Tíminn - 30.11.1991, Qupperneq 10
26 Tíminn
Laugardagur 30. nóvember 1991
Gísli Kristjánsson
skólastjóri, Hvolsvelli
Fæddur 1. september 1933
Diinn 21. nóvember 1991
Gísli skólastjóri er látinn. Hann lést á
Landakotsspítala 21. nóvember sl. eftir
stutta legu þar.
Það var í ágústmánuði 1990, skömmu
áður en skóli átti að hefjast, að í ljós kom
að Gísli var með alvarlegan sjúkdóm og
gekkst hann þá undir aðgerð og hefur
barist hetjulegri baráttu við sjúkdóminn
sfðan.
Gísli var skólastjóri Hvolsskóla í tæpa
tvo áratugi, eða frá 1972, og stöndum við
Hvolshreppingar í þakkarskuld við hann
fyrir hans góðu stjóm á Hvolsskóla í svo
langan tíma. Einnig stjómaði hann ung-
lingavinnu hjá hreppnum um margra
ára skeið og var þannig sívinnandi með
bömum og unglingum. Gísli var góður
félagi bamanna og fór oftast með þeim
út í frítímum og tók þátt í leikjum þeirra,
sem mun fremur fátítt um skólastjórn-
endur. Það kunnu nemendur og foreldr-
ar vel að meta. Gísla var mjög annt um
skólann sinn. Hann var mikill uppalandi
og bera unglingamir hér þess glöggt
vitni.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá
að vinna með Gísla f skólanefnd Hvols-
skóla í allmörg ár og kynnast starfi hans
í skólanum. Hann naut trausts og virð-
ingar nemenda, skólanefndarmanna og
allra sem kynntust honum. Samstarf
skólanefndar og Gísla var með miklum
ágætum og reyndi fremur lítið á nefnd-
ina, vegna þess að allt gekk svo vel hjá
honum í skólastarfmu.
Ég vil með þessum fátæklegu orðum
þakka Císla mjög gott samstarf við skóla-
nefnd og sveitarfélagið.
Guðrúnu og fjölskyldu sendum við
Hvolshreppingar okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur og biðjum góöan Guð að
styrkja þau á þessum erfiðu tímum.
Ágúst Ingi Ólafsson
Nú er hann Gísli skóló, eins og við
kölluðum hann, horfmn til feðra sinna.
Við krakkamir úr ‘77 árganginum minn-
umst hans á sérstakan hátt. Hann var
virkur þátttakandi í lífi okkar í Barna-
skólanum á Hvolsvelli á árunum 1983-
1989. Ekki liöu þær frímínútur sem Gísli
var ekki með okkur úti í fótbolta. Hann
var eini kennarinn sem alltaf kom út.
Sama var hvort það var sól og blíða eða
þrumur og eldingar. Það var sama hvort
völlurinn var þurr eða að maður óð snjó-
inn eða lá í pollunum, alltaf kom Gísli út.
Við munum öll eftir því að þegar við vor-
um í 6. bekk og fórum til Vestmannaeyja
í skólaferðalag. Við vorum átta klukku-
tíma á leiðinni frá Þorlákshöfn til Vest-
mannaeyja. Alveg erum við viss um að
Gísli var sá, sem hafði mestar áhyggjum-
ar af okkur.
Hann lést aðfaranótt föstudagsins 22.
nóvember s.l. á Landakotsspítala. Það
voru kennarar í Gagnfræðaskólanum
sem fluttu okkur þessi sorgartíðindi
morguninn eftir, og það er alveg víst að
ekkert okkar var með hugann við náms-
efnið þennan dag. Öll söknum við hans
og við vonum að trúin styrki Guðrúnu
konu hans á þessum sorgarstundum.
Guð blessi minningu hans.
Nemendur í árgangi ‘77,
Hvolsskóla
Fagna þú, sál mín. Allt er eitt í Drottni,
eilíft og fagurt, — dauðinn sœtur blundur.
Þótt jarðnesk dýrð og vegsemd visni’ og
þrotni,
veit ég, að gegmast handan stoerri undur,
þótt stórtré vor í bgljum jarðar brotni,
bíður vor allra ’ um síðir Edenslundur.
