Tíminn - 19.12.1991, Blaðsíða 5
Fmmtudagur 19. desember 1991
Tíminn 5
Þingstörf komin í hnút:
NEFNDASTÖRF FLUTT
YFIR í ÞINGSALINN
Fullkomin óvissa ríkir um hvort hægt veröur að ljúka þingstörfum
fyrir jól. Ekkert samkomulag hefur tekist á milli stjómar og stjóm-
arandstöðu um afgreiðslu mála. Stjómarandstaðan sakar stjómar-
liða um að virða í engu störf þingnefnda, og bendir í því sambandi á
að nefndarálit stjóraarliða séu samin áður en þingnefndir hafa lok-
ið störfum. Stjómarandstæðingar segja að þetta muni aðeins leiða
til þess að lengja umræður í þingsölum og tefja fyrir afgreiðslu
mála.
Þingstörf gengu vel á mánudag og
þriðjudag í þessari viku, en í gær
stóð allt fast og tíminn fór að mestu
í að ræða um þingsköp. Stjómarlið-
ar hafa lagt mikla áherslu á að keyra
mál í gegnum þingið og lítill tími
hefur gefist til að yfirvega flókin
Iagafrumvörp í þingnefndum. Seint í
fyrradag voru fmmvarp um Hagræð-
ingarsjóð og Bandormurinn „rifinn
úr nefhd", eins og stjómarandstaðan
orðaði það, án þess að hann hefði
hlotið eðlilega umfjöllun. Fáum
mfnútum eftir að fundi var slitið í
sjávarútvegsnefnd var nefndarálit
um Hagræðingarsjóð lagt fram. Um
klukkutíma eftir að fúndi lauk í fjár-
hags- og viðskiptanefhd var íagt
fram nefndarálit um Bandorminn
upp á 20 blaðsíður. Stjórnarand-
stæðingar sögðu að augljóslega
hefðu formenn neftidanna verið
búnir að semja nefndarálitin áður en
nefndafundum lauk. Að þeirra sögn
komu fram upplýsingar skömmu áð-
ur en nefndafundum lauk, sem hefði
verið nauðsynlegt að taka tillit til við
afgreiðslu málsins, td. um áhrif
skatts á sveitarfélögin á Jöfhunarsjóð
sveitarfélaga.
Halldór Asgrímsson sagði að þetta
myndi leiða til þess að stjórnarand-
staðan krefðist upplýsinga í umræð-
um á Alþingi um þau atriði, sem
ekki hefðu fengið fullnægjandi um-
flöllun í nefndum. Halldór sagði
óhjákvæmilegt að umræður í þing-
sal lengdust vegna þessa. Halldór
sagðist hafa hug á að flytja breyting-
artillögur við sum tekjuöflunar-
frumvörp stjómarinnar, og hann
þyrfti tíma og sérfræðiaðstoð til að
semja þær.
Jón Kristjánsson sagði þessi vinnu-
brögð stjórnarliða ekki til fyrir-
myndar. Jón sagðist einu sinni hafa
staðið að því í tíð fyrri ríkisstjórnar
að „rífa mál úr nefnd“ án þess að þá-
verandi stjómarandstaða væri sátt
við það. Það mál hefði þó verið í
nefnd í tvo mánuði og fengið ítar-
lega umfjöllun. Jón sagði að þetta
hefði orðið til þess að þingmenn
Sjálfstæðisflokksins hefðu rætt mál-
ið í tvo daga og einn þingmaður
hefði flutt átta tíma ræðu.
í dag er fyrirhugað að þriðja um-
ræða um fjárlagafrumvarpið fari
fram. Óvfst er hvort umræðan fer
fram, vegna þess að mörgum málum
í sambandi við frumvarpið er ólokið.
Fjárhags- og viðskiptanefnd átti t.d.
eftir að fjalla um tekjuhlið frum-
varpsins, en það verður nefndin að
gera, lögum samkvæmt, áður en
málið er tekið til þriðju umræðu.
Viðræður um sameiningu Borgarspítala
og Landakotsspítala halda áfram:
Landakotslæknar
skipta um skoðun
Nefnd, sem fjallaði um sameiningu
Borgarspftala og Landakotsspítala,
skilaði áliti á dögunum. í umneð-
unni að undanfömu hefur komið
fram, að læknar og starfsfólk á
Landakotsspftala, auk systranna
sem stofnuðu spítalann, væru á
móti sameiningunni.
