Tíminn - 30.10.1991, Qupperneq 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 30. október1991
Fulltrúar Araba og ísraela komnirtil ráðstefnu í Madrid:
Friðarráðstefna um málefni
Miðausturlanda er hafin
Fríðarráðstefna um málefni Miðausturlanda hófst í Madríd á Spáni
í dag. Til fundaríns eru komnir fulltrúar frá Miðausturiöndum, en
hann er haldinn að frumkvæði Bandaríkjamanna og Sovétmanna
sem tilraun til að koma á sættum í þessum heimshluta. Ekki er vit-
að hvort einhver árangur verður af ráðstefnunni, en þetta er sögu-
leg stund.
Áður en ráðstefnan hófst áttu þeir
Mikhafl Gorbatsjov, forseti Sovétríkj-
anna, og George Bush, forseti Banda-
ríkjanna, saman fund í Madrid í gær.
Forsetamir tveir báðu Araba og ísra-
ela að gera sitt ýtrasta til að leysa úr
ágreiningsefnum sínum, en atburð-
imir í Líbanon vörpuðu nokkmm
skugga á fund þeirra í gær. Þar drápu
öfgasamtök að minnsta kosti þrjá ísra-
elska hermenn í sprengjuárás í suður-
hluta Líbanon. Árásimar vom ber-
sýnilega tengdar friðarráðstefnunni.
Einnig skaut róttækur Palestínumað-
ur tvo ísraela til bana, en þeir vom að
koma af fúndi í Tel Aviv.
Forsetamir borðuðu saman hádegis-
mat í sovéska sendiráðinu og funduðu
svo síðar um daginn. Eftir fundinn
héldu þeir svo blaðamannafund.
Embættismenn sögðu áður en fund-
urinn hófst að þeir ætluðu að ræða
um friðarfund Miðausturlanda. Einn-
ig var hjálp Vesturlanda við Sovétríkin
á dagskrá.
Bush Bandaríkjaforseti sagði að
fundurinn væri ekki haldinn til að
komast að einhverju samkomulagi,
heldur væri þetta meira spjallfundur.
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra
ísraels, sem fer fýrir sendinefnd sinn-
ar þjóðar, sagði að fáir hefðu búist við
ísraelum á þennan fund, en þeir
kæmu með friðarvilja.
Þetta er í fyrsta sinn sem ísraelar,
Sýrlendingar, Líbanir, Jórdanir og Pal-
estínumenn koma saman til fundar til
að ræða sín mál.
Á mælendaskrá em Felipe Gonzalez
forsætisráðherra Spánar, George
Bush, Mikhafl Gorbatsjov, sendinefnd
Evrópubandalagsins, Borís Pankín ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna, James
Baker utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna. Sendinefndir allra þjóðanna,
sem taka þátt í ráðstefnunni, em einn-
ig á mælendaskrá. Hún stendur fram á
föstudag.
Reuter-SIS
Ráðherrar EB komust að samkomulagi um verndun fiskistofna:
STÆRRI MÖSKVAR
OG TAKMARKANIR
Á LENGD REKNETA
Ráðherrar Evrópubandalagsins
komust að samkomulagi um vernd-
un fískistofnana í gær, eftir tveggja
ára deilur.
Manuel Marin, framkvæmdastjóri
sjávarútvegsdeildar EB, sagði að
loksins væri einhver skilningur
kominn á að vemdunaraðgerðir
væm óhjákvæmilegar.
Samkomulagið takmarkar fiskveið-
ar í reknet og kveður á um hvenær
ákvæði um stærri möskvastærð við
veiðar í Norðursjó verði tekin upp.
Manuel Marin var að vonum
ánægður með þetta samkomulag,
en áður en það var samþykkt hafði
hann hótað að þvo hendur sínar af
þessu máli og skipta sér ekki meira
af því, heldur láta sjávarútvegsráð-
herra EB-landanna um það sjálfa. í
tilefni þessara tímamóta skálaði
hann í kampavíni við landbúnaðar-
og sjávarútvegsráðherra Hollands,
Piet Bukman.
Frakkar fengu leyfi til að veiða tún-
fisk í Atlantshafi í reknet. Reknet
em álitin hættuleg spendýrum sem
lifa í sjó, og Manuel Marin lagði til
að notkun rekneta, sem em lengri
en 2,5 km, verði bönnuð. Skip, sem
hafa notað reknet við túnfiskveiðar í
norðausturhluta Atlantshafs í að
minnsta kosti 2 ár, mega nota tvo
slík net, sem verða þá samtals 5 km
þar til í desemberlok árið 1993. Eftir
það verða þau að takmarka sig við
2,5 km löng net, nema vísindaleg
gögn sýni fram á að slík takmörkun
sé ónauðsynleg.
Franskir fiskimenn komu til Lúx-
emborgar í gær til að mótmæla til-
lögum Marins, og sögðu að það væri
ekki þörf á að höfmngar væm
verndaðir á þennan hátt og þeir
kæmu sjaldan í net þeirra.
Annað lykilatriði í samkomulaginu
er að ákveðið hefur verið að auka
möskvastærð, til að vernda smá-
fiska, frá og með 1. júlí árið 1992.