(JJ. Smári)
Svo segir Jakob Jóhannesson Smári
yfirkennari. Hvað er okkur meiri sann-
leikur? Ef við viljum kallast kristin, og
trúum því er Frelsarinn boðar okkur,
hvað bíður okkar þá handan móðunnar
miklu? Hann hefur boðið okkur að leita
til sín í lífi og dauða. Hann kvaðst aldrei
munu yfirgefa okkur, vera með okkur allt
tii enda veraldarinnar. Megi það vera
systur minni og bömum, já okkur öllum
í þessari stóm fjölskyldu, huggun er við
sjáum á eftir Gísla kveðja að sinni. Hann
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
30/11.
Við, sem tengdumst og þekktum
Gísla, minnumst hans sem hæggerðs og
ákaflega ljúfs; þannig kom hann mér fyr-
ir sjónir. Hann var í samræðum orðvar,
en glettinn á stundum og undir niðri
mátti sjá að þar var einstakt ljúfmenni.
Ég held ég hafi kynnst Gfsla best þegar
hann kenndi mér í Iðnskólanum í Borg-
arnesi 1954-1956. Þá fann ég sem oft,
hvaða mann hann hafði að geyma. Það
skal játað að við Gísli bjuggum aldrei í
nábýli síðan við áttum heima í Borgar-
nesi forðum daga og kynntist ég honum
því kannski ekki eins náið og sum hin
systkini mín, en fjölskyldan hefur samt
að sjálfsögðu verið samheldin í gleði og á
sorgarstundum. En mesti styrkur okkar
er sá að með Guðs hjálp getum við hald-
ið hópinn og stutt hvort annað á stund-
um sem þessari, þó okkur finnist við
ótrúlega vanmáttug og lítil þegar sorgin
ber að dyrum.
Ég hefi oft sagt hve mikið við höfum
skaparanum að þakka. Við systkinin, sem
fæddumst tólf, erum öll á lífi við bestu
heilsu og höfum átt miklu bamaláni að
fagna. Þama höfum við að sjálfsögðu
öngvu um ráðið, þessu hefur ráðið sá
einn er okkur skóp; honum ber okkur
einum að þakka. Við afkomendur Orms
Ormssonar og Helgu Kristmundardóttur
komum saman á æskuslóðum okkar
systkina síðastliðið sumar, vestur á Snæ-
fellsnesi þar sem veðurguðimir skörtuðu
því fegursta veðri sem kemur þar um
slóðir. Þar vorum við saman komin 115
afkomendur og makar.
Þá var upplýst að af 163 afkomendum
pabba og mömmu hafði aðeins einn af-
komandi látist, eitt tengdabam okkar
systkina og eitt tengdabam foreldra okk-
ar. Gísli er annað tengdabamið sem
kveður.
Sorgin gleymir engum, segir Tómas
Guðmundsson, og nú hefur hún kvatt
dyra er við kveðjum einn úr hópnum,
Gísla Kristjánsson, næst yngsta tengda-
bamið.
Okkur ber samt mikið að þakka algóð-
um Guði: fyrir samveru þessara ástvina
sem famir eru á undan okkur, fyrir góða
heilsu stórrar fjölskyldu, fyrir mikla vel-
gengni okkar allra og fyrir lífið sem hann
gaf.
Gunna mín, þú mátt treysta því að öll
fjölskyldan hugsar sérstaklega til þín og
þinna með þeirri hlýju sem okkur er
unnt að gefa; við munum þá hetjulund
og þá fyrirmynd sem þú ert okkur. En
huggun er það í harmi að þegar slíkan
vágest ber að dymm, sem Gísli þurfti að
berjast gegn, er dauðinn svo sannarlega
líkn í þrauL
Gísli fæddist á ólafsfirði þann 1/9
1933. Hann lauk venjulegu bamaskóla-
námi þar og lauk svo gagnfræða- og
landsprófi frá Héraðsskólanum í Reyk-
holti í Borgarfirði. Síðar lá leið hans í
Kennaraskólann, þaðan sem hann lauk
prófi 1954. Hann hóf kennslu í Borgar-
nesi og þar lágu saman leiðir Guðrúnar
systur minnar og hans. Þau byrjuðu bú-
skap í Borgamesi. Þau eignuðust þrjú
böm, sem öll em gift og eiga böm: Krist-
ínu Helgu, soninn Ásgeir, og Jóhönnu
Lovísu. Seinna lauk Gísli prófi frá handa-
vinnudeild Kennaraskólans. Eftir
kennslu í Borgamesi árin 1954-1965
gerðist Gísli yfirkennari við skólann að
Laugagerði í Eyjahreppi á Snæfellsnesi.
