Tíminn - 30.10.1991, Side 3
Miðvikudagur 30. október 1991
Tíminn 3
Sambýli fyrir fimm geðfatlaða einstaklinga að Þverárseli 28 tók til starfa í gærkvöld:
Löqbanni á sambvlió
hafnað í fóaetarétti
Sambýli fyrir fimm heimilislausa geðsjúka einstaklinga að Þverárseli 28 tók til starfa í gærkvöld, eftir
að fógetaréttur hafði hafnað lögbanni á starfsemi þess. Tímamynd: Áml BJama
„Kröfu gerðarbeiðenda, íbúa við
Þverársel, Þingasel, Þjóttusei, Þránd-
arsel og Þúfusel samkvæmt gerðar-
beiðni, um að lagt verði iögbann við
því að gerðarþoli, Svæðisstjóm mál-
efna fatlaðra í Reykjavík, hefji starf-
rækslu sambýiis fyrir fimm heimilis-
lausa geðsjúklinga í húsinu nr. 28 við
Þverársel í Reykjavík, er hafnað."
Þetta er úrskurðarorð borgarfógeta í
lögbannsmáli sem flutt var í fógeta-
rétti Reykjavíkur 21. okt sl., en úr-
skurðurinn féll í gær. Vaitýr Sigurðs-
son borgarfógeti kvað upp úrskurð-
inn. Tíminn greindi ítarlega frá þessu
máli þriðjudaginn 22. þ.m. í gær-
kvöldi var reiknað með að fyrstu íbú-
amir flyttu strax inn í sambýlið.
Það voru 33 íbúar húsa í næsta ná-
grenni Þverársels 28 sem kröfðust
lögbanns á starfsemi sambýlis fyrir
hina fimm geðsjúku og heimilislausu.
fbúamir töldu að samkvæmt óskráð-
um reglum nábýlisréttar væri þeim
ekki skylt að þurfa að sæta því að byrj-
að væri að starfrækja stofnun í hverfi
sem skipulagt væri sem hreint íbúða-
hverfi. Sambýlið myndi óhjákvæmi-
lega hafa í för með sér umferð, fast-
eignaverð í næsta nágrenni gæti
lækkað, auk þess sem öryggi bama,
unglinga og annarra íbúa gæti orðið
minna en áður.
í forsendum úrskurðar fógeta segir
að sú ákvörðun félagsmálaráðuneytis-
ins að veita leyfi til að starfrækja sam-
býlið að Þverárseli 28 sé þáttur í fram-
kvæmd laga um málefni fatlaðra. Þar
sem leyfið hafi þegar verið veitt, hafi
það ekki komið til skoðunar í lög-
bannsmálinu, enda beindist lögbanns-
krafa gerðarbeiðenda ekki að leyfis-
veitingu ráðuneytisins sem slíkri.
Samkvæmt 26. gr. laga nr. 18/1949
um kyrrsetningu og lögbann megi
leggja lögbann við athöfn stjómvalds,
ef athöfnin varðar meðferð einstak-
Iingsréttinda, banna skuli athöfn í
þágu einstaks manns eða ef telja má
að stjómvald hafi farið út fyrir vald-
svið sitt. Gerðarþoli — Svæðisstjóm
um málefni íatlaðra — sé stjómvald
við framkvæmd laga nr. 41/1983 um
málefni fatlaðra. Sú athöfh gerðar-
þola, sem krafist var lögbanns við, sé
því þáttur í stjómsýslu hins opinbera.
Hún varði ekki meðferð einstaklings-
réttinda og fari ekki fram í þágu ein-
staks manns. Samkvæmt beinu
ákvæði 26. gr. laga nr. 18/1949 verði
því ekki lögbann lagt við starfrækslu
sambýlisins, enda verði ekki séð að
svæðisstjómin hafi farið út fyrir vald-
svið sitt.
Fyrsti jólasveinninn kom-
inn í búðarglugga í
Reykjavík, en á öðrum
stað en venjulega:
Hefur Ramma-
geröin tapað
kapphlaupinu?
„Þetta er nú bara fatagína í jóla-
sveinabúningi úti í búðarglugga.
Rammagerðin heldur sínu striki og
við verðum fyrst með jólasveininn
að venju," sagði Jón Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Rammagerðar-
innar, í gær þegar honum voru sögð
þau tíðindi að fyrsti jólasveinninn
væri kominn út í búðarglugga í
Reykjavík — en ekki í Rammagerð-
inni, eins og venjan hefur verið um
áratugi, heldur í versluninni Exit við
Laugaveginn.
