Tíminn - 30.10.1991, Qupperneq 13
Miðvikudagur 30. október 1991
Tíminn 13
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjórans í Reykjavík og að
undangengnum úrskurði verða lögtök látin fara
fram án frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda, en
ábyrgð Gjaldheimtunnar að 8 dögum liðnum frá
birtingu auglýsingar þessarar fyrir eftirtöldum
gjöldum:
Vanskilafé, álagi og sektum skv. 29. gr. iaga nr.
45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, fyrir
7.-9. greiðslutímabil með eindögum 15. hvers
mánaðar frá ágúst til október 1991.
Reykjavík, 29. október 1991.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
----------------------------------------------------------\
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Hallgrímur Jónasson
fyrrum kennari við Kennaraskóla fslands
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju föstudaginn 1. nóvember kl. 13.30.
Ingvar Hallgrímsson
Jónas Hallgrímsson Hulda S. Ólafsdóttir
Þórir Hallgrímsson Sigríður H. Indriðadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
ÖKUMENN
Athugið að til þess að við komumst ferða okkar þurfum við að losna
við bifreiðar af gangstéttum. Kærar þakkir.
Blindirog sjónskertir.
=□—
yUMFERÐAR
t
PRAO
© Blindrafélagið
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNIl) ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Landsbygeðar-
ÞJÓNUSTA
fyrirfólk, stofnanir og
fyrirtæki á landsbyggðinnl
Pöntum varahluti og vörur.
Samningsgerð, tilboð í
flutninga.
Lögfræðiþjónusta, kaup og
sala bifreiða og húsnæðis.
Okkur er ekkert óviðkomandi,
sem getur létt fólki störfin.
LANDSBYGGÐ HF
Ármúla 5-108 Reykjavík
Símar 91-677585 & 91-677586
Box 8285
Fax 91-677568 • 128 Reykjavík
Donald Trump er greinilega með gráa fiðringinn:
Donald Trump lætur
Mörlu Maples sigla
Skjótt skipast veður í lofti í lífi
Donalds TYump. Ekki eru nema
fáar vikur síðan hann lýsti því yf-
ir að Marla Maples ætti einn dag
að verða kona sín. Nú er allt ann-
að upp á teningnum hjá karli.
Marla hefur fengið að sigla sinn
sjó, og búið er að gefa út yfirlýs-
ingu um að ekkert verði af vænt-
anlegri giftingu í framtíðinni.
En hann er ekki lengi einn í ból-
inu, því hann er kominn með
eina sem er enn yngri. Sú heppna
í þetta sinn heitir Kim Alley, en
starfar á sama vettvangi og Marla,
nefnilega við fýrirsætustörf. Það,
sem helst skilur þær að, er aldur-
inn, en Donald hefur enn yngt
upp hjá sér. Kim er ekki nema 21
árs gömul og er því sex árum
yngri en Marla, og að minnsta
kosti helmingi yngri en Donald
sjálfur og eiginkona hans fyrrver-
andi, Ivana.
Sama dag og tilkynnt var að ekk-
ert yrði af fýrirhugaðri giftingu
Donalds og Mörplu sást hann á
ferð með áðurnefndri Kim.
Kim Alley ber Donald söguna
vel: „Hann er mjög kynþokkafull-
ur maður, mun meira en allar
myndir af honum gefa til kynna.
Hann var mjög herralegur og
kurteis og reyndi ekki við mig.“
Donald var búinn að gefa Mörlu
trúlofunarhring sem er 9 millj-
óna virði. Hún ákvað að halda
hringnum, en unnustinn fýrrver-
andi segir að hann hafi fengið
demantshringinn ókeypis. „Ég
borgaði ekki krónu fyrir hring-
inn. Ég meina, heldur þú virki-
lega að ég færi að borga svo mik-
ið fyrir trúlofunarhring fyrir
Möriu? Ekki að ræða það,“ segir
Donald.
Ekki leið nema vika á milli þess
að Donald sagði að Marla væri
yndisleg kona og að hann vildi að
hún yrði eiginkona sín einn dag-
inn, og að hann sagði að nú væri
tími til kominn að líta í kringum
sig.
Eftir að Donald fór að „líta í
kringum sig“ skildi hann við eig-
inkonu sína og fljótlega eftir það
var hann orðaður við ítölsku fýr-
irsætuna Carla Bruni. Hún aftur
á móti neitaði því staðfastlega að
hún svo mikið sem þekkti Don-
ald. Hún fullyrti að hann reyndi
bara að breiða út kvennafarssög-
ur af sér, svo fólk héldi að hann
væri kyntröll.
Vínir Mörlu segja að þau Donald
hafi hætt saman eftir mikið rifr-
ildi í íbúð hennar í TYump Parc,
sem hún verði nú að flytja úr.
Enda varla við hæfi að búa þar
lengur, þar sem Donald er eig-
andi hússins.
Kim Alley er ung fyrirsæta
sem Donald hefur beint sjón-
urn sínum að.