Tíminn - 29.02.1992, Page 8
8 Tíminn
Laugardagur 29. febrúar 1992
ASI kynnir hugmyndir
sínar fyrir ríkisstjórn
/Uþýóusamband íslands lagði fram á fundi með ríkisstjórninni
í gær lista yfir þau atriði sem það telur brýnt að taka upp í tengslum
viði gerð kjarasamninga. Plestöll þessara atriða snerta þær aðgerðir
sem framkvæmdar hafa veríð af ríkisstjórninni að undanfömu. Ekki
vrr búist við formlegum svörum frá ríkisstjórainni strax en ljóst að þau
atriði sem ASÍ vill taka upp munu hafa talsverð útgjöld í for með sér
fyrir ríkissjóð. Hér á eftir fer minnisblað Alþýðusambandsins frá þess-
um fundi með athugasemdum við hvera lið listans.
og jwí reyndi vart á þak í því kerfi.
Meðal þess sem fram kemur í þessu
minnisblaði eru kröfur um að fallið
verði frá ýmsum aðgerðum á sviði heil-
brigðismála, skattamála og trygginga-
máJa:
ASÍ leggur áherslu á eftirfarandi atriði í
viðræðum við stjómvöld:
Heilbrigðisþjónusta og
tryggingar
1. Lyfjakostnaöur
a) Sett verði þak á lyfjaútgjöld 12.000
kr. á einstakling og fyrir bömin sameig-
inlega yfir árið og 20.000 á fjölskyldu.
b) Endurskoðuð verði ákvæði um það
hverjir fái lyfjakort.
Alhugasemdir: Spamaðaráform stjóm-
valda á fjárlögum 1992 em um 400
milljónir vegna þessa liðar. Þar sem
ekkert þak er í lyfjagreiðslunum skv.
reglunum í dag, kemur hann hart nið-
ur, sérstaklega á bamafólki. Þótt því hafi
verið haldið fram að þeir sem eru haldn-
ir alvarlegum langtímasjúkdómum eigi
kost á lyfjakortum er framkvæmdin oft
önnur. Það virðist tilviljanakennt hverj-
ir fá lyfjakort og hveijir ekki.
2. Greiðslur fyrir læknisþjónustu og
heilsugæslu.
a) Frítt verði fyrir böm.
b) 20.000 hámarksgreiðsla verði fyrir
fjölskyldu.
Aíhugasemdir: Spamaðaráform stjóm-
valda á Qárlögum 1992 em 590 milljón-
ir skv. fréttatilkynningu sem send var
frá heilbrigðis- og tryggingaráðuneyt-
inu í tengslum við útgáfú reglugerðar
um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði
vegna heilbrigðisþjónustu. Þessi aukna
gjaldtaka kemur einkum niður á bama-
fólki. Þótt þaki hafi verið breytt frá fyrra
kerfi, þannig að böm í sömu fjölskyldu
séu talin einn einstaklingur, þá er á það
að líta að áður var heimsókn til heimil-
islæknis og á heilsugæslustöð gjaldffí
3. Niðurskurður á sjúkrahúsum.
Setja verður skorður við fjöldaupp-
sögnum sem leiða eiga til endurskipu-
lagningar, þannig að aldrei verði sagt
upp öðmm en þeim sem eiga að láta af
störfum.
Athugasemdir: Vistgjöld sjúkrastofn-
ana lækka skv. fjárlagafrumvarpi um
830 milljónir. Að auki á 5% flatur niður-
skurður að gefa 850 milljónir. Samtals
er hér gert ráð fyrir spamaði upp á 1700
milljónir. Samdráttur í umsvifum
sjúkrahúsa kemur einkum fram í fækk-
un ófaglærðs starfsfólks, sem er félags-
menn ASÍ. Sú aðferð sem farin er, að
segja öllu starfsfólki upp störfum og
endurráða síðan einhvem hluta hóps-
ins, er ámælisverð. Þannig er fólk þar
með svipt lögmætum uppsagnarfresti.
4. Tannlækniskostnaður
a) Þátttaka foreldra í kostnaði vegna
barna verði 5% í stað 15%.
b) 5% tannlæknakostnaðar alls al-
mennings verði endurgreiddur af rík-
inu.
Athugasemdir: Breytingar á þátttöku
almennings í tannlæknakostnaði eiga
að skila ríkissjóði 280 milljónum f ár.
ASÍ telur að fara verði varlega í allar
álögur á bamafólk, en bendir jafnframt
á að með því að endurgreiða einhvem
hluta af almennum tannlæknakostnaði
megi ná fram spamaði vegna aukinna
skatttekna ríkissjóðs.
