Tíminn - 07.03.1992, Blaðsíða 1
Laugardagur
7. mars 1992
48. tbl. 76. árg.
VERÐ I LAUSASÖLU
KR. 110.-
Fara sauð-
fjárbænd-
ur í mál
vii ríkið?
Allsherjarnefnd Búnaðarþings hef-
ur lagt tillögu fyrir þingið þar sem
skorað er á Stéttarsamband bænda
að standa fast á rétti sauðfjárbænda
um að ríkisstjórnin standi að fullu
og öllu við búvörusamninginn.
Brjóti ríkisstjórnin ákvæði samn-
ingsins, t.d. með því að fresta bein-
um greiðslum til bænda til ársins
1993, eins og ríkisstjórnin hefur lýst
yfir að hún ætli að gera, þá höfði
Stéttarsambandið þegar í stað
skaðabótamál á hendur ríkissjóði
fyrir hönd bænda. -EÓ
HERRA-
NOTT MR
Herranótt Menntaskólans í
Reykjavík frumsýnir á sunnu-
daginn leikritið Sölku Völku eftir
Halldór Laxness, í leikgerð þeirra
Stefáns Baldurssonar og Þor-
steins Gunnarssonar. Tilefnið er
að Nóbelsskáldið er nírœtt i ár.
Sigrún Valbergsdóttir er leik-
stjóri sgningarinnar. Á meðfglgj-
andi mynd má sjá Amald og
Söl/cu rœða þjóðmálin, en þau
eru leikin af Guðmundi Stein-
grímssyni og Sólveigu Amar-
dóttur. Þess má til gamans geta
að leikaramir eiga báðir foreldri
sem tekið hafa virkan þátt í þjóð-
málaumrœðunni m.a. á Alþingi
íslendinga, en það eru þau Stein-
grímur Hermannsson alþm. og
Þórhildur Þorleifsdóttir fyrrv.
alþm. Tímamynd Ami Bjama
Þrír bændur senda þingmönnum og fulltrúum á Búnaðarþingi bréf þar sem segir að verði tillaga um bann við lausa-
göngu búfjár í landnámi Ingólfs ekki samþykkt verði sett af stað áætlun um lambakjötslausa viku:
Bændur í Ölfusi hóta
lambakjötslausri viku
Þrír bændur í Ölfusi hafa sent öllum alþingismönnum og fulltrúum
á Búnaðarþingi bréf þar sem vakin er athygli á því að unnin hefur
verið áætlun um átak gegn neyslu lambakjöts, „lambakjötslaus
vika“. Bændurnir, og hópur manna í kringum þá, hyggjast setja
þessa áætlun í gang ef tillaga á Búnaðarþingi um bann við Iausa-
göngu búfjár í landnámi Ingólfs og þingsályktunartillaga sama efn-
is, sem liggur fyrír Alþingi, verða ekki samþykktar. Umhverfisnefnd
Búnaðarþings lagði í gær að til að tillagan yrði ekki samþykkt.
Jón Halldór Hannesson, bóndi í
Ölfusi, en hann á sæti í undirbún-
ingsnefndinni, sagði að nefndin vildi
með bréfinu gera fulltrúum á Bún-
aðarþingi grein fyrir því að ef tillaga
um lausagöngu búfjár í landnámi
Ingólfs verður ekki samþykkt á
þinginu og hrint í framkvæmd mjög
fljótlega, sé hætta á að áhugamenn
um friðun svæðisins fyrir búfé gefist
upp á biðinni og grípi til róttækra
aðgerða.
Aðspurður sagðist Jón Halldór telja
að bændur hafi of lengi dregið lapp-
irnar í þessu máli. Gera verði for-
ystumönnum bænda grein fyrir því
að þeim sé ekki lengur stætt á því að
tefja málið. Hann sagðist hins vegar
vera sannfærður um að mikill
meirihluti bænda og forystumanna
þeirra styðji tillögu um friðun land-
náms Ingólfs. Andstæðingar tillög-
unnar megi hins vegar ekki komast
upp með að tefja máíið frekar.
I bréfi undirbúningsnefndarinnar
er gefin stutt lýsing á áætluninni
„lambakjötslaus vika“. Fengnir verði
til samstarfs ýmsir aðilar til að skrifa
í blöð og styðja málefnið á annan
hátt. Þar eru nefnd skógræktarfélög,
nýaldarhreyfingin, félög fisksala, fé-
lög sumarbústaðaeigenda, félög
þjóna, kokka og veitingahúsaeig-
enda, verslunarmenn o.fl.
Síðan eru talin upp ýmis rök sem
þessir aðilar gætu dregið fram. Þar
má nefna hátt verð á kjöti, manneld-
issjónarmið, trúar- og mannúðar-
sjónarmið (Þar segir orðrétt: „gegn
kjötneyslu almennt, kjötneysla
hægi á þróun til hærri vitundarstiga
o.s.frv.") og andstaða sauðfjárbænda
vegna tillitsleysis þeirra s.s. órétt-
látra girðingalaga og slysa á þjóð-
vegum. Þá eru nefnd til byggðasjón-
armið, þ.e. að lausaganga sauðfjár
fæli fólk frá því að setjast að í dreif-
býli.
Að síðustu er getið um sjálfa áætl-
unina, en hún er í fimm stigum.
Áætlunin nær til nærri heils árs og
er miðað við að lambakjötslausa vik-
an verði í byrjun febrúar 1993. „Vik-
unni lýkur með þorrablóti að forn-
um hætti, þ.e. án lambakjöts." Ekki
kemur fram í áætluninni hvaða rétt-
ir verða á boðstólum á þorrablótinu.
Umhverfisnefnd Búnaðarþings
lagði í gær fram ályktunartillögu á
þinginu um að tillagan um að banna
lausagöngu búfjár í landnámi Ing-
ólfs verði ekki samþykkt. í greinar-
gerð með tillögunni er bent á að
starfandi sé nefnd sem vinnur að
mótun tillagna um friðun landnáms
Ingólfs fyrir lausagöngu búfjár og að
í flestum sveitarfélögum á svæðinu
sé unnið að skipulagi á svæðinu. Til-
lagan sé því óþörf.
Með landnámi Ingólfs er átt við
svæði sem takmarkast af línu sem
dregin er úr Hvalfjarðabotni í þjóð-
garðinn á Þingvöllum og þaðan suð-
ur Þingvallavatn, Úlfljótsvatn, Sog
og Ölfusá til sjávar. -EO
Síoasta
er í nánd en með honum er veittur verulegur afsláttur af Macintosh-tölvubúnaði.
Aðgang að samningnum eiga: Ríkisfyrirtæki, sveitarfélög landsins og starfsmenn
þeirra, kennarar, nemendur á háskólastigi, nemendur VI, nemendur innan BÍSN
og allir menntaskólanemar.
Lokadagur pantana er 25. mars
1—/
Innkaupastofnun ríkisins
Borgartúni 7, Rvk. Sími: (91) 26844
Apple-umboðið
Skipholti 21, Rvk. Sími: (91) 624800
■&■