Tíminn - 30.10.1991, Page 5
Miðvikudagur 30. október 1991
Tíminn 5
Unga fólkið hlustar betur á það, sem Einar Oddur segir, en það eldra:
f skoðanakönnun, sem Pélagsvís-
Indastofnun Háskóla íslands hef-
ur gert fyrir BSRB, kemur fram að
80% hjóðarinnar vi«a að
92% teija
ástæöu til ad auka sérstakkga
kaupmitt lágra launa.
Skoðanakönnunin var gcrð dag-
ana 11.-19. okt Úrtakið var 1500
manns á aldrinum 18 til 75 ára.
Alls fengust svör frá 1056 manns
allstaðar af landinu.
í könnuninni var spurt: „Telur
þú æskiJegt eða óæskilegt að í
ekki.
f síðustu spurningu var spurt:
„Telurðu að þjóðarbúíó þolí núna
að samiö verði um einhverjar
hækkanir á kaupmætti?" 56,9%
svöruðu spurningunni
32,1%
11.0% sögðust ekki vita svaríð.
I svörum við fyrstu og annarri
samið um aukinn kaupmátt launa-
taxta?“ 79,4% svöruðu að það
væri æskilegt, 6,3% að það væri
ýmsu háð, 8,8% að það væri
óæskilegt og 5,6% sögðust ekki
víta svarið.
í annarri spurningu var spurt-
„En telurðu æskilegt eöa óæski-
legt að samið verði sérstaklega um
aukinn kaupmátt lágra Iauna?“
92,4% svðruðuæskilegt, 1,9% að
það væri ýmsu háð, 3,2% svöruðu
óæskilegt og 2,5% svöruðu veit
ur telja æskílegra að hækka launin
en kariar, 84% kvennaá mótí 75%
karla. Ekki er verulegur munur á
fólki eftlr starfsstéttum, td. telja
yfir 90% atvinnurekenda ástæðu
til að auka kaupmátt lægstu launa.
Stjómmálaskoðanir fólks virðast
eldri skipta höfuðmáli, þegar spurt
er um viðhorf þess tfl aukins
kaupmáttar. Þó má gretna að
minnstur stuðningur við kaup-
hækkanir er meðal sjáífstæðis-
manna. en mestur meðal kjósenda
Kvennalistans og Alþýðubanda-
Það vekur nokkra athygii að unga
fóllrið, á aldrinum 18-24 ára, virð-
ist hafa þá skoðun að í dag þoli
þjóðarbúið ekki auldnn kaupmátt.
kjaric úr þessu fólkL
Ögmundur sagði að skoðana-
könnunin sýndl svo ekki verðl um
að f komandi
verði satnlð um
átt launataxta. Nlð-
vantar raikið
á að kauptaxtar séu í samræmi við
r. í þessari kiinnun
Ögmundur Jónasson, formað-
ur BSRB. TfmaTOymJ Aml BJam*
43,4% fólks á þessum aldri sr’ör-
uðu þriðju spurningunni ncitandi,
en 38,8% játandi. Ögmundur Jón-
asson, formaður BSRB, sagði
greinilegt að Einari Oddi og félög-
um hans hj& VSf hafi tekist, með
svartsýnlsspám sínum, að draga
verði leiðrétt,".
Nýlega lét Vinnuveitendasam-
band íslands gera skoðanakönuun
um afstöðu þjóðarinnar til þjóðar-
sáttar. Af könnuninni mátti skilja
að meirihluti þjóöarinnar væri
hlynntur kjarasamningum án
launahækkana. Ögmundur sagði
að VSÍ hefðl túlkað niðurstöður
könnunarinnar með mjög rillandi
hætti. Þegar betur sé að gáð, komi
í ijós að um var að ræða meirihluta
þeirra 42% sem á annaö borö tóku
afstöðu með því að samið verði á
sama hátt og í kjarasamnlngum
árið 1990. -EÓ
Náttúruverndarráð
ávarpar veiðimenn:
Sýnið
drenglyndi
Náttúruvemdarráð vill minna veiði-
menn á að stunda veiðiskapinn af
drengiyndi og virða lög og reglur
um veiðar og ferðir um landið.
Náttúruvemdarráð minnir og á að
jörð er viðkvæm eftir hiýindi og úr-
komu, þrátt fyrir snjóskafla í niður-
gröfnum slóðum. Því er mikil hætta
á landspjöllum. Því minnir Náttúru-
vemdarráð á að akstur utan vega er
bannaður.
Náttúruvemdarráð vill og taka
fram að bannað er að veiða fugla af
vélknúnum farartækjum. Og að síð-
ustu að veiðar í þjóðgörðunum í
Jökulsárgljúfrum, Skaftafelli og
Þingvöllum, sem og í friðlöndunum
Herdísarvík, Herðubreið, Horn-
ströndum, Hvannalindum, Kring-
ilsárrana, Þjórsárveri, Búðahrauni,
Flatey, Geitlandi, Húsafellsskógi,
Lónsöræfum og Vatnsfirði, og enn á
fólkvöngunum í Neskaupstað og
Hólmanesi eru bannaðar. -aá.
Útvarpsráð:
Halldóra
formaður
Ólafur G. Einarsson menntamála-
ráðherra hefúr skipað Halldóru J.