5. Hjálpartæki
Hætt verði við öll áform um aukna
þátttöku sjúklinga í kostnaði við hjálp-
artæki.
Athugasemdir: Skv. fjárlögum var ráð-
gert að spara á þessum lið 95 milljónir.
Koma verður í veg fyrir að þeir sem
sjúkir em og fatlaðir séu skattlagðir sér-
staklega.
6. Tekjutenging grunnlífeyris elli- og
örorku
a) Grunnh'feyrir verði ekki tekjutengd-
ur.
b) Ráðist verði í heildarendurskðun á
kerfi almannatrygginga og lífeyrissjóða.
Athugasemdir: Aform um spamað skv.
þessum lið em 260 milljónir brúttó, en
af þeim hefði ríkissjóður skatttekjur,
þannig að nettó spamaður er áætlaður
170 milljónir. ASÍ er mótfallið öllum
skerðingum á gmnnlífeyri fólks. Enn er
ítrekuð krafan um heildarendurskoðun
almannatrygginga og lífeyrissjóða, enda
þörfin óljós.
7. Fæðingaroríof
Hvaða breytingar em fyrirhugaðar?
Athugasemdir: Fyrir tveimur ámm var
samið fmmvarp um fæðingarorlof sem
fól í sér ýmsar lagfæringar á núverandi
kerfi. Fmmvarpið var þó aldrei lagt
fram á Alþingi og óljóst hvaða áform
em uppi af hálfu stjómvalda til lagfær-
inga á kerfinu eins og það er í dag. Rétt-
ur fólks til fæðingarorlofs er mjög mis-
jafn í dag, mikill munur á rétti opin-
berra starfsmanna og fólks á almenn-
um vinnumarkaði, munur á rétti karla
sem giftir em konum í starfi hjá hinu
opinbera og annarra karla, munur á
rétti bankamanna og annarra og svo
mætti áfram telja.
8. Atvinnuleysisbætur
f fjárlögum er ekki gert ráð lyrir auk-
inni Ijárþörf sjóðsins vegna aukins at-
vinnuleysis á þessu ári. Miðað við 2%
atvinnuleysi á árinu vantar 150 millj-
ónir í sjóðinn. Em áform uppi um
breytta aðild að Atvinnuleysistrygg-
ingasjóði?
Athugasemdir: Allt bendir til að at-
vinnuleysi verði enn meira en 2% á ár-
inu í heild og því Ijóst að mun meiri
fjármuni þurfi til Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs en að ofan greinir. Heyrst
hefur að til standi að breyta aðild að At-
vinnuleysistryggingasjóði, en aðilar
vinnumarkaðarins haifa ekki fengið að
fylgjast með endurskoðun laganna. Ef
til stendur að veita fleiri aðilum rétt til
atvinnuleysisbóta frá því sem nú er,
vantar þá enn frekari Ijármuni til sjóðs-
ins.
9. Ferðakostnaður sjúklinga
Bæta verður framkvæmd á greiðslu
ferðakostnaðar sjúklinga af lands-
byggðinni.
Athugasemdir: Sú túlkun sem við er
höfð á ferðakostnaði sjúklinga utan af
Iandi virðist þröng og tilviljanakennt
hverjir fá greiðslu og hverjir ekki. Með
aukinni áherslu á þjónustu sjúkrahús-
anna á höfuðborgarsvæðinu verður að
gæta þess að landsmenn sitji við sama
borð við að sækja sér þá þjónustu.
Skattar
1. Persónuafsláttur
Persónuafsláttur verði framreiknaður
miðað við verðlagsþróun á sl. ári.
Athugasemdir: Sú ákvörðun að halda
persónuafslætti um sl. áramót þrátt
fyrir verðlagsþróun síðasta árs skilar
ríkissjóði á þessu ám 1200 milljónum
króna. Hér er beitt skattahækkunum
með lævísum hætti. Minnt er á að í al-
þingiskosningum sl. vor lýstu allir
stjómmálaflokkar yfir andstöðu við
skattahækkanir og vildu flestir hækka
persónuafslátt vemlega frá því sem var.
2. Bamabætur
a) Tekjutenging bamabóta verði af-
numin. í stað hennar komi hátekju-
skattur og skattur á fjármagnstekjur.