Þetta er sérstaklega gert til verndar
þorski og ýsu, en þeir stofnar hafa
hrunið ískyggilega mikið. Með auk-
Bandaríkin:
Ofbeldis-
glæpum fer
fjölgandi
inni möskvastærð em meiri líkur á
að minni fiskar komist í gegn og
verði ekki veiddir í sama mæli og
nú.
Ráðherrar ákveða síðar, í ljósi vís-
indalegra niðurstaðna, hvort þörf
verður á enn meiri stækkun
möskva, og það yrði þá fyrir 1. janú-
ar 1995. Danmörk var eina landið
sem greiddi atkvæði á móti þessum
samningi, vegna banns á vél sem
flokkar út of smáa fiska og hendir
þeim í sjóinn aftur.
Reuter-SIS
Loksins hafa ráðherrar EB komist að samkomulagi um vemdun
fiskistofna.
Fangar brenndust til bana í uppþoti í Rio de Janeiro:
Meira en 30
brenndust illa
Fimmtán fangar létust og meira en
30 brenndust alvarlega í eldi, sem
kveiknaði í uppþotum fanga í fang-
elsinu í Rio de Janeiro í Brasilíu á
mánudag.
Abel Fernandes lögregluforingi
segir að mótþróafullir fangar hafi
kastað heimatilbúinni sprengju
niður í kjallara í Ary Franco-fang-
elsinu, rétt eftir að yfirvöld höfðu
fúndið göng sem notuð höfðu verið
til að flýja úr fangelsinu. Með þessu
kveiknaði eldur sem breiddist fljótt
út, með þeim afleiðingum að 15
fangar dóu.
Að minnsta kosti 30 fangar eru
með mjög slæm brunasár, sem
þekja meira en tvo þriðju hluta lík-
amans. Enginn fangi slapp í upp-
þotunum. Slökkviliði tókst að
slökkva eldinn. Meira en 100 her-
menn og borgarlögreglan voru
sendir til aðstoðar í fangelsinu, að
sögn Fernandes. Vanalega eru að-
eins 5 fangaverðir á vakt, en 1.200
fangar eru vistaðir í Ary Franco-
fangelsinu.
Reuter-SIS
Samningur
um viðskipti
undirritaður
Svíar hafa skrífað undir tvihliða við-
skiptasamning við Lettland og Eist-
land. Utanríkisráðuneyti Svíþjóðar
tilkynnti þetta í gærmorgun.
í tilkynningunni stendur að þetta sé
fyrsta skrefið í átt að vináttusam-
bandi á milli þjóðanna og til frjálsra
viðskipta þeirra á milli.
Samningurinn var undirritaður í
Tallin í Eistlandi og í Ríga í Lett-
landi.
Talsmaður utanríkisráðuneytisins
sagði að þessi samningur væri líkur
þeim sem Svíar hafa gert við þjóðir í
Austur-Evrópu. Reuter-SIS
Ofbeidisglæpum fer fjölgandi í
Bandaríkjunum. Þeim fjölgaði um
tæp 5% fyrstu sex mánuði þessa
árs, að sögn alríkislögreglunnar
(FBI) á sunnudag. Þá hefur morð-
um fjölgað, svo og glæpum tengd-
um fíkniefnum.
Síðan árið 1987 hefur ofbeldisglæp-
um farið fjölgandi um 5% á hverju
ári, nema árið 1990 þegar þeim
fjölgaði um 10% samkvæmt skýrsl-
um FBI.
FBI segir að öllum alvarlegum
glæpum hafi fjölgað um 2% á þessu
ári. Þá er verið að tala um ofbeldis-
glæpi og svokallaða fátækraglæpi.
Með þeim er átt við innbrot, þjófnaði
og slíkt.
Ef tekið er tillit til ákveðinna svæða
hækkaði tala glæpa um 4% í mið-
vesturfylkjunum, 3% í suðurfylkj-
unum, en í norðausturfylkjunum
fækkaði glæpum um 3%.
f stórborgum Bandaríkjanna fór
skráðum glæpum örlítið fækkandi
eftir því sem leið á árið.
Athuga ber að þetta eru aðeins töl-
ur yfir skráða glæpi. Reuter-SIS
FRETTAYFIRUT
MADRID - Yitzhak Shamir, forsætisráðherra
fsraels, sagði að morðið á tveimur israelskum
hermönnum myndi ekki setja fríðarráðstefnuna í
Madrid út af laginu, en hún hófst i dag.
JERÚSALEM * ísraelar segja að fimm hermenn
hafi slasast og tveir arabiskir skæruliðar látist í
sprengingu í suðurhluta Lfbanon f gær.
TÝSUS » ðfgasinnaðir skæmliðar héfdu uppi
árásum á israelskar hersveitir f suðurhluta Líban-
on í gær, til aö sýna andstöðu sína við fríðarráð-
stefnuna f Madrid.
GAZA - Paiestinsk ungmenni, sem vanalega
berjast við (sraelska hermenn, gáfú þeim óiífú-
greinar i gær i óskipulögðum aðgerðum ta stuðn-
ings friöarráðstefnunni.
MADRID • Mikhafl Gorbatsiov, forseti Sovétrikj-
anna, hítti George Bush, forseta Bandaríkjanna, 1
gær i fyrsta sinn síöan reynt var að ræna völdum
í Moskvu sl. ágúst