Tíminn - 30.10.1991, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 30. október 1991
Tíminn 9
Á aðalfundi Bandalags íslenskra listamanna kom fram að
ísland gæti orðið sviplaus og menningarsnauður útkjálki:
Mörkum framsækna
menningarstefnu
Aöalfundur Bandalags íslenskra listamanna var haldinn síðastliðinn
iaugardag. Fundarmenn benda á að íslendingar standa nú á þrösk-
uldi nýrra tíma, en þátttaka í Evrópsku efnahagssvæði mun hafa í
för með sér grundvallarbreytingar á lífsskilyrðum og menningarlífí
í landinu.
Fjölmargir óttast að þessi auknu
samskipti grafi undan íslenskri
þjóðmenningu og leiði til þess að
íslensk tunga eigi undir högg að
sækja. Listamenn telja að sá ótti sé
ekki ástæðulaus. Þess vegna verða
íslendingar nú þegar að bregðast
við þessum miklu breytingum með
því að marka framsækna menning-
arstefnu, sem felur í sér stórátak
sem styrkir þær stoðir sem íslenskt
menningarlíf hvílir nú á. Slíkt átak
ætti ekki síst að beinast að skóla-
og fræðslumálum og að því að efla
með öllum ráðum, sem við þekkj-
um, nýsköpun á sviði vísinda og
lista. Þá kemur fram að fjárlaga-
frumvarpið endurspegli sinnuleysi
stjórnvalda, og svo geti farið að ís-
land verði sviplaus og menningar-
snauður útkjálki.
Á aðalfundinum var harðlega
mótmælt 62% niðurskurði til
Listasafns Sigurjóns Ólafssonar,
sem gert er ráð fyrir í fjárlaga-
frumvarpi. Verði fjárveiting ekki
hækkuð úr þeim tveimur milljón-
um króna, sem gert er ráð fyrir í
frumvarpinu, er fyrirsjáanlegt að
loka verður safninu. Listasafn Sig-
urjóns er sjálfseignarstofnun og
því í eigu þjóðarinnar. Jafnframt
var því eindregið mótmælt að AI-
þýðuleikhúsið skuli hafa verið
svipt fjárveitingu sinni í fjárlög-
um, en leikhúsið hefur sinnt mik-
ilvægu hlutverki í uppeldi leikhús-
listamanna í 16 ár.
Aðalfundur Bandalags íslenskra
listamanna skorar á Alþingi að sjá
til þess að þessi starfsemi geti
haldið áfram. -js
Erlendum farmönnum fjölgar í íslenska kaupskipaflotanum með EES:
Meirihluti kaup-
skipaflotans siglir
undir erlendum fána
í íslenska kaupskipaflotanum eru nú 41 skip, þar af 24 skráð und-
ir erlendum fánum. Um 100 erlendir sjómenn eru starfandi á skip-
unum sem sigla undir erlendum fána, en það er um 27% sjómanna
í flotanum. Þetta hlutfall fer hækkandi. Þetta kom fram í svari sam-
gönguráðherra við fyrirspurn frá Guðmundi Hallvarðssyni alþingis-
manni.
Guðmundur sagði að það hefði far-
ið mjög í vöxt á seinni árum að ís-
lensk skipafélög skrái skip sín undir
erlendum fánum, svokölluðum
Sakadómur Reykjavíkur hefur, að
kröfu Rannsóknarlögreglu ríkisins,
úrskurðað 26 ára gamlan mann í
gæsluvarðhald til 8. nóvember,
vegna rannsóknar á dauða 36 ára
gamals Njarðvíkings, en hann
fannst látinn á sunnudag á heimili
sínu í Ytri-Njarðvík.
Annar maður, sem handtekinn var
skömmu síðar, var á mánudagskvöld
látinn laus og er ekki talið að hann
sé viðráðinn málið.
þægindafánum. Um er að ræða
tvenns konar leiguform. Annars
vegar þurrleiga, þ.e. leiga án áhafn-
ar, og hins vegar tímaleiga þar sem
Mennirnir tveir voru saman í áhöfn
báts frá Sandgerði og höfðu verið að
skemmta sér saman, á aðfaranótt
sunnudags, ásamt skipsfélögum sín-
um. Hinn látni, ásamt þeim sem nú
er í gæsluvarðhaldi og þeim sem
sleppt var, fóru um nóttina á heimili
hins látna. Sá þriðji yfirgaf þá síðan
og það er ekki fyrr en um klukkan
15.30 sem næst er vitað um gerðir
mannanna, en þá er tilkynnt til lög-
reglu um mannslátið. -PS
annað hvort væri alfarið erlend
áhöfn eða fáeinir íslendingar. Guð-
mundur sagði að þetta væri þróun
sem stjómvöld yrðu að bregðast við,
t. d. með því að veita skipafélögum,
sem eingöngu eru með íslenska
áhöfn á skipunum, skattafrádrátt.
Guðmundur sagði að Danir hefðu
farið þessa leið.
í svari Halldórs Blöndals sam-
gönguráðherra kom fram að ís-
lenskum farmönnum í kaupskipa-
flotanum hefur fækkað mikið á síð-
ustu árum. Árið 1988 voru stöðu-
gildi í flotanum um 500, þar af vom
u. þ.b. 425 unnin af íslendingum eða
85%. í apríl 1991 voru stöðugildin
465 og sinntu íslendingar um 340
þeirra eða 73%. Ráðherra skipaði í
vor nefnd til að skoða þessi mál, en
hún hefur enn ekki lokið störfum.