(Sjómenn hafa fyrirvara á hátekju-
skatti.)
b) Ef ekki verður orðið við þessu, þá
verði bamabætur tekjutengdar, en ekki
aðeins sett í þær þrep. Bent er á að ná
má sama árangri með því að hefja
skerðingu bamabóta við töluvert hærri
tekjumörk og láta bætumar fjara alveg
út.
Athugasemdir: Samkvæmt fjárlögum
skilar tekjutenging bamabóta ríkis-
sjóði 500 milljónum. ASÍ telur fráleitt
að skattleggja bamafólk sérstaklega
eins og hér var gert, en gefast upp við
skattlagningu hátekjufólks. Ein og
breytingin á bamabótunum er útfærð
vom bætur skertar hjá fólki sem rétt
náði meðaltekjum.
Annað
1. Ríkisábyrgð á laun
Tryggja verður ríkisábyrgð á launum
og lífeyrissjóðsgjöldum við gjaldþrot.
Athugasemdir: Með afnámi núgildandi
laga sparar ríkið 350 milljónir. ASÍ set-
ur sig ekki upp á móti einhvers konar
gjaldtöku á atvinnurekendur til að
standa straum af kostnaði við launa-
greiðslur við gjaldþrot, en krafa er gerð
til þess að ríkissjóður ábyrgist fólki
greiðslamar. Ennfremur fellst ASÍ ekki
á að ábyrgð ríkisins á lífeyrissjóðsið-
gjöld verði afnumin. Lífeyrissjóðsið-
gjöld, sem fyrirtækin hafa dregið af
starfsmönnum og ekki skilað lífeyris-
sjóðunum, em ekkert annað en sá hluti
launa sem standa á straum af kostnaði
fólks á elliámm. Með því að taka iífeyr-
issjóðsgjöldin úr ríkisábyrgðinni er
verið að ógna lífeyrisréttindum fólks-
ins.
2. Skólagjöld
Taka þarf sérstakt tillit til fólks utan af
landi vegna mikiis kostnaðar við skóla-
göngu í Reykjavík, svo og sjúklinga, ör-
yrkja og lágtekjufólks.
Athugasemdir: Skólagjöld í háskólum
landsins em áætluð um 100 milljónir.
Þessi kostnaður lendir sérstaídega
harkalega á þeim sem lakar em settir,
svo sem fólki utan af landi, sjúklingum,
öryrkjum og lágtekjufólki.
3. Dómsmálagjöld
Fmmvarp um opinbera réttaraðstoð
sem lagt var fram á síðasta þingi verði
að lögum.
Athugasemdir: Hækkun á ýmsum
dómsmálagjöldum, s.s. vegna þinglýs-
inga, veðbókarvottorða, ökuskírteina,
vegabréfa, ýmissa leyfisgjalda, skipa-
skoðunargjalds, ýmissa dómsmála-
gjalda og sektargreiðslna gefa ríkissjóði
f viðbótartekjur 1992 samtals 404 millj-
ónir skv. áætlun þar um. Vegna þessa
verður enn erfiðara en nú er fyrir lág-
Iaunafólk að fylgja eftir rétti sínum fyr-
ir dómstólum þessa lands. Því er þess
krafist að opinberri réttaraðstoð verði
komið á fót.
4. Húsnæðismál
Gert verði samkomulag um 5 ára áætl-
un um uppbyggingu félagslega kerfis-
ins.
Athugasemdir: Félagslega húsnæðis-
kerfinu er ætlað að mæta þörfum lág-
launafólks. Áætlun um markvissa upp-
byggingu til lengri tíma er mikilvæg
svo hægt sé að ná árangri.
Sérfræðinganefnd Evrópuráðsíns segír að íslensk löggjöf brjótl í bága vlð féiags*
málasáttmála ráðsins. Björn Bjarnason, formaður íslandsdeildar Evrópuráðsins:
Stefna aö auknu
frelsi í stéttar-
félagsmálum
Björn Bjamason, formaður ís-
landsdeildar Evrópuráðsins, segir
að brýnt sé að pólftísk afstaða
verði teldn um framtíðarstefnu í
stéttarfélagsmálum á íslandi, en
fram hefur komið hjá sérfraeð-
inganefnd Evrópuráðsins að ís-
lensk löggjöf brjóti í bága við fé-
lagsmálasáttmála Evrópuráðsins.