Hann gegndi þeim starfa í nokkur ár. Ár-
ið 1970 fluttust þau svo að Hvolsvelli þar
sem Gísli var ráðinn yfirkennari og síðan
skólastjóri við bamaskólann þar. Því
staríi gegndi hann meðan heilsan leyfði.
Á síðasta ári varð Gísli var þess meins
sem hann hefur nú orðið að lúta fyrir, en
nákominn sagði mér að Gísli hefði orðið
sjúkdómsins var fyrir 2-3 ámm. Gísla var
ekki gjamt að kvarta um sína hagi, og
eftir að sjúkdómurinn ágerðist sýndi
hann eindæma æðmleysi, þó auðvitað
væri alltaf lifað í voninni þar til yfir lauk.
Lífið er sem stundaglas, rennur
stundum hratt, stundum hægt en alltaf
sömu leið. Það er það eina sem við vitum
ömgglega. Það er stór ástvinahópur sem
kveður Gísla að sinni. Við treystum því
að við megum að lyktum öll hittast við
stól hins Allsvaldandi, þar sem ríkir hinn
eilífi friður, og þar sem enginn fær okkur
aðskilið.
Að endingu biðjum við algóðan Guð
að styrkja systur okkar, böm, tengda-
böm og bamaböm. Megum við ávallt
hafa í minni sálmavers frænda okkar,
herra Sigurbjöms Einarssonar biskups,
þar sem hann segir:
Ég tigna kœrleiks kraftinn hljóða,
Kristur, sem birtist oss í þér.
Þú hefur foður hjartað góða,
himnanna ríki opnað mér.
Ég tilbið undur elsku þinnar,
upphafog takmark veru minnar.
Karl Ormsson
raftækjavörður
Jarðsungið verður frá Háteigskirkju,
Reykjavík, kl. 10.30 laugardaginn 30/11.
Gísli verður lagður til hinstu hvílu á
Stórólfshvoli, Rangárvöllum, sama dag.
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I
Reykjavfk 29. nóvember tll 5. desember er I
Garðsapöteki og Lyfjabúöinni Iðunnl. Það
apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsl-
una frá kl. 22.00 að kvöldi tll kl. 9.00 að
morgni vlrka daga en kl. 22.00 á sunnudög-
um. Upplýsingar um læknis- og lyfjaþjón-
ustu eru gefnar f sfma 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags fslands
er starfrækt um helgar og á stórhátlðum. Slm-
svari 681041.
Hafnarfjöröun Hafnarfjarðar apótek og Norö-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar I slmsvara nr. 51600.
Akureyrí: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartima búða. Apó-
tekin skiptast á sina vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opiö I þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tlmum er lyfja-
fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I
síma 22445.
Apótek Keffavfkur: Opið virka daga frá k.
9.00-19.00. Laugardaga, helgidaga og al-
mennafrídaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaoyja: Opið virka daga frá
kl. 8.00-18.00. Lokað i hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opiö til kl. 18.30.
Opið er á laugardögum og sunnudögum ki.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opiö virka daga
til kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabæn Apótekið er opiö rúmhelga daga
kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Alnæmisvandinn. Samtök áhugafólks um
alnæmisvandann vilja styðja smitaða og sjúka
og aöstandendur þeima, simi 28586.
Læknavakt fyrir Roykjavik, Seltjamames og
Kópavog er i Heilsuvemdarstöð Reykjavikur
alla virica daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugar-
dögum og heigidögum allan sólarhringinn.
Á Seltjamamesi er læknavakt á kvöldin Id.
20.00-21.00 og laugard. kl. 10.00-11.00. Lokaö á
sunnudögum. Vitjanabeiðnir, slmaráöleggingar
og tlmapantanir i sima 21230. Borgarspítallnn
vakt frá Id. 08-17 alla virka daga fyrir fólk sem
ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans
(sími 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysa-
deild) sinnir slösuöum og skyndiveikum allan sól-
arhringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um
lyfjabúöir og læknaþjónustu enjgefnar I slm-
svara 18888.
Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt
fara fram á Heilsuvomdarstöð Reykjavikur á
þriðjudögum kf. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmissklrteini.
