Tíminn - 30.11.1991, Qupperneq 5
Laugardagur 30. nóvember 1991
Tíminn 5
Halldór Ásgrímsson segir utanríkisráðherra fara með ósannindi þegar hann segir
að Halldór hafi gert EB tilboð um veiðar á 3.000 tonnum af karfa:
Jón Baldvin vill klína
eigin klúðri á Halldór
Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, segir að utanríkisráð-
herra fari með staðlausa stafi þegar hann fullyrði að Halldór hafi gert Evr-
ópubandalaginu tilboð um að veiða 3.000 tonn af karfa í íslenskri landhelgi.
Halldór segir að utanríkisráðherra hafi með ógætilegum yfirlýsingum spillt
málstað íslendinga. Yfirlýsingarnar eigi sinn þátt í þeim úrslitakostum sem
EB sé búinn að setja íslendingum.
Halldór boðaði blaðamenn á sinn
fund þar sem hann afhenti þeim frá-
sögn af fundi sem þrír starfsmenn
framkvæmdastjórnar EB áttu með
embættismönnum úr sjávarútvegs-
og utanríkisráðuneyti, en á þessum
fundi segir Jón Baldvin að lagt hafi
verið fram tilboð frá Halldóri um
veiðar á 3.000 tonnum af karfa.
í fúndargerðinni segir orðrétt: „Af
íslands hálfu var hreyft þeirri hug-
mynd að hugsanlega mætti gera fisk-
Páll Pétursson, þingflokksformaður Framsóknarflokks
: — Hugmyndir forsætisráðherra um markviss vinnubrögð
eru þær að hann sjálfur ráði öllu:
Kemst ekkert upp
með yfirgang hér
„Ég held maður finni þess engin
dæmi frá þinginu í haust að stjórn-
arandstaðan hafi beitt málþófi. Það
hafa að vísu orðið ítarlegar umræð-
ur en stjórnarfrumvörp hafa fengið
mjög eðlilegan framgang og þau
sem lögð hafa verið fram eru betur á
vegi stödd en oftast áður á þessum
tíma,“ segir Páll Pétursson, formað-
ur þingflokks Framsóknarflokksins
vegna ásakana Davíðs Oddssonar,
forsætisráðherra, í garð stjómar-
andstöðunnar.
Um margar utandagskrámmræður
segir Páll: „Það hafa verið mjög ítar-
legar umræður í þinginu, m.a. utan
dagskrár. Hér hafa orðið þeir at-
burðir sem óhjákvæmilegt var að
ræða, eins og þegar framkvæmdum
við álver var frestað. Það hefði verið
undarlegt ef Alþingi hefði ekki viljað
ræða það mál. Eins þegar í ljós kom
að upplýsingar um EES samninginn
voru misvísandi utanríkisráðherra í
umboði ríkisstjórnarinnar lét í veðri
vaka að innihald samningsins væri
annað en á daginn kemur.
Á sínum fyrri vinnustað hafði for-
sætisráðherra ávallt haft síðasta orð-
ið. Hann vill eiga það hér líka og fær
það að vísu hjá forseta. Síðan hefur
hann alltaf þann háttinn á að hreyta
einhverju úr sér í garð andstæðing-
anna þannig að þeim er nauðugur
einn sá kostur að kveðja sér hljóðs
um þingsköp til þess að fá að rétta
hlut sinn. Það er rétt hjá Inga Birni
Albertssyni að ef einhver hefur tafið
störf hér á þessu haustþingi er það
forsætisráðherra sjálfur. Þegar hann
ekki kemst upp með að haga sér eins
og hann gerði í borgarstjórn reynir
hann að óvirða Alþingi og talar síðan
um markviss vinnubrögð í borgar-
stjórn. Þau voru fyrst og fremst
markviss að hans mati því þar fékk
hann einn að ráða,“ segir Páll Pét-
ursson. -aá.
Bandalagsráðstefna BSRB krefst samningaviðræðna
í alvöru. Ögmundur Jónasson formaður BSRB:
Engin tromp og
vitlaust gefið
„Ef menn ætla að ná samningum þá
verða báðir aðilar að virða rök gagn-
aðilans enda er eðlilegt að taka tillit
til beggja þátta; ytri aðstæðna og
innri skiptingar. Að undanfömu hef-
ur ríkisstjómin og viðsemjendur
okkar verið að gefa út spilin. Þar er
engin tromp að sjá, við fáum ekki
betur séð en ríkisstjórnin og aðrir
viðsemjendur bjóði bara upp á jó-
kera, eintóma gosa,“ sagði Ögmund-
ur Jónasson formaður BSRB á
bandalagsráðstefnu í gær.
Ögmundur bætti við að BSRB vildi
fá nýjan stokk á borðið — að tilboð
um kjararýmun og réttindaskerð-
ingu verði undanbragðalaust og
þegar í stað dregið til baka.
