Tíminn - 07.03.1992, Page 14

Tíminn - 07.03.1992, Page 14
14Tíminn Laugardagur 7. mars 1991 Húsverndarsjóður Reykjavíkur í lok apríl verður úthlutað lánum úr Húsvernd- arsjóði Reykjavíkur. Hlutverk sjóðsins er að veita lán til viðgerða og endurgerðar á hús- næði í Reykjavík, sem sérstakt varðveislugildi hefur af sögulegum eða byggingasögulegum ástæðum. Umsóknum um lán úr sjóðnum skulu fylgja verklýsingar á fyrirhuguðum framkvæmdum, kostnaðaráætlun, teikningar og umsögn Ár- bæjarsafns. Umsóknarfrestur er til 6. apríl 1992 og skal umsóknum, stíluðum á Umhverfismálaráð Reykjavíkur, komið á skrifstofu Garðyrkju- stjóra, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík. MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Styrkir til háskóla- náms í Kína Stjómvöld Alþýðulýðveldisins Kína bjóða fram tvo styrki handa íslendingum til há- skólanáms í Kína skólaárið 1992-93. Jafn- framt hafa kínversk stjórnvöld tilkynnt að ís- lenskum námsmönnum verði gefinn kostur á námsdvöl þar í landi án styrks. Umsóknum um styrkina, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skal skilað til menntamálaráðuneytisins, Sölv- hólsgötu 4,150 Reykjavík, fyrir 1. apríl n.k. á sérstökum eyðublöðum sem þar fást- Menntamálaráðuneytið, 6. mars 1992 ------------------------------------------------------'N í Minningarathöfn um móöur okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu Stefaníu Stefánsdóttur frá Flugustööum sem lést aö Hrafnistu 2. mars, fer fram frá Fossvogskapellu þriöjudaginn 10. mars kl. 17.00. Jarösett veröur frá Hofi I Álftafirði laugardaginn 14. mars kl. 14.00. MINNING Petrún Magnúsdóttir Fædd 16. júlí 1906 Dáin 2. mars 1992 Hver aíöðrum til hvíldar rótt halla sér nú og gleyma vöku dagsins um væra nótt, vinirnir gömlu heima. Og andlitin, sem þér ætíð fannst að ekkert þokaði úr skorðum — hin sömu jafnlangt og lengst þú manst — ei Ijóma nú við þér sem forðum. (Þorsteinn Valdimarsson) Komið er að kveðjustund eftir ríf- lega hálfrar aldar samleið og vin- áttu, sem aldrei bar skugga á. Kvödd er Petrún Magnúsdóttir, sem í fimmtíu ár var húsfreyja í Þingnesi. Petrún var fædd að Heinabergi í A-Skaftafellssýslu. Foreldrar henn- ar voru Jóhanna Eyjólfsdóttir og Magnús Jónsson. Petrún ólst upp að Heinabergi með móður sinni og Eyjólfi föður hennar, sem þar var bóndi. Hún var mjög elsk að afa sínum, sem sést best á því að hún gaf einkasyni sínum nafn hans. Um menntun var ekki að ræða, fremur en hjá öðrum alþýðustúlkum af hennar kynslóð, utan lögboðinnar barnafræðslu. En hún var alla tíð bókhneigð og las flest það, sem hún komst yfir. Þannig varð hún sjófróð um sögu og landafræði íslands, auk margs fleira. Petrún ólst upp við hefðbundin sveitastörf, skepnuhirðingu, hey- skap og smalamennsku. Góðir hestar voru á Heinabergi og Petrún sat vel hest og tamdi hross á yngri árum. Hún reiö jökulvötn eða „fór á jökli", eins og sveitungar hennar gerðu meðan jökulvötnin stríð beljuðu óbrúuð á báðar hendur. Gaman var að heyra hana rifja upp þessa atburði, eins og þeir hefðu gerst í gær. Eftir fermingu var Petrún í ýms- um vistum austur þar, en sótti síð- ar vinnu til Reykjavíkur. Þar kynntist hún starfi sjöunda dags aðventista og skírðist inn í söfnuð- inn ásamt vinkonu sinni, Guð- björgu Hákonardóttur, en þær héldu vinskap sínum meðan báðar lifðu. Það var á vegum aðventista sem Petrún réðst ráðskona að Þingnesi í Borgarfirði vorið 1936 til Hjálms Einarssonar, sem einnig var í söfn- uðinum. Hann var þar þá ráðsmað- ur, en síðar bóndi. Þau Hjálmur gengu í hjónaband og eignuðust einn son, Eyjólf, fæddan 13. októ- ber 1939. Þau Hjálmur og Petrún bjuggu ekki stórt, en áttu afurðagóðar skepnur og góða reiðhesta. Það var mesta yndi Petrúnar, meðan heilsa leyfði, að bregða sér á hestbak, hvort sem var til smala- mennsku eða skemmtiferða. Þau hjónin fóru t.d. árlega ríðandi vestur að Kaldárbakka í Kolbeins- staðahreppi að heimsækja Björn, bróður Hjálms. Höfðu þau þá marga til reiðar og minnist ég innilegrar gleði þeirra yfir þessum ferðum. Seinna áttu þau þess kost að fara í bændaferðir um landið. Kom þá mörgum á óvart að óskólagengin sveitakona skyldi þekkja nafn á hverjum bæ og hverju fjalli, þar sem um var farið. Hjálmur lést 24. febrúar 1967 var jarðsunginn 2. mars, eða nákvæm- lega 25 árum áður en Petrún kvaddi þennan heim. Eftir lát Hjálms hélt Petrún áfram búskap með Eyjólfi, syni sínum. En heils- an fór óðum að gefa sig og smám saman varð hún að farga skepnum sínum. Það var henni ekki sárs- aukalaust. Lengst af átti hún þó nokkur hross sér til augnayndis og gat boðið gestum á hestbak, þó að heilsa hennar leyfði ekki lengur að hún yrði þeim samferða. Árið 1986 fluttust þau mæðginin Petrún og Eyjólfur frá Þingnesi að Ásbrún, en þar höfðu þau eignast hús. Þarna var aðbúnaður allur ólíkt betri en verið hafði í gamla Þingneshúsinu, sem hvorki hélt orðið vindi né vatni. Samt festi Pe- trún ekki rætur þarna, þó að ná- grannar hennar reyndust henni frábærlega og vildu allt gera henni til yndisauka. Einnig hrakaði nú mjög heilsu hennar og árið 1988 fluttist hún á Dvalarheimili aldraðra í Borgar- nesi. