Tíminn - 30.11.1991, Blaðsíða 14
30 Tíminn
Laugardagur 30. nóvember 1991
Vöruhús KÁ, sem fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir.
Timamynd: G.E.
Vöruhús KA hélt upp á 10 ára verslunarafmæli sitt á dögunum og í tilefni af því ræddi Tíminn við
Sigurð Kristjánsson kaupfélagsstjóra, sem óttast ekki samkeppnina að sunnan eða að utan:
Fólk verslar heima ef
kröfum þess er mætt
Þann 13. nóvember hélt Kaupfélag Árnesinga upp á það, að 10 ár
eru liðin frá því að verslun hófst í „Rúsínubúðinni“ svokölluðu, eða
Vöruhúsi KA á Selfossi. Með opnun Vöruhússins varð bylting í
verslunarmálum á Selfossi. Rekstur KÁ er margvíslegur, en þar ber
hæst matvöruverslunin, en eigi er langt síðan þrjú kaupfélög á Suð-
urlandi og Vestmannaeyjum voru sameinuð undir nafni Kaupfélags
Árnesinga.
Siguröur Kristjánsson kaupfélagsstjóri
Sigurður Kristjánsson kaupfé-
lagsstjóri sagði í samtali við Tím-
ann, í tilefni af 10 ára afmæli
vöruhússins, að það væri sér efst í
huga á tímamótum hvað hefði
orðið, ef þetta hús eða annað
sambærilegt hefði ekki verið
byggt fyrir 10 árum. Það mætti
vera að verslunarvenjur Sunn-
lendinga hefðu þróast með öðr-
um hætti og jafnvel ekki eins far-
sællega fyrir atvinnulíf í lands-
hlutanum. Sigurður sagði að það
mætti til sanns vegar færa, að
húsið hefði verið byggt fullseint,
þar sem byggingalánin urðu verð-
tryggð með þeim snjóboltaein-
kennum sem flestir þekkja. Á
móti kom þó að aðallánin fengust
til 20 ára, þannig að greiðslubyrð-
in hefur dreifst mjög mikið. Veð-
skuldir Kaupfélagsins voru hæst
19% af heildarveltu árið 1983, en
á síðustu áramótum um 14,3% og
í raun og veru nálægt 10% þegar
skuldabréfaeign, aðallega vegna
sölu á gamla kaupfélagshúsinu,
er tekin inn í dæmið. „Auðvitað
var byggingin býsna byltingar-
kennd á sínum tíma. Menn geta
borið saman gamla kaupfélags-
húsið og svo Vöruhúsið, en það er
mikill munur á stærð þessara
bygginga. Vöruhúsið er að vissu
leyti barn þessa tíma, því menn
voru ákaflega bjartsýnir í sam-
bandi við húsbyggingar. Síðan
hafa skapast önnur skilyrði, fjár-
magn orðið dýrara og í dag leggja
menn ekki í eins stóra hluti. Ef ég
væri spurður að því hvort kaupfé-
lagið myndi leggja aftur út bygg-
ingu sambærilega við Vöruhúsið,
myndi ég líklega svara því neit-
andi,“ sagði Sigurður.
Vextir of háir
Vöruhús KÁ er stórmarkaður
sem byggir rekstur sinn talsvert á
eigin innflutningi og var verslun-
in með fast að helming af vöru-
sölu kaupfélagsins á síðasta ári.
Jafnframt sagði Sigurður, að þeir
gætu venjulega gert upp rekstur
Vöruhússins með stolti. Árið 1990
var rekstrarafgangur upp í sam-
eiginlegan kostnað og vexti um
43 milljónir, eða um tvöfalt hærri
en árið áður. Eftir 9 mánuði árið
1991 sýna bókhaldstölur að Vöru-
húsið hefur enn bætt stöðu sína
lítillega upp í sameiginlegan
kostnað og vexti. „Fólk getur
spurt, þegar þannig gengur, hvort
ekki verði létt mál að bæta launin
í komandi kjarasamningum.
Svarið verður því miður afdráttar-
laust neitandi. Vextir hafa verið
allt að 10-12% yfir verðbólgu —
svokallaðir raunvextir — og það
er tvöfalt það, sem eðlilegt má
telja og atvinnurekstur yfirleitt í
þessu landi getur með nokkru
móti þolað. Mér sýnist að heildar-
vextir KÁ á þessu ári hafi aukist
um nálægt 30% frá sama tímabili
árið 1990 og einhver af stærri
kaupfélögunum hafa gefið upp
um 40% hjá sér. Þetta hljómar
lygilega, en það er ekki síður lygi-
legt hversu erfiðlega gengur að
ráða bót á þessu þjóðfélagsmeini,
nú þegar verðbólgan hefur látið
undan síga. Sérstakur skattur af
verslunar- og skrifstofuhúsnæði
íþyngir versluninni mjög mikið,
svo og ranglátt aðstöðugjald sem
leggst jafnt á verslunareiningar,
hvort sem þær skila hagnaði eða
ekki, og svo mætti fleira telja. Mér
sýnist að stjórnvöld þurfi eitthvað
að taka til hendinni og þau eru
víst ekki öfundsverð í sínum
vanda,“ sagði Sigurður.
Varðandi títtnefndar verslunar-
ferðir til útlanda, sagði Sigurður
að sér fyndist ánægjulegt ef fólk
getur lyft sér upp og skroppið
jafnvel til útlanda, og það væri
líklega meira í tísku nú heldur en
oft áður. Hann sagðist halda, að
það þjálfaði tilfinningu fólks fyrir
vörugæðum og vöruverði, að
kynnast sem flestum verslunum,
innanlands sem utan, og það væri