Tíminn - 19.12.1991, Qupperneq 15

Tíminn - 19.12.1991, Qupperneq 15
Fimmtudagur 19. desember 1991 Tíminn 15 ÍÞRÓTTIR Handknattleikur — 1. deild: Trufan með 15 mörk í 29-26 sigri Víkinga á ÍBV NBA-körfuboltinn: Lakers sigraði meistara Bulls Chicago Bulls töpuðu sínum fjórða leik í NBA-deildinni í vetur, er leikmenn Los Angeles Lakers komu í heimsókn, með Magic Johnson í fararbroddi. Magic lék þó ekki með, en var á bekknum fé- lögum sínum til halds og trausts. Nærvera Magics hefur haft góð áhrif á leikmenn liðsins, sem verið hafa nær ósigrandi að undan- fömu, eftir afleita byrjun. Úrslitin urðu þessi í fyrrinótt: New York-New Jersey 102-94 Orlando-Boston 98-105 Charlotte-Utah 102-122 Atlanta-Indiana 117-113 Cleveland-Miami 148-80 Chicago-Los Angeles Lakers 89-102 Dallas-San Antonio 87-98 Houston-Washington 100-97 Golden State-Minnesota 119-105 Seattle-Los Angeles Clippers 116- 99 BL Alexej Trufan, Sovétmaðurinn í liði Vfldnga, fór á kostum og skoraði 15 mörk fyrir lið sitt í gær, þegar Eyja- menn máttu lúta í lægra haldi í Vík- inni 29-26, í leik sem einkenndist af mistökum og áhugaleysi. Það eina, sem gladdi augað, var stórleikur TYufans og tilbrigði hins smávaxna Ungverja, Zoltans Belanýi, í liði Eyjamanna, sem skoraði mörg glæsileg mörk, meðal annars með langskoti yfir vörn Víkinga, sem var oft illa á verði í leiknum. Víkingar höfðu frumkvæðið allan leikinn, en gerðu út um hann í upp- hafi síðari hálfleiks, er þeir skoruðu fimm mörk í röð, en staðan í hálfleik var 15-12. Undir lokin var kæruleys- ið og áhugaleysið allsráðandi og með smáheppni hefði ÍBV getað hirt ann- að stigið. ÍBV náði að minnka mun- inn úr átta mörkum niður í tvö, 28- 26. Athygli vakti ungur leikmaður hjá Víkingum, Helgi Bragason, en hann kom inná í vinstra hornið undir lok leiksins. Mörkin, Víkingur: TYufan 15/6, Birgir 5, Bjarki 3, Ámi 2, Helgi 1 og Gunnar 1. ÍBV: Belanýi 7/1, Guð- finnur 6, Sigurður G. 4, Sigurður F. 4/1, Haraldur 3, Jóhann 1 og Erling- ur 1. BL NBA-körfuboitinn: Sports lllustrated velur íþróttamann ársins í Bandaríkjunum: Michael Jordan hlaut heiðurinn Michael Jordan, stjaman í liði Chicago Bulls sem sigraði í NBA- körfuboltadeildinni sl. vor, var á þriðjudagskvöldið valinn íþrótta- maður ársins hjá tímaritinu Sports IUustrated. Jordan varð stigakóngur í deildinni í fimmta sinn í röð á síðasta keppn- istímabili, auk þess sem hann var valinn besti leikmaður (MVP) deild- arinnar og úrslitakeppninnar, eftir viðureignimar gegn Los Angeles La- kers. Jordan er þriðji körfubolta- maðurinn sem blaðið veitir þennan heiður. Hinir tveir em Bill Russell, fyrmm miðherji Boston Celtics, og Kareem Abdul-Jabbar, fyrmm mið- herji LA Lakers. „Það er mikill heiður fyrir mig að vera settur í flokk með þessum leik- mönnum og ég er mjög ánægður," sagði Jordan. Michael Jordan mun prýða forsíðu næsta tölublaðs SI, sem kemur út á mánudaginn. Það verður í 21. sinn sem þessi 28 ára snillingur prýðir forsíðu vikublaðsins. Aðeins þrír íþróttamenn hafa oftar viðrað snjáldrið á forsíðu blaðsins, Mu- hammad AIi 31 sinni, Kareem Ab- dul- Jabbar 27 sinnum og Jack Nick- laus 23 sinnum. Jordan hefur verið mjög í sviðsljós- inu á árinu og ekki alltaf út af góðu. Nýlega kom út bók, Jordan Rules“, þar sem dregin er upp neikvæð mynd af honum. Honum er lýst þar sem miklum eiginhagsmunasegg sem drottni yfir Chicago-liðinu, þannig að meðspilurum hans sé misboðið. Þá féll það ekki í góðan jarðveg í Bandaríkjunum þegar Jordan mætti ekki í Hvíta húsið, þegar George Bush tók á móti ný- krýndum meisturum. „Þetta hefur verið gott og slæmt ár; ég hef