Rakel Valdimarsdóttir, hjúkrunar-
forstjóri á Landakotsspítala, segir í
samtali við Tímann að hún hafi ekki
fengið upplýsingar frá heilbrigðis-
ráðuneytinu. „En það, sem ég hef
heyrt, er að það eigi að skoða málin
eitthvað áfram,“ segir Rakel.
Þorkell Helgason, aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra, segir í samtali
við Tímann að Iæknar á Landakots-
spítala, sem voru á móti sameiningu,
hafi breytt afstöðu sinni. „Við blasti
að styrkja starfsemi Borgarspítalans
þannig að dýrari starfsemin verði
þar, og láta þá Landakotsspítala sitja
eftir. Það má segja að skipting fjár-
veitingarinnar sé í þeim anda. Lækn-
amir á Landakotsspítala vilja eðli-
lega frekar vera með heldur en að
verða skildir eftir úti í kuldanum,"
segir Þorkell.
Þorkell segir að gangur málsins hafi
verið sá að þessi nefnd var sett á
laggimar. Það eru stjómir spítal-
anna sem útnefna menn í nefndina.
„Þessir nefndarmenn frá Landakots-
spítala virðast ekki hafa notið trún-
aðar meirihluta þeirra starfsmanna,
sem hafa tjáð sig um málið. Nunn-
umar tóku í rauninni undir sjónar-
mið starísmanna. Ég skil afstöðu
nunnanna þannig að þær fari nú
fyrst og fremst eftir því sem meiri-
hluti starfsmannanna vill, beri hag
þeirra fyrir brjósti," segir Þorkell.
Þorkeíl tekur fram að ráðherra hafi
neyðst til að leggja til að fjárveiting-
unni yrði skipt á milli spítalanna,
þegar í ljós kom að menn vildu ekki
fallast á hugmyndina um samrun-
ann núna um áramótin, þó ekki væri
nema formlega séð. Það er ekki hægt
að skilja eftir eyðu í fjárlagafrum-
varpinu. „Ráðherra gerði tillögu um
fjárveitingu spítalanna á þriðjudag-
inn og í kjölfar þess lýstu Iæknamir
yfir að þeir væm reiðubúnir til frek-
ari viðræðna um aukna samvinnu og
hagræðingu, með stofnun nýs
sjúkrahúss í huga,“ segir Þorkell.
Aðspurður segir Þorkell að hann líti
svo á að læknamir vilji einhvers kon-
ar nýja viðræðunefnd. En ráðuneytið
ákveður ekki hvaða fólk Landakots-
spítali sendir til þeirra viðræðna,
þannig að það er spítalans að kljást
við það. „Eftir að breytt afstaða lækn-
anna kom í ljós var á síðustu stundu
ákveðið að skipta ekki fjárveiting-
unni alfarið, heldur að skilja eftir
tæplega 200 milljón króna lið í sam-
eiginlegt framkvæmdafé. Það er þá
hægt að ráðstafa þeirri fjárhæð, þeg-
ar og ef viðræðumar skila einhveij-
um árangri. Við emm að reyna að
halda einhverjum leiðum opnum
ennþá,“ segir Þorkell.
Þorkell segir aðspurður að ráðu-
neytið og forsvarsmenn St. Jósefs-
spítalans í Hafnarfirði hafi mæst á
miðri leið. Samkvæmt tillögu ráð-
herra fær spítalinn í Hafnarfirði
helminginn af þeirri fjárhæð sem
átti að skera niður. „Forsvarsmenn
St Jósefsspítalans í Hafnarfirði und-
irrituðu samkomulag við ráðherr-
ann á þriðjudaginn, um að standa að
hagræðingaraðgerðum innan þess
spítala í anda samdráttar í fjárveit-
ingum. Þeir vom þegar búnir að
gera tillögur um þó nokkum sparn-
að og ætla einfaldlega að halda því
starfi áfram," segir Þorkell.