Garðabær: Heilsugæslustöðin Garöaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, slmi 656066. Læknavakt er I
síma 51100.
Hafnarfiöröur Heilsugæsla Hafnarfjaröar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, slmi 53722. Læknavakt slmi 51100.
Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Simi 40400.
Keflavfk: Neyöarþjónusta er allan sólarhringinn
á Heilsugæslustöö Suöumesja. Sími: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræöistöðin: Ráögjöf I
sálfræðilegum efnum. Slmi 687075.
Landspftalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19
til kl. 20.00. Kvennadelldln: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl.
15-16. Heimsóknartimi fyrir feður kl. 19.30-
20.30. Barnaspítali Hringsins: Kl. 13-19 alla
daga Öldrunaríækningadeild Landspltal-
ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomu-
lagi. - Landakotsspitali: Alla virka kl. 15 til kl.
16 og kl. 18.30 til 19.00. Barnadeild 16-17.
Heimsóknartími annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. - Borgarspltalinn I Fossvogi: Mánu-
daga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir
samkomulagi. Á laugardögum og sunnudögum
kl. 15-18.
Ketill Þórisson
í dag hringdi bróðir minn frá íslandi til
þess að segja mér að Ketill í Baldurs-
heimi væri látinn. Hann hefði orðið
bráðkvaddur í morgun. Svo einkennilega
vildi til að ég var einmitt að skrifa hon-
um mína árlegu jólakveðju. Ég geri hana
nú að hinstu kveðju til þessa góða vinar
míns frá bamæsku okkar beggja.
Ketill var fæddur 8. des. 1920 í Baldurs-
heimi í Mývatnssveit, sonur hjónanna
Þuríðar Sigurðardóttur og Þóris Torfa-
sonar bónda þar. Hann ólst upp í Bald-
ursheimi og dvaldist þar alla ævi, að
undanskildum skólaárum sínum á Al-
þýðuskólanum á Laugum í Reykjadal,
eins og hann þá hét, og síðar á búnaðar-
skóla á Hvanneyri.
Nú kynnu ýmsir að ætla, að við þessar
aðstæður hafi maðurinn orðið heimaln-
ingur, jafnvel „kotungur". 'mö var nú
eitthvað annað. Öll uppvax :ir sín bjó
Ketill við sagnabrunn fortíö..i og einnig
við þann lifandi áhuga á nútíð og fram-
tíð, sem lætur sér ekkert mannlegt óvið-
komandi. Hann hugsaði því á breiðari og
hærri heimsvísu en margur sem víðar
fer og hefur um það hátt. Ketill í Bald-
ursheimi var góðum gáfum gæddur.
Hann var afbragðs námsmaður, víðles-
inn í íslenskum bókmenntum bæði eldri
og yngri og ekki sniðgekk hann heldur
Baldursheimi
þýdd erlend bókmenntarit. Hann var sjó-
fróður um atburði tengda fortíð og nú-
tíð. Hann taldi það skyldu sérhvers heil-
brigðs og hugsandi manns að afla sér
þekkingar á málefnum og mynda sér
skoðanir um þau. llann gerði það sjálfur
ótæpilega og lá ekki á þeim hver sem í
hlut átti. Hann iðkaði ekki ræðu-
mennsku, en fórst hún vel úr hendi ef til
hennar var gripið.
Ketill hafði ótvíræða leikhæfileika. Þeir,
sem sáu hann á sviði, munu löngum
minnast hans, t.d. í hlutverki Lenna í
Mýs og menn, séra Sigvalda í Maður og
kona og Kranz yfirdómara í Ævintýri á
gönguför, svo helstu hlutverk séu nefnd,
að ógleymdri jómfrúnni ungu í óprent-
aðri sjálfsaminni óperu — Latra Plata —
fyrir u.þ.b. 35 árum.
Ketill í Baldursheimi var ungmennafé-
lagi eins og þeir gerast bestir, enda alinn
upp við þá lífsskoðun, að samvinna og
samstarf um landsins — og raunar
heimsins — gæði væri vænlegri vegur
til gæfu og gengis en samkeppni um þau,
þar sem eins dauði er annars brauð.
