Tíminn - 07.03.1992, Síða 4

Tíminn - 07.03.1992, Síða 4
4 Tíminn Laugardagur 7. mars 1992 Tíminn MALSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FELAGSHYGGJU Útgefandi: Tíminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aöstoöarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guömundsson Stefán Ásgrímsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavík Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskriftog dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideiid Tímans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,-, verð I lausasölu kr. 110,- Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Markaðsstarf og atvinnuuppbygging Margir spekingar þreytast ekki á að halda því fram að við íslendingar séum skuldum vafin þjóð, vegna offjárfest- ingar sem auðvitað hefði verið hægt að komast hjá, ef vitrir menn hefðu verið við stjórnvölinn. Þessar umræður eru oft einfaldaðar svo að það gengur glæpi næst. Það er hamrað á heildarskuldum þjóðarinn- ar; þeim er síðan deilt niður á hvern einstakling. Reiknað er út hvað hver hvítvoðungur skuldar þegar hann kemur í heiminn. Allt er þetta auðvitað til þess að auka svartsýnina hjá al- menningi, þegar erfiðleikar steðja að. Þegar rætt er um skuldir heimila og fyrirtækja, eru eignir á móti skuldum metnar. Þessi regla virðist hins vegar ekki vera höfð þegar rætt er um skuldir þjóðarbús- ins. Það er rétt að íslendingar hafa farið mjög hratt í upp- byggingu á undanförnum árum. Áform um atvinnuup- byggingu í fiskeldi og loðdýrarækt hafa ekki skilað þeim árangri sem vænst var. Það var farið hratt í þá uppbygg- ingu, en ekki má gleymast að eftir sitja bæði reynsla og mannvirki, sem gætu nýst ef aðstæður breytast. Upp- bygging í orkuverum er eign þjóðarinnar, þó að markaðs- aðstæður í sölu orku til stóriðju séu örðugar nú um stundir. Hin mikla ónýtta orka, sem við höfum nú yfir að ráða, vekur til umhugsunar um það hvort hið stóra orkuöflun- arfyrirtæki okkar, Landsvirkjun, hefur hugað nóg að markaðsstarfi. í gær gat að líta í Morgunblaðinu frétt þar sem segir að umframorkan standi nýjum atvinnurekstri til boða. Þar segir að Landsvirkjun hafi kannað ýmsa möguleika um aukna orkusölu, en niðurstaða þeirra at- hugana liggur ekki fyrir, samkvæmt fréttinni. Það ber vissulega að fagna því að nú sé farið að hugsa um annað markaðsstarf hjá Landsvirkjun en að selja orku til stóriðju. Ekki verður því neitað að umræddar niðurstöður hefðu þurft að vera fyrr á ferðinni. Fyrirtæk- ið hefur alla burði til þess að láta leggja vinnu í markaðs- starf, og huga að hinu smáa í því efni. Ein orsökin fyrir því að hagvöxtur hefur stöðvast hér, er að útflutningsiðnaður hefur ekki vaxið, og ýmis iðnaður fyrir heimamarkað sem var umtalsverður, eins og t.d. húsgagnaiðnaður, hefur dregist saman. Fyrir tveimur áratugum eða svo var rætt um að iðnaðurinn mundi taka við þeirri fólksfjölgun sem yrði til aldamóta. Þetta hefur ekki orðið, og það ætti að vera ærið umhugsunarefni nú. Það er alveg ljóst að þó að Iangt sé frá að möguleikarnir séu þrotnir í sjávarútvegi, þá tekur sá atvinnuvegur ekki við því fólki sem kemur út á vinnumarkaðinn, ekki síst þar sem fólki hefur einnig fækkað í landbúnaðinum, og það vinnuafl leitar í aðrar greinar. Því verður ekki neitað að þær miklu framkvæmdir, sem verið hafa í virkjunum, og umframorkan, sem fyrir hendi er núna, hefur ekki ýtt undir atvinnuuppbyggingu. Það aetti l í að vera forgangsverkefni hjá Landsvirkjun að efla mark, ssetningu og samstarf við atvinnulífið í landinu. Það gæti orðið til þess að örva bráðnauðsynlega atvinnu- uppbyggingu, til dæmis á sviði iðnaðar. Þjóðin þarf nú á slíku að halda. Við íslendingar erum rík þjóð, þrátt fyrir mikla skuld- setningu, ef við einbeitum okkur að því að nýta þau tæki, sem við erum með í höndunum. til framleiðslu og at- vinnuuppbyggingar. Vinaleysinginn í úthafinu Herra Esko Aho, forsætiráðherra Finna, lætur hafa það eftir sér í vikunni að íslendinga bíði ein- manalegt hlutskipti er bræður þeirra elskulegir á Norðurlöndun- um verði allir með tölu hiaupnir í EB. Samstarfið í Norðurlandaráð- inu hafi að vísu verið indælt og skemmtilegt meðan það varði, en allt gaman tekur enda og þá er ekki annað eftir en að þakka fyrir sig og kveðja. Eins og til að undir- strika að þeir bræðurnir séu orðn- ir frekar leiðir á samflotinu við ör- verpið uppi í norðurhafmu, eru þeir farnir að svipast um eftir sér miklu nákomnara fólki — Pólverj- um, Litháum, Lettum, Eistlend- ingum og Prússum. Með þessum þjóðum hyggjast þeir koma á koppinn svonefndu Eystrasalts- bandalagi og halda kampavíns- veislurnar með þeim héðan af. Þar er líka frá fornu fari um miklu göf- ugri