Björa sagði í skýrslu Islandsdeil-
ar ráðsins, sem hann flutti á Al-
þingi á fimmtudag, að að sínu viti
eigi sú stefna að miða að því að
auka frelsið hér á landi í samræmi
við það sem almennt er viður-
kennt hæfiiegt hjá aðildamkjum
Evrópuráðsins. „Skylduaðfld að
stéttarfélögum samrýmist greini-
lega eldd mati sérfræðinganefnd-
arinnar og hklega verður þess
ekk) lengi að bíða að fyrír liggi
niðurstaöa mannréttindanefndar-
htnar um hvort gildi laganna um
leigublfrelðar verði sannreynt fyr-
ir mannréttindadómstólnum á
grundvelii 11. greinar mannrétt-
indasáttmálans um félagafrelsi,“
sagði Björn Bjarnason, alþingis-
maður og fulltrúi í íslandsdeUd
Evrópuráðsins, í skýrslu sinni.
Sérfræðinganefnd Evrópuráðs-
íns starfar á grundvelii sáttmálans
og fær hún skýrslur á tveggja ára
fresti um stöðu mála í aðildarríkj-
unum og sér Gylfl Kristinsson,
deildarstjóri í félagsmáiaráðu-
neytinu, um þær skýrslugerðir.
Gylfi er fulltrúi íslands í embætt-
ismannanefnd sem starfar á veg-
um ráðherranefndar Evrópuráðs-
ins
Sérfræðínganefndín gerir at-
hugasemdir um að Island full-
nægi ekki kröfum 5. greinar fé-
lagsmálasáttmáia Evrópuráðsins,
þar sem mælt er fyrir um frelsi
verkafólks og vinnuveitenda tii að
stofna stéttarfélög og tU að ganga
í þau. Þar er ennfremur mælt fyr-
ir um skuidbindingar samnings-
aðila um að sjá til þess að landslög
skerði ekki þetta frelsi. í því sam-
bandi bendir nefndin á að ákvæði
1. greinar laga um atvinnutrygg-
ingarsjóð og lög nr 77 frá árinu
1989 um leigubifreiðar, þar sem
bílstjórar eru skyldaðir til aö vera
í stéttarfélagi, brjóti í bága við 5.
greinina. Þessu hefur fulltrúi ís-
Íands mótmælt við sérfræðinga-
nefndina, en verði niöurstaðan sú
að íslensk löggjöf bijóti í bága við
félagsmálasáttmálann verður
óskað eftir því við íslensk sijóra-
völd að þau endurskoði hana.
-PS
Þingmenn stjórnarandstöðunnar leggja fram
þingsályktunartillögu:
Brýtur EES gegn
stjórnskipuninni?
Þingmenn úr stjórnarandstöðunni
hafa lagt fram þingsályktunartillögu
á Alþingi um að sett verði á fót nefnd
sex sérfróðra manna sem athugi
hvort aðild íslands að evrópska efna-
hagssvæðinu, í því formi sem fyrir
liggur í samningsdrögum nú eða síð-
ar, brjóti með einhverjum hætti
gegn íslenskri stjórnskipun eða
hvort gera þurfi breytingu á stjórn-
arskrá íslands. Gert er ráð fyrir að
nefndina skipi tveir menn frá Dóm-
arafélagi ísiands, lagadeild Háskól-
ans og Lögmannafélagi íslands.
Flutningsmenn að tillögunni eru
Hjörleifur Guttormsson, Steingrím-
ur Hermannsson, Anna Ólafsdóttir
Björnsson og Ólafur Ragnar Gríms-
son.
Tillagan gerir ráð fyrir að nefndin
skili áfangaáliti 15. maí í vor og end-
anlegum niðurstöðum 1. júlí 1992.
í greinargerð með frumvarpinu er
vitnað til álits íslenskra lögfræðinga
sem hafa sett fram efasemdir um aö
EES-samningurinn stæðist íslenska
stjórnskipun og jafnvel að hann kall-
aði á breytingar á stjórnarskránni.
Minnt er á að sömu efasemdir hafa
komið fram í öðrum EFTA-ríkjum
m.a. í Sviss og Noregi. -EÓ
Óhapp eins hreyfils flugvélar á
Reykjavíkurflugvelli:
Fauk út í
snjóskaf I
Eins hreyfils flugvél fauk út af flug-
braut á Reykjavíkurflugvelli um há-
degisbil í gær. Þrír menn voru í vél-
inni og sakaöi engan. Óhappið varð
með þeim hætti að vélin var á leið
vestur flugbrautina sem liggur að
Suðurgötu og var í þann veginn að
snúa við í flugtak þegar snörp vind-
hviða henti henni út í snjóruðninga
við brautina. Skemmdir urðu ein-
hverjar á hjólabúnaði og öðrum
vængnum. -PS