Tíminn - 30.10.1991, Blaðsíða 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Halnorhusinu v Tryggvogolu
S 28822
Lausnin er: Enzymol
Nýtt í Evrópu
c
* J^Nýti
1 aE
aE
EUBO-HAIR
á Islandi
■ Engin hárígræðsla
Engin gerfihár
Engin lyfjameðferð
Einungis tímabundin notkun
Eigid hár med hjálp lífefha-orku
©91-676331e.ki.i6.oo
Áskriftarsími
Tímans er
686300
9
Tímiiui
MKMKUDAGUR 38. OKT. 1991
Tilraunum í Hrfsey aö Ijúka; hvað verður næst?
Annað holdanaut eða
nýtt mjólkurkúakyn?
„Það eina, sem hefur verið gert, er að nautgripanefnd var beðin
um að gefa álit á kostum og göllum þess að flytja inn nýtt mjólk-
urkúakyn. Því skiluðum við til landbúnaðarráðuneytisins í sum-
ar. í sjálfu sér hefur ekkert frekar verið gert,“ segir Jón Viðar
Jónmundsson, ráðunautur Búnaðarfélags íslands.
Á aðalfundi sínum í sumar
samþykkti Landssamband kúa-
bænda ályktun þess efnis að
stefnt skyldi að innflutningi nýs
mjólkurkúakyns. Forsendur til
þess hafa skapast með því að til-
raunum í Hrísey er að Ijúka. Þó
virðast margir bændur hafa
meiri hug á að reyna annað
holdanautakyn, í stað Galloway,
sem mörgum finnst að ekki hafi
gefist nógu vel, frekar en stefna
að kynbótum á íslensku mjólk-
urkúnum.
„Staðan er sú að innflutningur
á Gallowaynautum til Hríseyjar
stendur enn yfir, en við horfum
fram á að honum fari að Ijúka.
Þá eru menn að velta fyrir sér
hvað eigi að taka við. Eg hef á
tilfinningunni að menn setji of-
ar á blað að flytja inn önnur
holdanautakyn en að gera til-
raunir með mjólkurkýr.
í stuttu máli má segja að nið-
urstaða nautgripanefndarinnar
sé sú að ómögulegt sé að meta
fyrirfram kosti og galla þess að
flytja inn nýtt mjólkurkúakyn.
Við höfum engar forsendur, við
höfum engan samanburð á ís-
lenska kyninu við önnur kyn við
sömu skilyrði. Hann þurfum við
til að geta metið málið af ein-
hverju viti. Við sögðum því að
það gæti verið áhugavert að
gera tilraun með innflutning,
einfaldlega til að ganga úr
skugga um málið. En það liggja
fyrir samþykktir frá kúabænd-
um um að þeir hafa meiri áhuga
á innflutningi á nýjum holda-
nautakynjum. Og sama skoðun könnunum meðal bænda. Þann- urstaðan," segir Jón Viðar.
hefur komið í ljós í skoðana- ig að ég á von á að sú verði nið- -aá.
Heimspeki er meðal námsgreina 12 ára bama
í Vesturbæjarskólanum. Helgi kennari segir:
Stórkostleg
namsgrein
Börn f helmspeldnáml vöktu at-
hygll í sjónvarpsþættl á dögunum
fyrir áhugaverðar vangavcltur og
skemmtileg tilsvör. Áhugi fyrir
beimipeki almennt hér á landi
vhrðist fara vaxandi. Helgi Jó-
steinsson, kennari við Vesturbæj-
arskólann í Reybjavik, segir í sam-
taii vift 1101300 að Vesturbæjar-
skólinn sé eini grunnskólinn sem
hafl heimspcki á námsskránni.
Helgi segir að eftir því sem hann
best viti, sé þetta í fyrsta skipti sem
hcimspekikennsla sé tekin inn í
grunnskólann. „Heimspeirin er
inni í stundatöflu bamanna og tek-
in með sem bvert annað fag. Upp
kom sá möguleiki að hafa þetta í
tómstundastarfi, en ég hafði meiri
áhuga á því að fá þetta inn í stunda-
töfluna. Annars hefði heimspekin
lent f samkeppni við borðtennis,
leiklist og fleira. Þannig að ég
samdi um að fi að koma heimspek-
inni fam í stundatöflu," segir
Helgi. En það eru 12 ára böraín f
Vesturbæjarskólanum sem stunda
hehnspeÚnámið.
Helgi segir að skólastjórinn og
kennarar í skóianum hafi haft
áhuga á því að koma heimspeldnni
inn og reyna þetta. Helgi segir enn
fremur að hann hafi fengið
kennslu og þjálfun hjá Hreini Páls-
syni, skólastjóra Heimspekiskól-
ans. „Ég er myndmenntakennari
og vlldi auka fagurfræðQcennshi í
myndmennt. Ég er þeirrar skoðun-
ar að við eigum að stefha að gagn-
rýnum Ustáhorfendum frekar en
drátthögum teiknurum, ef svo má
orða það. Þannig aft ég fór að vefta
fyrir mér fagurfræðíkennslu og
datt þá inn í heimspekina. Mér
fannst þetta svo stórkostlegt,
skemmtflegt og nauðsynlegt,
þannig að ég var með Hreini á
námskeiðum í Heimspekiskólan-
um aUt síðasta ár. Auk þess fór ég
á námskeið hjá Hreini sem hann
héft í Kennaraháskólanum. Þegar
ég fór síðan að kenna við Vestur-
bæjarskólann í vetur, ræddi ég um
það hvort ekki væri hægt að koma
heimspekinni inn. Það var heil-
rnildö púsluspil að koma þessu
saman, en það tókst að lokum,"
segir HelgL -js
(búðablokk SEM-samtakanna tekin í notkun:
20 sérgerðar íbúðir
auk félagsheimilis
Húsnæðisfélag SEM-samtakanna
hefur reist hús við Sléttuveg 3 í
Fossvogi. í því eru tuttugu íbúðir,
sérhannaðar fyrir hreyfihamlaða.
Fyrstu íbúar fluttu inn í júlíbyrjun
og þeir síðustu ná húsi þessa dag-
ana.
Ein tveggja herbergja íbúð er laus
til leigu, ætluð til skemmri tíma fyr-
ir fatlað fólk utan af landi sem ein-
hverra hluta vegna þarf að bregða
sér í bæinn. Hún leigist með hús-
gögnum og kostar 1.500 krónur á
sóiarhring.
Á efstu hæð þessa sama húss er fé-
lagsmiðstöð SEM sem tekur 90
manns í sæti. Ætlunin er að leigja
salinn út hvern þann tíma sem sam-
tökin þurfa ekki á honum að halda.
Leigan er 15.000 krónur.
-aá.
Stjóm SEM-samtakanna: F.v. Reynir Grétarsson, Ágústa D. Guömundsdóttir, Jón M. Sigurösson og
Egill Stefánsson. Timamynd: Aml Bjama