Rafnar lögfræðing formann Útvarps-
ráðs, í stað Ingu Jónu Þórðardóttur
sem sagði af sér fyrir nokkru. Hall-
dóra stýrði fúndi Útvarpsráðs í fyrsta
sinn síðastliðinn föstudag. -EÓ
Bergþór Hávarðarson á skútunni Nakka, sem
náði loks höfn eftir um 60 daga svaðilför frá
Bandaríkjunum:
Verður víst að
kallast ógæfa
„Það er erfitt að búa sig undir
svona lagað. Þetta er hlutur sem
verður náttúrlega að kallast ein-
hverskonar ógæfa. Það fær ekki
hver maður, sem siglir yfir hafið, á
sig fellibyl. En ef eitthvað fer úr-
skeiðis, þá kemur alltaf aftur og aft-
ur upp í hugann: Hefði ég ekki get-
að gert betur? Nú, en líðanin er
núna býsna góð og hendur og fætur
lagast þrátt fyrir þennan kulda og
þessa vosbúð í 20 daga,“ sagði
Bergþór Hávarðarson í samtali við
Tímann í gær og var hinn hressasti.
Það voru skipverjar á Katrínu VE,
sem komu auga á neyðarblys frá
Nakka um 12 sjómflur sunnan við
Surtsey og drógu þá vélar-, segl- og
ailslausa skútu Bergþórs til hafnar í
Vestmannaeyjum. Þangað komu
þeir seint á mánudagskvöld, eftir að
Bergþór hafði verið um 60 daga á
sjó.
Bergþór Hávarðarson lagði úr höfn
í Palm Beach þann 29. ágúst, en
hann hefur síðustu 18 mánuðina
búið í St. Martin. Þangað sigldi
Bergþór árið 1989, með viðkomu á
írlandi, Asóreyjum og Kanaríeyjum.
Á St. Martin keypti hann Nakka,
gerði hana upp og sigldi á henni
heim.
Fljótlega eftir brottförina frá Palm
Beach lenti Bergþór í óhagstæðum
vindi, en fyrir rúmum 20 dögum fór
gamanið fyrst að káma fyrir alvöru.
Þá lenti Bergþór í fellibyl sem reif
segl og toppinn ofan á húsi skútunn-
ar. Eftir það var ferð Bergþórs ein
svaðilför og má teljast mikil mildi að
hann náði iandi.
„Ég var algerlega sambandslaus
þessa 60 daga sem ég var á sjó, fyrir
utan að einu sinni náði ég sambandi
við bandarísku strandgæsluna, en þá
var allt í himnalagi um borð. Dvölin
var erfið, en það byrjaði ekkert al-
mennilega að syrta í álinn fyrr en ég
var kominn norður fyrir 50. gráðu,
þá var sjórinn orðinn svo kaldur og
mikil rigning og súid. Fellibylurinn
tafði mig mjög á leiðinni. Ég varð að
taka á mig mikinn krók, því eina
leiðin til að lifa fellibylinn af var að
halda honum á bakborðshlið. Ég
vissi það að fellibylurinn myndi fara
í austur, þannig að ég varð að taka
stefnuna vestur. Ég náði nú ekki að
koma neinu niður á kort meðan á
þessu gekk, en við vorum að gera
það í dag og þar má sjá að þetta var
geysilega mikill hlykkur. En að Iok-
um losnaði ég náttúrlega við hann,“
sagði Bergþór.
„Þetta bendir manni náttúrlega á
það, að ef maður ætlar að gera eitt-
hvað svona þá verður maður að
vanda alveg gífurlega vel til þess. Þá
verður öryggisbúnaður að vera alveg
í toppstandi. Auðvitað fer maður aft-
ur á sjóinn. Maður velur sér fag og
annað hvort límist maður við það
eða ekki.“
„Ég er nú ekki búinn að plana neitt
ennþá, en ég reikna með að ég geri
það. Það er voðalega gott að vera
þarna í hlýjunni á Flórída. En eins
og segir í skáldverkinu góða: Römm
er sú taug, sem rekka dregur föður-
túna til. Þig Iangar alltaf að snúa aft-
ur þangað sem þú varst borinn og
barnfæddur og þar sem fólk talar
þetta safhmál sem við tölum."
-PS
■ EVRÓPSKT EFNAHAGSSVÆDI:
S
YEGABREF
S
INN I 21. OLDINA
Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráSherra
boðar til almennra borgarafunda um EES-
samninginn sem hér segir:
ísafjörbur, mánudaginn 28. okt. kl. 20:30
í Stjórnsýsluhúsinu.
Vestmannaeyjar, fimmtudaginn 31. okt.
kl. 20:30 á Höf&anum.
Sigluf jörður, föstudaginn 1 . nóv. kl.
21:00 á Hótel Höfn.
Húsavík, laugardaginn 2. nóv. kl. 1 1:00
í félagsheimilinu.
Dalvík, laugardaginn 2. nóv. kl. 16:00
í félagsheimilinu Víkurröst.
Að loknu inngangserindi svarar ráðherrann spurningum
fundarmanna. Fundarstjóri: Þröstur Ólafsson
UTANRIKISRAÐUNEYTIÐ