í ályktun bandalagsráðstefnu BSRB
segir meðal annars að ábyrgð á efnd-
um þjóðarsáttar sé vísað til ríkis-
stjórnar og sveitarstjórna. Samn-
ingsrétturinn hvíli hjá einstökum
aðildarfélögum BSRB. Nú séu þrír
mánuðir liðnir frá því að samning-
urinn um þjóðarsátt rann út án þess
að raunverulegar tilraunir hafi verið
gerðar af hálfu ríkisvaldsins til að
hefja samningaviðræður af fullri al-
vöru. Þær verði nú þegar að hefja af
fullri alvöru.
Ráðstefnan hvetur landsmenn til að
standa vörð um velferðarkerfið og
lýsir undmn yfir áformum um að
einkavæða jafnvel þau fyrirtæki sem
starfa á grundvelli einokunar, án
þess að ætlunin sé að taka tillit til
hagkvæmnissjónarmiða, hagsmuna
neytenda og starfsfólks. Þá er þess
krafist að raunvextir verði lækkaðir í
áföngum.
-sá
veiðisamning milli íslands og EB er
byggði m.a. á möguleika á skiptum á
jafngildum veiðiheimildum í litlum
mæli. Samhliða því yrði að gera tví-
hliða samkomulag um lækkun eða
afnám tolla f bandalaginu á fslensk-
um sjávarafurðum gegn lækkun eða
afnámi fjáröflunartolla af iðnaðar-
vörum bandalagsins við innflutning
til íslands. Af hálfu bandalagsins kom
fram að enda þótt æskilegt væri að
gera samning um sjávarútvegsmál er
m.a. grundvallist á skiptum af jafn-
gildum veiðiheimildum, þá væri ekki
af hálfu bandalagsins unnt að líta svo
á að slíkur samningur myndi greiða
fyrir frekari viðskiptaívilnunum fyrir
íslenskar sjávarafurðir. Bandalagið
liti ekki á gerð slíks samnings sem
eftirgjöf af hálfu íslands. Fyrir frekari
viðskiptaívilnanir fyrir íslenskar sjáv-
arafúrðir yrðu að koma tilslakanir á
sjávarútvegssviðinu í formi fiskveiði-
heimilda til handa bandalagsins."
Halldór sagði að þegar þetta svar lá
fyrir hafi að sjálfsögðu verið fráleitt
að leggja fyrir eitthvert tilboð fyrir
EB, enda hafi það ekki verið gert. Á
þessari stundu hafi ekki verið fyrir
hendi skilningur hjá framkvæmda-
stjóm EB á að slíkar gagnkvæmar
veiðiheimildir gætu greitt fyrir
samningum. Halldór sagði að hins
vegar hafi í sínum huga alltaf legið
fyrir að ef ætti að ná samningum yrði
að koma til gagnkvæmar veiðiheim-
ildir á jafngildum kvótum. Hann
sagði að fyrr eða síðar hefðu íslend-
ingar orðið að nefna hvað þeir ættu
nánar við þegar þeir töluðu um
„skipti á jafngildum veiðiheimildum
í litlum mæli.
„Utanríkisráðherra kom heim þegar
samningarnir voru gerðir í Lúxem-
borg og var mjög bjart yfir honum.
Hann vitnaði gjarnan til þess sem
Andriasen hafði sagt um að við hefð-
um fengið allt fyrir ekkert. Það er
greinilegt að hann hefur með þess-
um orðum sínum skapað miklar
væntingar hér innanlands og það
hefur líka komið í ljós að trúnaður er
ekki lengur milli hans og samtaka at-
vinnurekenda í sjávarútvegi, en þeim
virðist koma á óvart að sú staða sé
komin upp að ekki sé lengur um það
að ræða að við getum teflt fram lang-
hala í stað annarra veiðiheimilda,"
sagði Halldór.
„Utanríkisráðherra hefur talað mjög
ógætilega um þetta mál. Hann hefúr
m.a. sagt að „sér væri fjandans sama
hvað þessir menn séu að röfla“. Nú
vitnar hann til þess að þetta hafi
komið upp hjá þessum sömu mönn-
um í sjávarútvegsdeildinni, en það er
ekki honum sæmandi að fara þá að
reyna að skella þessu máli á fortíðina
og rifja upp óformlega fundi. Þar að
auki er alveg ljóst að það er rangt að
tilboð hafi verið sett fram af íslands
hálfu," sagði Halldór. -EÓ
Forsætisráðherra heldur áfram að ráðast á Alþingi og þing-
menn með yfirlýstngum um ómálefnaleg og óvönduð vinnu-
brögð, en neitar að svara spurningum sem til hans er beint:
Þingstörf á Alþingi voru í upp- baka Og ef svo er mun hann þá manni undanskildum. Mæting
námi þriðja daginn í röð í gsr, biðjast velvirðingar á þeim? Árna Johnsen (Sjfl.) var sérstak-
vegna ummæla forsætisráðherra Forsætisráðherra svaraði ekki lega nefnd og á það bent á að
um þingið og þingmenn. Þing- beint heldur las upp tölur um hve honum færí illa að hvetja þing-
menn kröfðust þess að hann stór hluti starfstíma þingsins menn til skiivirkra vinnubragða.