farið frá því að vera andbandarískur til þess að vera valinn íþróttamaður ársins," segir Jordan. Hann segist ætla að vera jákvæðari í framtíðinni. „Ef ég er ekki brosandi inni á leik- vellinum, þá ýtið þið við mér,“ sagði Jordan við fréttamenn. Með Jordan á blaðamannafundin- um vegna útnefningarinnar, var vin- ur hans, Earvin „Magic" Johnson, sem nýlega lagði skóna á hilluna vegna HlV-smits. Magic sagði að Jordan ætti betri meðferð skilið frá blaðamönnum en þá, sem hann hefði fengið að undanfömu. Magic ítrekaði einnig vilja sinn að leika með bandaríska landsliðinu á Ólympíuleikunum í Barcelona næsta sumar. „Ég vil að hann verði með, ef hann mögulega getur. Ein af ástæðunum fyrir því að ég vil vera með í Barcelona er sú, að mig lang- ar að leika við hliðina á Magic," sagði Michael Jordan. BL Cleveland setti met í stigamun Leikmenn Cleveland Cavaliers voru heldur betur í stuði í fyrrinótt, þegar liðið setti met í stigamun með því að sigra Miami Heat með 68 stiga mun, 148-80 á heimavelli sínum Richfl- eld Coliseum. Fyrra metið, 63 stig, setti Los Ange- les Lakers árið 1972, þegar liðið sigr- aði Golden State Warriors 162-99. Cleveland var 10 stigum yfir eftir fyrsta fjórðung og 20 stigum yfir f leikhléi 73-53. í fjórða leikhluta var um einstefnu að ræða, Cleveland skoraði 42 stig gegn 13 og sigraði eins og áður segir 148-80. John Battle og Mark Price voru stigahæstir í liði Cleveland með 18 stig hvor, en átta leikmenn liðsins skoruðu yfir 10 stig hver. ^TDRÖGO^ 24. DESEMBES Michael Jordan, íþróttamaður ársins hjá Sports lllustrated. Við þökkum öllum þeim sem hafa þegar borgaö heimsenda hapþdrættismiöa og minnum hina á góöan málstaö og glæsilega vinninga. Athugiö: í þetta sinn voru miðar einungis sendir konum, á aldrinum 20-75 ára, en miöar fást á skrifstotu happdrættisins í Skógarhlíö 8 (s. 621414) og í sölubílnum á Lækjartorgi. VINNINGAR: 1. FORD EXPLORER XLT 4ra dyra, sjálfskiptur. Verðmæti 3.000.000 kr. 2.-4. BIFREIÐ AÐ EIGIN VALI eða greiðsla upp í íbúð. Verðmæti 1.000.000 kr. 5.-54. VÖRUR EÐA FERÐIR fyrir 130.000 kr. 55.-104. VÖRUREÐA FERÐIR fyrir 80.000 kr. HVER KEYPTUR MIÐI EFLIR SÓKN OG VÖRN GEGN KRABBAMEINI! í Krabbameinsfélagiö Húsbréf Útdráttur húsbréfa Nú hefur farið fram fimmti útdráttur húsbréfa í 1.flokki1989 og annar útdráttur húsbréfa í 1. flokki 1990. Einnig fyrsti útdráttur í 2. flokki 1990. Koma bréf þessi til innlausnar 15. febrúar 1992. Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði og upplýsingar liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. Cph HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS LJ HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI91-696900 LEKUR ER HEDDIÐ BLOKKIN? : SPRUNCIÐ? Vlögerðir á öllum heddum og blokkum. Plönum hedd og blokkir — rennum ventla. Eigum oft skiptihedd í ýmsar geröir bifreiöa. viöhald og viögeröir á iönaöarvélum — járnsmíöi. Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin—Sími 84110 BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ. MUNID ÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar Landsbvgffðar- ÞJÓNUSTA fyrirfólk, stofyanir og fyrirtæki á landsbyggðinnL Pöntum varahluti og vörur. Samningsgerð, tilboð í flutninga. Lögfræðiþjónusta, kaup og sala bifreiða og húsnæðis. Okkur er ekkert óviðkomandi, sem getur léttfólki störfin. LANDSBYGGÐ HF Ármúla 5-108 Reykjavik Símar 91-677585 & 91-677586 Box8285 Fax 91-677568 • 128 Reykjavík SIMI 91-676-444 Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga AUGLÝSINGASÍMAR TÍMANS: 680001 & 686300

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.