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 2. mars, eins og áður segir. Foreldrar mínir bjuggu í tvíbýli við Hjálm og Petrúnu í Þingnesi uns þau brugðu búi árið 1958. Frá því ég fyrst man eftir mér var Pe- trún alltaf nálæg og segja má, að leiðir okkar hafi legið saman alla mína ævi. Ég minnist lítillar stúlku, sem var bundin við mjólkurvagninn í ör- yggisskyni, meðan móðir hennar brá sér í fjósið. Sú stutta undi illa ófrelsinu, en orgið þagnaði, þegar Petrún og Jóhanna móðir hennar, sem bjó hjá henni síðustu æviár sín, leystu litlu manneskjuna, báru hana niður í eldhús og héldu henni rúsínu- og kandísveislu. Ég minnist stelpuhnokkans, sem var að smala í Ásunum ásamt Pe- trúnu og fleira fólki. Klárinn hnaut, krakkinn lenti á höfuðið of- an í leirkeldu og þótti smán sín óbærileg. En Petrún kom aðvíf- andi, tók af sér höfuðklútinn, þerr- aði með honum tárin af kinnunum og leirinn úr fléttunum og á skammri stundu voru sorgirnar og sneypan á bak og burt og smala- Aöalbjörg Ingólfsdóttir Anna Ingólfsdóttir Árni Ingólfsson Siguróur Ingólfsson Flosi Ingólfsson Eysteinn Ingólfsson Lárus Pálsson Gunnar Guólaugsson Snorri Guðlaugsson Þóra Kristinsdóttir Þóranna Erla Sigurjónsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Þökkum auösýnda samúð og vinarhug við andlát og útför Jóhanns Jónssonar frá Seglbúöum \ Vandamenn y \ Okkar innilegustu þakkir fyrir þá samúö og hlýhug sem okkur var sýndur viö andlát og útför okkar ástkæra föður Jóns Helgasonar frá Lltla-Saurbæ Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Börn og fjölskyldur þeirra \__________________________Z________________________________J Jón Helgason frá Litla-Saurbæ Fæddur 8. janúar 1895 Dáinn 20. febrúar 1992 Vegna andláts afa míns langar mig að minnast hans með nokkrum orðum. Ég er fæddur í Litla-Saurbæ, eins og fleiri af mínum frændsystkinum, og alinn upp stóran hluta af minni æsku hjá afa og ömmu minni, Margréti Kristjánsdóttur, sem lést 1964 og afi syrgði mjög alla tíð. Þau bjuggu lengst af í Litla-Saurbæ í Ölfusi, í 32 ár, miklu myndarbúi, og stóru á þeirra tíma mælikvarða. Þeim varð níu barna auðið, sem öll eru á lífi, og þrjá- tíu barnabarna, auk fjórða og fimmta ættliðs, eða 83 afkomenda alls, sem nú eru á lífi. Það var oft mannmargt á heimili afa og ömmu, enda húsakost- ur góður og mikil gestrisni og allir velkomnir. Afi var dugnaðarforkur mikill, ósérhlífinn og kappsfullur, og gustaði þá stundum af honum, svo mér þótti nóg um, og ekki vorum við alltaf sammála. Eitt sinn er ég heimsótti hann á Grund, fyrir nokkrum árum, og við töluðum um liðna tíð, eins og svo oft, þá strauk gamli maðurinn mér um vangann og sagði: „Við áttum ekki alltaf skap saman, Magnús minn.“ Afi var trúaður maður og heiðarlegur, og vildi vera sáttur við guð og menn, eins og hann sagði stundum. Ég heimsótti afa nokkuð reglulega, bæði að Ási í Hveragerði og Grund í Reykjavík, þar sem hann dvaldist síð- ari ár. Hann hafði gott minni, og oft hlust- uðu böm mín með athygli á sögur af sjómennsku hans á togurum og þegar þau amma voru að byrja búskap í moldarkofum í Brunnárvallakoti, eins og hann sagði sjálfur, og þeirri hörðu lífsbaráttu á þeim tímum. Ég minnist meö hlýhug og þakklæti þeirra stunda, sem að baki eru með afa mínum, og veit að nú er hann kominn í faðm þeirrar sem hann hefur svo lengi saknað, og við afkomendur eig- um svo margar góðar minningar um. Mér finnst þessar Ijóðlínur eiga vel við sem hinsta kveðja til afa míns, hvíli hann í guðs friði. Og nú fór sól að nálgast œginn og nú vargott að hvíla sig, og vakna upp ungur einhvem daginn með eilífð glaða kringum þig. Nú opnar fangið fóstran góða og faðmar þreytta bamið sitt, hún býrþarhlýtt um brjóstið móða og blessar lokað augað þitt. Hún veit, hve bjartur bjarminn var, þótt brosin glöðu sofi þar. (Þorsteinn Erlingsson) Magnús Jón

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.