Hann sagðist ekki telja það vera
hlutverk stjórnvalda að hafa áhrif á
samninga hagsmunaaðila í þessu
efni. Ábyrgðin hvfldi fyrst og fremst
á herðum sjómanna og skipafélaga.
Svavar Gestsson minnti þingheim
á að með samningum um EES væri
verið að galopna þennan markað
fyrir erlendum aðilum. Hann sagði
að stjórnvöld ættu mjög erfitt með
að taka á þessu erfiða máli. -EÓ
Rannsókn á mannsláti í Ytri-Njarðvík á sunnudag:
í gæsluvarðhaldi
til 8. nóvember
Svavar Gests tekur við viðurkennlngu frá Félagi tónskálda og
textahöfunda úr hendi Magnúsar Kjartanssonar.
Tfmamyndir: Áml BJama
Sungið saman á
degi söngsins
Gunnar Hrafnsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra hljómlistar-
manna, segir í samtali við Tímann
að „íslenski tónlistardagurinn",
sem haldinn var sl. sunnudag, hafi
tekist ljómandi vel. Gunnar segist
ekki vita hversu margir hafi mætt í
bæinn, en það hafi að minnsta
kosti verið „Torgfylli" og flestir
hafi sungið með. Dagur tónlistar-
innar, fyrsti vetrardagur, er fyrst
og fremst hugsaður til að minna
fólk á að það er tónlistarlíf og tón-
listarfólk í landinu.
Jón Stefánsson stjórnar fjöldasöng á íslenskum tónlistardegi
Stefán Jón Hafsteln tekur við viðurkenningu f.h. Rásar 2 fyrlr
flutning á íslenskri tónlist, sem Magnús Kjartansson afhenti f.h.
Félags tónskálda og textahöfunda.
Sveinbjörn Björnsson háskólarektor, við brautskráningu stúdenta úr Háskóla íslands:
Viljum ekki skólagjöld
Sveinbjöm Bjömsson háskólarektor sagði við brautskráningu stúd-
enta úr Háskóla íslands um helgina, að Háskólinn myndi ótilneydd-
ur ekki nýta sér heimild um að innheimta skólagjöld af nemendum
sínum. Hann sagði að í upptöku skólagjalda fælist grandvallarbreyt-
ing á viðhorfum til skólamála og hætta væri á mismunun eftir efna-
hag námsmanna.
Sveinbjörn sagði að Háskólinn
hljóti að íhuga hvort hann geti hald-
ið áfram að innrita alla þá sem ljúka
stúdentsprófi, án þess að tryggt sé,
að þeir hafi nægan undirbúning fyr-
ir námið og án þess að auknar fjár-
veitingar komi til kennslunnar.
Fjöldi nemenda, sem ljúka stúd-
entsprófi, hefur aukist gífurlega á
síðustu árum. Lengi vel luku innan
við 30% bama af hverjum árgangi
stúdentsprófi. Nú er þetta hlutfall
komið upp í 70-80%. „Ljóst má vera
að hefðbundið háskólanám hentar
ekki mörgum þessara nemenda.
Eðlilegt er því að framhaldsskólam-
ir beini þeim nemendum inn á aðrar
brautir og veiti þeim annað lokapróf
en hefðbundið stúdentspróf. Vandi
Háskólans felst hins vegar í því að
samræmi í kennslu til stúdentsprófs
og einkunnum er orðið lítið, og því
verður ekki treyst að í stúdentsprófi
felist nægur undirbúningur til þess
að hefja nám með þeim hætti, sem
Háskólinn telur sér skylt að krefjast.
Jafnframt megum við búast við því,
að erlendir háskólar taki að efast um
gildi íslensks stúdentprófs," sagði
háskólarektor.
Á þessu hausti em innritaðir 5230
stúdentar í Háskóla íslands. Þeim
hefur fjölgað frá hausti 1988 til
þessa hausts um 935, eða um 312 á
ári. Háskólarektor sagði þennan
áhuga á námi vera Háskólanum
gleðiefni, en gleðin væri blandin
nokkmm áhyggjum. Fjárveitingar
til skólans hafi ekki aukist samhliða
fjölgun nemenda og því sé hætta á
að gæðum kennslunnar hraki, verði
ekkert gert.
Sveinbjörn sagði Háskólann vara
við því að farið verði inn á þá braut
að leggja á skólagjöld. Hann sagði
að Háskólinn muni ekki nýta sér
heimild til að leggja gjöldin á ótil-
neyddur. Reynslan sýni að gjöld sem
þessi hafi tilhneigingu til að hækka
og þau geti orðið efnalitlum náms-
mönnum vemleg hindmn, ef ekki
koma til styrkir á móti. Háskólarekt-
or sagði þau rök að skólagjöld stuðli
að bættri þjónustu Háskólans við
stúdenta ekki standast, meðan of lít-
il fjárveiting sé skorin niður sem
gjöldunum nemur. Hann sagði að ef
setia eigi hömlur á fjölda stúdenta í
H.Í. ætti fremur að beina þeim frá
sem hafi litla námsgetu en þeim
sem búa við bágan efnahag. -EÓ