bæðist afsökunar á ummælum hefði farið í að ræða um þing- Margir þingmenn sögðu að
sem hann hefur látið falla í fjöl- sköp og umræður utan dagskrár skýríngin á þvf að umræður í
miðlum. Forsætisráðhem hafn- og sagði umræður í þinginu hafa þinginu væru eins og raun ber
aði þessari kröfu, en sagði um- verið ómálefnalegar. vitni væri vegna þess að forsætís-
ræðuna á þingi vera ómálefna- „Ég held að ég geti fullyrt að ráðherra hefði það fyrir reglu að
lega og að stjómarandstaðan þetta eru þeir döpmstu dagar svara aldrei því sem hann væri
tefði þingstörf. Ingi Bjöm Al- seméghefáttáAlþingijtau 17 ár spurður um heldur réðist á þing-
bertsson (Sjfl.), flokksbróðir sem ég hef hér setið. Eg satt að menn og fyrri ríkisstjóm með
ráðherrans, sagði að enginn segja sé ekki hvemig við komust skömmum. Ólafur Þ. Þórðarson
þingmaður hefði tafið þingstörf- út úr þeírri stöðu sem við stönd- (Frfl.) vitnaðí til ummæla Matt-
in eins mikið og forsætisráðherr- umnúf. híasar Bjaraasonar sem tekið
ann. Ég get ekld annað en látið í Ijóst hefur þátt í störfum Sjálfstæðis-
Það var Steingrímur J. Sigfús- vonbrigði mín með það um leið flokksins í um 50 ár. Hann sagði
son (Alb.) sem hóf umræðuna og og ég hlýt að skora á hana að að Matthías hefði haft kynni af
lagði fyrir forsætisráðherra fiór- reyna að ná hér annarri skipan öllum formönnum Sjálfstæðis-
ar afmarkaðar spumingar. í á,“ sagði Jón Helgason (Frfl.), flokksins nema þeim fyrsta og að
fyrsta lagi, fýsa þessu ummæli fyrrverandi forseti þingsins. sögn Matthíasar væri saman-
sem forsætisráðherra hefur við- Ingi Bjöm Albertsson var harð- burðurinn núverandi formann!
haft utan þings raunvemlegum orður í garð formanns síns. Sjálfstæðisflokksins ekki f hag.
viðhorfum hans til Alþingis fs- „Enginn einn maður hefur tafið Jóhannes Geir Sigurgeirsson
lendinga? í öðm lagi, er forsæt- þingstÖrf jafnmikið og forsætls- (Frfl.) upplýsti við umræðuna að
isráðherra reiðubúinn til að stað- ráðherra hefur gert þessa viku þingið hefði nú þegar afgreitt 28
festa eða endurtaka þessi um- sem nú er að líða, með ótíma- mál stjóraarinnar til nefndar.
mæli hér innan veggja Alþmgis bærum, óviðeigandi, ódrengileg- Umræðu biðu 10 mál, þar af tvö
eða vill hann draga þau til baka um og að vissu marid ósönnum sem biðu þriðju umræðu, eitt
og ef svo er mun hann þá biðjast ummælum, í viðtölum við fjöl- sem væri í umræðu og þrjú sem
velvirðingar á þeim? f þriðja lagi, miðla,“ sagði Ingi Björn. væru nýkomin inn í þingið. Jó-
telur forsætisráðherra sem setið Guðmundur Bjaraason (Frfl.) hannes Geir sagðl að útfrá þess-
hefur á Alþingi samtais í liðlega sagðist eldd áður hafa tekið þátt í um upplýsingum væri algjörlega
10 vikur, sem aidrei hefur verið umræðum utan dagskrár, en Jjóst að fullyrðingar um að
óbreyttur þingmaður, sem aldrei hann sagðist ekki getað setið sfjórnarandstaðan tefji þingstörf
hefur starfað f þingnefnd, sig þegjandi undir ummælum for- ættu ekki við rök að styðjast.
hafa næga reynslu til að kveða sætisráðherra. „Mér er ofboðið Vandamálið væri að lykilfrum-
upp dóma um störf þingsins? í og gróflega misboðið," sagði vörp stjórnarinnar væru ekki
fjórða lagi, hyggst forsætisráð- Guðmundur. Mætingar þing- komin fram, eins og t,d. tekjuöfl-
herra rökstyðja þau ummæli sín manna stjóraarinnar á fundi í unarfrumvörpin. Það hefði aftur
að fráfarandi ráðherrar getí ekki þingnefndum komu einníg til valdið því að fresta hefði orðið
shmt störfum sínum með eðli- umræðu og fram kom að á tvo umræðu um fiáriög um viku.
legum hætti sökum fráhvarfsein- fundi allsherjarnefndar í röð hafa -EÓ
kenna, eða vill hann draga þau til engir stjóraariiðar mætt að for-