-js
Ríó vill ekki gull
Hljómplatan „Landið fýkur burt“,
með Ríó, hefur nú selst í um það
bil 14.000 eintökum. Platan er
gefin út af Landgræðslunni, sem
einnig hlýtur allan ágóða af sölu
plötunnar.
Lionshreyfingin á íslandi ber
hitann og þungann af dreifingu,
en platan er einnig til sölu í flest-
um hljómplötuverslunum lands-
ins.
Með réttu ættu félagarnir í Ríó að
vera búnir að fá afhentar gull- og
platínuplötur fyrir sinn þátt í
þessu átaki. Þeir hafa hins vegar
látið þau boð út ganga, að slíkt sé
dýrt spaug og þeir vilji ekki að lagt
verði í þann kostnað. GS.
Þessi mynd náöist af Bryan Adams á blaðamannafundi í gær áður en einn af undirsátum rokkgoðs-
ins bannaði frekari myndatökur. Ugglaust vildi hann með þeirri aðgerð koma í veg fýrir að rokkara-
ímynd tónjöfursins yrði fýrir hnjaski. Timamynd: Ami Bjama
Bryan Adams er leiður yfir því að hafa þurft að aflýsa tónleikum sínum:
„Hef aldrei aflýst áöur“
Bryan Adams, tónlistarmaður frá
Kanada, boðaði í gær til blaðamanna-
fundar vegna rafmagnsbilunarinnar,
er olli því að aflýsa þurfii tónleikum
hans í Laugardalshöll á jmðjudags-
kvöld. Aðspurður um það, hveiju
hann kenndi um bilunina, kvaðst Ad-
ams telja að rafmagnskerfi hússins
hefði brugðist Hann sagði tækja-
búnað þann, sem hann hafi yfir að
ráða, aldrei hafa látið á sér standa.
Einnig sagði Adams að umrætt
þriðjudagskvöld hafi hann í fyrsta
skipti þurft að aflýsa tónleikum á
ferli stnum.
Til þess að koma til móts við von-
svikna gesti þriðjudagskvöldsins var
ákveðið að þeir miðar myndu gilda á
tónleika Adams, er fóru fram í gær,
ásamt þeim miðum er upphaflega
áttu að gilda á þá. Því var búist við
mun fleira fólki en lög segja til um að
sé heimilt að hafa í Laugardalshöll.
Því hefur þeim, sem ekki komust að,
verið lofað endurgreiðslu. Einn af
talsmönnum Adams kvaðst þó í gær
vera vongóður um að fleiri fengju að
koma á tónleikana en lög gera ráð fyr-
ir. „Undantekningar frá ámóta lögum
eru leyfðar í flestum öðrum löndum,"
sagði hann.
Rafmagnsbilunin kom upp um fjög-
urleytið á þriðjudag. Var reynt að
komast yfir bilunina árangurslaust til
kl. rúmlega 22:00. Tónleikamir áttu
að standa í tvo tíma og átti að vera
lokið kl. 23:00. Adams sagðist hafa
verið ákveðinn í því að spila dagskrá
sína til enda, ef raftnagnið hefði kom-
ist í lag, jafnvel þótt hann hefði þurft
að fara fram yfir tímann. Hann sagði
það ekki hafa komið til greina að spila
með óraftengduni hljóðfærum. „Það
hefði einungis valdið áheyrendum
vonbrigðum," sagði Adams. Adams
kvaðst í gær hafa verið reiðubúinn til
þess að bæta fyrir aflýstu tónleikana
með öðrum tónleikum. Kom þá til
greina að halda tvenna tónleika í gær
eða tónleika í kvöld. í það var hins
vegar ekki ráðist.
Tónleikamir í gær voru þeir síðustu
á ferð Adams um Evrópu. Aðspurður
um hvort hinir aflýstu tónleikar
hefðu ekki gefið honum kærkomna
hvfld sagði Adams: „Ég kom ekki til
íslands til þess að liggja inni á hótel-
herbergi." GS.
Nýverið fékk Egiil Olafsson gullplötu, þegar fýrsta sólóplata hans,
„Tifa Tifa“, hafði selst í yfir 3000 eintökum. Það var Halldór Bach-
mann, markaðsstjórí Skífunnar hf., sem afhenti Agli verðlaunin.