Hann var einnig löngum virkur þátttak-
andi í störfum og stjóm Búnaðarfélags
Mývetninga. Hann var söngvinn og radd-
maður góður, eins og hann átti kyn til
beggja megin frá, og var frá unga aldri
þátttakandi í öllum þeim kórum, sem
stofnað var til í Mývatnssveit og reyndar
víða í Suður-Þingeyjarsýslu.
Ketill var ekki „hversdagsmaður",
hvorki í útliti né skaphöfn. Hann var
stórgerður, líklega nánast stórófríður, en
með slíkum persónuleikablæ, að kostur
varö en ekki lýti. í háttsemi hans og tali
vógu salt hávær grófleiki annars vegar og
hins vegar hárfín viðkvæmni og næm-
leiki. Þessi samsetning minnir í ýmsu á
Egil Skallagrímsson. Katli var ekki tregt
tungu að hræra, fremur en Agli, eftir að
hann var kominn af stað og það var ekki
logn í kringum Ketil fremur en Egil.
Við Ketill höfum þekkst síöan við vor-
um böm, eins og gerist um nágranna.
Við leik og störf bæði sem skólasystkin,
ungmennafélagar, í leikstarfsemi og
söng. En sterkustu og dýpstu rætur okk-
ar vinfengis liggja í Baldursheimsskólan-
um sem ég kalla svo. Þangað fór ég í
mína fyrstu skólagöngu og við nemend-
ur nutum þar ögunar og aðbúnaðar af
þeirri rausn hjartans og kærleikans að
við búum að því síðan. Mér er bæði Ijúft
og skylt að minnast þess, að þetta aðbún-
aðarlögmál ríkti á þeim skólaheimilum
farskólans, sem ég hef haft einhver kynni
af. Fyrsta skólagangan er þannig tengd
sérstakri tilverugleði þar sem kannarinn
var elexír andans og Þura í Baldursheimi
og gömlu konumar þar einskonar móðir
jörð. Það er ekki undrunarefni, þótt þar
yxu upp litríkir kvistir eins og Ketill í
Baldursheimi.
Nú þegar ég lýk þessum fáu fátæku
kveðjuorðum til Ketils veit ég að ég
hugsa þau og mæli einnig fyrir munn
allra frænda hans og vina á Gautlöndum,
með þökk fyrir langa og skemmtilega
samferð á lífsins vegi.
Stödd í Amsterdam, 21. nóv. 1991.
Ásgerður Jónsdóttir
Hafnarbúðir: Aila daga kl. 14 til kl. 17. - Hvfta-
bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartími frjáls
alla daga. Gronsásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnudaga
kl. 14-19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl. 14 til
kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavlkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspftali:
Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl.
19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl.
17. Kópavogshaalið: Eftir umtali og kl. 15 til kl.
17 á helgidögum. - Vifilsstaðaspltali: Heim-
sóknartlmi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. -
St Jósepsspítall Hafnarflrði: Alla daga kl.
15-16 oo 19-19.30.
Sunnuhlíð hjúkrunarheimili I Kópavogi: Heim-
sóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Kefiavíkuríæknishéraðs og
heilsugæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólar-
hringinn. Simi 14000. Keflavik-sjúkrahúsið:
Heimsóknartlmi virka daga kl. 18.30-19.30.
Um helgar og á hátlðum: Kl. 15.00-16.00 og
19.00-19.30. Akureyrí - sjúkrahúsið: Heim-
sóknartimi alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-
20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra
Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofuslmi frá
kl. 22.00- 8.00, slmi 22209. Sjúkrahús Akra-
ness: Heimsóknartimi Sjúkrahúss Akraness er
alla daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30.
Reykjavik: Neyöarsími lögreglunnar er 11166
og 000.
Seltjamames: Lögreglan slmi 611166,
slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100.
Kópavogur: Lögreglan sími 41200, slökkviliö
og sjukrabifreið sími 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166, slökkvL
lið og sjúkrabifreíð sími 51100.
Keflavík: Lögreglan sími 15500, slökkviliö og
sjúkrabill simi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjan Lögreglan, slmi 11666,
slökkviliö sími 12222 og sjúkrahúsið simi
11955.
Akureyri: Lögreglan slmar 23222, 23223 og
23224, slökkvilið og sjúkrabifreið slmi 22222.
Isafjörður: Lögreglan sími 4222, slökkvilið simi
3300, brunasimi og sjúkrabifreið simi 3333.