.
Hingað til hafa Stígamót unnið með
afleiðingar nauðgana og því er þetta
í fyrsta sinn sem nokkurs konar for-
varnarstarf á sér stað. Búið er að
dreifa veggspjöldum víðs vegar um
landið og er ætlað að vekja alla, sér-
staklega unglinga og foreídra þeirra,
til umhugsunar um þessi mál.
Ingibjörg Guðmundsdóttir, starfs-
kona hjá Stígamótum, sagði í sam-
tali við Tímann að forvarnir hefðu
mikið að segja, nei þýðir nei og
nauðgun er glæpur, ekki eitthvað
sem er allt í lagi. „Það hefur miklar
afleiðingar fyrir þann sem verður
fyrir nauðgun. Þetta er alvara og
þetta gerist. Skilaboðin sem við vilj-
um koma áleiðis em þau að vinkon-
ur á útihátíð fylgist vel með hverri
annarri, og eins með vini. Ef fólk sér
að eitthvað er ekki í lagi á það að
skipta sér af því," segir Ingibjörg.
Hún sagði að það væri opinbert
leyndarmál að mikið væri um að
stelpum væri nauðgað á útihátíðum.
„Það hafa komið til okkar margar
stelpur sem hefur verið nauðgað á
útihátíðum. Þeim líður mjög illa og
hafa margar ekki kært þennan glæp,
jafnvel ekki sagt neinum frá honum.
Þeim þykir einnig skammarlegt að
hafa verið nauðgað," sagði Ingibjörg
Guðmundsdóttir, starfskona Stíga-
móta.
Algengt viðhorf hjá fólki er að stelp-
ur á útihátíðum geti sjálfúm sér um
kennt ef þær verða fyrir nauðgun og
ÞÝÐIR
NEi
Veggspjald frá Stígamótum.
segja jafnvel að þetta sé ekki glæpur
þar sem stelpan hafi verið dauða-
drukkin. En málið er að nei þýðir nei
og nauðgun er glæpur. -SIS
Minni háttar hitabylgja
Hörður Þórðarson hjá Veðurstofu
íslands segir í samtali við Tímann
að hitabylgjan núna væri svona
minni háttar útgáfa af þeirri sem
gekk yfir landið fyrr í júlí. Hörður
segir að það vanti töluvert upp á
það að þessi hlýindi séu alveg eins
krassandi. Það má segja að þetta sé
svona suðaustan átt með lofti frá
Evrópu.
Hörður segir að þeir á Veðurstof-
unni séu með tvær tölvuspár í tak-
inu. önnur gerir ráð fyrir því að
lægð fari að nálgast landið frekar
þegar líður að helgi og hæðin láti
þá heldur undan. Hin spáin heldur
hæðinni aftur betur. Þess vegna er
veðurútlitið um verslunarmanna-
helgina heldur óljóst enn sem
komið er.
-j*
Veggmyndin „Lífsþræöir" eftir Gunnsteln Gíslason. Tímamynd: PJetur
Anddyri RALA við Keldnaholt fær á sig nýjan blæ:
VEGGMYND
AFHJÚPUÐ
í gær, þriðjudag, var afhjúpuð
veggmynd eftir Gunnstein Gíslason
í anddyri Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins við Keldnaholt í
Reykjavík. Erla Fahrestveit, eigin-
kona Gunnsteins, afhjúpaði verkið.
Nafn myndarinnar er „Lífsþræðir"
og er tákngildi hennar nýkviknað líf
er breiðir úr sér og brýtur sér leið.
Myndin er 9 m2 að flatarmáli og er
unnin í múrristu. Formin eru borin
uppi af 14 mm ryðfríum stálteinum
er halda formunum í um eins cm
fjarlægð frá veggnum en stáltein-
amir eru jafnframt hluti af heildar-
myndbyggingunni. Myndskreyting-
arsjóður ríkisins styrkti gerð verks-
ins.
Þorsteinn Jónsson, forstjóri RALA,
sagði við þetta tækifæri að viðeig-
andi væri að hafa listaverk á stofnun
sem þessari, þar sem þar ynnu lista-
menn á sviði náttúruvísinda. Verkið
yrði til að auðga hugmyndaauðgi
starfsmanna og gerði umhverfið fal-
legra.
Sturla Friðriksson dr.phil. flutti
ljóð sitt „Lífsþræðir" eftir að verkið
var afjúpað.
Gunnsteinn Gíslason er fæddur 13.
sept. 1946. Hann stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1963-1967 í kennaradeild og frjálsri
myndlist. Hann innritaðist í Edin-
burgh College of Art 1967 og lagði
stund á veggmyndagerð. Hann lauk
prófi þaðan 1969. Hann hefur m.a.
kennt við Myndlista- og handíðaa-
skólann og við myndlistadeild Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti. Gunn-
steinn hefur tekið þátt í þó nokkrum
fjölda samsýninga og haldið nokkrar
einkasýningar.
-SIS