tengsl að ræða en við íslend- inga, byljandi múgmorð og sjóorr- ustur á Kattegat öld fram af öld, auk þeirrar samkenndar sem her- togaíegar giftingar þvers og kruss hljóta að hafa leitt af sér. Hvað skyldu saltaðar gærur, skreiðar- byrður og lýsisanker íslendinga svo sem vega móti slíkum frænd- semivotti, en aðra vísbendingu höfðu Eystrasaltsþjóðir varla um tilveru íslands lengst af. Til lítils er að minnast á bókmenntaarfmn, því Norðmenn hafa fyrir löngu gert þá Snorra og Leif upptæka úr eigu íslendinga. Það sást m.a. þeg- ar víkingaskipið tók land í New York og Ameríkanar sneru rassi í rokkband söguþjóðarinnar sem þandi sig niðri á 143 bryggju. Syrtir aÖ „Það syrtir að er sumir kveðja," segir í kvæðinu og búast má við að ískuldi einstæðingsskaparins fari að færast um þjóðina hvað úr hverju. Annars hafa ýmis teikn lengi verið á lofti um að Dönum og Skandinövum finnist ekkert gam- an að félagsskap íslendinga meir. Þeim hefur þótt þeir frekir og sí- sníkjandi undanþágur í krafti smæðar sinnar, þótt þeir þykist öllum stærri þegar kemur að íhlutunarrétti um mikilsverð mál- efni. Uffe Elleman Jensen fannst skörin færast upp í bekkinn þegar Jón Baldvin varð fyrri að marki á sprettinum að viðurkenna sjálf- stæði Litháa og hefur notað tæki- færið þá og síðar að gera fínt gys að þessari uppblásnu dvergþjóð. Jón Baldvin hefúr sagt frá því að Palme heitinn hafi haft til siðs að heilsa sér með tveimur fingrum, gott ef ekki rasshendinni, þegar fundum þeirra bar saman á þing- um toppkrata. Ekki hefur það vitað á gott. Gro Harlem Brundtland, sem Jón kallar nú barasta Gróu, varð oftar en einu sinni að bræða ísinn, þegar allt var hlaupið í hnút vegna þess hve íslendingar þóttu útúrborulegir á þessum þingum. Flugvélamóðurskipið ósökkvandi Og ekki er hægt að útiloka að enn fækki þeim sem til þessa hafa þóst vilja brjóta sig í stykki fýrir ást sína á íslendingum. Margt bendir til að stjórnin í Washington hætti brátt að láta sér jafnumhugað og var um hið „ósökkvandi flugvéla- móðurskip" sitt hér úti í hafinu. Þetta flugvélamóðurskip var hún þó oft búin að botnskrapa, menja og mála og gera því sitthvað ann- að til góða þegar það varð fyrir einhverjum skakkaföllum, sem hafa verið mörg, þrátt fyrir „ósökkvanleikann". Hafa enda margir átt góðu atlæti að fagna í vissum bestykkjum þess og káet- um, ekki síst timburmaðurinn um borð, Sameinaðir verktakar. Nú hefur þeim í Washington brugðið í brún er fréttist að þessi völundur hefur ekki látið sér nægja þær kræsingar sem fyrir hann voru bornar á öllum málum, en sópað leifunum af borðinu í skrínu sína og falið í lampalokunni. Þaðan deildi hann svo út kosti til vanda- manna sinna, lifandi og dauðra. Á tímum harðnandi lífsbaráttu heima í Bandaríkjunum líta menn annað eins illu auga og er nú allra veðra von hjá flugvélamóðurskip- inu ósökkvandi. Kalda stríðið er farið veg allrar veraldar og um- deilanlegt hver ávinningur er að útgerð „herskipa", hvað þá með sukksamri áhöfn. Er engan veginn skynsamlegt að afskrifa þann möguleika að Ameríkanar kalli sína menn frá borði innan tíðar og láti timburmanninn og kumpána hans sjá sjálfa um siglinguna úr þessu. „Hundurinn“ til Bretlands Svona kann vinum að fækka í hverfulli tilveru jafnt vestan hafs sem austan. Gróa, Uffe Elleman, Bildt og Esko Aho telja allt í einu til meiri skyldleika við Tevtóna og Slava en íslendinga. Víkingaskip Leifs Eiríkssonar hefur skráð sig til heimahafnar í Lofoten og flug- vélamóðurskipið ósökkvandi er að fljóta inn á úreldingarskrá í bandaríska flotanum. Þegar svona árar verður að horfa til nýrra bjargráða og leggja áherslu á að bjargast við sitt. Fyrst verður þá fyrir að hugsa um fisk- inn, en þá verða menn endilega að reyna sem aldrei fyrr að „svipull er sjávarafli" og færiböndin í frysti- húsunum færa ekkert að höndum nema gjaldþrot og uppsagnir. Ekki einu sinni langhalinn kemur að létta raunir útvegsins, því hann lætur ekki léttilega góma sig fremur en skaufhalinn. Svo er ekki víst að neinn vilji kaupa þetta kvikindi, fremur en álið, sem svo takmörkuð löngun er í nú í bili, hvað þá að menn séu fíknir í að koma upp nýrri áldeiglu. En þá er það „hundurinn" langi yfir Atlantshafið sem mænt er á að Bretar vilji máske fá. í Bretum höfum við hvorki átt sérstaka vini né óvini til þessa, en þar mætti verða breyting á. Hver veit nema nema þeir láti nú til leiðast að skoða sögueyjuna sem „ósökkv- andi rafstöð“ og þar með einkavin sinn. Með þeim gætum við þá ein- hvern tíma á ókomnum tímum gengið í nokkurs konar Erma- sundsbandalag, þeim til ævarandi háðungar sem ekki vilja lofa okk- ur að vera í Eystrasaltsbandalag- inu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.