„Það stelur enginn jólasveininum
frá Rammagerðinni. Hann kemur
þangað fyrsta nóvember eins og allt-
af, og þangað kemur hann sam-
kvæmt samningi Rammagerðarinn-
ar og Grýlu móður hans,“ sagði Jón
ennfremur. —sá
Hinn grunaði
látinn laus
í gærkvöld var búist við að maður-
inn, sem verið hefur í haldi undan-
farna sólarhringa, grunaður um að
hafa valdið dauða félaga síns í
Njarðvík sl. sunnudag, yrði látinn
laus. Bráðabirgðaniðurstöður
krufningar benda til þess að sá látni
hafi ekki látist af höfuðáverkum
þeim, sem á líkinu voru. —sá
Frá iandsráðstefnu Samtaka herstöðva-
andstæðinga á laygartíag:
—sá
37. sambandsþing Ungmennafélags íslands:
völd harðlega
í stjómmálaályktun iandsráð- halda í herstöðvar
stefnu Samtaka herstöðvaand- manna. í „
stæðinga, sem haldin var á laugar- segir orðrétt: „íslensk stjómvöld
dag, gagniýna samtökin harðlega grátbæna stjómvöld vestur í
íslensk stjómvöld fyrir stefnu Bandaríkjunum um að draga fyrir
aína í máiefnum herstöðvar alla muni ekkert úr umsvifum
Bandaríkjanna. hersins (setuliðsins) á íslandi.“
í fréttatílkynningu samtakanna Enn fremur seglr að ísiensk
segir að á meðan Sovétríkin séu stjómviild hafi dæmt ísiand úr
að ifðast í sundur, Varsjárbanda-
séu að flytja hersveítír sínar í
Austur- Evrópu heim og í Evrópu
herstöðvar Nato, þá sé það yfiriýst
stefna ísienskra stjómvalda að
ieik í friðarviðleitn) annarra þjóða.
Einnig ályktuðu Samtökin um
omhverfismái og er þar lögð
hemaði og hermennsku tylgja,
hæðiá mannvirkjum og á náttúru.
ISLENSRT KOTLU
KAKOMALT
Kötlu kakómalt er íslensk fram-
leiðsla unnin eftir nýrri uppskrift,
sem nú er hafin sala á. Síðastlið-
inn vetur var í gangi yfirgripsmik-
il leit að Kötlu-kakómaltsstrák og
stelpu sem skuli standa fyrir
ímynd vörunnar um ókomna
framtíð. Alls tóku 160 krakkar þátt
í leitinni og voru þau Róbert Orri
og Guðrún Elfa valin úr. Þau gefa
vörunni hressilegt og íslenskt yfir-
bragð sem vekur athygli. -js
Biluðum bílum
á að koma út fyrir
vegarbrún!
IUMFERÐAR
RÁÐ
Afmælis- og minningargreinar
Þeirn, sem óska birtingar á afmælis- og/eða
minningargreinum i blaðinu, er bent á, að þær burfa
Þœr þurfa að vera vélritaðar.
Landsmóti UMF11994
37. sambandsþing Ungmennafé-
lags íslands, haldið í Húnavalla-
skóla 26. og 27. október, samþykkti
að fresta 21. landsmóti UMPÍ, sem
vera átti á Laugarvatni 1993, til
ársins 1994. Þá var ákveðið að
kanna möguleika á því að tyrirhug-
að landsmót í Borgamesi verði
haldið 1997 í stað 1996.
Pálmi Gíslason var endurkjörinn
formaður UMFÍ með þéttu lófataki.
Mikil umskipti urðu hins vegar í
stjóm UMFÍ. í aðalstjórn eiga sæti:
Kristján Yngvason HSÞ, Þórir Har-
aldsson HSK, Sigurlaug Hermanns-
dóttir USAH, Jóhann Ólafsson
UMSE, Sigurjón Bjarnason UÍA og
Ólína Sveinsdóttir UMSK. í vara-
stjórn eiga sæti Matthías Lýðsson
HSS, Ingimundur Ingimundarson
UMSB, Sigurbjörn Gunnarsson
UMFK og Gígja Sigurðardóttir
UMSS.
Þingið samþykkti að fela Eyfirðing-
um að standa fyrir Unglingalands-
móti UMFÍ fyrir 16 ára og yngri árið
1992, þar sem lögð verði áhersla á
fjölbreytta skemmti- og afþreying-
ardagskrá sem höfði bæði til ung-
linga og hinna sem eldri eru. Þá
samþykkti þingið að stefna að því að
halda fjölskylduhátíð ungmennafé-
laganna ár hvert í Þrastarskógi, fyrst
árið 1992, þar sem boðið verði upp á
ýmsa skemmtan, s.s. varðeld, söng,
keppni í starfsíþróttum o.fl. -EO
AUGLYSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1983- 2.fl. 1984- 3.fl. 1988-3.fl.D 3 ár 01.11.91-01.05.92 12.11.91-12.05.92 10.11.91 kr. 54.093,65 kr. 58.558,70 kr. 17.563,87
*)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteína ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, október 1991.
SEÐLABANKI ÍSLANDS